Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 33

Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 33
M argt er nú rætt um fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins, m.a. í yfirgrips- mikilli samantekt í Morgunblaðinu nýlega (Rík- isfjölmiðill í tilvistarkreppu, Morgunblaðið 6.3. 2005). Þar og víðar í þessari umræðu hefur ver- ið talin hin mesta nauðsyn fyrir Útvarpið að létt væri af því „framlagi“ til Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands, sem á þessu ári er sagt nema 118,5 millj. kr. Látið er líta svo út sem þetta sé hreinn „framfærslu- styrkur“, sem Út- varpið hafi verið blekkt eða kúgað til að taka á sig, og hvergi er á það minnst að neitt komi á móti „fram- laginu“ eða Útvarp- ið fái neitt fyrir snúð sinn. Af þess- um ástæðum þykir mér ástæða til að rifja upp nokkrar staðreyndir um þetta mál, sum- part sögulegar en sumpart bara bláberar staðreyndir. Það var Tónlistardeild Rík- isútvarpsins sem hafði forgöngu um að hrinda Sinfóníuhljómsveit- inni af stokkunum 1950 að sjálf- sögðu með samþykki yfirstjórnar stofnunarinnar. Tilgangurinn var fyrst og fremst sá að efla og bæta íslenskan tónlistarflutning Útvarpsins. Því markmiði var náð, m.a. með tilstyrk ríkis og Reykjavíkurborgar sem veittur var þegar á fyrstu árunum, og í kaupbæti kom svo opinbert tón- leikahald sem brátt varð veiga- mikill þáttur í tónlistarlífinu. Hér verður ekki rakin uppvaxt- arsaga hljómsveitarinnar, en að- eins minnt á það, að þegar sjálf- stæð starfsemi hennar komst í þrot 1961 sá Ríkisútvarpið sér hag í að taka við rekstrinum með þeim styrkjum frá ríki og borg sem þá voru. Þessi skipan hélst óbreytt í meira en tvo áratugi. Eflaust var reksturinn oft fjár- hagslega erfiður, en þó var hon- um haldið áfram. Það mun hafa verið Útvarpinu nokkur léttir, þegar lög voru sett um hljóm- sveitina 1982 og lagður sá rekstr- argrundvöllur hennar sem enn stendur. Þar er kveðið á um að hlutur Útvarpsins í rekstr- arkostnaði hljómsveitarinnar skuli vera 25%, en á móti veiti hljómsveitin þjónustu „miðað við þá hefð og venjur sem í þeim efn- um hafa mótast á undanförnum árum“, þ.e. meðan stjórn hljóm- sveitarinnar var alfarið í höndum starfsmanna Útvarpsins. Samkvæmt lögunum var gerð- ur samningur um þessa þjónustu við Ríkisútvarpið. Hann hefur síðar verið endurnýjaður og end- urskoðaður, en í honum felst þetta m.a.: 1. Heimild til að útvarpa beint, eða síðar af upptökum, öllum áskriftartónleikum hljóm- sveitarinnar og öðrum tón- leikum á hennar vegum. Innifalin er þátttaka stjórn- enda og einleikara/söngvara. 2. Heimild til að sjónvarpa tón- leikum eða taka þá upp fyrir Sjónvarpið til flutnings án endurgjalds. 3. Vinna við upptökur í þágu Ríkisútvarpsins, 25 vinnulot- ur á ári, allt að þrjár og hálf klst. hver lota, ásamt ótak- mörkuðum flutningsrétti á upptökunum. Þessi ákvæði hefur Útvarpið nýtt með þeim hætti að samkv. 1. lið hefur verið útvarpað um 35 sinfóníutónleikum á ári, eða sem svarar 80–90 klst. af útvarpsefni. Tónleikarnir eru glæsilegur þáttur í íslenskum tónlist- arflutningi Rásar 1, og raunar ein af helstu skrautfjöðrum dagskrárinnar. Þetta efni hefur einatt ver- ið notað umfram ströngustu heimildir, bæði í endurflutn- ingi og efnisskiptum við erlendar út- varpsstöðar. Sjónvarpsheim- ildin samkv. 