Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 40

Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hallgrímur AxelGuðmundsson fæddist að Grafar- gili í Önundarfirði 23. apríl 1943. Hann andaðist á Landspít- alanum í Fossvogi 4. mars síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ólöf Jóhanna Bern- harðsdóttir, f. 24. feb. 1916, d. 20. febrúar 1996, og Guðmundur Hall- grímsson, f. 27. júní 1915, bóndi og skíðakennari frá Grafargili. Systkini Hallgríms eru: 1) Garðar Helgi Guðmunds- son f. 17. október 1945, verkfræð- ingur, kvæntur Gun Guðmunds- son, d. 2. nóvember 2004. Börn þeirra eru Ingrid Jóhanna, Anna Karolina, Þór Egill, Charlott og Amanda. Garðar er búsettur í Tyrklandi. 2) Aðalsteinn Snævar Guðmundsson, f. 25. ágúst 1950, viðskiptafræðingur, kvæntur Hrönn Kristjánsdóttur. Börn þeirra eru Ársæll, Anna Rakel og Ólafur Snævar. 3) Kristín Salóme skólann í Reykjavík og lauk námi sem húsasmiður 1964. Meistara- réttindi hlaut hann 1967. Árið 1968 fór Erla kona hans í fram- haldsnám í Danmörku og vann hann við smíðar þar á meðan. Síðar fluttu þau til Svíþjóðar og þar lauk hann m.a. kennaraprófi við Háskólann í Gautaborg árið 1970. Fjölskyldan flutti svo til Hafnarfjarðar 1974 og hóf hann þá kennslu við Flensborgarskóla og síðar við Iðnskólann í Hafn- arfirði. 1989–90 flutti fjölskyldan aftur til Svíþjóðar þegar Hall- grímur fór í hönnunarnám við há- skólann í Karlstad. Hann starfaði mikið að félagsmálum kennara og sat þar oft í stjórnum. Hann hlaut fjölmarga styrki fyrir frum- kvöðlastörf sín. Hann vann að uppbyggingu verknámsdeilda í hinum ýmsu framhaldsskólum og gerð kennslugagna. Bæði þýddi hann og samdi námsefni sem og sveinspróf. Hallgrímur var meðlimur í Karlakórnum Þröstum í Hafnar- firði. Hann ferðaðist mikið innan- lands sem utan. Hallgrímur greindist með MND-sjúkdóminn fyrir tæpum þremur árum en starfaði við Iðnskólann fram á vorið 2004. Hallgrímur verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Guðmundsdóttir, f. 21. mars 1959, gift Magnúsi Harðarsyni. Börn þeirra eru Dav- íð, Hörður og Birgir. Hallgrímur kvænt- ist 3. júlí 1965 Erlu Friðleifsdóttur þroskaþjálfa, f. 29. jan. 1943. Foreldrar hennar eru Guðrún Ingvarsdóttir, f. 8. ágúst 1921, og Frið- leifur Egill Guð- mundsson, skrifstofu- stjóri í Hafnarfirði, f. 22. júlí 1920, d. 21. maí 1988. Börn Hallgríms og Erlu eru 1) Friðleifur, f. 26. mars 1965, auglýsinga- og margmiðl- unarfræðingur. 2) Guðmundur Örvar, f. 1. október 1971, sjón- fræðingur, maki Sigríður Arnar- dóttir, f. 1971. Dóttir þeirra er Urður Vala, f. 2003. 3) Alma, f. 22. apríl 1976, flugumferðar- stjóri, maki Hákon Orri Ásgeirs- son, f. 1974. Hallgrímur gekk í skóla á Flat- eyri og síðan í Reykjaskóla. Hann stundaði nám í húsasmíði við Iðn- Það er bjart yfir minningunum frá þeim dögum þegar Erla kynnti Hallgrím (Halla) fyrir fjölskyld- unni. Við bræður hennar töldum víst að eitthvað spennandi væri í gangi því hún var komin með ný áhugamál, skíðaferðir og jeppaferð- ir. Og skýringin kom holdi klædd í þessum hávaxna, myndarlega og glaðværa bóndasyni vestan frá Ön- undarfirði sem var við nám í húsa- smíði í Iðnskólanum í Reykjavík. Þau hófu búskapinn í risinu yfir fjölskylduíbúðinni á Ölduslóð 5 í Hafnarfirði haustið 1964. Við dáð- umst að hagleik Halla við að ljúka innréttingum á loftinu, sem notað hafði verið hálfkarað frá því fjöl- skyldan flutti í húsið þremur árum fyrr. Þarna var greinilega völundur að verki. Svo fæddist ungu hjón- unum