Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 39 MINNINGAR ✝ Bragi Örn Ing-ólfsson flugvirki fæddist á Sauðár- króki 27. mars 1940. Hann lést á krabba- meinsdeild LSH fimmtudaginn 3. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Unnur Hallgríms- dóttir, f. 8.1. 1918, d. 20.10. 1976, og Ing- ólfur Nikódemusson húsasmíðameistari, f. 5.7. 1907, d. 31.7. 1991. Systkini Braga eru Jónína Björg skrifstofumaður, f. 26.12. 1938, Þráinn Valur kennari, f. 9.9. 1941, Gunnar Már mjólkurfræðingur, f. 24.12. 1944, d. 11.5. 2001, Hall- grímur Þór tæknifræðingur, f. 23.9. 1946, Ingólfur Geir sjúkra- þjálfari, f. 10.12. 1950, Jón Hallur bankamaður, f. 10.11. 1957, og Anna María, f. 5.12. 1960. Bragi kvæntist 31.12. 1968 Þór- höllu Harðardóttur sjúkraliða, f. 4.4. 1944. Hún er dóttir Arnbjarg- ar Davíðsdóttur, f. 13.5. 1917, og Harðar Bakkmann Loftssonar vélstjóra, f. 8.5. 1912. Bragi og þórhalla eiga þrjá syni, þeir eru: 1) Ingólfur Birgir kerfisfræðing- ur, f. 7.9. 1967, kvæntur Kristínu Rúnarsdóttur kennara, f. 6.10. 1976. Börn þeirra eru Bragi Örn, f. 31.7. 1999, og Ey- rún Arna, f. 6.3. 2002. 2) Axel Örn sjúkraþjálfari, f. 20.5. 1972, sambýlis- kona Elva Björk Sig- urðardóttir, f. 23.10. 1974. Dóttir hennar er Amalía Rut Birg- isdóttir, f. 3.2. 1992. Börn Axels og Elvu eru Viktor Örn, f. 27.7. 1997, Aron Freyr, f. 25.5. 2000, og Dagmar Natalía, f. 27.11. 2003. 3) Davíð Þór fallhlífa- virki, f. 22.2. 1975. Sonur hans og Hólmfríðar Selmu Haraldsdóttur, f. 30.3. 1978, er Róbert Máni, f. 17.4. 2001. Bragi ólst upp á Sauðárkróki en fluttist til Reykjavíkur 1961 og hóf nám í flugvirkjun. Hann var starfsmaður Flugfélags Íslands og síðar Flugleiða allan sinn starfsaldur. Bragi var áhugamað- ur um veiðar, útivist og jarðfærði, hann tók þátt í ýmsum félagsstöf- um, m.a. Kiwanisklúbbnum Elliða, og hafði mikið yndi af tón- list. Hann söng á tímabili í Skag- firsku söngsveitinni og lengi í kirkjukór Seljasóknar. Bragi verður jarðsunginn frá Seljakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kæri pabbi. Í rúmlega 3 ár hef ég kviðið þessari stund. Eftir fundinn þar sem við fengum að heyra hvers kyns veikindi þín voru, var ljóst hvernig hlutirnir færu. En þér tókst að hafa orð lækn- isins að engu og vekja undrun og að- dáun hans með því að lifa þremur ár- um lengur en venjulegt getur talist með þennan sjúkdóm. Hvort það var viðhorf þitt og æðruleysi eða fjalla- grös og óhefðbundnar lækningar sem lengdu líf þitt er ekki vitað, en sá aukatími sem þú fékkst hér með okk- ur var vel nýttur. Ekki var hægt að sjá að veikindi þín hefðu áhrif á veiðigleðina og þeir voru ófáir veiðitúrarnir sem farnir voru næstu sumur eftir greiningu. Þó þrekið hafi ekki verið upp á hundrað, sýndirðu hina skagfirsku-tvíhendu- fluguveiði-sveiflu með glans og stóðst eins og klettur úti í ám og vötnum. Þegar þú pakkaðir veiðidótinu þínu niður síðasta haust og sagðir mér að þú hefðir ekki pantað veiðileyfi fyrir næsta sumar, var nokkuð ljóst hvert stefndi. Jafnvel áður en þú fórst nið- ur á spítala heimtaðir þú að taka til á náttborðinu, því ef það yrði ekki gert núna, yrði það einhver annar sem myndi gera það. Þegar mamma lét mig vita um ástand þitt flaug ég suður hið fyrsta og tókst á við, þó með nokkurra daga hléum, 5 erfiðustu vikur sem ég hef lifað. Þennan tíma sem þú lást á Landspítalanum gátum við rætt öðru hverju saman. Ástandið bauð ekki upp á meira en stutt samtöl. En á þeim tíma rifjuðum við upp mikið af hlutum sem við höfðum gert saman og þá sér í lagi hreindýraveiðiferðir okkar austur á land. Á þessum stund- um hugsaði ég oft um, að ég hefði getað eytt meiri tíma með þér en ég gerði síðustu árin, en ég veit að þú vildir að lífið gengi sinn vanagang og ég ætti að hugsa um konu og börn. Ég mun aldrei gleyma þínum síðustu orðum, sem þú sagðir við mig áður en mikil lyfjagjöf fór að spilla máli og minni. Í þessum orðum kristallast hugrekki þitt og viðhorf: „Ekki hafa áhyggjur af mér, þetta verður allt í lagi.