Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ATHYGLISVERT er viðtalið við Svanhildi Árnadóttur, forseta bæj- arstjórnar Dalvíkurbyggðar, í Mbl. miðvikud. 2. mars, þar sem hún segir að nauðsynlegt sé að ná sem bestri sátt um lokun Húsabakkaskóla. Nú liggur sú ákvörðun fyr- ir hjá bæjarstjórninni, og mér er spurn, hvar skyldi forsetinn sjá sátt um hana nema hjá hús- körlum sínum, þeim Arngrími V. Bald- urssyni og Jónasi M. Péturssyni, ásamt þeim fulltrúum í samstarfs- flokknum þeirra sem studdu þetta óhæfu- verk, þ.e. Valdimar Bragasyni bæjarstjóra og Guðbjörgu Ingu Ragnarsdóttur? Kannski meðal foreldra og kennara? Ég spyr þetta fólk, hafið þið tekið eftir uppsögnum á við- skiptum við fyrirtæki og stofnanir í byggðarlaginu, eða öðrum þeim mót- mælum sem uppi hafa verið gegn málsmeðferð ykkar? Urðuð þið aldr- ei vör við mótmælastöður og þá kröfu okkar foreldra og starfsfólks skólans að þið gerðuð okkur fullnægjandi grein fyrir þeirri þörf sem þið teljið vera á lokun skólans, og sýnduð okk- ur því sannfærandi rök fyrir því hver sparnaðurinn af þessu á að vera? Eða þótti ykkur þessi krafa e.t.v. ekki sanngjörn? Eruð þið e.t.v. ekki enn búin að nudda úr augunum þessa þrjátíu milljón króna glýju sem þið sýktust af við lestur skýrslunnar frá HA, skýrslu sem allir nema þið sem pöntuðuð hana hafa löngu séð í gegn- um? Eruð þið svo föst í málefnalegu kviksyndi ykkar og firringu að þið sjáið ekki reiðina og sorgina sem þið hafið nú valdið? Því það fór eins og ég óttaðist, þið berið á því fulla ábyrgð að búið er að særa þetta sam- félag djúpu holsári sem ógjörningur verður að græða nema á löngum tíma. Það er búið og gert og ég óska ykkur öllum til hamingju með frammistöðuna! Þið hafið nú öll gerst ómerkingar orða ykkar, og vísa ég þar í málefnasamning þann sem varð til þegar flokkar ykkar stofnuðu til meirihlutasamstarfs í bæjarstjórn- inni. Ég vísa einnig til þess sem fram kom hjá núverandi bæjarstjóra í síð- ustu kosningabaráttu hans, að ekki skyldi hróflað við Húsabakkaskóla á þessu kjörtímabili, og að ásakanir um að slíkt væri hugsanlega í far- vatninu hjá flokki hans væru fjarri öllum sanni! (Mér varð því á að kjósa Framsókn- arflokkinn í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum og grundvall- aðist sú ákvörðun á þessu kosningaloforði. Það frumhlaup mitt hefur nú bitið mig held- ur illa í bakið.) Ef þið vilduð nú aðeins opna augu ykkar fyrir því andrúmslofti sem ríkir umhverfis ykkur, hald- ið þið að þið hafið unnið til góðs að sundra þessu litla bæj- arsamfélagi með þessum hætti? Verður hagur þess betri þegar fólk tekur að tínast á braut (bæði vegna þess að fólk mun tapa vinnu sinni og einnig vegna þess að þar sem Húsa- bakkaskóla nýtur ekki lengur við er farið það akkeri sem hefur haldið mér og fleirum í búsetu í þessu byggðarlagi)? Með vísan í erindi fé- lags foreldra og velunnara Húsa- bakkaskóla til fræðsluráðs, dags. 18.10. 04, og „svar“ fræðsluráðs (sem okkur þykir harla klént og lætur enn mörgum veigamiklum spurningum illa eða ósvarað, undirritað af for- manni ráðsins og skólamálafulltrúa) dags. 9.12. 04, eruð þið öll sammála því sem fram kemur í svarbréfinu að: „Allur samdráttur hefur neikvæð áhrif á rekstrargrundvöll fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins yfirleitt en sem betur fer er slíkt ástand oft- ast tímabundið og hefur tilhneigingu til að jafna sig.“ (Spurning okkar sem þetta átti að svara var: „Hvaða áhrif hefur fækkun starfa og brottflutn- ingur af svæðinu, sem óhjákvæmi- lega kæmi til við lokun Húsabakka, á rekstrargrundvöll verslunar- og þjónustufyrirtækja hér í Dalvík- urbyggð?“) Ætli forráðamenn þess- ara fyrirtækja séu glaðir með þessa léttúðugu afstöðu til afkomu þeirra? Eða þá starfsfólk þeirra? Á hve löngum tíma teljið þið að þetta ástand muni „jafna sig“? Má skilja fræðsluráð svo að þetta geri ekki svo mikið til, og eruð þið þá sammála því? Þar sem þið hafið enn alls ekki sýnt okkur fram á hver raunveruleg- ur sparnaður þessa verknaðar getur orðið, og t.d. ekki svarað mörgum einstökum atriðum í erindi okkar til fræðsluráðs er varða fjárhagslega útreikninga, auk þess sem það vinnu- ferli fræðsluráðs í aðdraganda máls- ins sem ákvörðun ykkar nú byggist á er skv. úrskurði félagsmálaráðu- neytis kolólöglegt vegna ítrekaðra brota á rétti áheyrnarfulltrúa, er með öllu útilokað að kalla þessa nið- urstöðu málsins réttmæta. Ef þið viljið kalla eftir sátt í þessu máli, þá er boltinn hjá ykkur sjálfum, og um það tvennt að ræða að þið sýnið okk- ur ítarlegar og raunsannar tölur um þennan sparnað og virðið okkur þannig svars þar um, eða afturkallið ákvörðun ykkar frá því 1. mars sl. Að lokum þetta: Finnst ykkur virkilega sæma forseta bæjarstjórnar og bæj- arstjóra að senda okkur tóninn fram í sal á sjálfum bæjarstjórnarfund- unum, eins og gerst hefur þrásinnis í vetur, þar sem við fáum náðarsam- legast að sitja í þægilegu þagn- arbindindi og erum því ekki í aðstöðu til andsvara? Opið bréf til nokkurra bæjarstjórnarfulltrúa – skólamál í Dalvíkurbyggð Þorkell Ásgeir Jóhannsson fjallar um Húsabakkaskóla ’Ef þið viljið kalla eftirsátt í þessu máli, þá er boltinn hjá ykkur sjálf- um, og um það tvennt að ræða að þið sýnið okkur ítarlegar og raunsannar tölur um þennan sparn- að og virðið okkur þann- ig svars þar um, eða aft- urkallið ákvörðun ykkar frá því 1. mars sl. ‘ Þorkell Ásgeir Jóhannsson Höfundur á börn í Húsabakkaskóla. Á AKUREYRI er löng hefð fyrir rekstri vinnustaða þar sem fatlað fólk getur unnið eftir þeirri getu sem hver og einn hefur til að bera. Plastiðjan Bjarg var stofnuð af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra árið 1968. Þar var fyrst verndaður vinnustaður fyrir fé- lagsmenn Sjálfs- bjargar. Svæð- isskrifstofa um málefni fatlaðra tók við rekstri staðarins árið 1993 og honum var breytt í starfsþjálfunarstað fyrir fatlaða. Iðjulund- ur var stofnaður árið 1981. Staðurinn var verndaður vinnu- staður, fyrst og fremst fyrir þroskahefta. Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra sá um rekst- urinn. Frá árinu 1996 varð Ak- ureyrarbær rekstraraðili beggja staðanna samkvæmt þjónustusamn- ingi við félagsmálaráðuneyti um málefni fatlaðra. Þessir tveir vinnu- staðir voru sameinaðir árið 1999 undir nafninu Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur (PBI). Eftir að Ak- ureyrabær tók við rekstrinum urðu ýmsar breytingar. Má þar nefna að nú einskorðast möguleikar á starfs- þjálfun og starfsendurhæfingu ekki eingöngu við fatlað fólk heldur líka þá sem fá endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun og einstaklinga sem eru án atvinnu og eru í tengslum við Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra eða félagsþjónustu Ak- ureyrarbæjar. Starfsendurhæfing eða atvinnuleg end- urhæfing er fyrir þá sem þurfa að end- urhæfa sig til starfa. Ástæður þess geta ver- ið af ýmsum toga, s.s. sjúkdómar, slys eða langtímaatvinnuleysi. Algengt er að starfs- endurhæfing sé jafnhliða eða taki við af læknisfræðilegri endurhæf- ingu eða meðferð á sjúkrastofnun. Gerður er greinarmunur á starfs- endurhæfingu annars