elsti sonurinn, þau fluttu í leiguíbúð í Kópavogi og síðan á Skúlaskeið í Hafnarfirði, en sam- gangur var áfram mikill í fjölskyld- unni og þannig hefur það verið í yfir fjörutíu ár. Halli var mjög góður skíðamaður og æfði með skíðadeild Ármanns þegar leiðir þeirra Erlu lágu saman. Guðmundur faðir hans hafði á sín- um yngri árum farið á skíðaskóla í Noregi og ásamt búskapnum á Grafargili í Önundarfirði hafði hann starfað sem skíðakennari á Vest- fjörðum. Skíðamennskan var greini- lega í genunum. Árið 1965 gekk Halli á Þórisjökul með tveimur okk- ar máganna ásamt hópi manna úr Hafnarfirði. Flestir í hópnum voru hjálparsveitarmenn. Halli var sá eini sem lagði á brattann með skíði um öxl. Sumir undruðust að hann skyldi nenna að dröslast með níð- þung skíði og skó upp þessar bröttu brekkur. Þegar tindinum var náð og búið að njóta útsýnisins á þessum heiðríka síðsumardegi spennti Halli á sig skíðin. Það er okkur ógleym- anlegt sem á horfðum að sjá þennan færa skíðamann fara í tignarlegu svigi niður fannhvítan jökulinn. En þetta lýsir mörgu í fari Halla. Hann lagði mikið á sig við undirbúning hvers verkefnis en gat síðan notið ríkulegs árangurs. Halli starfaði við húsasmíðar fyrstu árin eftir að hann lauk iðn- námi, en sneri sér síðan að kennslu. Hann var þó áfram mjög eftirsóttur í ýmiss konar smíðaverk í frístund- um og á sumrin, enda ákaflega verklaginn og útsjónarsamur, bæði við nýbyggingar og viðhald húsa. Þar naut tengdafjölskyldan elju hans og kunnáttu í stórum verkum og smáum. Hann hafði mikinn áhuga á hönnun svo og nýtingu ís- lensks byggingarefnis og kom það m.a. vel í ljós þegar hann byggði, eigin höndum, fjölskylduhúsið við Hraunbrún og notaði íslenskt lerki í eldhúsinnréttinguna. Hann var mik- ill áhugamaður um tæknisögu, verkmenningu og verklag fyrri tíma og hafði gaman af að miðla nýfengn- um fróðleik til vina og vandamanna. Hann hvatti m.a. ítrekað til að elsti vatnsstokkurinn ofan við Hafnar- fjörð yrði varðveittur og endur- byggður, en talaði þar fyrir daufum eyrum ráðamanna. Halli og Erla gengu mikið um hraunin umhverfis Hafnarfjörð og suður með sjó og skoðuðu bæjar- rústir, verbúðir og fjárbyrgi. Við í stórfjölskyldu Erlu nutum leiðsagn- ar hans í stuttum ferðum og löngum um slóðir liðinna kynslóða. Þau Erla nutu fegurðar hraunsins á öll- um árstímum og fluttu m.a. nokkra hraunsteina og gróður heim í garð og hlutu viðurkenningu Fegrunar- félags Hafnarfjarðar. Halli og Erla höfðu mikla ánægju af að ferðast um landið. Þau fóru flest sumur með börnin í tjaldferðir og ferðir í fjallaskála, gjarnan við veiðivötn þar sem hægt var að renna fyrir silung. Oft voru þessar ferðir farnar í samfloti við aðra í fjölskyldunni. Halli var kappsamur og athugull í fjallgöngum og kann- aði oft hellisskúta, gil og fjallsrana í leiðinni á tindinn meðan flest okkar hinna í fjölskyldunni héldum okkur við troðnar slóðir. Á síðari árum voru það helst unglingarnir sem gátu fylgt honum eftir í prílinu. Þótt MND-sjúkdómurinn væri þá þegar farinn að setja mark sitt á Halla lét hann sig ekki muna um að hlaupa upp á topp Heklu og Snæfellsjökuls sumarið 2003. Það var erfitt fyrir jafnkappsfull- an mann og Halla að þurfa að horf- ast í augu við ólæknandi tauga- hrörnunarsjúkdóm. Af dæmafárri hetjulund og æðruleysi mætti hann örlögum sínum og heyrðist aldrei kvarta. En hann ákvað að gefa ekk- ert eftir, afneita óvininum og standa meðan stætt væri. Erla og börnin stóðu þétt við bakið á honum og gerðu allt sem þau