2. lið má heita ónýtt með öllu. Það skal við- urkennt að ekki eru allir tónleikar ákjósanlegt sjón- varpsefni, en sumir eru það. Vín- artónleikar eru eftirsóttir í sjón- varpi í mörgum löndum, einnig óperutónleikar, svo að eitthvað sé nefnt. Og oft eru einstök verk á tónleikum sem mjög gætu lífgað sjónvarpsdagskrá, þótt tónleik- arnir séu ekki teknir í heild. Það hefur komið fyrir að öðrum sjón- varpsstöðvum hefur verið seldur upptökuréttur að einstökum tón- leikum. Verðið hefur verið lágt, á aðra milljón króna, en gefur þó hugmynd um þau verðmæti sem dagskrárstjórn Sjónvarpsins hefur ekki hirt um að nýta þótt þau standi því til boða endurgjaldslaust. Upptökutími Ríkisútvarpsins var lengi vel nýttur aðallega til upptöku á nýjum verkum ís- lenskra tónskálda, og ræktu bæði Útvarpið og hljómsveitin þannig sjálfsagðar skyldur sínar við ís- lenskt menningarlíf. Á síðari ár- um hefur slaknað á þessu, og stundum hefur Útvarpið ekki sinnt um að nota umsaminn tíma sinn. Hefur hljómsveitin þá ráð- stafað honum til annarra þarfa. Það lætur nærri að þær 25 vinnulotur sem nú eru í samn- ingnum (upphaflega fimm vinnu- vikur) séu um 10% af virkum ár- legum starfstíma hljómsveitarinnar. Þær má því meta til fjár á rétt um 52 millj. kr. Verðmæti heimildanna í 1. og 2. lið hér að ofan, nýttra og ónýttra, er erfiðara að áætla en þær yrðu vart metnar lægra en svo að „framlag“ Ríkisútvarpsins mætti telja væga greiðslu fyrir þá þjónustu sem því stendur til boða. Hitt er svo hörmuleg stað- reynd að Ríkisútvarpið hefur ekki hirt um að notfæra sér heimildirnar nema að nokkrum hluta, en það er framkvæmda- atriði sem ætti að vera umhugs- unarefni fyrir dagskrárstjórn Ríkisútvarpsins. Jón Þórarinsson fjallar um stöðu Sinfóníunnar og Ríkisútvarpsins ’Þetta efni hefur einatt veriðnotað umfram ströngustu heimildir, bæði í endurflutn- ingi og efnisskiptum við er- lendar útvarpsstöðar.‘ Um „framlag“ Ríkisútvarpsins til Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands Jón Þórarinsson Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Ríkisútvarpsins og stjórnarmaður Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 33 n segist rrverandi á að hon- á græna liðar hafi prengjum uvörpum ð skapað. ð út fyrir alda þeim i,“ bætir krafa um krifstofu- setja upp mig byss- verði þó hætta sé að ástand verður á ist götu- æðinu frá ks. Hann segir að þá blasi við að einhver Írak- anna sem þar starfi hafi komið þeim fyrir því aðeins íraskir lögreglu- menn fái að koma þangað. Aðspurður um starfsskyldur sín- ar segir Börkur að öfugt við það þegar hann vann að almanna- tengslum fyrir fyrirtæki á Íslandi þá sé það ekkert sérstaklega já- kvætt í Írak ef NATO veki of mikla athygli fjölmiðla þar, hann eigi fyrst og fremst að sinna upplýsinga- skyldu þegar til hans er leitað, en sé ekki sífellt að leita til fjölmiðla í því skyni að koma einhverju á fram- færi. Helgast þetta af hinu ótrygga ástandi sem ríkir í Írak. Írakarnir hugrakkir Um 130 manns frá sextán löndum starfa á vegum NATO í Írak en síð- an bætast við fjölmargir íraskir starfsmenn bandalagsins. Kveðst Börkur hafa aðstoðarmann frá Sló- vakíu við störf sín. Sá sé sérfróður um kjarnorkuvopn en þekki lítið til almannatengslavinnu og kunni litla ensku. „Þannig að það er heppilegt að hann er Slóvaki því við tölum bara tékknesku saman,“ segir Börkur en hann bjó um árabil í Prag. Börkur er spurður að því hvort