Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 14

Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 14
14 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Vesturland | Ólafur Arnalds, jarð- vegsfræðingur og deildarforseti hinnar nýju umhverfisdeildar Land- búnaðarháskóla Íslands á Hvann- eyri, lærði jarðvegsfræði á sínum tíma og tók doktorspróf í greininni í Bandaríkjunum. Hann segir að ef ný námsbraut, náttúra og umhverfi, sem nú er ætl- unin að bjóða upp á við Landbún- aðarháskólann hefði verið í boði þegar hann var í námi hefði hún eflaust orðið fyrir valinu. Ólafur hefur unnið við Rann- sóknastofnun landbúnaðarins í Keldnaholti, en auk þess hefur hann kennt við Háskóla Íslands. Umhverfisdeildin við LBHÍ sem hann stýrir nú hefur að meg- inmarkmiði að þróun landnýtingar sé náttúrulega, félagslega og efna- hagslega sjálfbær og vinni með fjöl- breytileika mannlífs og náttúru. Við umhverfisdeild fer fram kennsla og rannsóknir á náttúru landsins, auð- lindum og nýtingu þeirra, auk náms í umhverfisskipulagi. „Landbúnaðarháskóli Íslands er aðeins þriggja mánaða gamall um þessar mundir og mikið starf hefur farið fram eftir samruna Landbún- aðarháskólans á Hvanneyri, Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskólans á Reykjum. Þessi skóli er og verður í sífelldri þróun.“ Náttúrufræði á breiðum grunni „Nú er til dæmis að verða til ný og spennandi námsbraut, náttúra og umhverfi, sem er heilmikil breyting á því framboði sem fyrir var. Þetta er sérstakt nám því ekki er boðið upp á sambærilegt nám annars stað- ar hér á landi. Þarna verður kennd náttúrufræði á breiðum grunni með áherslu á náttúru Íslands, bæði jarð- og lífvísindi, og nýtingu á íslenskum náttúruauðlindum og náttúru- vernd.“ Ólafur segir markmiðið með nýju námsbrautinni meðal annars að fjölga nemendum og breikka mark- hópinn, bæta nýtingu námskeiða sem þegar eru kennd og nýta betur mannauðinn sem fékkst með sam- runa stofnanna sem mynda LBHÍ. „Skólinn er mjög sterkur á þessu sviði og með slíkri námsbraut nýtist sérstaða skólans. Brautin er kjörin fyrir þá sem vilja sækja sér breiðari þekkingu á náttúrufræði. Til dæmis þeir sem ætla sér að vinna við nátt- úruvernd eða umhverfismál í fram- tíðinni. Vaxandi þörf er fyrir fólk sem starfar í umhverfisgreinum, sérstaklega úti í dreifbýlinu og nýt- ist menntunin fyrir þá sem starfa til dæmis við ferðamennsku á búum, við hönnun sumarbústaðasvæða, við náttúruvernd t.d. í þjóðgörðum og einnig þá sem ætla sér að kenna náttúrufræði.“ Námsframboð í takti við breytingar í landbúnaði Námsframboð Landbúnaðarhá- skóla Íslands er vísbending um þær miklu breytingar sem hafa átt sér stað í landbúnaðinum og landbún- aðarfræðslu. „Þróunin er eins hér og erlendis því nemendum í hefðbundnum bú- vísindaskólum hefur fækkað. Skól- arnir hafa margir brugðist við með því að breyta áherslum sínum. Við erum því í takt við alþjóðlega þróun og nýtum tækifærin sem bjóðast. En ég held að við höfum samt ákveðna sérstöðu í alþjóðlegu tilliti meðal annars vegna náttúrunnar hér og við eigum að nýta okkur það,“ segir Ólafur. „Við skólann er gott námskeiðaval og í samvinnu