gátu til að gera honum kleift að lifa sem eðlilegustu lífi, vera sem mest heima á Hraun- brún og njóta þeirrar tilbreytingar sem möguleg var. Þannig fóru þau Erla með félögum hans í Karla- kórnum Þröstum á kóramót í Wales í fyrrasumar, þótt hann gæti ekki lengur sungið með. Og í nóvember sl. fóru þau hjón með dóttur og tengdasyni í helgarferð til London. Í janúar sl. vildi hann endilega taka gönguskíðin með sér í helgarferð í Biskupstungur. Halli var einkar hógvær í fram- göngu og vandur að virðingu sinni. Hann var ráðhollur og raungóður, glaðvær og greiðvikinn. Þegar þrekið minnkaði og tjáskipti við aðra urðu erfiðari var gott að eiga tónlistina að vini. Halli hlustaði alla tíð mikið á tónlist og fyrir utan karlakórasöng hafði hann sérstakt yndi af góðum djassi og sótti tón- leika þegar tækifæri gáfust. Nú þegar leiðir skilja, í bili, er okkur efst í huga þakklæti fyrir rúmlega 40 ára vináttu og einstaka gestrisni, þakklæti fyrir hjálpsemi við fjölskyldur okkar í smáu sem stóru og sérstakar þakkir fyrir óbrigðula þolinmæði og umhyggju fyrir tengdaforeldrunum alla tíð. Ef það væri til tengdasonarorða hefði Halli átt að verða fyrstur til að hljóta hana. Blessuð sé minning Hallgríms Axels Guðmundssonar. Egill Rúnar, Ingvar Birgir og Guðmundur Ómar Friðleifssynir. Þótt vitað hafi verið að hverju stefndi er ákaflega erfitt að trúa því að hann Halli sé nú farinn frá okk- ur, hann sem hefur verið svo stór hluti af lífi okkar í svo langan tíma. Minningarnar hrannast upp. Sú fyrsta er um 11 ára stelpu sem beið þess í ofvæni að sjá kærastann hennar stóru systur. Og það urðu svo sannarlega engin vonbrigði þeg- ar hann birtist og reyndist vera bæði sætur og skemmtilegur og auk þess átti hann Willisjeppa sem var nú ekki amalegt. Fjölskyldan tók honum opnum örmum og fljótlega kom í ljós að Halli var ákaflega hjálplegur á allan hátt. Að fá smið í hópinn var frábært og alltaf var hann til í að hjálpa öðrum, hvort sem um var að ræða að koma fyrir uppþvottavél í gömlu eldhúsi, skipta um þak eða jafnvel byggja heilt ein- býlishús. Halli hafði alla tíð mikinn áhuga á hönnun, enda hafði hann næmt auga smiðsins og listræna hæfileika sem þau verk sem eftir hann liggja bera glöggt vitni um. Hann hafði mikinn áhuga á djasstónlist og þátt- taka hans í karlakórnum Þröstum veitti honum einnig mikla ánægju. Eitt helsta áhugamál Halla var hins vegar útivist af ýmsu tagi og var hann mikið fyrir að fara í göngu- ferðir og vildi hann þá helst fara ótroðnar slóðir þvert yfir úfin hraun og yfir illkleif fjöll. Ferðalögin sem við höfum farið með þeim Erlu og Halla og krökkunum eru nánast óteljandi og minningarnar um skemmtilegar stundir saman heima og heiman eru dýrmætur fjársjóður fyrir okkur. Nú seinni árin hefur stórfjölskyldan farið saman í eina ferð á sumri og þá gjarnan upp í óbyggðir, og í þeim ferðum hljóp Halli án þess að blása úr nös með unga fólkinu upp á fjöll og jökla langt á undan þeim sem voru á svip- uðu reki og hann. Ári eftir að hann greindist með þann illvíga sjúkdóm sem nú hefur lagt hann að velli gekk hann til dæmis bæði á Heklu og Snæfellsjökul. Það var engu lík- ara en að hann væri einfaldlega ekki tilbúinn til að viðurkenna fyrir sjálfum sér að hann væri veikur og því hélt hann áfram allt til hins síð- asta að ferðast og njóta þeirrar ánægju sem lífið hafði upp á að bjóða. Í okkar augum var hann sannkölluð hetja sem ekki gafst upp fyrr en í fulla hnefana. En hann stóð ekki einn í þeirri baráttu sem hann