Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 21
UMRÆÐAN
MÁLM- og skipaiðnaður, véltækni
og netagerð eru þekkingargreinar í
stöðugri endurnýjun. Stéttarfélag
starfsmanna í þessum mikilvægu
samkeppnisgreinum þarf því einnig
að vera síungt og það hefur Félag
járniðnaðarmanna haft að leiðarljósi
allt frá því félagið var stofnað fyrir 85
árum. Tæknin, menntun fé-
lagsmanna, verklag, kjör og félagsleg
réttindi hafa tekið mikl-
um breytingum á þess-
um tíma en grunnþætt-
irnir í starfi félagsins
eru ávallt þrír: Atvinna,
menntun og lífskjör.
Þegar 17 járniðn-
aðarmenn komu saman
í timburhúsi við Hverf-
isgötuna í Reykjavík
þann 11. apríl 1920, til
að stofna stéttarfélag,
voru launamenn nær
réttlausir og dagvinna
án álags tólf tímar á
dag, sex daga vikunnar.
Þær breytingar sem orðið hafa á
samfélaginu síðustu 85 árin eru með-
al annars afrakstur þeirrar baráttu
sem stéttarfélögin hafa háð. Enn er
nauðsyn að standa vörð um grund-
vallarréttindin um leið og ný verkefni
bætast við.
Samstaða í síbreytilegum heimi
Örar tækni- og þjóðfélagsbreyt-
ingar kalla á að stefna og starfshættir
verkalýðsfélaga séu sífellt í endur-
skoðun. Félag járniðnaðarmanna hef-
ur því lagt mikla vinnu í að endur-
meta og endurskoða stefnu sína og
starfshætti og færa til samræmis
þarfir félagsmanna og kröfur fram-
tíðarinnar. Félagið er nú ekki aðeins
fyrir þá sem lokið hafa sveinsprófi.
Það er opið öllum sem starfa í málm-
og véltæknigreinum, skipasmíðum og
veiðarfæragerð.
Störfin eru ekki lengur bundin við
heimabyggðina, þau eru alþjóðleg og
samkeppnin harðnar. Við þessar að-
stæður er brýnt að byggja upp eitt
landsfélag í starfsgrein-
unum með góð tengsl
við sambærileg félög í
öðrum löndum, í stað
þess að vera með á ann-
an tug félaga og deilda.
Félag járniðn-
aðarmanna og Vél-
stjórafélag Íslands eru
nú í viðræðum um sam-
einingu félaganna þar
sem stefnt er að öflugu
landsfélagi sem hafi
slagkraft til að takast á
við ný og spennandi
verkefni.
Öflug fagleg símenntun
Stéttarfélög verða að ráða yfir
þeim lyklum sem veita félagsmönn-
um færi á almennri og tæknilegri sí-
menntun þannig að þeir standi í engu
að baki bestu fagmönnum í Evrópu
hvað snertir, þekkingu, hæfni og getu
til starfa í nýju tækniumhverfi.
Félagið náði samningum við at-
vinnurekendur 1987 um að báðir að-
ilar leggi árlega fjármagn til auk-
innar tæknimenntunar. Í dag sækja
félagsmenn og fyrirtæki nýja þekk-
ingu og hæfni á sviði faglegrar sí-
menntunar, stjórnunar og reksturs í
Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins.
Mikill fjöldi félagsmanna hefur sótt
nýja þekkingu til FM. Afraksturinn
er fleiri verkefni í fyrirtækjunum og
áhugaverð störf, betri atvinnumögu-
leikar og hærri laun. Fræðslusjóður
Félags járniðnaðarmanna fjár-
magnar ekki aðeins þekkingarupp-
byggingu og rekstur tækni-
námskeiða. Félagsmenn eiga einnig
rétt á beinum stuðningi í iðnnámi og
almennri símenntun.
Félagslegt öryggi og þjónusta
Betri lífskjör felast ekki í aðeins í
launaumslaginu. Vinnuumhverfi, fé-
lagslegt öryggi og aðstaða til að njóta
frítíma skipta einnig miklu máli. Nú
er að ljúka tilraun með samstarfs-
verkefnið „Betri líðan – Bættur hag-
ur“ sem er matskerfi á vinnuað-
stæður og öryggisþætti í fyrirtækjum
og á að skila betri líðan starfsmanna
og bættum hag fyrirtækja.
Framhaldið á þessu sviði ræðst af
niðurstöðum verkefnisins.
Sjúkrasjóður félagsins sinnir fé-
lagsmönnum þegar mest á reynir og
félagsmenn hafa aðgang að vel bún-
um orlofshúsum allt árið.
Rétt eins og fyrir 85 árum er Félag
járniðnaðarmanna sá bakhjarl sem
félagsmenn eiga að þegar á reynir.
Trúnaðarmenn félagsins eru mik-
ilvægir tengiliðir á vinnustöðum.
Þjónustan verður sífellt víðtækari og
starfið fjölbreyttara. Það var því Fé-
lagi járniðnaðarmanna mikil hvatn-
ing þegar ítarleg viðhorfskönnun
leiddi í ljós mikla og almenna ánægju
félagsmanna með störf og þjónustu
félagsins og að járniðnaðarmenn eru
almennt stoltir af starfi sínu og fag-
þekkingu. Áframhaldandi uppbygg-
ing og samstaða er besta gjöfin sem
Félag járniðnaðarmanna getur fært
félagsmönnum á 85 ára afmælinu.
Félag járniðnaðar-
manna 85 ára
Örn Friðriksson fjallar um Fé-
lag járniðnaðarmanna 85 ára ’Örar tækni- og þjóð-félagsbreytingar kalla á
að stefna og starfs-
hættir verkalýðsfélaga
séu sífellt í endur-
skoðun. Félag járniðn-
aðarmanna hefur því
lagt mikla vinnu í að
endurmeta og endur-
skoða stefnu sína.‘
Örn Friðriksson
Höfundur er form. Félags járniðn-
aðarmanna.
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
Skerum upp herör gegn heim-
ilisofbeldi og kortleggjum
þennan falda glæp og ræðum
vandamálið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess
að minnka kynferðisofbeldi
þurfa landsmenn að fyr-
irbyggja að það gerist. For-
varnir gerast með fræðslu al-
mennings.
Jóhann J. Ólafsson: „Lýðræð-
isþróun á Íslandi hefur, þrátt
fyrir allt, verið til fyrirmyndar
og á að vera það áfram.“
Pétur Steinn Guðmundsson:
„Þær hömlur sem settar eru á
bílaleigur eru ekki í neinu sam-
ræmi við áður gefnar yfirlýs-
ingar framkvæmdavaldsins,
um að skapa betra umhverfi
fyrir bílaleigurnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöð-
unni er að láta TR ganga inn í
LHÍ og þar verði höfuðstaður
framhalds- og háskólanáms í
tónlist í landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég er
ein af þeim sem heyrðu ekki
bankið þegar vágesturinn kom
í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undantekn-
ingarlítið menntamenn og af
góðu fólki komnir eins og allir
þeir, sem gerast fjöldamorð-
ingjar af hugsjón. Afleiðingar
þessarar auglýsingar gætu því
komið á óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn að
halda í þeirri list að þola góða
daga en á helvítisprédikunum á
valdi óttans eins og á galdra-
brennuöldinni.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar