Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 56
56 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
auglýsingar 569 1111 - augl@mbl.is
brúðkaupsblað
Morgunblaðsins
Sérblað helgað brúðkaupssýn-
ingunni Já fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 18. mars.
Umsjón efnis: Guðrún Guðlaugsdóttir - 569 1248
Umsjón auglýsinga: Katrín Theódórsdóttir - 569 1105
Skil auglýsinga eru fyrir kl. 15
þriðjudaginn 15. mars
Skipulagslistinn
Brúðarkjóllinn
Brúðarvöndurinn
Hringarnir
Myndatakan
Veislustjórnin
Tertan
Gjafirnar
Brúðkaupsnóttin
Brúðkaupsferðin
Brúðkaupsafmæli
Einn á ferð
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
R
O
L
26
34
2
0
2/
20
05
JOE segir að liðsmennirnir fjórir
hlakki mjög til að koma aftur til
landsins. „Viðtökurnar sem við
fengum á Nasa síðast voru þær
bestu sem við höfum nokkru sinni
fengið. Þess utan gerðum við
margt skemmtilegt; fórum til að
mynda á Sirkus strax eftir tón-
leikana, spiluðum þar fram á morg-
un og skemmtum okkur kon-
unglega,“ segir Joe.
„Forstjóri Domino Records var á
tónleikunum og leist það vel á að
hann bauð okkur samning hjá fyr-
irtækinu, þannig að þetta voru
tímamótatónleikar í sögu hljóm-
sveitarinnar,“ segir hann.
Reiðubúnir til að skemmta sér
Joe segist ekki alveg gera sér
grein fyrir því af hverju tónlist Hot
Chip eigi svo greiðan aðgang að
hjörtum Íslendinga. „Mér skilst
reyndar að margar íslenskar
hljómsveitir séu að gera svipaða
tónlist; svolítið lo-fi og fönkaða
heimagerða danstónlist. Kannski
tengist þetta einhverju sem er að
gerast í íslensku tónlistarsenunni
um þessar mundir, en ég held að
Íslendingar séu bara reiðubúnir til
að skemmta sér ærlega, enda snýst
tónlistin okkar að miklu leyti um
það.“
Hot Chip fer beint til New York
að tónleikunum á Nasa loknum.
Þaðan liggur leiðin til Texas, þar
sem sveitin spilar á tónlistarhátíð-
inni South by Southwest, sem
þrjár íslenskar sveitir, Ampop,
Vínyl og Ske heiðra einnig með
spilamennsku sinni. „Svo komum
við aftur til London, þar sem ætl-
unin er að leggja lokahönd á næstu
plötu. Að því loknu hyggjum við
svo á mikla spilamennsku til að
fylgja plötunni eftir,“ segir hann.
Nýja platan í ágúst
eða september
Joe segir að nýja platan verði
unnin á sama hátt og hin fyrri,
Coming on Strong. „Stíllinn er að
breytast svolítið. Sum lög eru
meira í diskóstílnum, önnur meira í
ætt við þjóðlagatónlist og enn önn-
ur í svipuðum stíl og lögin á fyrri
plötunni. Ég held að nýja platan sé
framför; við erum ævintýra-
gjarnari og framsæknari. Eitt lag-
ið, „Colours“, sem við ætlum að
flytja á Nasa, er í hálfgerðum
„skynvillu“-stíl, í ætt við Can og
Neu! Við ætlum að spila þrjú lög af
nýju plötunni á Íslandi, auk laga af
Coming on Strong og nokkurra
laga af Down With Prince b-
lagaplötunni.“ Joe segir að platan
verði væntanlega tilbúin innan
tveggja eða þriggja vikna og komi
líklega út í ágúst eða september.
Fengu samning eftir
tónleika á Nasa
Tónleikar bresku
sveitarinnar Hot Chip
á Airwaves í fyrra
voru þeir mögnuðustu
í sögu sveitarinnar.
Þetta segir Joe Godd-
ard í samtali við Ívar
Pál Jónsson, en Hot
Chip endurtekur leik-
inn á Nasa í kvöld.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hot Chip skemmti sjálfum sér og áhorfendum ærlega á Airwaves.
