Morgunblaðið - 11.04.2005, Síða 34
34 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu foreldrum og fjölskyldu-
meðlimum þolinmæði í dag. Einhverra
hluta vegna finnst þér þetta fólk bæla
þig núna. Ekki synda gegn straumn-
um og forðastu rifrildi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er auðvelt að týna sér í of miklum
áhyggjum í dag eða láta neikvæðar
hugsanir ná tökum á sér. Þetta óveð-
ursský fer fljótlega sína leið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Er ekki skrýtið hvernig maður getur
bæði fundið til fátæktar og ríkidæmis,
þótt fjárhagsstaðan sé alltaf sú sama?
Dagurinn í dag er einn af þessum
blankheitadögum. Engar áhyggjur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Yfirmanneskjur eru svo sannarlega
harðar í horn að taka í dag. Ekki gefa
höggstað á þér. Vertu bara rólegur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Forðastu rifrildi um stjórnmál og trú-
mál núna. Hættu að reyna að sanna
eitthvað fyrir umhverfinu eða hamra á
viðhorfum þínum. Þetta er ekki rétti
tíminn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er súr yfir hlutskipti sínu
þessa dagana og finnst sem einhver sé
að hlunnfara hana. Bíddu í nokkra
daga og sjáðu til hvort ástandið lagast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ósætti við maka og yfirboðara er nán-
ast óhjákvæmilegt í dag. Öllu sem þú
leggur til verður hafnað. Bíddu þar til
gott tækifæri gefst.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinna sporðdrekans er tómt strit í dag
og vinnuumhverfið eins og í verstu
þrælakistu. Morgundagurinn verður
mun betri, nú er að þegja og þola.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ekki hafa áhyggjur af því þótt skap-
andi verkefni virðist strand í augna-
blikinu. Útlitið verður mun betra á
morgun. Ekki láta deigan síga.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjölskyldumeðlimir eru ekkert lamb
að leika sér við í dag. Allt sem þú
stingur upp á er gagnrýnt eða skotið í
kaf. Slakaðu á í bili.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Áhyggjur byggja mikið til á vana.
Reyndu að horfa jákvæðum augum
fram á við. Á morgun verður allt ann-
að upp á teningnum. Himnarnir eru
ekki að hrynja.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Haltu fast um veskið í dag. Horfurnar
eru ekki ýkja góðar núna, en öðru máli
gegnir um morgundaginn. Þeir sem
ráða eru öðrum þrándur í götu núna.
Stjörnuspá
Frances Drake
Hrútur
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert háttvís, mælsk og flink manneskja,
góð í mannlegum samskiptum og elskar
að vera miðdepillinn. Þú átt líka gott
með að vinna með öðrum.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 ágang, 8 fen, 9
umgirt svæði, 10 kraftur,
11 sorp, 13 nabbinn,
15 hungruð, 18 óvættur,
21 hestur, 22 særa, 23 fífl,
24 straumvatns.
Lóðrétt | 2 hvefsin kona, 3
heiðursmerkið, 4 tappi, 5
líffærið, 6 máttar, 7 vangi,
12 gyðja, 14 auðug, 15
nokkuð, 16 píluna, 17 sori,
18 hugaða, 19 iðjan, 20
rusta.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 napur, 4 eyrir, 7 sálin, 8 díkið, 9 núa, 11 iðan, 13
æður, 14 aspir, 15 sálm, 17 apar, 20 enn, 22 máfar, 23 ofn-
ar, 24 ryðja, 25 ansar.
Lóðrétt | 1 nesti, 2 pilta, 3 rann, 4 elda, 5 rokið, 6 ræðir, 10
úlpan, 12 nam, 13 æra, 15 semur, 16 lyfið, 18 punds, 19 rýr-
ar, 20 erta, 21 nota.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. Bxc6
dxc6 5. d3 Bg7 6. h3 Rf6 7. Rc3 O-O 8.
Bf4 Rd7 9. Dd2 He8 10. Bh6 Bh8 11. h4
e5 12. h5 Rf6 13. hxg6 hxg6 14. O-O-O
Rg4 15. Bg5 Dd6 16. Rh4 Bd7 17. f3 Rf6
18. Hh2 Rh7 19. Be3 Bg7 20. Hdh1 Rf8
21. Bh6 Df6 22. Bxg7 Kxg7 23. Re2 Re6
24. g3 Hh8 25. f4 Hae8 26. f5 Rg5 27. g4
Hh7 28. Rg1 gxf5 29. gxf5 Kf8
Staðan kom upp á Ambermótinu sem
lauk fyrir skömmu í Mónakó. Alexey
Shirov (2713) hafði hvítt gegn Peter
Leko (2749). 30. Rg6+! fxg6?! 30... Kg8
hefði veitt harðvítugra viðnám. 31.
