Morgunblaðið - 11.04.2005, Síða 16

Morgunblaðið - 11.04.2005, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ALLT að 20.000 Kínverjar tóku þátt í mótmælum gegn Japan á götum tveggja borga í Suður-Kína í gær og stjórn Japans krafðist þess að kínversk stjórnvöld bæð- ust afsökunar á mótmælum fyrir utan japanska sendiráðið í Peking daginn áður. Byggingin var þá grýtt og rúður brotnar. Um það bil 10.000 manns gengu að ræðismannskrifstofu Japans í borginni Guangzhou. Álíka margir tóku þátt í mótmælum við jap- önsku verlunarmiðstöðina Jusco í nálægri borg, Zhenzen, að sögn fréttastofunnar AFP. Minniháttar skemmdarverk Einar Rúnar Magnússon, sem er búsettur í Guangzhou, varð vitni að mótmælunum. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að fólkið hefði gengið um göturnar með spjöld og fána og hrópað ókvæð- isorð um Japan. Fólkið söng einnig þjóðsöng Kína og söngva kín- verskra andspyrnumanna frá fjórða áratug aldarinnar sem leið. „Öflugt lögreglulið var á staðn- um og engin stórfelld skemmd- arverk voru unnin,“ sagði Einar. „Fáni verslunarmiðstöðvarinnar Jusco var dreginn niður og brenndur. Fólkið grýtti bygg- inguna og stór Sony-auglýsinga- skilti voru skorin í sundur.“ Einar sagði að aðgerðir lögregl- unnar hefðu ekki verið harkalegar. „Hún sá til þess að þetta færi ekki úr böndunum og að meiriháttar skemmdarverk yrðu ekki unnin. Hún reyndi hins vegar ekki að koma í veg fyrir minniháttar skemmdarverk.“ Að sögn Einars tókst lögregl- unni að lokum að koma fólkinu af staðnum. „Fólkið var að mótmæla meintri sögufölsun í skólabókum í Japan og er líka á móti því að Jap- an fái fast sæti í öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna.“ Mótmælendurnir komust ekki að ræðismannsskrifstofunni. Til nokkurra ryskinga kom þegar um hundrað þeirra reyndu að brjótast í gegnum öryggisgirðingu. Mótmælin hófust eftir að stjórn- in í Japan lagði blessun sína yfir útgáfu nýrrar kennslubókar sem þykir gera lítið úr hernaði Japana á hendur grannþjóðunum á fyrri hluta aldarinnar sem leið. Kínverj- ar eru til að mynda óánægðir með að í bókinni er ekki skýrt frá því að japanskir hermenn hnepptu þúsundir kvenna í kynlífsánauð. Þá er fjöldamorðum í kínversku borginni Nanjing árið 1937 lýst sem „atviki“ og sagt að „margir“ Kínverjar hafi látið lífið. Sagn- fræðingar segja að allt að 300.000 óvopnaðir borgarar hafi verið vegnir í Nanjing. Kínverska stjórnin mótmælti þeirri ákvörðun stjórnvalda í Jap- an að heimila útgáfu bókarinnar og sögðu hana „eitra“ hug jap- anskra ungmenni. Mótmælendurnir hvöttu einnig stjórn kínverska kommúnista- flokksins til að koma í veg fyrir að Japanar fengju fast sæti í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna. Stjórnin hefur ekki sagt hvort hún ætli að leggjast gegn þessu. Að sögn fréttastofunnar AP lítur hún þó á stjórnvöld í Japan sem keppi- naut sinn og er ófús til að gefa eft- ir stöðu Kína sem eina Asíuríkisins er hefur fast sæti í öryggisráðinu og þar með neitunarvald. Mestu mótmæli frá 1999 Um 10.000 Kínverjar, flestir þeirra námsmenn, gengu á laug- ardag um götur Peking og köstuðu grjóti, flöskum og eggjum á jap- anska sendiráðið. Um 25 rúður brotnuðu. Voru þetta mestu götumótmæli í Peking frá árinu 1999 þegar mót- mælendur umkringdu sendiráð Bandaríkjanna í Peking eftir að herþota Atlantshafsbandalagsins gerði sprengjuárás á kínverska sendiráðið í Belgrad þegar stríðið í Kosovo geisaði. Japanska stjórnin krafðist þess að Kínverjar bæðust afsökunar á mótmælunum og gerðu meira til að vernda Japana og japanskar byggingar. Kínverska stjórnin kvaðst ítrek- að hafa hvatt Kínverja til að halda „ró sinni og skynsemi“ og reynt að halda mótmælendum í skefjum. Hún kvaðst ekki bera ábyrgð á versnandi samskiptum landanna tveggja og rakti spennuna til þess að Kínverjar hefðu ekki viljað bæta fyrir grimmdarverk á stríðs- árunum. Japanar mót- mæla árás á sendiráð í Peking Efnt til fjölmennra mótmæla gegn Japan í borgum í Kína Reuters Kínverjar á mótmælagöngu gegn Japan í borginni Guangzhou í gær. Um 10.000 manns tóku þátt í göngunni. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is DÖNSK yfirvöld sendu að minnsta kosti nítján gyðinga til Þýskalands í síðari heimsstyrjöld- inni og þeir dóu þar í útrýmingarbúðum nas- ista. Þetta er niðurstaða opinberrar rann- sóknar sem danska dagblaðið Politiken skýrði frá í gær. