Morgunblaðið - 09.04.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 94 . TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Við leggjum okkur 100%
fram við að bjóða ávallt
upp á lægsta verðið.
Ef þú hefur keypt vöru í
INTERSPORT og finnur
sömu vöru á lægra verði í
annarri verslun, þá
endurgreiðum við þér
mismuninn.
Sýna þarf kassakvittun.
Gildir í tvær vikur frá kaupdegi,
gildir um allar vörur nema
útsölu- eða tilboðsvörur.
Intersport Húsgagnahöll Intersport Smáralind Intersport Selfossi
Nýstirnið
Shelbie Bruce
Tólf ára aðalleikkona í myndinni
Spenska í viðtali | Menning
Lesbók | Eftirtekjur Kjarvals Leiðsögn boðorðanna
Börn | Skák er skemmtileg Íþróttir | Guðmundur Hrafnkelsson
til Aftureldingar Sérblað um enska boltann
London. AP, AFP. | Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, efndi í gær
til neyðarfundar og viðræðna um
MG Rover, síðustu stóru bílaverk-
smiðjurnar í landinu, en þær stefna
nú í gjaldþrot. Fóru þær fram á
greiðslustöðvun í gær þegar ljóst var
orðið, að ekkert yrði af hugsanlegu
samstarfi þeirra við kínverskan bíla-
framleiðanda. Er þetta mjög erfitt
mál fyrir Blair og ríkisstjórnina rétt
fyrir kosningar enda blasir við, að
þúsundir muni missa vinnuna.
Blair var ekki fyrr kominn heim
frá útför Jóhannesar Páls páfa II en
hann hraðaði sér til Birmingham
ásamt Gordon Brown fjármálaráð-
herra en Rover-verksmiðjurnar eru
þar. Upplýst hefur verið, að á mið-
vikudag hafi Blair rætt í 25 mínútur
við Wen Jiabao, forsætisráðherra
Kína, og þá reynt að bjarga fyrir-
huguðu samstarfi Rovers og bíla-
verksmiðjanna í Sjanghæ, SAIC.
Blair sagði í gær, að enn væri ekki
útséð um, að af samstarfinu gæti
orðið en í húfi eru 6.100 störf í Rov-
er-verksmiðjunum og 18.000 störf
hjá birgjum verksmiðjanna.
Breska stjórnin hét í gær að að-
stoða birgjana með 40 millj. punda,
4,6 milljörðum ísl. kr.. Fyrirheit
hennar um 100 millj. punda, 11,5
milljarða kr., lán til Rovers þar til
semdist við SAIC er nú úr sögunni.
Gjaldþrot blasir við Rover
Kemur Blair illa
fyrir kosningar
JÓHANNES Páll páfi II var lagð-
ur til hinstu hvílu í gær í Péturs-
kirkjunni eftir mjög áhrifa- og til-
finningaríka útfararathöfn, sem
er sú fjölmennasta sem sögur fara
af. Um ein milljón manna var við
útförina á Péturstorginu og
næsta nágrenni en henni var sjón-
varpað um allan heim. Að greftr-
un lokinni hófst níu daga sorg-
artími. Hinn 18. þessa mánaðar
munu kardínálar loka sig af í
Sixtínsku kapellunni og velja nýj-
an páfa.
Við útförina söng þýski kardín-
álinn Joseph Ratzinger messuna
og í ræðu sinni rakti hann æviferil
Jóhannesar Páls II, allt frá því
hann var verkamaður í Póllandi
undir nasistum og þar til hann
varð æðsti trúarleiðtogi meira en
eins milljarðs manna. Hundruð
þúsunda Pólverja komu til Rómar
vegna útfararinnar./20
Reuters
Fjölmennasta útför sögunnar
VEL er líklegt að íslenskir félagsvísindamenn
geti farið að flytja út þekkingu sína á sviði fíkni-
efnaforvarna eftir 12 ára rannsóknarstarf þar
sem leitt hefur verið í ljós m.a. að skipulagt tóm-
stundastarf og samvera með foreldrum minnka
líkur á fíkniefnaneyslu og afbrotum unglinga.