vegar og starfsþjálfun hins vegar. Rætt er um starfsendurhæfingu þegar ein- staklingar hafa einhverja reynslu af atvinnulífi frá fyrri tíð en starfs- þjálfun þegar einstaklingar hafa litla vinnureynslu, oftast eru þeir ungir að árum. Í báðum tilvikum þarf að meta getu og hæfileika hvers einstaklings og þær hindranir sem við er að stríða, síðan þarf að setja einstaklingsmiðuð markmið. Starfsmenn á PBI vinna ýmis verk í léttum iðnaðarstörfum. Framleiðslan er fjölþætt. Má nefna raflagnaefni, lambamerki, kerti, vinnuvettlinga og mjólkursíur. Einnig geta starfsmenn fengið þjálfun við skrifstofustörf, í verslun, í eldhúsi og við ræstingar á vinnu- staðnum sjálfum og í húsnæði fé- lagssviðs Akureyrarbæjar. Í tengslum við starfsendurhæf- ingu er einnig hægt að stunda starfstengt nám í Fjölmennt, t.d. ensku, tölvunám og lífsleikni ásamt fleiru. Alls geta 24 einstaklingar verið í starfsþjálfun eða starfsend- urhæfingu í einu. Reynslan hefur sýnt að alltaf eru einstaklingar sem ekki vilja eða geta farið á almennan vinnumarkað. Fyrir þá þarf að vera hægt að stunda fasta, örugga atvinnu sem hæfir getu einstaklingsins. Nú eru 28 einstaklingar í verndaðri vinnu á Plastiðjunni Bjargi – Iðjulundi. Vinnutíminn er mismunandi, allt frá fjórum tímum í viku að tuttugu tíma vinnuviku. Heildarstarfsmannafjöldi á vinnu- staðnum er um 75 starfsmenn. Eng- inn biðlisti er nú til að komast í starfsendurhæfingu. Á undanförnum árum hafa orðið viðhorfsbreytingar hvað varðar vinnu fatlaðs fólks. Sífellt meiri áhersla er lögð á að sem flestir komist út á hinn almenna vinnu- markað, fái störf sem hæfa áhuga og getu einstaklinga og þann stuðn- ing sem hver og einn þarf á að halda. Mikil og góð samvinna er meðal starfsfólks Atvinnu með stuðningi (AMS) á Akureyri og Plastiðjunnar Bjargs – Iðjulundar. Algengt er að einstaklingar komi fyrst í starfs- þjálfun eða starfsendurhæfingu á vinnustaðinn og njóti síðan aðstoðar AMS við atvinnuleit og stuðning á almennum vinnumarkaði. Gagnrýnt hefur verið að ekki sé nægjanlegt framboð í starfsend- urhæfingu og á sú gagnrýni fylli- lega rétt á sér. Líka hafa þær skoð- anir komið fram að til lítils sé að þjálfa fólk í plastiðnaðarstörfum, þau hafi ekki þjálfunargildi hvað varðar áframhaldandi störf í þjóð- félaginu. Þetta er ekki sú reynsla sem greinarhöfundur hefur. Það sem verið er að þjálfa eru ekki ein- stakar framleiðsluaðferðir heldur miklu fremur atriði eins og vönduð vinnubrögð, góðar starfsvenjur, að mæta á réttum tíma, sýna leikni í félagslegum samskiptum og fleira má telja upp. Allt atriði sem hafa mikið yfirfærslugildi til áframhald- andi þátttöku í atvinnulífi eða námi. Á Akureyri eru góðir möguleikar á að afla sér menntunar á öllum skólastigum. Það er hins vegar ógn- arstórt skref fyrir marga sem þurfa að skipta um ævistarf vegna fötl- unar eða annarra aðstæðna að afla sér menntunar án stuðnings eða undirbúnings. Það er brýnt verkefni að veita þeim einstaklingum sem ekki treysta sér í skóla góðan und- irbúning og veita nauðsynlega eft- irfylgd eftir að nám er hafið. Það er einnig brýnt að tryggja að starfs- endurhæfingarferli hefjist svo fjótt sem kostur er og að ekki myndist eyða í það ef árangur á að nást. Þar geta vinnustaðir eins og Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur komið að og að- stoðað einstaklinga við að finna út hvaða starfsgetu þeir hafa og hvaða möguleikar eru til áframhaldandi náms og starfa. Plastiðjan Barg – Iðjulundur er aðili í Samtökum um vinnu og verk- þjálfun; SVV. Vefur SVV er www.hlutverk.is. Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur – fjölmennur vinnustaður Ólöf Leifsdóttir fjallar um endurhæfingu ’Starfsendurhæfing eða atvinnuleg endur- hæfing er fyrir þá sem þurfa að endurhæfa sig til starfa.‘ Ólöf Leifsdóttir Höfundur er iðjuþjálfi og forstöðumaður Plastiðjunnar Bjargs – Iðjulundar. SÍÐUSTU fréttir af lóðauppboði borgarinnar á Norðlingaholti eru hreint út sagt ótrúlegar. Lóða- gjöld fyrir meðalstóra íbúð í fjöl- býli eru komin í 5–6 milljónir króna, undir raðhús og parhús 10– 11 millj. kr. og undir einbýlishús um 15 millj. kr. Lóðagjöldin í framhaldi af lóðaupp- boði, sem borgin var með á sama stað í júní á síðasta ári, voru 2,7 millj. kr. fyrir íbúð í fjölbýli, 4,3 millj. kr. fyrir íbúð í raðhúsum og parhúsum og 6,7 millj. kr. fyrir lóð undir einbýlishús. Íbúðaverð snarhækk- aði strax í kjölfar fyrsta lóðauppboðs borgarinnar árið 2000 en þá hækkaði lóða- verð á einni nóttu um 140%. Borgarfulltrúar R- listans fullyrða að hækkun íbúðaverðs í Reykjavík á und- anförnum árum teng- ist nánast ekkert langvarandi lóðaskorti í Reykjavík, segja raunar að framboð á lóðum hafi ekkert með verð þeirra að gera. Telja ef eitthvað er að aukið fram- boð lóða hækki lóðaverðið. Þar með snúa þeir öllum viðurkennd- um hagfræðikenningum á hvolf. Þeir sem græða vegna lóða- skorts- og uppboðsstefnu borg- arinnar er borgin sjálf og þeir byggingaverktakar sem selja lóðir á Norðlingaholti í samvinnu við borgaryfirvöld. Þeir sem tapa eru íbúar borgarinnar. Sérstaklega það fólk sem er að kaupa sína fyrstu íbúð. Skuldsetning þessa fólks er gífurleg og mánaðarleg greiðslubyrði eykst sífellt. 30 lóðir í sérstaka sölumeðferð Nú á að úthluta/selja 30 lóðir undir einbýlishús í Breiðholti. Vandræðagangur R-listans vegna sölu þeirra lóða er broslegur. Setja á fast verð á lóðirnar og byggingafyrirtæki fá ekki að sækja um, eingöngu einstaklingar. Búast má við því að 2–3 þús. manns sæki um og að 30 nöfn verði dregin úr potti. Síðan er gef- ið til kynna að þeir sem fái lóðirnar byggi þar hús og búi þar. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort R-listinn reyni að fá því framgengt að nöfnum þeirra sem fái lóðirnar verði þinglýst á lóðirnar eða húsin. Ætlar R- listinn að setja á fót eftirlitsnefnd á veg- um borgarinnar, sem fylgist grannt með því, e.t.v. mán- aðarlega, að þeir sem kaupa þessar fáu lóðir að lokum, byggi þar og flytji inn í húsin? Þegar R-listinn stendur frammi fyrir lóðaskortinum og þeirri óhugnanlegu þróun sem nú á sér stað á íbúðamark- aðnum veit hann ekki sitt rjúkandi ráð. Reynt er að búa til hinar ótrúlegustu reglur, reglur sem einkenndu okkar þjóðfélag fyrir 50 ár- um, þegar flest var af skornum skammti. Eyðum lóðaskortinum Borgarstjóri segir ítrekað að það að fá úthlutað lóð séu gæði. Þeir sem hugsa þannig munu aldr- ei leggja áherslu á að auka fram- boð lóða verulega. Það sem stöðvar það stöðn- unartímabil sem ríkt hefur í lóða- málum borgarinnar í tíð R-listans er ákvörðun borgaryfirvalda um að auka framboð lóða verulega og tryggja eðlilegt framboð lóða und- ir sérbýli og fjölbýli. Með þeim hætti er hægt að lækka lóðaverð og um leið húsnæðiskostnað fjöl- skyldna í Reykjavík. Gjaldþrota lóðastefna Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fjallar um lóðaframboð Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ’Ætlar R-listinn að setja á fót eftirlitsnefnd sem fylgist grannt með því að þeir sem kaupa þessar fáu lóðir byggi þar og flytji inn í húsin?‘ Höfundur er oddviti Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.