við erlenda háskóla. Samvinna hefur einnig aukist á milli háskóla hér á landi aukist og er LBHÍ og Bifröst með ákveðna sam- vinnu og viðræður eru einnig í gangi við Háskóla Íslands. Þannig opnast möguleikar og mikil þróun á sér stað. Allir græða því ódýrara verður að kenna og þessi samvinna býður upp á meira val. Landbúnaðarháskólinn þarf að taka tillit til þessa nýja samfélags og taka þátt í þeirri þróun sem á sér stað í landbúnaðinum og bjóða upp á nám í samræmi við hana. Landbún- aður hefur verið skilgreindur alveg upp á nýtt og nú er ekki bara litið á kjöt- og mjólkurframleiðslu sem landbúnað heldur hvers konar nýt- ingu lands. Þessi nýja námsbraut er einmitt viðleitni til þess.“ Ólafur segist afar ánægður með að hafa fengið að taka þátt í að móta nýja námsbraut og nýjan skóla. „Það hefur verið mjög ánægjulegt að fá að koma með reynslu okkar á RALA á Hvanneyri og kynnast starfi þeirra sem þar voru fyrir. Framtíðin leggst mjög vel í mig,“ segir hann. Hefði sjálfur valið þessa braut Morgunblaðið/Þorkell Hvanneyri Ólafur Arnalds starfar nú sem deildarstjóri umhverfisdeildar við Landbúnaðarháskólann. Ólafur Arnalds Eftir Ásdísi Haraldsdóttur asdish@mbl.is Eskifjörður | Náttúrustofa Austur- lands er í samningaviðræðum við Landsvirkjun um umfangsmikið vöktunarverkefni á hreindýrum á Snæfellsöræfum. Rán Þórarins- dóttir líffræðingur sagði á málþingi um hreindýr, sem haldið var á Eski- firði nýverið, að vonir stæðu til að hægt yrði að fara af stað með vökt- unina í sumar. Ljóst væri að mikið verk væri fyrir höndum varðandi vöktun hreindýra á áhrifasvæðum Kárahnjúkavirkjunar. Hún sagði jafnframt brýna þörf á auknum rannsóknum utan Snæfellssvæðisins sem tengdust m.a. fari hreindýra milli svæða. Þá þyrfti að sinna merkingu kálfa í auknu mæli og hefja umfangsmiklar langtímarann- sóknir á beitarþoli landsvæða. Í máli Ránar kom fram að vöktun hreindýra á Austurlandi er stunduð m.a. til að geta gefið upplýsingar um hversu mikið má veiða af dýrum á hverju ári. Til þess eru einkum talningar framkvæmdar árlega. Er það m.a. sumartalning í júlí, þar sem svokölluð Snæfellshjörð er að- allega tekin fyrir. Hún heldur til á aðgengilegu svæði sem auðvelt er að fljúga yfir og er svæðið talið úr lofti. Þessi talning heppnast oftast vel og gefur mikilvægar upplýsingar, m.a. um nýliðun. Vetrartalning fer fram í mars og apríl. Hún fer fram um allt Austurland og tekur fyrir allan stofninn. Rán segir þær talningar ganga misvel og fari árangur eftir árferði. „Talningin sl. tvö ár hefur verið torveld vegna veðurfars og færðar. Jafnvel þó ekki náist að telja öll dýr, fást með þessari taln- ingu upplýsingar um dreifingu, en hún er breytileg eftir árstíðum. Í öllum talningum er reynt að greina einnig til kyns og aldurs. Sam- anburður þessarar talningar við aðrar gefur m.a. upplýsingar um það hvernig dýrin koma undan vetri og dánartíðni,“ segir Rán. Stórmál að kanna bithaga Frjósemiskönnun er gerð í apríl. Á þeim tíma má sjá hlutfall kelfdra kúa í hjörðinni. Kelfdar kýr eru hyrndar á þeim tíma en geldar kýr hafa fellt hornin. Kelfdar kýr fella horn sín fljótlega eftir burð, um miðjan maí og