Morgunblaðið - 11.04.2005, Page 44

Morgunblaðið - 11.04.2005, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. TÓNLISTARHÚSIÐ Ýmir, sem er í eigu Karlakórs Reykjavíkur, var auglýst til sölu um helgina. Samkvæmt upplýsingum frá fast- eignasölunni Húsakaup, sem sér um söluna, er óskað eftir tilboðum í húsið. Talið er að um 200 millj- ónir geti fengist fyrir það. Ottó V. Guðjónsson, formaður stjórnar Karlakórs Reykjavíkur, segir að markmið kórsins sé að einbeita sér að sönglistinni. Rekst- ur tónlistarhúss falli ekki að því markmiði. Stórhuga menn hafi haft frumkvæðið að byggingu hússins, en nú séu breyttir tímar. Ekki sé lengur vilji til þess, innan kórsins, að standa að rekstri menningarhúss. „Rekstur hússins er of þungur fyrir stofnun eins og karlakórinn,“ segir Ottó. „Auk þess verða ákveðin tímamót í sögu kórsins á næsta ári, er hann verð- ur 80 ára, og viljum við einbeita okkur að því að halda úti góðu af- mælisári.“ Tónlistarhúsið er á tveimur hæðum og um 1.200 fermetrar að stærð. Það var vígt í lok janúar ár- ið 2000, en nokkur ár tók að byggja það. Ottó segir kórinn vonast til þess að geta selt húsið aðila, sem geti t.d. nýtt það sem veitinga-, skemmti- eða menningarhús. Gæti farið á um 200 milljónir Tónlistarhúsið Ýmir til sölu TVEIR stórir borgarísjakar sáust á Húnaflóa um helgina og var annar þeirra kominn nálægt Blönduósi og hinn nærri Hvammstanga í gærkvöldi. Jakinn við Blönduós er gríð- arstór, um 100 metrar að breidd og 10 metrar á hæð, og virð- ist sléttur að sjá. Jakinn sem kominn er nær Hvammstanga er öllu minni, en þó vel yfir 50 metrar að breidd og trúlega um 5 metrar að hæð, segir Gunnar Örn Jakobsson, formaður björgunarsveit- arinnar Káraborgar á Hvammstanga. Hann sigldi út að jak- anum ásamt félögum sínum úr björgunarsveitinni á föstu- dagskvöldið. „Það eru mjög fallegir litir í ísnum, og þetta var alveg meiriháttar, sérstaklega af því hann var svona hár. Þetta er allavega sá stærsti sem ég hef séð koma hingað inn,“ segir Gunnar. Björgunarsveitarmennirnir mældu dýpið við jak- ann, og reyndist það 36 metrar, sem bendir til þess að jakinn standi á botni úti fyrir Vatnsnesi, miðað við þá hæð sem stendur upp fyrir sjávarmál. Morgunblaðið/Jón SigurðarsonRisavaxinn borgarísjaki var norðvestur af ósi Blöndu í gær. Gríðarstórir borgar- ísjakar á Húnaflóa Ljósmynd/Gunnar Örn Jakobsson Björgunarsveitarmenn fóru á tveim bátum að jakanum undan Almenningi á Vatnsnesi. Í TILLÖGUM stýrihóps um framtíðarskipan flugmála sem skilað hefur verið til samgöngu- ráðherra er gert ráð fyrir aðskilnaði á stjórn- sýslu og þjónustu flugmála og er talið að með því náist fram skýr og hagkvæm verkaskipt- ing málaflokksins. Lagt er til að verkefnum Flugmálastjórnar Íslands verði skipt upp og að stofnað verði hlutafélag um flugumferðar-, flugvalla- og flugleiðsöguþjónustu en stjórn- sýsla og flugöryggissvið verði áfram undir hatti Flugmálastjórnar sem áfram heyri undir samgönguráðuneytið. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skip- aði stýrihópinn í árslok 2003 og var honum fal- ið að móta tillögur um framtíðarskipan flug- mála. Formaður hans var Hilmar B. Baldursson, flugstjóri og viðskiptafræðingur. Í skipunarbréfi kom fram að hópurinn skyldi meta hvað væru stjórnsýslu- og eftirlitsverk- efni og hvað væri þjónusta og skilgreina hvaða rekstrarform hentaði fyrir þá starfsemi Flug- málastjórnar sem lúti að rekstri og þjónustu við flugið. Einnig átti hópurinn að kanna fjár- hagslegar afleiðingar breytinganna og áhrif á flugöryggismál og starfsmannamál. Uppfyllir kröfur um gagnsæi Stýrihópurinn ræddi nokkra valkosti en tel- ur að leiðin sem lögð er til hafi einkum þrennt til síns ágætis: Stjórnsýsla og eftirlit eigi meiri samleið en stjórnsýsla og þjónusta. Aðgreining eftirlits og þjónustu uppfylli ýtr- ustu kröfur um gagnsæi opinberrar stjórn- sýslu. Rekstrarform þjónustustarfseminnar veiti félaginu þann sveigjanleika sem nauðsynlegur sé til að takast á við fyrirliggjandi verkefni og samkeppni. Í samantekt stýrihópsins segir að með að- skilnaði stjórnsýslu og þjónustu náist fram skýr lögfræðileg og hagkvæm verkaskipting málaflokksins. Aðskilnaðurinn komi í veg fyrir hagsmunaárekstra sem verði þegar einn og sami aðilinn hafi eftirlit með sjálfum sér. Hann ýti undir að þjónustuhlutinn einbeiti sér að rekstri og samskiptum við viðskiptavini og hagkvæmni með því að finna jafnvægi milli gæða þjónustunnar og kostnaðar við að veita hana. Stýrihópur leggur til að Flugmálastjórn sinni stjórnsýslu og flugöryggissviði Hlutafélag verði stofn- að um flugmálaþjónustu Eftir Jóhannes Tómasson joto@mbl.is BJARKI Sigurðsson sem lagði handknatt- leiksskóna á hilluna á dögunum segist hafa vissar áhyggjur af þróun handboltans hér á landi. Hann telur að menn stökkvi of snemma til útlanda og oft á það fyrsta sem í boði er. Hann hefur líka ákveðnar skoðanir í sambandi við þróun íþróttarinnar hér á landi: „Það hefur verið talsverð lægð í hand- knattleik hér á landi frá árinu 2001. Þá fór verulega að halla undan fæti og fólk hætti að mæta á leiki í eins ríkum mæli og áður. Meginástæðan er aukið framboð á íþrótta- efni í sjónvarpi og að leikir hér heima rek- ast um leið á spennandi leiki sem sýndir eru í sjónvarpi. Þá hefur fyrirkomulag Ís- landsmótsins síðustu ár ekki verið skemmtilegt auk þess að það er ef til vill of dýrt að sækja leiki. Þess vegna fagna ég að ákveðið hefur verið að breyta móta- fyrirkomulaginu, það var eitthvað sem ekki var hægt að komast hjá og mátti ekki seinna vera,“ segir Bjarki meðal annars í viðtali við Morgunblaðið./B2 Handboltinn er í lægð Morgunblaðið/Ómar „MÉR líst ágætlega á þessar tillögur og tek undir þær í öllum aðalatriðum,“ segir Þorgeir Páls- son flugmálastjóri um tillögur stýrihóps um framtíðarskipan flugmála. „Þetta er í samræmi við þá þróun sem hefur orðið erlendis. Noregur Danmörk og Svíþjóð hafa þegar gert breytingar af þessu tagi, og um næstu áramót munu Finnar sigla í kjölfarið.“ Þorgeir segir það mjög fýsilegan kost að stofna hlutafélag um flugumferðar-, flugvalla- og flugleiðsöguþjónustu. „Við [stjórnendur stofnunarinnar] höfum vakið athygli á því að það þyrfti að reka þessa þjónustu á viðskiptagrundvelli. Það hentar ekki vel að vera með hana í þessum hefðbundna ríkisrekstri, enda hafa margar nágrannaþjóðir okkar farið þá leið að hlutafélagavæða þjónustuna, sem virðist hafa gefist mjög vel.“ Niðurstöður stýrihópsins hafa verið kynntar fyrir ríkisstjórninni og fyrir starfsmönnum Flugmálastjórnar. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra mun væntanlega taka afstöðu til til- lagnanna á næstunni. Í samræmi við breytingar erlendis Morgunblaðið/Brynjar Gauti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.