Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 21
ERLENT
HARMUR ríkti í gær í bænum San
Jose á Bohol, einni af Filippseyjum,
þegar borin voru til grafar 10 börn
sem dóu úr matareitrun á miðviku-
dag, hér sjást móðir og dóttir henn-
ar við kistu eins fórnarlambsins.
Alls létu 30 börn úr bænum lífið,
þau voru á aldrinum 7–13 ára. Um
80 börn eru enn á sjúkrahúsi en tal-
ið að þau nái sér. Börnin munu hafa
borðað karamelluhúðaðar kassava-
rætur sem götusali hafði á boð-
stólum við grunnskóla bæjarins en
sælgæti af þessu tagi er afar vin-
sælt í landinu. Að sögn sérfræðinga
er hugsanlegt að ræturnar hafi
ekki verið steiktar nógu vel en þá
geta þær valdið blásýrueitrun.
Einnig er kannað hvort ræturnar
hafi verið mengaðar skordýraeitri.
AP
Sorg í
San Jose
TUNG Chee-hwa, æðsti embætt-
ismaður Hong Kong, tilkynnti
formlega í gær að hann hygðist
láta af embætti. Kínversk stjórn-
völd skipuðu hann í embættið fyr-
ir átta árum eftir að Kínverjar
fengu yfirráð yfir bresku nýlend-
unni fyrrverandi.
Tung kvaðst láta af embættinu
af heilsufarsástæðum en margir
fréttaskýrendur í Hong Kong
telja að kínversk stjórnvöld hafi í
raun knúið hann til að segja af sér
þar sem þau treysti honum ekki
lengur til að stjórna. Mikil
óánægja hefur verið með störf
hans í Hong
Kong vegna
efnahagssam-
dráttar, meintra
pólitískra mis-
taka hans og af-
skipta kín-
verskra
ráðamanna.
Tung sagði að
aðstoðarmaður sinn, Donald
Tsang, ætti að taka við embættinu
en ekki væri vitað hvort hann yrði
skipaður til tveggja eða fimm ára.
Tung var skipaður í embættið til
fimm ára fyrir þremur árum.
Leiðtogi Hong
Kong segir af sér
Hong Kong. AFP.
Tung Chee-hwa
SAMTÖK múslíma á Spáni, Ísl-
amska ráðið, gáfu í gær út trúar-
lega tilskipun, eða fatwa, gegn
Osama bin Laden, leiðtoga hryðju-
verkasamtakanna al-Qaeda.
Hryðjuverkin í Madríd 11. mars í
fyrra, þegar 191 lét lífið, voru fram-
in í nafni al-Qaeda.
Í fimm síðna yfirlýsingu frá
ráðinu segir að hryðjuverk bin Lad-
ens og stuðningsmanna hans stang-
ist á við íslam. „Bin Laden, al-
Qaeda og allir þeir sem reyna að
réttlæta hryðjuverk á grundvelli
Kóransins brjóta í bága við íslam.“
Ráðið bætti við að hryðjuverk
væru „algjörlega bönnuð“ sam-
kvæmt íslam og öllum múslímum
bæri að fordæma þau. Því mætti
ekki líta á bin Laden og liðsmenn
al-Qaeda sem múslíma.
Ráðið hvatti einnig íslamska
klerka, sem búsettir eru á Spáni, að
fordæma hryðjuverk á bænafund-
um múslíma í dag þegar Spánverjar
minnast þess að ár er liðið frá
sprengjutilræðunum í Madríd.
Talið er að öfgamenn frá Mar-
okkó, sem styðja bin Laden, hafi
framið hryðjuverkin.
„Við höfum hvatt trúarleiðtoga til
að fordæma hryðjuverk opinberlega
og biðja sérstaklega fyrir fórnar-
lömbum hryðjuverka,“ sagði
Mansour Escudero, framkvæmda-
stjóri spænsku múslímasamtak-
anna. Þá hafa þau samið yfirlýsingu
þar sem þau „þakka spænskum
stjórnvöldum og þjóðinni fyrir af-
stöðu þeirra til múslíma“ eftir
hryðjuverkin 11. mars.
Um hálf milljón múslíma býr á
Spáni, þeirra á meðal um 230.000
innflytjendur.
Spænskir músl-
ímar fordæma
bin Laden
Madríd. AFP.
ÞÝSKAR konur, Pia Habekost og Esther Thomsen, skoða myndir í farsíma
á CeBIT-upplýsingatæknisýningunni í Hannover í Þýskalandi, mestu sýn-
ingu sinnar tegundar í heiminum. Sýningin var opnuð almenningi í gær og
henni lýkur á miðvikudaginn kemur. Alls sýna yfir 6.000 fyrirtæki nýjustu
vörur sínar á tæknisýningunni.
AP
CeBIT-sýningin opnuð