Hxh7 Rxh7 32. Hxh7 He7 33. Dh6+
Hg7 34. Rf3 Be8 35. Rg5 Bf7 36. Hh8+
Ke7 37. Rh7! Hxh7 38. Df8+ Kd7 39.
Dc8+ Kd6 40. Hd8+ og svartur gafst
upp enda er hann að verða mát.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Tónlist
Grafarvogskirkja | Lúðrasveitin Svanur
heldur árlega vortónleika í Grafarvogs-
kirkju mánudaginn 11. apríl kl. 20. Stjórn-
andi er Rúnar Óskarsson og leikin verða
verk sem sérstaklega eru samin fyrir
lúðrasveitir. Nánari upplýsingar á
www.svanur.org.
Myndlist
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót
lista og minja.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar.
Ólöf Björg.
FUGL, Félag um gagnrýna myndlist |
Anna Hallin – Hugarfóstur – kort af samtali.
Gallerí Sævars Karls | Regína sýnir olíu-
málverk máluð á striga.
Gel Gallerí | Guðbrandur kaupmaður sýnir
verk sín.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gullþræðir.
Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu-
málverk og fleira í Boganum.
Ljósberahópurinn – Hratt og hömlulaust.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Jóhannes Dagsson – „End-
urheimt“. Á sýningunni eru verk unnin með
blandaðri tækni.
Í samvinnu við Sophienholm í Kaupmanna-
höfn og Hafnarborg, hefur Johannes
Larsen-safnið sett saman stóra sýningu
um danska og íslenska listamenn og túlkun
þeirra á íslenskri náttúru á 150 ára tímabili.
Þema sýningarinnar er „List og náttúra
með augum Norðurlandabúans“.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Gerða Kristín
Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni
í Menningarsal.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal – eitt verk,
ekkert upphaf né endir.
Listasafnið á Akureyri | Erró. Stendur til
6. maí.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Árleg
ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags
Íslands. Ragnar Axelsson – Framandi heim-
ur. Fjórar glerlistasýningar.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur
Jónsson og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían –
Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning-
arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione – ljósmyndir úr fórum Man-
fronibræðra.
Listasýning
Ráðhús Reykjavíkur | Dropar af regni –
Amnesty International á Íslandi í 30 ár.
Sýningin gefur ágrip af þeim fjölda ein-
staklinga sem félagar Íslandsdeildar Amn-
esty International hafa átt þátt í að frelsa.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu.
Fundir
Eineltissamtökin | Eineltissamtökin eru
með fundi alla þriðjudaga kl. 20–21, í húsi
Geðhjálpar, Túngötu 7.
Geðhjálp | Fundur fyrir fullorðin börn geð-
sjúkra (18 ára og eldri), alla þriðjudaga kl.
19 hjá Geðhjálp, Túngötu 7. Hvort sem þú
átt eða hefur átt foreldra /foreldri með
geðraskanir þá ert þú velkomin(n) í þennan
hóp. Nánari upplýsingar í síma 5701700 og
á www.gedhjalp.is.
Grand Hótel Reykjavík | Hádegisverð-
arfundur Lögfræðingafélags Íslands verður
haldinn á Grand Hóteli fimmtudaginn 14.
apríl. Davíð Þór Björgvinsson verður með
framsöguerindi. Skráning í síma 5680887
fyrir miðvikudaginn 13. apríl. Nánari upp-
lýsingar á www.logfr.is.
Krabbameinsfélagið | Aðalfundur Krabba-
meinsfélags Árnessýslu verður haldinn í
dag, kl. 20 á Eyrarvegi 23, Selfossi. Aðal-
fundarstörf, Þórarinn Guðjónsson líffræð-
ingur segir frá rannsóknum á stofnfrumum
og krabbameini í brjósti og Gunnjóna Una
félagsráðgjafi fjallar um stuðning KÍ við
krabbameinssjúka. Allir velkomnir.
