Morgunblaðið - 11.04.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 17
ERLENT
Tryggið ykkur miða
á glæsilega viðburði
Á hátindi ferils síns
Mezzósópransöngkonan Anne Sofie
von Otter ásamt Bengt Forsberg
píanóleikara. Háskólabíó 4. júní.
Miðaverð: 5.900 / 5.500
Perlur úr hreinum
sirkustöfrum
Gústi trúður og sirkusinn Cirque slá upp
stóru sirkustjaldi á Hafnarbakkanum í
samstarfi við Hátíð hafsins og Símann.
2., 4., 5. og 6. júní.
Miðaverð: kr. 2000 fyrir börn /
3000 fyrir fullorðna
Tónlistarkraftaverk
Huun Huur Tu frá Mongólíu er eitt helsta
tónlistarkraftaverk samtímans.
Tvennir tónleikar í Nasa við Austurvöll
15. og 16. maí. Miðaverð: kr. 3.200
Bergmál Ragnhildar
Nýtt verk eftir Ragnhildi Gísladóttur við
texta eftir Sjón. Hinn þekkti
tónlistarmaður Stomu Yamash’ta tekur
þátt. Í Skálholtsdómkirkju 21. maí og
Langholtskirkju 24. maí.
Miðaverð: kr. 3000 / 2.200 fyrir börn
Tær snilld
Lady and Bird eða Barði og Keren Ann,
sem er ein skærasta poppstjarna Frakka.
Í Íslensku óperunni 28. maí.
Miðaverð: kr. 2.500
Endurkoma glæsileikans
Portúgalska fadosöngkona Mariza ásamt
hljómsveit. Á Broadway 27. og 28. maí.
Miðaverð: kr. 3.500 / 3.200
Beethoven í botn
Sónötur Beethovens fyrir píanó og fiðlu
fluttar í heild sinni. Flytjendur Sigrún
Eðvaldsdóttir og Gerrit Schuil. Í Ými,
15., 22., og 29. maí..
Miðaverð: kr. 2.500. Á alla þrenna
tónleikana: 5.500
Undraverðir hæfileikar
Pacifica, einn fremsti kvartett
Bandaríkjanna. Í Íslensku óperunni 28.
og 29. maí, á Ísafirði 4. júní.
Miðaverð: kr. 3.200.
Myndlist á Listahátíð í vor
20 sýningarstaðir um land allt.
Passar sem gilda á allar myndlistar-
sýningar á Listahátíð í Reykjavík,
14. maí til 5. júní, verða til sölu
frá og með 1. maí. Verð kr. 1.000
Aðalstyrktaraðili myndlistarþáttar
Listahátíðar í Reykjavík 2004
Hæfileikaríkasta
söngkona heims
GuardianHuun Huur Tu
Hreinir
sirkustöfrar
Politiken
Sagan af Gústa trúð
Endurkoma
glæsileikans
Guardian
Mariza
Tónlistarkraftaverk
New York Times
Pacifica
Anne Sofie von Otter
Miðasala Listahátí›ar
í Reykjavík
Bankastræti 2 / sími 552 8588
Heildardagskrá liggur frammi
Bergmál Ragnhildar
www.listahatid.is
Meðal annarra viðburða á Listahátíð
Víóluhátíð, ný verk eftir Hafliða Hallgrímsson, Daníel Bjarnason og Garth Knox.
Yuri Bashmet víóluleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Danshátíð í Nasa og Borgarleikhúsinu.
Mynd á þili í Þjóðminjasafninu.
Autobahn, fjögur glæný leikrit í Borgarleikhúsinu.
Miðasala Bankastræti opin virka daga kl. 12 – 18.
Miðasala á www.listahatid.is opin allan sólarhringinn.
Páfagarði. AFP, AP. | Kardinálar róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar hafa
ákveðið að ræða ekki við fjölmiðla-
menn fyrr en nýr páfi hefur verið
kjörinn.
Aðaltalsmaður Páfagarðs,
Joaquin Navarro-Valls, skýrði frá
þessu eftir fund kardinálanna á
laugardag. Ítalskir fjölmiðlar sögðu
að þýski kardinálinn Joseph Ratz-
inger, formaður kardinálaráðsins,
hefði beitt sér fyrir banni við því að
kardinálar ræddu við fjölmiðla. Nav-
arro-Valls staðfesti þetta ekki og
sagði aðeins að allir kardinálarnir
hefðu samþykkt að ræða ekki við
fjölmiðlamenn meðan þeir undirbúa
páfakjörið sem á að hefjast á mánu-
daginn kemur.
Áður höfðu ítölsk blöð sagt að
Ratzinger og fleiri kardinálar hefðu
áhyggjur af því að vangaveltur í fjöl-
miðlum um næsta páfa gætu haft
áhrif á kjörið.
Allir kardinálar undir áttræðu
eiga rétt á að greiða atkvæði um
næsta páfa. Alls eru 117 kardinálar
kjörbærir en tveir þeirra geta ekki
tekið þátt í kjörinu af heilsufars-
ástæðum, þeir Adolfo Antonio Suar-
ez Rivera frá Mexíkó og Jaime Sin
frá Filippseyjum.
Engin „traust bandalög“
Kardinálaráðið kemur saman dag-
lega næstu vikuna þar sem ráðið
hefur það hlutverk að stjórna kirkj-
unni þar til nýr páfi tekur við. Talið
er þó að óformlegar samræður kard-
inálanna næstu daga hafi meiri áhrif
á niðurstöðu páfakjörsins.
Þegar páfakjörið hefst á mánu-
daginn loka kardinálarnir sig inni í
Sixtusarkapellunni í Páfagarði.
Margir kardinálar hafa verið
nefndir sem páfaefni. Þýski kardin-
álinn Karl Lehmann sagði þó í við-
tali, sem birt var á laugardag, að
enginn þeirra væri sigurstranglegri
en aðrir. Svo virtist sem ekki hefðu
myndast nein „traust bandalög“ á
meðal kardinálanna.
!"
#$%
&
'()&
$%
(
*
"+
"
,
!
.
!
!
#
/
"
Kardinálarnir ræða
ekki við fjölmiðla
Sameinuðu þjóðunum. AP. | Yfir 350
vígamenn eyðilögðu þorp í Darfur-
héraði í Súdan í vikunni sem leið í
grimmilegustu árásinni sem gerð hef-
ur verið í héraðinu frá því í janúar, að
sögn æðstu sendimanna Afríkusam-
bandsins og Sameinuðu þjóðanna í
Súdan.
Sendimennirnir sögðu að vopnaðir
menn í Miseriyya-ættbálknum hefðu
ráðist á þorpið Khor Abeche á
fimmtudaginn var. Þeir nafngreindu
foringja vígamannanna, Nasir Al-Tij-
ani. Nafn hans verður afhent þeirri
nefnd öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna sem á að skera úr um hverjir
hafi hindrað friðarumleitanir í Darf-
ur. Nefndin getur bannað þeim að
ferðast frá Súdan og fryst eignir
þeirra, samkvæmt ályktun öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna.
Öryggisráðið samþykkti einnig á
fimmtudag að málum þeirra, sem
grunaðir eru um manndráp, nauðg-
anir og fleiri grimmdarverk í Darfur,
yrði vísað til Alþjóðasakamáladóm-
stólsins. Hefur dómstóllinn þegar
fengið lista yfir um 50 menn, sem sak-
aðir eru um stríðsglæpi í héraðinu, og
ýtarleg gögn um mál þeirra.
Al-Tijani er fyrsti Súdaninn sem
nafngreindur er opinberlega í
tengslum við meinta stríðsglæpi í
Darfur. Sendimennirnir fordæmdu
árásina á þorpið, sögðu hana „villi-
mannlega“ og kröfðust þess að árás-
armennirnir yrðu dregnir fyrir rétt.
Vígamennirnir riðu hestum og
„æddu um þorpið, drápu, brenndu og
gereyðilögðu allt sem fyrir var, hlífðu
aðeins mosku og skóla þorpsins,“ að
sögn sendimannanna.
Ekki kom fram hversu margir biðu
bana en sendimennirnir sögðu þetta
grimmilegustu árásina í Darfur frá
því í janúar þegar vígamenn drápu
um hundrað manns í þorpinu Ham-
ada.
Um milljón manna fær
minni matarskammta
Talið er að allt að 300.000 manns
hafi látið lífið í Darfur – margir af
völdum hungurs eða sjúkdóma – frá
því að átök hófust í héraðinu fyrir
rúmum tveimur árum. Um tvær millj-
ónir manna hafa flúið heimkynni sín.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóð-
anna (WFP) skýrði frá því á föstudag
að vegna fjárskorts þyrfti hún að
minnka matarskammta flóttafólksins
verulega. Gert væri ráð fyrir því að
minnka þyrfti skammtana af öðru en
korni um helming. Þessi ráðstöfun
ætti ekki að ná til vannærðra barna
og kvenna, sem hafa börn á brjósti, en
kæmi niður á um milljón bágstaddra
flóttamanna.
Grimmi-
leg árás
á þorp
í Darfur
Matarskammtar
flóttafólksins
minnkaðir