Morgunblaðið - 11.04.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 33
DAGBÓK
Sérblað um sjávarútveg
Sérblaðið Úr verinu fylgir
Morgunblaðinu alla miðvikudaga.
Í blaðinu er að finna fréttaskýringar, viðtöl og
fréttir um fiskveiðar og fiskvinnslu,
markaðsmál og aðra þætti er útveginum
tengjast, bæði hér heima og erlendis.
Auglýsendur, pantið fyrir
klukkan 16 á mánudögum.
Allar nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Anna í síma 569 1275
eða ragnh@mbl.is
Kvikmyndahátíðin Iceland Film Festival, sem hófst síðastliðiðfimmtudagskvöld, stendur fram til 30.apríl. Á hátíðinni verða sýndar einar
65 kvikmyndir, segir Ísleifur Þórhallsson skipu-
leggjandi. Fjöldi leikstjóra og leikara sækir há-
tíðina og kemur til landsins jafnt og þétt á
næstu dögum. „Það er mjög sérstakt að kvik-
myndahátíð standi svo lengi. Ef miðað er við
helstu hátíðirnar erlendis eru þær yfirleitt tíu
dagar og hver mynd sýnd 2–3 sinnum. Þær eru
hugsaðar fyrir kvikmyndabransann, menn kaupa
sýningarrétt, veita verðlaun og þess háttar. Hér
eru það dreifingaraðilarnir og bíóhúsin sem
skipuleggja dagskrána. Það hefur sýnt sig að ís-
lenskir bíóáhugamenn fara oft í bíó og því má
segja að við séum að búa til kvikmyndahátíð
sem hugsuð er fyrir áhorfendur. Ef maður hefur
metnað og vilja getur hann hæglega séð allar
myndirnar.“
Hvað er hver mynd sýnd lengi?
„Það er svolítið misjafnt. Við reynum að sýna
mest umtöluðu myndirnar, til dæmis Hotel
Rwanda, Downfall, Maria Full of Grace, House
of the Flying Daggers, Vera Drake og opn-
unarmyndina The Motorcycle Diaries oft, og
jafnt og þétt allan tímann. Lokamyndin, Garg-
andi snilld, verður frumsýnd 30. apríl og sýnd
einu sinni, en tekin til almennra sýninga tveimur
vikum síðar. Heimildarmyndirnar eru sýndar
sjaldnast, kannski 2–3 sinnum, og þá verður fólk
að vera á varðbergi gagnvart því.“
Hvaða mynd hefur vakið mesta athygli?
„Ætli það sé ekki A Hole in My Heart eftir
Lukas Modysson, enda vekja ljótar og umdeild-
ar myndir jafnan umtal. Ég sá þessa mynd á al-
heimsfrumsýningu í Toronto og það var mjög
furðuleg upplifun. Enginn vissi neitt um mynd-
ina en þar sem um nýja mynd frá þekktum og
virtum leikstjóra var að ræða var salurinn troð-
fullur og færri komust að en vildu. Fjölmargir
biðu fyrir utan, enda tínist fólk oft inn og út á
svona hátíðum. Salurinn tæmdist síðan jafnt og
þétt og í lokin vorum við ekki mörg sem sátum
eftir. Myndin verður sýnd í Bandaríkjunum síð-
ar á árinu og það verður fróðlegt að sjá hver
viðbrögðin verða.“
Er þetta form, að dreifingaraðilar og bíóhúsin
taki höndum saman og skipuleggi stóra kvik-
myndahátíð, komið til að vera hér?
„Bíóhúsin og fyrirtæki mitt, Græna ljósið,
hafa stofnað fyrirtækið Iceland Film Festival
ehf. en í okkar augum er það tæki sem eiginlega
hver sem er getur notað. Ef einhver manneskja
fær hugmynd að kvikmyndahátíð er nú fyrir
hendi maskína sem hægt er að setja í gang. Það
er því komið til að vera.“
Kvikmyndir | Hátíðin Iceland Film Festival stendur fram til 30. apríl
Hátíð fyrir þá sem fara oft í bíó
Ísleifur Þórhallsson
fæddist árið 1974.
Hann hefur starfað í
skemmtanabransanum
á undanförnum árum,
meðal annars sinnt
markaðsmálum fyrir
Sambíóin og verið
markaðs- og dagskrár-
stjóri á Skjá einum. Í
framhaldi af því byrjaði
hann að dreifa kvik-
myndum í félagi við Friðrik Þór Friðriksson
leikstjóra og stofnaði fyrirtækið Græna ljósið.