Krabbameinsfélagið | Ný rödd heldur fund
í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð
8 í Reykjavík, 4. hæð, miðvikudaginn 13.
apríl kl. 20. Á dagskrá er: Norræn ráð-
stefna barkakýlislausra í Danmörku í sum-
ar. Medic alert. Samvinna stuðningshópa
K.Í. um þjónustumiðstöð. Önnur mál. Allir
velkomnir.
Styrkur | Styrkur, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra, verður
með opið hús að Skógarhlíð 8 í Reykjavík á
morgun, 12. apríl kl. 20. Valgerður Sigurð-
ardóttir læknir flytur erindi um viðbrögð
við greiningu krabbameins. Allir velkomnir.
Kristilegt félag heilbrigðisstétta | Fé-
lagsfundur í dag kl. 20 að Háaleitisbraut
58–60. Kristín Bjarnadóttir kennari kynnir
starf meðal kvenna í Kenýu og hugleiðingu
hefur Kristín Bjarnadóttir kennari. Allir vel-
komnir.
Fyrirlestrar
Listaháskóli Íslands | Messíana Tóm-
asdóttir heldur fyrirlestur á morgun, 12.
apríl kl. 17, í stofu 113. Fyrirlesturinn fjallar
um hin þrjú sjónarhorn litafræðinnar: Hið
sjónræna, hið táknræna og hið tilfinn-
ingalega.
Listaháskóli Íslands | Sjón (Sigurjón B.
Sigurðsson) heldur fyrirlestur í dag kl.
12.30, í stofu 024. Fyrirlesturinn nefnist: Í
símaskrám, straujárnum og sófalöppum.
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Sigurður
Bjarni Gíslason heldur fyrirlestur um verk-
efni sitt: Jarðskjálftagreining á háhýsi með
kúluplötum, á morgun, 12. apríl kl. 16.15.
Verkefnið fjallar um línulega jarð-
skjálftagreiningu á 16 hæða skrif-
stofubyggingu sem reisa á við Höfðatún í
Reykjavík.
Námskeið
Félag íslenskra heilsunuddara | Félag ís-
lenskra heilsunuddara verður með nám-
skeið 13.–16. apríl fyrir byrjendur, í vöðva-
og hreyfifræði, TFH 1 og 2 . Fjallað verður
um streitu, orkubrautir og fæðuóþol. Einn-
ig verður framhaldsnámskeið um andlega
uppbyggingu 18.–21. apríl, 1 og 2. Kennari
Jarle Tamsen í Rósinni, Bolholti 4. Nánari
upplýsingar og skráning á www.nudd-
felag.is og í síma: 6942830, 6907437.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Á mánudögum kl. 18
er farið frá Toppstöðinni við Elliðaár og far-
inn hringur í Elliðaárdalnum. Allir velkomn-
ir ekkert þátttökugjald.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Meira á mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Stað og
stund á forsíðu mbl.is.
HALLVEIG Rúnarsdóttir sópran, Eyjólfur
Eyjólfsson tenór og Árni Heimir Ingólfsson
píanóleikari koma fram á tónleikum í Tíbrá,
tónleikaröð Salarins, annað kvöld kl. 20. Á
efnisskrá verða gömul og ný íslensk söng-
lög eftir Pál Ísólfsson, Jón Leifs, Jórunni
Viðar, Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H.
Ragnarsson, Hildigunni Rúnarsdóttur,
Tryggva Baldvinsson o.fl
Í kynningu tónleikahaldara segir að bæði
verði sungnar vinsælar perlur og lög sem
eiga skilið að heyrast mun oftar. Efnis-
skráin spannar hundrað ára þróun íslenska
sönglagsins, og á henni er bæði að finna vel
þekktar söngperlur og lög sem sjaldan eða
aldrei hafa heyrst áður. Meðal þess sem
Hallveig og Eyjólfur munu syngja eru lög
eftir Sigfús Einarsson, Emil Thoroddsen,
Jón Leifs og Pál Ísólfsson, en eftir þann
síðastnefnda verða fluttir sex söngvar úr
Ljóðaljóðunum. Þá mun Hallveig frumflytja
lag Jórunnar Viðar við Únglínginn í skóg-
inum, sem er framhald af vinsælu lagi
hennar við sama ljóð eftir Halldór Laxness.
Lagið var samið í New York árið 1946, en
Jórunn hefur aldrei leyft flutning þess fyrr
en nú. Þá munu Hallveig og Eyjólfur frum-
flytja þrjá dúetta eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur við Vísur fyrir vonda krakka eftir
Davíð Þór Jónsson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslensk sönglög í Salnum
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið