Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 35

Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 35 UMRÆÐAN SKOÐANASKIPTI standa yfir um skipulag byggðar við Lauga- veg og þátttakendur hafa skipað sér í tvær fylkingar – þá sem telja nauðsynlegt að rífa mörg gömul hús til að reisa ný í þeirra stað og hina fylkinguna sem telur að hugsanlegt nið- urrifið stefni í menn- ingarslys. Sameiginlegt báð- um er löngunin til þess að Laugaveg- urinn fái að blómstra á ný sem lifandi verslunargata og báð- ir hóparnir telja að sérkenni Laugavegar beri að varðveita, að styrkur hans í samkeppni við Kringluna og Smáralind liggi í sögu hans og margbreytilegu umhverfi, nálægð við miðbæinn og fleiri atriðum af svipuðu tagi. Báðir taka undir þá fullyrðingu að Laugavegurinn hafi staðnað og jafnvel hrakað sem verslunargötu á und- anförnum árum. Nýbyggingarsinnar segja að úr sér gengin hús standi götunni fyrir þrifum. Verndunarsinnar segja að ekki megi rífa og byggja nýtt vegna þess að þá glatist söguleg vídd umhverfisins. Ég er þeirrar skoðunar að báð- ar fylkingarnar hafi nokkuð mikið til síns máls en þær haldi skoð- unum sínum fram á óheppilegan hátt. Að málflutningur þeirra mótist um of af viðbrögðum við skoðunum andstæðinganna. Stöðnuð og þvermóðskufull af- staða valdi því hins vegar að menn koma ekki auga á kjarna málsins þar sem hann liggur á vígvellinum mitt á milli skotgraf- anna þar sem hann verður fyrir hverju óhappinu á fætur öðru á meðan orr- ustan geisar. Gömlu timburhúsin við Laugaveg risu kringum aldamótin 1900 og voru eins og lög gera ráð fyrir ný- tískuleg í upphafi en aðeins örfáum ára- tugum síðar, þegar steinsteypuöldin gekk í garð, tók við niðurlægingartímabil sem stóð í meira en hálfa öld. Eftir bæjarbrunann í miðbæ Reykjavíkur árið 1915 voru timb- urhús talin óæskileg og æ síðan var stefnt að því að útrýma timb- urhúsum úr bænum og byggja hann frá grunni úr steinsteypu. Reykjavík hafði hins vegar frá upphafi byggst að langmestu leyti sem timburhúsabær. Elstu timburhúsin sem risu í Kvosinni upp úr miðri 18. öldinni höfðu sýnt af sér ótrúlega aðlög- unarhæfni. Eftir því sem bærinn stækkaði, efnahagur og athafna- frelsi jókst voru þessi litlu hús stækkuð. Nýjar byggingarstefnur settu mót á útlit þeirra og þau aðlöguðust nýjum hlutverkum mjög auðveldlega. Eitt besta dæmi um þróun af þessu tagi er Fjalakötturinn svokallaði, sem stóð við Aðalstræti. Upphaf hans var lítið, einlyft timburhús, sem á einni og hálfri öld óx í mörgum áföngum og varð að glæsilegu stórhýsi í byrjun 20. aldar og hýsti þá fyrsta kvikmyndahús landsins, veitingahús, verslun og íbúðir. Það var jafnframt fyrsta húsið í Reykjavík með glerþaki yfir innigarði. Þegar húsið var 150 ára gamalt var það fram- úrstefnulegasta hús bæjarins. Þessi gömlu timburhús sem höfðu sýnt fram á frábæra aðlög- unarhæfni voru samt sem áður líka öll dæmd til niðurrifs eftir bæjarbrunann 1915. Um 1980 var afstaða almenn- ings til þessa málaflokks tekin að breytast verulega. Stórbrunar í steinsteyptum húsum höfðu opn- að augu manna fyrir því að slíkar hættur voru ekki einskorðaðar við timburhús. Torfusamtökin sýndu rækilega fram á að jafnvel elstu og minnstu timburhúsin gátu öðlast reisn á ný og jafnvel skilað góðum arði. Frá þessum tíma má segja að timburhúsin hafi verið náðuð. Dauðadómurinn var felldur niður án þess þó að séð hafi verið til þess að þeim yrði bættur skaðinn af hálfrar aldar afleiðingum hans. Sem sagt; timburhús (ef til vill steinsteypuhús líka?) hafa alla þá aðlögunarhæfni sem þarf til þess að hægt sé að breyta þeim og bæta. Dauðadómur sem yfir hús- unum við Laugaveg hékk í meira en 50 ár hafði hins vegar þær af- leiðingar að þau hafa verið van- rækt og niðurlægð. Þau hafa ekki fylgst með í hálfa öld og því þarf núna að taka mjög stór skref til þess að koma þeim í takt við nú- tímann. Tillaga mín að málamiðlun milli þeirra fylkinga sem nú takast á um framtíð timburhúsa við Laugaveg er í stuttu máli þessi: Litið verði á það sem æskilega þróun að þeim verði breytt, þau hækkuð og stækkuð eftir því sem við á og þau löguð að nútíma verslunarháttum. Við allar slíkar breytingar verði þess vandlega gætt að byggingarsaga hvers húss verði sýnileg í útliti þess. Þannig verða gömlu húsin hentug til nútíma verslunarrekstrar og enda þótt þau kunni að standa nýjum verslunarmiðstöðum eitt- hvað að baki geta þau haldið því forskoti sem er fólgið í sérstöðu þeirra, það er að segja hinni sögulegu vídd og margbreyti- leika. Til að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd þarf frumkvæði frá borgaryfirvöldum því það þarf mjög ákveðinn vilja til þess að bæta gömlu Laugavegshúsunum ærumissinn og niðurlæginguna. Vert er að benda á að fyrirtækið Minjavernd sem er í eigu Reykja- víkurborgar og ríkisins hefur sér- hæft sig í verkefnum af þessu tagi og stóð fyrir þeim end- urbótum í Aðalstræti sem við höf- um séð að undanförnu. Borgarstjórn Reykjavíkur ætti að leysa til sín nokkur gömlu húsanna við Laugaveg, fela Minjavernd, sem reynsluna hefur, að endurbæta þau, endurbyggja og búa sem best til versl- unarrekstrar jafnframt því sem byggingarsaga þeirra yrði varð- veitt og gerð eins sýnileg og kostur er. Þessi hús yrðu síðan seld eða komið í útleigu. Einnig þurfa stjórnendur borgarinnar að finna leið til þess að tryggja að endurnýjun af þeim toga sem hér hefur verið lýst verði fjárhags- lega fýsileg fyrir húseigendur. Vel má vera að til þurfi fjárhags- lega fyrirgreiðslu, styrki eða „ívilnun“ af einhverju tagi. Þess yrði þó líklega aðeins þörf um skamma hríð eða þar til ljóst er orðið að endurbygging af þessu tagi skilar meiru en niðurrif og nýbyggingar. Með þessu fordæmi yrði braut- in rudd fyrir aðra húseigendur við Laugaveg. Orð í belg um Laugaveg Hjörleifur Stefánsson fjallar um byggingar við Laugaveg ’Litið verði á það semæskilega þróun að þeim verði breytt, þau hækkuð og stækkuð eftir því sem við á og þau löguð að nútíma verslunarháttum. Við allar slíkar breyt- ingar verði þess vand- lega gætt að bygging- arsaga hvers húss verði sýnileg í útliti þess.‘ Hjörleifur Stefánsson Höfundur er arkitekt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.