Þá setti hann á laggirnar event.is, sem sinnir
innflutningi á erlendum listamönnum. Nýjasta
framtak hans er Iceland Film Festival.80 ÁRA afmæli. Í dag, 11. apríl, eráttræður Jón Sveinsson,
tæknifræðingur og fyrrverandi for-
stjóri Stálvíkur. Hann verður í Kaup-
mannahöfn á afmælisdaginn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
„Efnislaus þvingun.“
Norður
♠Á7
♥ÁK5 S/Enginn
♦10754
♣KG98
Vestur Austur
♠G932 ♠10854
♥9843 ♥1072
♦KD96 ♦83
♣D ♣Á752
Suður
♠KD6
♥DG6
♦ÁG2
♣10643
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 lauf
Pass 2 lauf * Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
* krafa
Bart Bramley er kunnur spilari í
Bandaríkjunum og sumir íslenskir
spilarar muna kannski eftir honum, því
hann spilaði á Bridshátíð árið 1994 og
vann þá Flugleiðamótið í sveit með Zia.
Spilið að ofan er frá Vorleikunum í
Pittsburgh í síðasta mánuði, nánar til-
tekið úr Norður-Ameríkukeppninni í
tvímenningi. Bramley var í suðursæt-
inu, sagnhafi í þremur gröndum.
Hann fékk út smáan spaða, sem
hann tók heima og spilaði lauftíu.
Drottningin kom strax og austur drap
og spilaði spaða áfram.
Bramley tók þrjá slagi á lauf og vest-
ur valdi að henda tveimur hjörtum og
einum tígli. Nokkuð eðlileg afköst, en
Bramley túlkaði þau af djúpu innsæi.
Hann hugsaði með sér: Hvers vegna
hendir vestur tígli, frekar en þriðja
hjartanu? Er ekki skýringin sú að hann
hafi efni á því; hafi sem sagt byrjað
með skiptinguna 4441 og KDxx í tígli?
Bramley taldi það líklegt og spilaði
framhaldið samkvæmt því. Hann tók
þrjá slagi á hjarta og setti vestur þar
með í raunverulegan vanda. Vestur
þarf vissulega ekki að henda af sér
slag, en hann verður að fækka við sig
spöðum og útsetja sig þar með fyrir
innkasti. Vestur henti spaða og Bram-
ley tók þá þriðja spaðann og spilaði
litlum tígli að tíunni í borði.
Vestur átti nú ekkert eftir nema
KDx í tígli og gat ekki fengið nema
einn slag, svo Bramley fékk ellefu slagi
og nánast topp.
Þetta kalla enskir fræðimenn
„immaterial squeeze“.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Öryggi
NÚ NÝLEGA hafa tveir val-
inkunnir verkfræðingar fjallað um
málefni Reykjavíkurflugvallar hér á
síðum blaðsins. Annar sagði það að
flugvöllurinn væri ólöglegur, þetta
er rangt, Alþingi samþykkti fyrir
fáum árum fjárveitingu til að end-
urgera völlinn og er hann því lögleg-
ur. Hitt er svo önnur saga, að nefnd
sem fór yfir öryggismál flugvall-
arins, komst að því að þarna væri
fátt sem uppfyllti alþjóðlega örygg-
isstaðla. Sveinn Guðmundsson verk-
fræðingur, sem áratugum saman
starfaði á Keflavíkurflugvelli, hefir
greint frá því að Fokkerar Flug-
félagsins geti athafnað sig í hlið-
arvindi sem er allt að 12 m/s. Nú hef-
ir það verið upplýst að þetta er ekki
svo, vegna nálægðar ýmissa bygg-
inga verða til sviptivindar sem tak-
marka notkun flugbrauta í hlið-
arvindi. Dómsmálaráðherrann
Björn Bjarnason hefir sagt að flug-
völlurinn geti verið þarna áfram ef
fyllsta öryggi sé tryggt. Það hafa
margar borgir í heiminum lent í
vandræðum með sín flugvallarmál,
þ. á m. New York. Hafnarstjórnin í
N.Y. leitaði á þriðja áratug seinustu
aldar til iðnhönnuðarins Norman
Bel Geddes um hugmynd að flugvelli
fyrir borgina, Norman sem var hug-
myndaríkur maður, teiknaði upp
heljarmikla flotbryggju sem yrði
lagt við stólpa undan Manhattan,
bryggjunni átti svo að snúa eftir
veðri þannig að flugtök og lendingar
yrðu alltaf upp í vindinn. Vegna
kreppu og kostnaðar varð ekki af
þessu. Ákveðið var að búa til land
með sanddælingu út í Jamaica-flóa,
varð það Kennedy flugvöllur (37 000
000 rúmm.). Nú á Íslenska ríkið mik-
ið land undir flugvellinum, gangverð
á þessu landi er talið vera 250 millj-
ónir á hektara. Yrði þetta land selt
verða til nógir peningar til að gera
nýjan flugvöll á uppfyllingu úti í sjó,
með því losnuðu flugmenn við þessa
sviptivinda og Reykvíkingar gætu
smíðað turn á ráðhúsið sitt.
Gestur Gunnarsson,
Flókagötu 8, Rvík.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Reykjavíkurflugvöllur