Hot Chip spilar á Nasa í kvöld.
Hermigervill og Unsound (tónlist-
armaðurinn KGB) hita upp og á
milli atriða halda Eden & Alaska
uppi stuðinu. Miðasala fer fram í
12 tónum, en húsið verður opnað
kl. 22 og Hermigervill er vænt-
anlegur á svið um kl. 23.
ivarpall@mbl.is
SÍÐASTA október komu hingað
tvær hljómsveitir á vegum danska
útgáfufyrirtækisins Crunchy Frog,
sem er helsta neðanjarðarútgáfa
Kaupmannahafnar nú um stundir.
Um var að ræða sveitirnar Power-
solo og Epo-555 og léku þær þá á
tónleikum á Grand Rokki. Þær eru
nú komnar aftur í heimsókn og ætla
að endurtaka leikinn á Grand
Rokki á morgun en þá á þessi vin-
sæli tónleikastaður 12 ára afmæli.
Eftir það halda hljómsveitirnar
áfram vestur og munu leika í New
York og svo á South by South West-
tónleikahátíðinni í Austin, sem ku
vera ein sérstæðasta og skemmti-
legasta tónleikahátíðin í dag. Þar
verða og íslensku sveitirnar Am-
pop, Ske og Vínyll einnig en hátíðin
hefst 16. mars.
Crunchy Frog er tíu ára gamalt
fyrirtæki og er m.a. með Ravenott-
es og Junior Senior undir sínum
hatti. Fyrirtækið er rekið af hug-
sjónafólkinu Jesper Reginal og
Jessicu Tolf Vulpius og hefur fyr-
irtækið verið að vinna sér inn nafn
hægt og bítandi undanfarin ár, ein-
faldlega á forsendum tónlistarinnar
sjálfrar. Hún samanstendur mest-
anpart af forvitnilegu neðanjarð-
arrokki og Jesper og Jessica hafa
m.a. lýst því yfir að þau hafi mikinn
áhuga á að skáka þeim hefðbundnu
hugmyndum sem fólk hefur um
danska tónlist. Þannig leikur Pow-
ersolo einkar sérstakt og blússkotið
pönkrokk á meðan Epo-555 leggur
sig eftir draumkenndri nýbylgju í
anda My Bloody Valentine.
Tónlist | Tvær danskar sveitir á
Grand Rokki á morgun
Crunchy Frog-
merkið snýr aftur
Danska sveitin Epo-555 leikur draumkennt nýbylgjurokk.
Tónleikarnir hefjast klukkan
22.00. Einnig leika Lokbrá og Jan
Mayen auk þess sem boðið verður
upp á óvænt skemmtiatriði.
www.crunchy.dk
arnart@mbl.is
DAKOTA Fanning og Robert De
Niro leika aðalhlutverkin í þessum
sálfræðitrylli. David (De Niro), sál-
fræðingur á Manhattan, ákveður að
flytja með dóttur sinni Emily (Fann-
ing) í hús uppi í sveit eftir að kona
hans er myrt. Andrúmsloftið er
draugalegt í húsinu og brátt verður
enn myrkara yfir því. Emily fer að
ræða um vin sinn Charlie, sem pabbi
hennar telur að sé einungis til í huga
hennar enda varð Emily fyrir miklu
áfalli við dauða móður sinnar. Fann-
ing þykir áhrifamikil í hlutverki sínu
með svart hár, stór augu og föla húð.
Charlie hefur gaman af allskyns
leikjum og er líka mjög afbrýði-
samur út í alla sem reyna að koma
upp á milli feðginanna. Þeirra á
meðal er fráskilin kona á staðnum
(Elizabeth Shue) og sálfræðingur
Emily í New York (Famke Janssen).
Dakota Fanning og Robert De Niro
eru í hlutverkum feðginanna.
Frumsýning | Hide
and Seek
Hættulegur
feluleikur
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic.com 35/100
Roger Ebert Hollywood Reporter 40/100
New York Times 40/100
Variety 40/100 (metacritic)