“ Nokkrum dögum síðar er ég kallaður suður í hvelli. Þinn tími var kominn og ekki fórstu baráttulaust. Ég vil trúa því að þú hafir það mjög gott þar sem þú ert núna og komir við öðru hverju og sjáir barnabörnin vaxa úr grasi. Bragi Örn litli saknar þín mikið og Eyrún Arna minnist á þig í öllum sínum kvöldbænum. Ég vil að þú vitir að þú kenndir mér margt sem gert hefur mig að betri manni. Allt sem þú tókst þér fyrir hendur, smíðar og annað, var gert upp á tíu. Þú leyfðir mér að reka mig á en stóðst svo við hlið mér þegar á reyndi. Þú þröngvaðir aldrei nein- um skoðunum upp á mig, ég veit ekki enn þann dag í dag þínar pólitísku skoðanir né hvaða flokkur naut stuðnings þíns. Þú leyfðir mér að þroskast og mótast sjálfur og fyrir það er ég þakklátur. Ég vil nota tækifærið og þakka; Kristínu konu minni fyrir ómetanleg- an stuðning. Valur, í annað skiptið kemurðu mér til hjálpar með erfitt verk. Jón Hallur, hvar værum við ef þú værir ekki til staðar. Föðursystk- in, ættingjar og vinir, takk fyrir allt. Vinnuveitandi minn sem gerði mér kleift að vinna frá Reykjavík þegar þess þurfti. Starfsfólk krabbameins- deildar Landspítalans, ég hef ekki orð til að lýsa ykkar störfum. Og síð- ast þakka ég þér, pabbi, fyrir að vera faðir minn, ég hef ekki áhyggjur, ég veit að þetta verður allt í lagi. Með söknuði, þinn sonur Ingólfur Birgir. Bragi mágur minn er fallinn frá, löngu fyrir aldur fram. Síst datt manni í hug að þessi káti og kraft- mikli maður myndi fara svo ungur enda barðist hann eins og ljón við sjúkdóm sinn allt fram í andlátið. Ég var bara unglingur þegar Bragi fór að gera hosur sínar grænar fyrir Höllu systur minni. Það var því ekki fyrr en ég var sjálf fullorðin að ég kynntist Braga mági mínum fyrir alvöru og okkur varð sífellt betur til vina eftir því sem árin liðu. Bragi var drengur góður. Hann var kvikur á fæti og léttur í lund og allt fas hans vitnaði um þann sterka og lífsglaða anda sem í honum bjó. Bragi var hrókur alls fagnaðar á mannamótum, hann hafði til að bera notalega og skemmtilega kímni sem smitaði út frá sér, hann gat rætt um allt milli himins og jarðar og var mik- ill söngmaður og félagsvera. Við Siggi gleymum aldrei ferðinni sem við fórum fjögur saman til Finnlands og Eistlands. Þar áttum við systurn- ar Harðardætur og eiginmenn okkar, Ingólfssynir nokkra frábæra daga á þvælingi þar sem mikið var hlegið og grínast, ekki hvað síst vegna nafna- ruglingsins sem óhjákvæmilega kom okkur í undarlegar og neyðarlegar krísur. Bragi var skemmtilegur ferða- félagi, mikið náttúrubarn, veiðimað- ur og göngugarpur. Hann kunni manna best þá list að láta sér líða vel og njóta þess sem lífið býður upp á, jafnt einn og í fjölmenni. Hann var mjög fróður og áhugasamur um menningu, náttúru og lífshætti, gaf sér góðan tíma til að fræðast og gat því ævinlega skotið óvæntum fróð- leiksmolum að samferðamönnum sínum. Þannig var Bragi, hann las sig til um alla hluti og drakk í sig fróðleik. Hann fór að engu óðslega en vann verk sín af vandvirkni og nákvæmni og um það getur hver einasta planta í garðinum þeirra Höllu vitnað. Hann bar virðingu fyrir öllu lífi, var óþreyt- andi við að nostra við plönturnar sín- ar og ekkert var of seinlegt eða erfitt fyrir velferð þeirra. Sömu sögu geta litlu barnabörnin sagt, sem alltaf hafa átt öruggt og hlýtt skjól hjá afa og ömmu í Skriðuseli. Bragi og Halla voru sérstaklega samhent í ástúð sinni við barnabörnin og þau Amalía, Viktor, Bragi, Aron, Róbert, Eyrún og Dagmar litla sjá nú að baki elsk- uðum og dáðum afa. Það er stórt skarð höggvið í fjölskylduna okkar við fráfall Braga og hans verður sárt saknað. En Bragi skilur eftir sig bjartar og skýrar minningar. Hann notaði þverrandi krafta sína til að sinna ástvinum sínum og minnti okk- ur þannig á fornt heilræði úr Háva- málum sem við ættum öll að halda í heiðri: Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Ég veit að ég tala fyrir munn allrar fjölskyldunnar þegar ég þakka Braga fyrir þær stundir sem við átt- um með honum. Elsku Halla systir mín, Ingólfur, Axel, Davíð og fjöl- skyldur; eins og sólin rís að morgni mun minningin um góðan mann verða ykkur öllum styrkur þegar fram líða stundir og við hin munum alltaf sjá Braga í sonum hans og barnabörnum. Jóhanna G. Harðardóttir. Orustan er töpuð, vinur og sam- starfsmaður til margra ára, Bragi Örn Ingólfsson flugvirki, er allur eft- ir harða og hetjulega baráttu við ill- vígan sjúkdóm. Bragi hóf störf hjá Flugfélagi Íslands árið l962 og síðar hjá Flugleiðum árið l974. Starfssvið hans varð fljótlega öflun varahluta í flugvélar félagsins og segja má að það hafi verið hans vettvangur um nær 40 ára skeið og reynslu hans og þekkingu í þeim efnum viðbrugðið. Bragi var mjög nákvæmur og sam- viskusamur í allri sinni framgöngu á vinnustað og minni hans var með ólíkindum. Oft var leitað til Braga þegar minnið brást mönnum og oft- ast kom Bragi með svarið með slíkri nákvæmni að menn settu hljóða. Reyndar má með sanni segja að hann hafi verið frumherji tölvuvæðingar á Tæknideildinni, slíkur var minnis- bankinn og ólíkt skemmtilegra var nú að leita til hans en ópersónulegs tæknibúnaðar samtímans. Hann var víðlesinn og margfróður, grúskari mikill um allt milli himins og jarðar og ekkert virtist honum óviðkom- andi. Eftir að Bragi greindist með sjúkdóm þann er dró hann til dauða, varð hann að draga sig í hlé frá vinnu og hans var sárt saknað. Vinnustað- urinn var ekki sá hinn sami. Einn kemur þá annar fer segir máltækið, en það var ekki til nema einn Bragi Örn. Hann var þó í góðu sambandi við gömlu félagana og ávallt bar hann sig vel þó vitað væri að hann væri sárþjáður. Ekkert líf er án dauða og enginn er dauðinn án lífs, því er það bjargföst trú mín að þó orustan hafi tapast þá hafi stríðið unnist. Ég sé Braga fyrir mér hressan og kátan reiðubúinn að takast á við ný verkefni á sinn hátt eins og við munum hann svo vel, stutt í brosið, húmorinn og hláturinn. Þannig vil ég muna hann. Ég votta eftirlifandi eiginkonu hans, börnum og ástvinum öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ólafur Ág. Þorsteinsson. Leiðir okkar Braga lágu saman er hann hóf nám í flugvirkjun haustið 1961 ásamt 14 öðrum ungum mönn- um hjá Flugfélagi Íslands. Strax komu í ljós eiginleikar unga manns- ins frá Sauðárkróki, hann var vel yf- irvegaður, samviskusamur og vand- virkur í öllu starfi sem og öðru er að höndum bar. Hann hafði skemmti- legan húmor svo ekki var hægt að hugsa sér skemmtilegri vinnufélaga. Sé minnst á námsárin voru þau við- burðarík og skemmtileg, alltaf eitt- hvað nýtt að ske. Þegar ungu menn- irnir voru að skemmta sér var Bragi alltaf hafður í forystu með gítarinn þar sem hann spilaði og söng og hreif alla með