með því að fljúga yfir hjarðir má fá út hlutfall og reikna út frjósemi í stofninum. „Veiðitímabilið er fremur rólegt hjá okkur, en við erum að fá mik- ilvægar upplýsingar frá veiðimönn- um og leiðsögumönnum á þeim tíma. Verið er að vinna við greining- arlykil um aldur á kjálkum. Hægt er að aldursgreina dýrin nákvæmlega með því að taka m.a. framtennur og skoða árhringi í þeim. Mælingar leiðsögumanna á holdarfari dýranna nýtast einnig vel til að meta ástand þeirra. Á fengitíma er farið á stúfana og dýrin skoðuð í þokkalegri nánd. Við þurfum að komast nálægt þeim til að greina aldur, en meðal fullorðnu dýranna eru það einkum vetur- gamlir og tveggja vetra tarfar sem við getum greint til aldurs. Hlutverk okkar er einnig að kanna ástand hreindýrahaga. Það er afskaplega erfitt og stórt verkefni og á mikið eftir að gera í þeim mál- um. Einnig höldum við utan um gögn varðandi dreifingu dýra á öll- um árstímum. Landeigendur hringja reglulega í mig til að segja frá hópum sem hafa færst til eða eru orðnir stærri í dag en í gær og þessar upplýsingar eru mjög mik- ilvægar fyrir mig til að fá tilfinningu fyrir dreifingu og færslu dýranna á ársgrundvelli,“ segir Rán. Hreindýr hafa verið á Austur- landi frá árinu 1787 og hófust veiðar á þeim 1790. Dýrin voru friðuð árið 1901 og eftirlitsmaður skipaður með þeim 1939. Veiðar eru undir eftirliti og stjórn Umhverfisstofnunar, en Náttúrustofa Austurlands hefur frá árinu 2000 sinnt lögbundnu vökt- unarhlutverki. Hreindýrastofninn telur nú um 4000 dýr. Betur má ef duga skal í vöktun hreindýra á Austurlandi Stórt vöktunarverkefni á Snæfellsöræfum Náttúrustofa Austurlands Sveiflur í stofninum Hér má sjá ferli hreindýraveiða, kvóta, sumar- og vetrartalninga og áætlaða stofnstærð á árunum 1940 til 2004. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Vantar auknar rannsóknir Rán Þórarinsdóttir frá Náttúrustofu Austur- lands á málþingi um hreindýr. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is LANDIÐ ALLS eru 2.479 manns á kjörskrá vegna kosninga um sameiningu fimm sveitarfélaga í Borgarfirði, norðan Skarðsheiðar, hinn 23. apríl nk. Sveitarfélögin fimm eru Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur, Kolbeins- staðahreppur og Skorradals- hreppur. Hólmfríður Sveinsdóttir verk- efnisstjóri segir að málefnaskrá hugsanlegrar sameiningar hafi verið borin í öll hús á svæðinu. Auk þess séu fyrirhugaðir sex kynningarfundir með íbúum svæð- isins á næstunni. Fyrsti fundurinn verður haldinn í kvöld, mánudags- kvöld, í Brún í Bæjarsveit og hefst hann kl. 20.30. Þá sé hægt að nálgast upplýsingar á vefslóðinni: sameining.is. Ef sameining sveitarfélaganna verður samþykkt, en til þess þarf meirihluta í öllum sveitarfélög- unum fimm, verður kosið til nýrr- ar sameiginlegrar sveitarstjórnar í sveitarstjórnarkosningunum að ári. Áður mun sérstök nefnd koma með þrjár til fimm tillögur að nafni á hinu sameinaða sveitarfé- lagi, segir Hólmfríður, og er stefnt að því að kjósa milli þeirra samhliða sveitarstjórnarkosning- unum vorið 2006. Styttist í kosningar í Borgar- firðinum VESTURLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.