Nokkrar borgir í Evrópu hafa fylgst með ár-
angri Íslendinga á þessu sviði og vilja byggja
forvarnastefnu sína á íslensku rannsóknunum.
„Hér er um að ræða afar spennandi verkefni
sem hefur vakið athygli víða í Evrópu,“ segir dr.
Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarforseti kennslu-
fræði- og lýðheilsudeildar
Háskólans í Reykjavík, sem
tekur til starfa í haust. Þaðan
verður stjórnað samevr-
ópskri rannsókn, sem fara á
fram vorið 2006. Í framhaldi
af henni verður hafin stefnu-
mótunarvinna í Evrópulönd-
unum undir heitinu Æska í
Evrópu eða Youth in Europe.
Meðal verkefna sem hafa
gengið vel hér á landi og
mætti nota sem grunn fyrir sambærileg verk-
efni erlendis, er verkefnið Ísland án eiturlyfja
sem Reykjavíkurborg setti af stað árið 1997.
Inga Dóra segir að með því verkefni hafi náðst
góður árangur sem hafi komið greinilega í ljós í
úttekt sem gerð var á því. „Verkefnið gekk út á
að ná til foreldra með mjög skýr skilaboð um lög
um útivistartíma, um að eftirlitslaus partí ættu
ekki að líðast, að það ætti að verja meiri tíma
með börnunum sínum, og um að íþrótta- og tóm-
stundastarf sé góð forvörn,“ segir hún.
„Það verður einnig mjög spennandi að sjá
hvort hægt verður að ná sama árangri í Evrópu
og náðst hefur hérlendis og hvort smæð íslensks
samfélags hafi ráðið miklu um árangurinn,“ seg-
ir Inga Dóra Sigfúsdóttir.
Forvarnir gegn fíkn og
glæpum útflutningsvara
Inga Dóra
Sigfúsdóttir
Eftir Örlyg Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Sjáum í þessu mikil tækifæri/4
ÞRÍR úr æðstu stjórn Tryggingamiðstöðv-
arinnar (TM), með samanlagt meira en 100
ára starfsreynslu, hætta senn störfum hjá
félaginu í kjölfar
skipulagsbreytinga.
Þetta eru þau Ágúst
Ögmundsson, að-
stoðarforstjóri
Tryggingamiðstöðv-
arinnar (TM), Ástrós
Guðmundsdóttir
deildarstjóri og Guð-
mundur Pétursson
deildarstjóri. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er óánægja á meðal starfsfólks
TM með þessar breytingar en forstjóri TM
segir þær gerðar „í fullri sátt“.
Óskar Magnússon forstjóri segir að gerð-
ir hafi verið starfslokasamningar við þessa
starfsmenn og þeir muni hætta innan
skamms í fullri sátt og með góðum hug í
garð félagsins. „Þær skipulagsbreytingar
sem við höfum verið að gera og sem eru
mjög viðamiklar leiddu til tilfærslna á
starfsfólki og í sumum tilvikum voru fólki
boðin störf sem því hentaði ekki eða það
kaus ekki. Í þeim tilvikum voru gerðir
starfslokasamningar.“
Óskar segir umræddar stöður ekki verða
til áfram með þeim hætti sem var og því
verði ekki ráðið í þær. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins eru starfslokasamn-
ingar ekki fullfrágengnir en þeir munu þó
hljóða upp á greiðslur í liðlega tvö ár.
Þrír yfir-
menn
TM hætta
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
Luanda. AFP. | Ekki hefur tekist að
hemja faraldur af völdum Marburg-
veirunnar í Angóla en nú eru að
minnsta kosti 180 manns látnir.
Allarangar Yokouibd, sjúkdóma-
fræðingur hjá WHO, Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni, sagði í gær, að
Marburg-veiran væri hættulegri en
Ebola-veiran, sem stundum hefur
valdið mannskæðu fári. Eru veirurnar
skyldar en í faraldrinum nú hafa fáir
lifað af, sem sýkst hafa af Marburg-
veirunni. Veldur hún miklum blæðing-
um. Mikill ótti hefur gripið um sig í
Angóla vegna sóttarinnar.
Hættulegri
en Ebola
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag