Morgunblaðið - 09.04.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 09.04.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2005 29 MENNING Í HAFNARBORG hefur myndlistarmaðurinn Jóhannes Dagsson komið fyrir ljósmyndatengdum verkum á sýn- ingu sem hann kallar Endurheimt og opnar í dag. Ljós- myndatengd – vegna þess að þar er um að ræða hátt í fimmtíu ára gamlar ljósmyndir úr smiðju föður hans, Dags Jóhannessonar úr Aðaldal, sem Jóhannes hefur síð- an fengist við með ýmsum hætti, málað í þær og yfir þær. Ljósmyndirnar sýna hóp fólks í landgræðsluferð bænda árið 1958 – allt í svarthvítu að sjálfsögðu – og leiða hug- ann ósjálfrátt aftur í tímann. „Það er merkilegt, að mörg- um finnst að þessar myndir hljóti að vera miklu eldri en frá 1958,“ segir Jóhannes. „Af því að þessi tími er svo löngu horfinn. Samt eru þarna ýmis merki nútímans, bílar og fleira. En það er eitthvað við þær sem er svo fornt.“ Viðbótarlag eða lína Það eru liðin þó nokkur ár síðan Jóhannes uppgötvaði myndirnar og hefur hann gengið með þær „í maganum“ síðan. Síðasta ár hefur farið í að gera þær að þeim verkum sem prýða Hafnarborg nú. „Það var nú hálfgildings til- viljun sem réð því að ég fór að vinna með þessar myndir. Ég fann filmuna sem þær eru á fyrir lukku og fannst þær sjarmerandi. Það er eitthvað í þeim, vegna þess að þær eru ekki heimildarmyndir í þeim skilningi,“ segir hann. Í sumum verkanna hefur Jóhannes stillt upp stórri „ósnertri“ ljósmynd við hliðina á sömu mynd sem hann hefur málað í, mismikið. „Hugmyndin er að þetta sé eins og viðbótarlag eða viðbótarlína, sem bætist við eða flétt- ast saman við hina,“ útskýrir hann. „Mér fannst ekki nóg að sýna bara myndirnar sjálfar, heldur vildi ég bæta við einhverju sem myndi breyta merkingunni.“ Önnur verk eru á litlum strigarömmum, sem eru settir nokkrir saman, bæði ljósmyndir og málverk. „Hérna er ég farinn að klippa niður og skeyta saman, og eiga miklu meira við myndirnar,“ segir hann. „Þetta er kannski ákveðin aðferð til að fá miðlana til að vinna saman. Hug- myndin er ekki að stilla þeim upp sem andstæðum, held- ur fá þá til að víxlleggjast svolítið.“ Margt spennandi að gerast Endurheimt kallar Jóhannes sýninguna. Hvað merkir það, í þeim skilningi? „Heitið kom til vegna þess að þeir eru að reyna að endurheimta landið, í þessari land- græðsluferð. En svo er það líka það að ég er að reyna að endurheimta eða vekja upp aftur eitthvað sem er horfið. Þetta er líka spurning um minni og geymd, hvað maður man og hvað gleymist,“ svarar Jóhannes. Hann segist alltaf hafa haft áhuga á ljósmyndum og því hafi hann kosið að taka þessar ljósmyndir föður síns fyrir, en hefur lítið tekið af myndum sjálfur. Hann segist hvorki líta á sig sem ljósmyndara né heldur málara. „Ég lít eig- inlega á mig sem myndlistarmann. Ég sé enga merkingu í því að flokka sig eftir hinum eða þessum miðli – þetta er allt saman orðið svo tengt að ég sé ekki að það skipti máli. Allir miðlar geta unnið saman undir réttum kring- umstæðum.“ Jóhannes útskrifaðist úr Edinburgh College of Art árið 2002 og hefur sýnt nokkuð síðan, að nokkru leyti fyrir norðan þaðan sem hann er. Að hans mati er margt spenn- andi að gerast í myndlist þessa dagana. „Ef ég á að nefna áhrifavalda, gæti ég til dæmis nefnt Þjóðverjann Gerard Richter. En annars finnst mér yfirhöfuð margt sniðugt vera að gerast í myndlist. Fólk er að gera allt milli himins og jarðar, og ég held að það sé ágætt.“ Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og stendur til 9. maí. Endurheimt í Hafnarborg Morgunblaðið/Sverrir Í sumum verkanna á sýningu sinni í Hafnarborg hefur Jóhannes Dagsson myndlistarmaður stillt upp stórri „ósnertri“ ljósmynd við hliðina á sömu mynd sem hann hefur málað í, mismikið. