Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 59
Sýnd með íslensku tali kl. 4 og 6.
Ókeypis krakkaklúbbur www.myndform.is, krakkaklubbur@myndform.is
Þ.Þ. FBl
S.V. MBL.
Sýnd kl. 4 ATH! verð kr. 500.
A MIKE NICHOLS FILM
CLOSER
SIDEWAYS
WWW.LAUGARASBIO.IS
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyj iAlan cummingl i
jamie kennedyi Alan cummingl i
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14. ára
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA! I I
Ó.Ö.H. DV
S.V. MBL. M.M.J. Kvikmyndir.com
Ó.H.T. Rás 2
i ll l l
Tvær vikur
á toppnum
í USA
Will Smith er
Will Smith og
Kevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins!
Will Smith og
Kevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins!
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.20.
Tvær vikur á
toppnum í USA
Will Smith er
Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
hlaut Óskarsverðlaun fyrir
besta handrit.
SÍMI 553 2075
- BARA LÚXUS
J.H.H. kvikmyndir.com
J.H.H. kvikmyndir.com
ÍSLANDSBANKI
“…það mátti því búast við því að Closer væri
góð mynd en hún er gott betur en það.”
Þ.Þ. FBL
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
☎
Yfir 32.000 mannsfir . s
Síðustu sýningar
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. ára.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
FRUMSÝNING FRUMSÝNING
Hann trúir
ekki að vinur
hennar sé til
þar til fólk
byrjar að
deyja!
Hann trúir
ekki að vinur
hennar sé til
þar til fólk
byrjar að
deyja!
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM
MAGNAÐA SPENNUTRYLLI MEÐ
ROBERT DE NIRO SEM FÆR HÁRIN
TIL AÐ RÍSA
MISSIÐ EKKI AF ÞESSUM MAGNAÐA
SPENNUTRYLLI MEÐ ROBERT DE
NIRO SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA
Kvikmyndir.is.
S.V. Mbl.
400 kr. í bíó!*
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l
FRUMSÝND 18. MARS.1 . .
ATH: Nýja Star Wars EP III sýnishornið
frumsýnt á undan myndinni!
ATH: Nýja Star Wars EP III sýnishornið
frumsýnt á undan myndinni!
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 59
OZZY Osbourne hefur viðurkennt
að hafa farið í fegrunaraðgerð til
að bæta útlitið. Rokkarinn, sem er
56 ára gamall, hafði áður neitað því
að hafa farið í andlitslyftingu og
sagði að hann liti vel út af því hann
hefði hætt að drekka, hætt í dópi og
tekið upp nýjan lífsstíl.
„Ég fór í andlitslyftingu og fékk
nýtt nef,“ sagði hann á dögunum og
bætti við að það hefði haft góð áhrif
á sig. „Það jók
sjálfstraust mitt
óendanlega mik-
ið.“ Sharon, eig-
inkona Ozzys, er
heldur ekki alveg
ókunnug fegr-
unaraðgerðum
og segist hafa
eitt milljónum í strekkingar, fitu-
sog o.fl.
Ozzy með nýtt nef
Það er erfitt að skilgreina lista-hópinn Von Magnet, semleiddur er af Phil Von (Phil-
ippe Fontez ), en hópurinn treður
upp á NASA á morgun. Einhvers
konar gotnesk-industrial-sirkus-
raftónlistar-dans-flamengó-
vídeólist hefur verið stunduð í
hópnum í tutt-
ugu ár, plöt-
urnar eru orðn-
ar tíu og
sýningarnar yf-
ir 400. Hóp-
urinn nýtur „költ“-stöðu víða um
heim, eins og fram kom í spjalli við
nefndan Von, en hópurinn var
stofnsettur í London árið 1985 og
varð þegar virkur í menningarlífi
borgarinnar. Frá upphafi var lagt
upp með sérstæðan samslátt raf-
tónlistar og flamengótónlistar en
fyrstu plötu hópsins, El Sexo Sur-
Realista sem út kom 1987, upptök-
ustýrði Ken Thomas, sem unnið hef-
ur með Sigur Rós, Wire, Sykurmol-
unum, 23 Skidoo og Psychic TV.
Von segir frá því að söngkonasveitarinnar, Flore Magnet,
hafi verið nýkomin frá Spánarhér-
aðinu Andalúsíu þegar hópurinn
var stofnsettur og hafi hún komið
með flamengoáhersluna inn í sam-
starfið. Á sama tíma var hann sjálf-
ur að læra flamengódansinn. Tón-
listarlegi áhuginn lá hins vegar í
tölvutónlist á borð við það sem
Kraftwerk var að gera en einnig
industrial-tónlist að hætti Front 242
og fleiri sveita.
„Þetta hljómar auðvitað skringi-
lega,“ segir Von. „Þetta er blanda
af jaðarleikhúsi, flamengó og raf-
tónlist og við höfum alla tíð notið
hylli ólíkra hópa, höfum verið au-
fúsugestir hjá leikhúsfólki og tón-
listaráhugafólki t.d. Þetta byrjaði
einfaldlega sem samstarf á milli
vina, okkur langaði til að gera eitt-
hvað saman og því hrærðum við
þessum ólíku áhrifum saman.“
Von segir að það hafi jafnan ver-
ið erfitt að finna Von Magnet far-
veg, þau hafi alltaf verið á milli
þilja einhvern veginn. Sýning-
arferðalög eru þó regluleg og segir
Von að þau sjái algerlega um allt
sjálf.
„Það hafa komið aðilar að máli
við okkur í gegnum tíðina og lagt
að okkur að verða markaðsvænni.
En allar tilraunir okkar til þess
hafa misfarist gjörsamlega! Það
hefur kennt okkur að það borgar
sig alltaf á endanum að fylgja eigin
sannfæringu.“
Von lýsir inntaki sýninganna sem
frekar dramatísku, það sé ákveðið
myrkur og ákveðin sorg sem liggi
undir öllu sem þau gera.
„Þess vegna hafa „gothic“-
áhugamenn alltaf verið mjög hrifn-
ir af okkur. En við tengjumst þeim
geira samt ekki neitt, ekki frekar
en öðrum.“
Von Magnet-hópurinn verðurskipaður fimm manns í þess-
ari Íslandsför en hingað koma Phil
Von (dans, trommur, tölvur, rödd),
Flore Magnet (söngvar, vídeó,
sviðslist, leiklist), Yana Maizel
(dans), Sabine Van Den Oever
(flamengógítar) og Nikho Def
(hljóð). Tilgangur fararinnar er
m.a. að kynna tíundu plötu hóps-
ins, De l’aimant, og segir Von að
þau sem hópinn skipa ætli að reyna
eitthvað glænýtt í þessari fyrstu
heimsókn sinni til Íslands.
Von Magnet kemur fram á
NASA klukkan 17.00 og er að-
gangur ókeypis. Ítarlegri upplýs-
ingar má nálgast á www.vonmag.-
net og af.ismennt.is.
Fjöllista-flamengó
’Þetta er blanda afjaðarleikhúsi, flam-
engó og raftónlist og
við höfum alla tíð notið
hylli ólíkra hópa. ‘
AF LISTUM
Arnar Eggert
Thoroddsen
arnart@mbl.is
Uppákomur Von Magnet þykja mikið sjónarspil.