Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Avena Sativa
Fyrir góðan svefn
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Árnesaptóteki Selfossi,
Yggdrasil Kárastíg 1.
Fjarðarkaupum
Borgartúni 24
Lyfjaval Hæðarsmára
Lyfjaval Þönglabakka
Spurningakeppni | Hin árlega
spurningakeppni UMF Neista hófst
nýverið á Djúpavogi. Öllum fyr-
irtækjum, félögum og samtökum er
heimilt að skrá lið til leiks og þetta ár-
ið eru liðin orðin 14. Fyrsta keppn-
iskvöldið áttust við Vísir A og Búta-
saumur annars vegar og Hreppurinn
og Við Voginn hins vegar. Vísismenn
sáu og sigruðu Bútasauminn og
Hreppararnir báru sigurorð af Við
Voginn í fyrri umferðinni. Sigurveg-
ararnir áttust svo við og sigraði lið
Hreppsins. Í gærkvöld áttust svo við
Ósnes og Helgafell annars vegar og
Vísir B og Hótel Framtíð hins vegar.
Úrslit má finna á vef Djúpavogs-
hrepps, djupivogur.is. Spyrill í
keppninni er Björn Hafþór Guð-
mundsson sveitarstjóri. Honum til
aðstoðar er Sólný Pálsdóttir, frétta-
ritari Morgunblaðsins á Djúpavogi,
og Albert Jensson er tímavörður.
Blakmót Hugins | Góumót Hugins
í blaki verður haldið í íþróttahúsinu
á Seyðisfirði laugardaginn 12. mars.
Gert er ráð fyrir að það byrji kl. 10
og verði langt fram eftir degi, nánar
auglýst síðar. Einvörðungu konur
keppa á mótinu og eru 10 lið frá 8
stöðum þegar búin að skrá sig sem
telst frábær þátttaka.
Borgfirskur vefur | Ráðinn hefur
verið nýr fréttamaður fyrir frétta-
síðuna borgarfjordureystri.is, en
fréttaskrifum hefur lítið verið sinnt
um hríð, sem að sögn vefjarins helg-
ast m.a. af því að vefumsjónarmað-
urinn hefur ekki verið á staðnum í
vetur. Nýi fréttamaðurinn heitir
Þröstur Fannar Árnason og er sagð-
ur ungur og upprennandi Borgfirð-
ingur. Er því von til að innan
skamms komist í loftið skemmtileg
og lifandi fréttasíða.
Egilsstaðir | Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum
(LME) frumsýnir í kvöld söngleikinn Slappaðu af eftir Fel-
ix Bergsson, í leikstjórn Snorra Emilssonar. Söngleikurinn
gerist á sjöunda áratugnum og fjallar um baráttu tveggja
unglingaklíka, vinstri og hægri, ástir og átök og sameig-
inlega kvenréttindabaráttu. Leikritið tekur á alvarlegum
málefnum á gamansaman hátt. Tónlistin í leikritinu er val-
in með tilliti til tíðarandans og má þar finna þekkta slag-
ara á borð við Signed, Sealed, Delivered, Stop! In The
Name Of Love, Rescue Me og vitanlega titillagið Slappaðu
af!
Aðalleikarar sýningarinnar eru Katrín Huld Káradóttir,
Stefán Smári Jónsson, Pétur Ármannson og Hólmfríður
Rut Einarsdóttir.
Gerð leikmyndar annast Bergsteinn Ingólfsson, Guð-
mundur H. Stefánsson, Hildur Evlalía Unnarsdóttir, Böðv-
ar Pétursson, Bergþór Þorsteinsson og Dagur Björnsson
Um búninga sjá Elísabet Karlsdóttir, Harpa Sif Gunn-
laugsdóttir, Anna Margrét Óladóttir og Aldís Hauksdóttir.
Hljóðmaður er Steinar Pálmi Ágústsson og ljósamenn
eru Bergsteinn Ingólfsson og Bergvin Snær Andrésson
Sýningar verða sjö talsins í Valaskjálf og hefst sýningin
í kvöld kl. 20.
Slappaðu
af á fjalir
leikfélags
Menntaskólans
Ljósmynd/NME
Slappaðu af á fjalirnar Ástarsena Hákonar Unnars Jóhannssonar og Hildar Unnarsdóttur.
Egilsstaðir | Íbúaþing verður hald-
ið á Fljótsdalshéraði á morgun,
laugardag, undir yfirskriftinni Hér-
aðsþing – Fljótsdalshérað til fram-
tíðar.
Á íbúaþinginu verða íbúarnir og
þeirra hugmyndir í öndvegi og þar
gefst þeim og öðrum sem hagsmuna
eiga að gæta tækifæri til að taka
þátt í að móta framtíðarsýn Fljóts-
dalshéraðs á breyttum tímum.
Meðal málefna sem tekin verða til
umfjöllunar eru umhverfis- og
skipulagsmál og Fljótsdalshérað
sem gott samfélag fyrir alla. Sókn-
arfæri Fljótsdalshéraðs verða til
umræðu ásamt fræðslu-, frístunda-
og menningarmálum. Skipulagsmál
verða einnig tekin fyrir, sérstaklega
heildarmynd Fljótsdalshéraðs,
þjónustukjarnar, umhverfi, útivist,
umhverfisgæði og miðbær Egils-
staða. Samgöngur, hálendið, nátt-
úruvernd og dreifbýlið verða auk
þess sérstaklega til umræðu á
þinginu. Íbúaþingið verður í
Menntaskólanum á Egilsstöðum og
stendur yfir frá kl. 10 til 18.
Íbúar móta sitt sveitarfélag
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Móta eigið umhverfi Nú geta ungir og gamlir, undarlegir, venjulegir og
skemmtilegir haft markverð áhrif á samfélag sitt á íbúaþingi.
Rýnt í samfélagið
Neskaupstaður | Nesskóli var á
dögunum vígður við hátíðlega at-
höfn. Fór vígsluathöfnin fram í sal
skólans að viðstöddu fjölmenni.
Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri
fór yfir byggingasögu og afhenti
svo Ólafi H. Sigurðssyni skóla-
stjóra húsið formlega sem veitti
því viðtöku fyrir hönd þeirra stofn-
ana sem Nesskóli hýsir, en það eru
grunnskóli, tónskóli og almenn-
ingsbókasafn.
Árið 1998 hófust framkvæmdir
við byggingar við gamla skólann,
sem var byggður 1930 og fyrir
margt löngu orðinn of lítill. Nýja
byggingin rúmar um 400 nemend-
ur, en þeir eru í dag um 330 tals-
ins. Heildarkostnaður við fram-
kvæmdina var um 570 milljónir
króna. Ólafur H. Sigurðsson er
skólastjóri grunnskólans, Margrét
Björnsdóttir forstöðumaður
bókasafnsins og Ágúst Ármann
Þorláksson er skólastjóri Tón-
skólans.
Nesskóli vígður
eftir umbætur
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
AUSTURLAND