loftið í Bagdad sé ekki lævi blandið í ljósi daglegra frétta af mannfalli, ekki síst í röðum Íraka. Hann svar- ar því að þetta megi að vissu leyti til sanns vegar færa. „Ég er að vinna með íröskum lögreglumönnum og flestir þeirra hafa misst góða vini í árásum undanfarið,“ segir Börkur. Hann bendir á að þó að fimmtán hundruð bandarískir hermenn hafi fallið í Írak frá upphafi innrásarinn- ar í mars 2003 hafi sami fjöldi íra- skra lögreglumanna beðið bana á síðustu fimm mánuðum. „Banda- ríkjamenn hafa kvartað yfir sínum öryggisbúnaði en írösku lögreglu- mennirnir mega una því að aka um á léttvopnuðum fólksbílum. Og þó eru þeir augljóst skotmark skæru- liða.“ Börkur segir aðspurður að það sé vissulega erfitt að skilja hvað reki Íraka til að taka að sér svo áhættu- söm störf. Mjög mikill áhugi sé þó fyrir hendi hjá Írökum að komast í þessi störf. „Menn hafa ekki við að taka við umsóknum. Það er eins og þeir séu þreyttir á yfirstandandi glæpa- og hryðjuverkaöldu og að hinn almenni borgari sé í meira mæli tilbúinn til að leggja sitt af mörkum,“ sagði Börkur Gunnars- son. kki að hættuna „Ég er í raun bara í skrifstofuvinnu,“ segir Börkur Gunnarsson. fa son k david@mbl.is o-Albanar eð að Ha- ð ákærður til neinna vegna og Morgun- að skýr- naj sjálfur a stillingu gn sína á ekki fyrir o-Albana, sá þriðji varð milli DK-flokks er forseti starf eftir Haradinaj var á dögum gömlu Júgóslavíu í júgóslavneska hernum og hefur haldið því fram að tilraunir hans í kjölfarið til að afla sér frekari menntunar í Pristina hafi mætt mót- stöðu hjá serbneskum yfirvöldum í héraðinu. Haradinaj flutti til Sviss 1989 og eyddi þar níu árum, vann þar ýmis störf. Hann sneri svo aftur til Kos- ovo snemma árs 1998 um það leyti sem UCK var að vaxa ásmegin og farið að skerast í odda milli UCK og öryggissveita Serba í héraðinu. Hann tók að sér leiðtogahlutverk í sveitum UCK en í átökunum sem stigmögnuðust á næstu mánuðum biðu m.a. bræður hans tveir bana. Haradinaj þykir hafa staðið sig vel á þeim þremur mánuðum sem hann gegndi forsætisráðherraemb- ættinu í Kosovo en óveðursskýin höfðu þó verið tekin að hrannast yfir höfði hans áður en hann tók við emb- ættinu, orðrómur hafði komist á kreik um að hann yrði líklega ákærður af stríðsglæpadómstólnum í Haag. Karadzic og Mladic enn frjálsir menn Boris Tadic, forseti Serbíu, sendi í vikunni frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvatti alla þá sem ákærðir hafa verið fyrir stríðsglæpi – en flestar ákærur dómstólsins í Haag hafa verið gegn Serbum, annaðhvort vegna glæpa sem voru framdir í Bosníustríðinu 1992–95 eða í Kosovo 1998–99 – til að fylgja fordæmi Har- adinajs og gefa sig sjálfviljugir fram. Raunar hafa fimm Serbar eða Bosníu-Serbar gefið sig fram í Haag á undanförnum mánuði en ekki allir hafa farið sjálfviljugir eins og Har- adinaj. Þar að auki hefur ekki verið um „stórlaxana“ að ræða, þ.e. þá tvo einstaklinga sem saksóknarar í Haag hvað mest vilja koma höndum yfir: Radovan Karadzic og Ratko Mladic, leiðtoga Bosníu-Serba í Bosníustríðinu. Hafa stjórnvöld í Belgrad gjarnan verið sökuð um að halda hlífiskildi yfir Mladic, en Kar- adzic er aftur á móti talinn í felum í serbneska hluta Bosníu. ist að Serbum á ný AP mkringdur fjölmiðlafólki er hann yfirgaf Pristina á miðvikudag og hélt til Hollands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.