Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 12

Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 12
12 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HILMAR Daníelsson á Dalvík hef- ur verið gerður að héraðshöfðingja í Abiriba, sem er í Nígeríu. Sennilega þekkja fáir Íslendingar jafnvel til í þessu framandi landi og Hilmar sem stundaði viðskipti með skreið við heimamenn um árabil og hefur hann margoft komið til landsins. Hilmar rak um árabil Fiskmiðlun Norðurlands á Dalvík, seldi umtals- vert af skreið út til Nígeríu og ber heimamönnum vel söguna. „Þetta kom til tals fyrir löngu, en var farið að ræða um þennan titil við mig af alvöru í byrjun síðasta árs en ég var bara ekki tilbúinn að ljá því eyra,“ segir Hilmar. Fyrir réttu ári, í mars í fyrra, kom Kalu NNana Kalu höfðingi í heimsókn til Dalvík- ur og enn og aftur bar málið á góma, Nígeríumennirnir vildu fyrir alla muni fá að sæma Hilmar titlinum. Tveir fengu titilinn „Við tókum þá ákvörðun um að af þessu yrði,“ segir Hilmar en Kalu mætti aftur til Dalvíkur á Fiskidag- inn mikla í fyrrasumar og þá var endanlega gengið frá því að Hilmar ásamt Guðna Einarssyni, fram- kvæmdastjóri Klofnings hf., á Suð- ureyri sem er einn af fjölmörgum góðum framleiðendum hausa hér á landi, yrðu sæmdir héraðshöfð- ingjatitlinum. Héldu þeir utan í heil- mikla ævintýraför ásamt eig- inkonum sínum, Guðlaugu Björnsdóttur og Sigrúnu Sig- urgeirsdóttur, Sighvati Sigurðssyni hjá Brim hf. og Eiríki á Húsamörk frá Færeyjum. „Þetta var heilmikil ferð og skemmtileg, stíf dagskrá og athöfn- in þegar við vorum sæmdir þessum titli var eftirminnileg, fór fram í steikjandi hita og þar voru ýmsar serímoníur sem voru okkur mjög framandi,“ segir Hilmar. Flogið var til Lagos, en þaðan far- ið í þorpið Abiriba, 7–800 þúsund íbúa sveitarfélag í héraðinu Abia, þar sem skreiðarviðskipti fara eink- um fram. Áætlað er að um 75% allra skreiðarviðskipta í Nígeríu fari þar fram. Svo skemmtilega vildi til að einn helsti viðskiptavinur Hilmars um árin, Johnson Okebulu Jombo höfðingi, varð fimmtugur og af því tilefni var efnt til veislu og sú var ekki af smærri gerðinni. Fleiri hundruð gestir mættir prúðbúnir að morgni sunnudags og stormaði hersingin í kirkju, „þetta var þriggja tíma kirkjuferð,“ rifjar Hilmar upp, en mikill og fallegur söngur setti svip sinn á messuna. „Svo var haldið í veislu sem haldin var í villu hans í þorpinu og þar var öllum boðið í mat og drykk, mörg hundruð manns.“ Mörg hundruð ára hefð Hin eiginlega athöfn var svo dag- inn eftir og var byrjað á því að taka þá félaga Hilmar og Guðna í íbúa- tölu sveitarfélagsins. Um er að ræða mörg hundruð ára gamla hefð, sem m.a. felst í að strjúka þar til gerðan stein og þá er þulinn ákveðinn texti. Gestirnir voru klæddir að hætti heimafólks og sátu undir athöfninni í nær 40 stiga hita. Á sófaborði voru drykkir, kampavín og koníak, „mað- ur var farinn að renna hýru auga til drykkjarfanganna, en þá var flask- an tekin upp, hellt í lítið glas og byrjað að skvetta úr því á gólfið, þetta var þá sopi fyrir þá fram- liðnu,“ segir Hilmar sem enn mátti sitja í hitanum án þess að fá að væta kverkarnar. Komumenn tóku með sér skreið utan til Nígeríu og skipst var á gjöf- um og þá kom að því að nafnbótin var afhent, en áður höfðu héraðs- höfðingjarnir væntanlegu verið klæddir í hvítar mussur, silkitrefli vafið um háls þeirra og þar til gerð- ar húfur settar á höfuð þeirra. „Svo var okkur gefið sérstakt nafn,“ segir Hilmar sem hér eftir ber heitið: Sonur sólarinnar frá Tveir Íslendingar fengu titil héraðshöfðingja í Abiriba í Nígeríu Heilmikil upp- lifun og mikil alvara að baki Hilmar Daníelsson og Guðni Einarsson voru sæmdur titli héraðshöfðingja í Nígeríu en þeir hafa lengi stundað viðskipti þar. Margrét Þóra Þórs- dóttir heyrði ferðasöguna hjá Hilmari. Föngulegur hópur. Allir saman komnir eftir athöfnina, sem tók alllangan tíma í steikjandi hitanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.