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttir ingamaria@mbl.is Á annan tug tónleika stendurtónlistarunnendum til boða áhöfuðborgarsvæðinu frá föstudagskvöldi til sunnudags- kvölds. Þetta er óvenju mikið á þess- um árstíma, þegar vortónleikar kór- anna eru enn ekki hafnir, – en þeirri uppskerutíð fylgir jafnan mikil tón- leikafjöld. Fjölbreytnin í tónleikahaldi helg- arinnar er líka talsverð; Blás- araoktettinn Hnjúkaþeyr leikur í Dómkirkjunni á morgun kl. 17, Marta Hrafnsdóttir syngur á tón- leikum í 15:15 röð Caput í Borg- arleikhúsi í dag, ameríski píanóleik- arinn Heather Schmidt leikur eigin tónlist og annarra í Salnum á morg- un kl. 15 og Bryndís Halla Gylfadótt- ir og Edda Erlendsdóttir halda út- gáfutónleika í Salnum annað kvöld, en ný plata þeirra fékk verðlaunin Besta plata ársins þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt fyrr á árinu.    Sérstaka athygli vekja tónleikar ísal FÍH við Rauðagerði í dag kl. 15.30, en þar syngja þær Signý Sæ- mundsdóttir og Jóhanna Þórhalls- dóttir dægurlög, sem mörg hver heyrðust fyrst í Danslagakeppni Út- varpsins. Trausti Jónsson veð- urfræðingur hefur unnið ómet- anlegt starf við að safna og halda til haga íslenskum sönglögum af öllum gerðum, og hefur hann aðstoðað söngkonurnar við val á lögunum. Meðal lagahöfundanna eru Oscar Cortes, Bjarni Böðvarsson, og Árni Ísleifs, en með söngkonunum leikur tríó skipað Bjarna Jónatanssyni pí- anóleikara, Hjörleifi Valssyni fiðlu- leikara og Gunnari Hrafnssyni bassaleikara. Signý og Jóhanna syngja einnig lög frá stríðsárunum eftir Kurt Weill.    Auður Gunnarsdóttir sópr-ansöngkona hefur ekki mikið sungið á Íslandi síðustu árin, en hún syngur á tónleikum í Salnum í dag kl. 16. Efnisskrá Auðar er for- vitnileg, en þar er meðal annars lagaflokkurinn Sieben Frühe Lieder eftir Alban Berg; sjö af ástælustu lögum Sibeliusar, sex lög eftir Grieg og þrjú eftir Rakhmaninov. Auður segir tónleikana hafa yfirskriftina Sjúk ást. „Þetta er sjúk ást í tvennum skiln- ingi: bæði þessum sem við þekkjum úr slangrinu, sjúkleg, æðisleg og frábær, en líka sjúk í eiginlegri merkingu. Það á sérstaklega við um ástina í lögum Bergs. Expressjón- íska ástin stendur á svolítið sjúkum fótum, þar sem allt er eins og hulið grárri slæðu, – tilfinningar stórar, og fara allt að því yfir strikið í því sem hollt er. Þetta einkennir ljóð Bergs; – þau eru bólgin, og maður getur leyft sér að ganga langt og vera ýktur í túlkuninni. Á móti finnst mér lög Sibeliusar og Rakhm- aninovs vera hrein sálarmúsík, sem kemur beint úr iðrunum, milliliða- laust. Berg þarf maður að mála meira. Grieg er stillti drengurinn í þessum hópi, agaður og prúður, og það er bara talsvert erfitt í þessu samhengi,“ segir Auður. Lög Griegs minna um margt á lög Schuberts í fágun sinni að sögn Auð- ar, og Schubert á sína fulltrúa í tón- leikahaldi helgarinnar. Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari verður gestur Kasa hópsins á tón- leikum í Norræna húsinu í dag kl. 14. Eyjólfur syngur þar úrval ljóða- söngva Schuberts, þar með talinn Silunginn, en Kasa leikur einnig tvö sjaldheyrð tríó hans, Næturljóð í Es- dúr fyrir fiðlu, selló og píanó og Tríó í B-dúr fyrir fiðlu, víólu og selló. Sjúkleg og sjúk ást ’Þetta er sjúk ást í tvennum skilningi: bæði þess-um sem við þekkjum úr slangrinu, sjúkleg, æðisleg og frábær, en líka sjúk í eiginlegri merkingu.‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Auður Gunnarsdóttir söngkona og Andrej píanóleikari. Morgunblaðið/Sverrir Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari, annar frá hægri, ásamt Kasa hópnum. Tónleikar þeirra verða í Norræna húsinu í dag kl. 14. Jóhanna og Signý með tríói sínu. begga@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.