sér, er Bragi fór var skemmtuninni lokið. Strax eftir að námi lauk réð hann sig á innkaupadeild í viðhaldsdeild Flugfélags Íslands og síðar Flugleiða er hann starfaði hjá allt til loka. Þarna var kominn réttur maður á réttan stað því hann var athugull með afbrigðum og engin pöntun send fyrr en hann hafði marg yfirfarið viðkom- andi pöntun og jafnvel á stundum rætt við þá menn er höfðu gert kröfu um viðkomandi hlut. Hann var sér- stakt ljúfmenni að vinna með, talaði aldrei illa til nokkurs manns og gerði alltaf gott úr öllu sem honum líkaði ekki að heyra. Í byrjun árs 2000 veiktist Bragi skyndilega er við vorum á leið til vinnu í Keflavík. Farið var með hann á heilsugæslustöðina í Keflavík og þaðan til Reykjavíkur. Þetta kom mjög flatt upp á okkur vinnufélagana því Bragi var að tala við okkur nokkr- um mínútum áður og virtist hinn hressasti. Hann kom aftur til vinnu eftir nokkurt hlé er hann hafði geng- ið í gegnum ýmsar rannsóknir. Haustið 2001 var ákveðið að minnast þess að 40 ár væru liðin síðan við hóf- um nám í flugvirkjun. Var farið í vikuferð til Krítar, Bragi virtist ekki vera eins sprækur og vanalega í ferð- inni en hann bar ekki á borð veikindi sín. Er heim kom veiktist hann heift- arlega, var lagður inn á sjúkrahús og kom þá í ljós hvað að var og ljóst að hann átti ekki afturkvæmt til vinnu. Ég kveð þig, kæri vinur, fyrir hönd okkar félaganna er hófum nám sam- an 1961 með ósk um að þjáningar þínar séu að baki. Þórhöllu, börnum og barnabörn- um vottum við dýpstu samúð og von- um að Guð veri með ykkur öllum. Hálfdán Hermannsson. Æskuvinur minn, bekkjarbróðir og veiðifélagi, Bragi Örn Ingólfsson, hefur kvatt eftir erfiða baráttu við andstæðing sem margan góðan dreng hefur lagt að velli. Við sem þekktum Braga og vissum um hæfi- leika hans til að takast á við lífið í blíðu og stríðu vorum jafnvel undr- andi á hversu hart hann barðist vit- andi það að hann hlaut að bíða ósigur. Hann vissi að hverju fór en missti samt ekki lífsþorstann og naut hverr- ar stundar uns yfir lauk. Milli æskuheimila okkar Braga var varla meira en svo sem tvö hagla- byssufæri. Ég, alinn upp sem ein- birni, sótti mikið heim til hans og kynntist þar gjörólíkum heimilisbrag og andrúmslofti sem var frábrugðið mínu, framandi og heillandi. Þar var stór fjölskylda sem heiðurshjónin Ingólfur Nikódemusson og Unnur Hallgrímsdóttir, foreldrar Braga, stjórnuðu hvort með sínu lagi sem var að ég tel góð blanda af hæfilega ströngum aga föður og blíðu og glað- værð móður. Bragi var næstelstur átta systkina, jafnaldri minn. Ég tel hann hafi tekið í arf marga bestu kosti foreldra sinna. Það yrði of langt mál að rekja þó ekki væri nema lítið brot af því sem við Bragi brölluðum saman í æsku og á unglingsárunum. Ég læt nægja að nefna tvennt, sameiginleg- an áhuga á tónlist og veiði. Hvað hið fyrra varðar verður ekki undan því vikist að nefna gamla handsnúna grammófóninn sem sá laghenti vinur okkar Ási Jóns hélt gangandi með sínum fimu fingrum. Á hann voru spilaðar löngum stundum í kjallaranum heima 78 snúninga plöt- ur með fjölbreyttri tónlist: ,,When the Swallows come back“ með Gene Autry, ,,Jingle Bells“ með Fats Wall- er, ,,Buldi við brestur“ með Karlakór Reykjavíkur, en mest þó jazz. Svo kom Presley og um það leyti eign- aðist Bragi sinn fyrsta gítar. Fram að því höfðum við sungið mikið saman án undirleiks en Bragi náði fljótt góð- um tökum á strengjunum og söng- urinn varð fágaðri og ekki þurfti söngvatnsvið í þá daga. Frá upphafi okkar kynna stunduð- um við stangveiðar saman, félagarnir Bragi og Halli. Þetta