háði, því við hlið hans stóðu Erla og krakkarnir traust og örugg og gerði fjölskyldan allt fyrir hann sem þurfti að gera svo til hjálparlaust. Og litli sólargeislinn hún Urður Vala gaf afa sínum ómældar ánægjustundir. Nú að leiðarlokum þökkum við honum Halla fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur og allar ánægju- stundirnar. Elsku Erla, Friggi, Örvar, Alma, Sirrý, Hákon og Urð- ur Vala, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þóra Lovísa, Hallur, Þorsteinn Arnar og Guðrún. Starfsmenn Iðnskólans í Hafnar- firði sjá nú á bak mætum samstarfs- manni, Hallgrími Guðmundssyni kennara. Hallgrímur lét af störfum vegna heilsubrests á sl. vori. Hann hafði starfað áratugum saman við skólann og var vafalítið í framvarð- arsveit þeirra kennara sem gerðu skólann að því sem hann er í dag. En skólinn hefur vaxið og eflst síð- ustu árin fyrir verk slíkra manna. Hallgrímur var vestfirskrar ætt- ar, fæddur í Önundarfirði og honum fylgdi myndarskapur átthaganna til orðs og æðis. Það var sem fylgdi honum reisn og prýði fjallanna í Ön- undarfirði og fólksins þar. Hann bar svipmót þeirra og varðveitti upp- runa sinn vel en einmitt það lýsir oft hvern mann við geymum. Þetta sýndi sig m.a. í því hvað allt sem ís- lenskt var, land, þjóð og tunga, átti sterkar rætur í honum og kom fram í ást hans á íslensku landi og þjóð- menningu. Í kennslu var Hallgrímur ástríðu- fullur og lagði sig fram um að skila nemendum til aukins þroska og verkþekkingar. Í þeim efnum var ekki komið að tómum kofunum því Hallgrímur var einstaklega hæfur í störfum sínum og mikill hagleiks- maður. Hann leitaðist við meðan hann starfaði að kennslu að gera námið aðgengilegra og áhugaverðara fyrir nemendur sína. Hafa margir mikið af honum lært í þeim efnum. Um hagleik hans og verksnilli vitnar allt handverk sem hann lætur eftir sig og ber þess vitni að þar var völundur á ferð. Hallgrímur var ljúfur maður í umgengni og félagslyndur. Við sam- starfsmenn hans nutum þeirra kosta hans og góðs vilja við að halda uppi og efla samstöðu og fé- lagsþroska innan skólans. Gleði hans yfir að taka þátt í samverum okkar mátti sjá í óvenjulegum glampa augna hans og sýndi að þar var gengið fram af lífi og sál. Hann var söngvinn og glaður í hópi vina og samstarfsmanna. Fyrir fáum árum tók að bera á því að Hallgrímur gekk ekki heill til skógar. Hörmulegur sjúkdómur hafði heltekið hann og ljóst var frá upphafi að því stríði gæti aldrei lyktað nema á einn veg. Aðeins tím- inn var óviss. Það hefur verið mikil reynsla að fylgjast með hetjulegri baráttu Hallgríms við þennan ill- skeytta sjúkdóm sem smátt og smátt gekk nær honum og nær og svipti að lokum þennan glæsilega mann flestu því sem hafði prýtt hann. Æðruleysi hans var einstakt og aðdáunarvert. Það var lærdóms- ríkt að fylgjast með því hvernig honum tókst að varðveita anda sinn heilan og gleði sálarinnar þótt heils- an brysti sem gerði honum æ örð- ugra um vik. Hann hafði einsett sér að gera sjálfum sér og öðrum þetta stríð ekki erfiðara en þyrfti. Það er e.t.v. einmitt í slíkum nauðum, í slíkum eldi sem á það reynir hvern mann við geymum, rétt eins og gull- ið sem prófast í eldi. Hetjuleg barátta hans og fram- ganga öll í veikindunum hlýtur að verða okkur sem eftir stöndum á lífsins strönd eftirminnileg og eft- irbreytniverð. Við færum Hallgrími bestu þakk- ir fyrir samfylgdina og sendum konu hans og fjölskyldu allri inni- legustu samúðarkveðjur. Megi þeir huggast sem hryggðin slær. Samstarfsfólk við Iðnskólann í Hafnarfirði. „Að heilsast og kveðjast það er lífsins saga.