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, býr sig nú undir að biðja gyðinga formlega afsökunar á málinu, að sögn blaðs- ins. Bók Vilhjálms væntanleg Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræð- ingur hafði áður birt upplýsingar um að dönsk yfirvöld hefðu sent gyðinga í opinn dauðann í Þýskalandi. Upplýsingarnar urðu til þess að dönsk stjórnvöld skipuðu nefnd til að rann- saka málið. Síðar í mánuðinum verður gefin út bók eftir Vilhjálm um málið, að sögn Politiken. Þar er meðal annars skýrt frá máli konu af gyð- ingaættum, Brandla Wassermann, sem var send frá Danmörku með þremur ungum börn- um sínum og dó síðar í Auschwitz-búðunum þar sem allt að 1,5 milljónir gyðinga létu lífið. Bókin byggist meðal annars á viðtölum við gyðinga sem lifðu helförina af. „Þau búa núna í Englandi, Svíþjóð og Ísrael og það sem þau upplifðu hafði auðvitað djúp áhrif á þau,“ hafði Politiken eftir Vilhjálmi. Blaðið sagði að rannsóknarnefndin hefði komist að þeirri niðurstöðu að dönsk yfirvöld hefðu sent gyðinga til Þýskalands að eigin frumkvæði og án þrýstings frá þýskum nas- istum á árunum 1940–42 þótt lögmenn hefðu oft varað við því að fólkið yrði sent í opinn dauðann. Sendu gyðinga til Þýskalands í stríðinu Danska stjórnin hyggst biðja gyðinga afsökunar Jerúsalem. AFP, AP. | Lögreglan í Ísrael kom í gær í veg fyrir að bókstafstrúaðir gyðingar kæm- ust upp á Musterishæðina í gamla borgarhlutanum í Jerú- salem eftir að allt að 10.000 Pal- estínumenn höfðu safnast þar saman til að vernda al-Aqsa moskuna. Um 3.000 ísraelskir lög- reglumenn slógu skjaldborg um al-Aqsa moskuna og nálæg hús á svæði sem er heilagt í augum gyðinga og múslíma. Revava, hreyfing bókstafstrúaðra gyð- inga, hafði hvatt til bæna- samkomu á hæðinni til að mót- mæla áformum Ísraelsstjórnar um að leggja niður byggðir gyð- inga á Gaza-svæðinu. Tuttugu og tveir gyðingar voru handteknir en látnir lausir síðar um daginn. Þeirra á meðal var Israel Cohen, leiðtogi Revava. Mótmælin áttu að fara fram á sama tíma og Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, hélt til Washington. Gert er ráð fyrir því að hann ræði þar við George W. Bush Bandaríkjaforseta í dag og Gaza-áætlunin verði efst á baugi á fundi þeirra. Eftir að komið var í veg fyrir mótmælin ákváðu ísraelsk yf- irvöld að leyfa aðeins arabískum Ísraelum og Palestínumönnum í Austur-Jerúsalem undir fer- tugsaldri að fara á hæðina. Uppreisn Palestínumanna hófst eftir að Sharon fór á Musterishæðina í september 2000. Þrír unglingar skotnir til bana Þúsundir Palestínumanna voru í gær viðstaddir útför þriggja palestínskra unglinga sem ísraelskir hermenn skutu til bana í flóttamannabúðum á sunnanverðu Gaza-svæðinu. Var þetta mannskæðasta árásin á svæðinu frá því að Ísraelar og Palestínumenn lýstu yfir vopna- hléi fyrir tveimur mánuðum. Árásin var gerð á jaðri Raf- ah-búðanna, við landamærin að Egyptalandi. Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, for- dæmdi skotárásina, sagði hana reiðarslag og brot á vopna- hléssamkomulagi við Ísraela. „Við sættum okkur ekki við að börnin okkar séu drepin með þessum hætti.“ Skömmu eftir árásina skutu liðsmenn Hamas-hreyfingar Palestínumanna um tíu sprengi- kúlum á byggðir gyðinga á Gaza-svæðinu en engan sakaði. Tveir unglinganna sem féllu voru fimmtán ára og sá þriðji ári eldri. Að sögn íbúa í Rafah voru þeir í fótbolta á opnu svæði í búðunum þegar bolta var sparkað að landamæragirð- ingu. „Strákarnir hlupu á eftir honum og þá hófst skothríðin.“ CNN-sjónvarpið hafði hins vegar eftir embættismönnum í varnarmálaráðuneyti Ísraels að unglingarnir hefðu ekki leikið fótbolta, heldur tekið þátt í smygli á vopnum frá Egypta- landi. Við útför unglinganna voru hundruð vopnaðra Palest- ínumanna sem hvöttu til árása í Ísrael í hefndarskyni. Leiðtogar herskárra hreyfinga Palest- ínumanna lýstu því ekki yfir að vopnahléinu væri lokið en sögð- ust áskilja sér rétt til að hefna skotárásarinnar. Hindraði mótmæli gyðinga á Musteris- hæðinni Reuters Palestínskur piltur stendur fyrir framan brennandi hjólbarða við al-Aqsa-moskuna á Musterishæðinni í Jerúsalem þegar allt að tuttugu þúsund Palestínumanna söfnuðust þar saman til að vernda hana í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.