var frumstæð- asta útgáfa af slíkum veiðum í fyrstu þ.e. að skutla smásilunga í Sauðánni sem þá rann í gegnum bæinn. Síðar eignuðumst við betri tæki og fjaran varð helsti vettvangur okkar við sjó- birtingsveiðar í sjónum. Bragi var þar fremstur meðal jafningja, það var oft lyginni líkast hve fengsæll hann var. Svo gerðist það sem oft vill verða. Við gömlu félagarnir fórum í ýmsar áttir til náms og starfa og án þess að það væri ætlan vor eða nokk- ur ástæða til, þá slaknaði á gítar- strengjum okkar og samsöngurinn hljóðnaði. Að lokum náðum við sam- an á ný og áttum ári góðan enda- sprett saman. Svona er lífið. Við Lísa sendum Höllu og fjöl- skyldu svo og systkinum Braga okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Pétur. Á tungunni þar sem Sauðáin tók á sig krók og rann til suðurs og síðan til sjávar og bærinn dregur nafn sitt af stóðu æskuheimili okkar Braga. Heimili mitt Ártunga stóð vestan við vaðið yfir ána, en Arnarhvoll heimili Braga er austar á tungunni, nær sjónum, og gatan sem síðar varð Freyjugata þar á milli. Á þessari tungu lifðum við og hrærðumst, lék- um okkur við ána, við sjóinn og síðar þegar við urðum aðeins eldri stækk- aði sjóndeildarhringurinn og allur Sauðárkrókurinn vað að þekktri stærð með ótal ævintýrum og leyni- legum stöðum sem enginn vissi um nema við. Stórir bardagar voru háðar með alvæpni úr tré frá pabba Braga sem var trésmiður með verkstæði á fjörukambinum, leiksýningar í kjall- aranum heima, dorg á bryggjunni og síðar netaveiði með ströndinni og stangveiði. Við vorum vinir – frá bernsku og til þíns síðasta dags. Þannig liðu æskuárin okkar og unglingsárin, endalaus ævintýri með þér og vinum okkar sem fjölgaði smátt og smátt. Eftir unglingsárin fór vinahópur- inn að tvístrast eins og gengur, þú fórst á vetrarvertíð í Eyjum, ég fór í vinnu á Króknum, Pétur og Ási í menntaskóla í Reykjavík og á Akur- eyri og síðan í háskólann og vorum við þá allir vinirnir komnir til Reykjavíkur. Þér bauðst að fara á samning í flugvirkjun í fyrsta hópnum hjá Flugfélagi Íslands og um svipað leyti fór ég í nám í rennismíði, Ási í ensku í háskólanum og Pétur í tannlækna- nám. Námsárin í Reykjavík skilja eftir minningar um margar góðar stundir en örlögin tvístruðu hópnum aftur, þú varðst eftir í Reykjavík með kon- unni þinni Höllu og drengjunum ykk- ar þrem Ingólfi, Axel og Davíð. Pétur og fjölskylda fóru á Krókinn þar sem hann varð tannlæknir og Ás- mundur og fjölskylda fóru til Akur- eyrar þar sem hann varð mennta- skólakennari, en ég fór í nám til útlanda. Eftir að ég kom frá námi höguðu örlögin því svo að báðir sett- um við niður heimili okkar sömu megin við lítinn læk sem rennur eftir litlum dal og klýfur Seljahverfið í Reykjavík. Þú reistir ykkur glæsi- legt hús og garð sem þú gafst allar þínar frístundir og eftir að þú veiktist og síðasti bardaginn var hafinn var það hann sem gaf þér viðbótarkraft og útiveran sem þú stundaðir af eld- móði. Elsku Bragi, þín er sárt saknað og stundanna sem við hjónin áttum með þér og Höllu í gegnum árin, guð laun fyrir þær. Þú varst vel af guði gerður til líkama og sálar og allt sem hægt er að segja gott um mann, það gast þú borið með sóma. Að eiga þig sem vin í gegnum lífið eru mikil forréttindi sem ég get aldrei fullþakkað forsjón- inni. Vertu sæll að sinni og guð veri með þér og líkni þínum nánustu. Konunni þinni Höllu og sonum þínum Ingólfi, Axel og Davíð votta ég mína dýpstu samúð og guð veri með ykkur í sorginni. Þinn vinur Haraldur. BRAGI ÖRN INGÓLFSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.