“ Til þessara orða verð- ur mér hugsað nú. Ég minnist þess er ég kom til starfa hjá Iðnskól- anum í Hafnarfirði 1999 og heilsaði einum af mínum frábæru sam- starfsmönnum þar, honum Hall- grími Guðmundssyni, kraftmiklum og hraustum. Þá datt mér ekki í hug að við félagar hans myndum kveðja hann í dag aðeins sex árum seinna. Þegar „ungur“ kennari hefur störf er honum margur vandi á höndum, og gildir þá jafnan einu þó einstaklingurinn telji sig hafa nokkra menntun og reynslu með í farteskinu. Þannig var mér allavega farið þegar ég fetaði mínar fyrstu annir í kennslunni. Frá byrjun þurfti ég að takast á við að kenna ýmsa áfanga í byggingagreinunum. Þá var gott að geta leitað til reyndra og velviljaðra samstarfs- manna. Hallgrímur var einn þeirra, hann hafði gríðarlega reynslu og mikinn metnað fyrir kennslu verk- menntagreina. Hallgrímur hafði kennt um langa hríð byggingagrein- ar, þýtt námsbækur og námsefni, og gert viðbótarnámsefni af stakri al- úð. Oft leitaði ég í smiðju til hans og alltaf voru bæði leiðsögn hans og gögn jafn auðfengin. Stundum fylgdi hvatning um að ég héldi verk- inu áfram og jafnvel bætti um bet- ur. Þannig áttum við samleið frá fyrstu önn í IH. Við fylgdumst að í kennslunni, síðan í félagi fagkenn- arra í tré- og byggingagreinum (FTB), þar sem hann var mjög virk- ur og hafði verið formaður um skeið. Síðar ferðuðumst við saman á vegum FTB innan lands og utan og áttum skemmtilegar stundir. Í starfi mínu í IH og fyrir FTB rakst ég víða á verk Hallgríms í þágu verkmenntanna. Já, kæri Hallgrímur, við áttum skemmtilega samleið, og skiptumst oft á skoðunum um möguleika verk- menntunar á Íslandi og þú fylgdir þinni skoðun jafnan eftir af eldmóði og þekkingu. Síðan ertu greindur með MND og mikil og erfið barátta hefst. Ég fylgdist með ótrúlegum dugnaði þínum á þeirri erfiðu leið. Þar kom að þú gast ekki lengur tjáð þig með orðum, en sýndir þá hvað þér fannst og þótti um einstök mál með höfuðhreyfingu og andlits- dráttum og jafnan brosi, og skoðun þín orkaði ekki tvímælis. Áhuginn og velviljinn voru alltaf fyrir hendi. Samveran var gefandi fyrir mig og vil ég nú þakka þér og þinni stór- kostlegu fjölskyldu þessar stundir. Það eru menn eins og þú sem aldrei gefa upp viljann til lífsins, sem minna okkur hin á hvers virði lífið er. Sértu kært kvaddur að leiðarlok- um, kæri vinur. Erlu konu þinni, börnum og ást- vinum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Henrý Þór. Það kom illa við okkur félaga í Karlakórnum Þröstum er við frétt- um andlát félaga okkar, Hallgríms Guðmundssonar. Fráfall hans kom reyndar ekki á óvart, því hann hefur átt í baráttu við ólæknandi sjúkdóm um tveggja ára skeið. Hallgrímur var góður félagi. Hann vann sér traust og virðingu félaga með prúðmennsku og ósér- hlífni í störfum fyrir karlakórinn. Hann sat í stjórn kórsins í mörg ár og starfaði með okkur eins lengi og hann gat. Sumarið 2004 fórum við í söngferð til Wales og Hallgrímur og Erla komu með okkur. Þá var Hall- grímur orðinn mjög máttfarinn og gat ekki sungið með okkur, en hann vildi vera með eins lengi og nokkur kostur var. Það er háttur sannra fé- laga. Hann kom til starfa sl. haust við að koma skipulagi á allt það sem skrifstofan í Þrastaheimilnu hefur að geyma. Nú er aðgengið allt ann- að, þökk sé Hallgrími. Í dag syngjum við yfir félaga okk- HALLGRÍMUR AXEL GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.