Morgunblaðið - 22.04.2005, Page 10

Morgunblaðið - 22.04.2005, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR S tyrkjum var úthlutað í fjórða sinn úr sjóðnum Vildarbörnum, styrkt- arsjóði Icelandair og viðskiptavina félagsins, í gær, sumardaginn fyrsta. Sjóð- urinn, sem stofnaður var á sum- ardaginn fyrsta árið 2003, hefur það að markmiði að gefa lang- veikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tæki- færi til að fara í draumaferð ásamt fjölskyldu sinni sem þau ættu ann- ars ekki kost á. Að sögn Áslaugar Thelmu Ein- arsdóttur, kynningarstjóra Ice- landair og framkvæmdastjóra Vild- arbarna, er úthlutað úr sjóðnum tvisvar á ári, fyrsta sumardag og fyrsta vetrardag. „Að þessu sinni bárust sjóðnum 65 umsóknir og af þeim voru níu fjölskyldur valdar. Í styrknum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur, þ.e. flug, gisting, dagpeningar og aðgangs- eyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér,“ segir Áslaug og bendir á að nú þegar hafi þrjátíu fjölskyldur getað farið í drauma- ferð á vegum Vildarbarna, sem þýðir að samtals hafi um 140 manns farið út á vegum sjóðsins. Fá mynt frá öllum löndum heims Aðspurð segir Áslaug sjóðinn Vildarbörn fjármagnaðan með þrenns konar hætti. Í fyrsta lagi með beinu fjárframlagi Icelandair, í öðru lagi með frjálsum fram- lögum félaga í Vildarklúbbi Ice- landair sem geta gefið af vild- arpunktum sínum og í þriðja lagi með söfnun afgangsmyntar um borð í flugvélum Icelandair. Segir hún árangur myntsöfnunarinnar um borð í flugvélum Icelandair hafa farið fram úr björtustu von- um og fleiri börn eiga þess því kost í ár að fara í draumaferð sína en aðstandendur gerðu ráð fyrir. „Fjölbreytnin í myntinni er mikil, við fáum þannig mynt frá öllum löndum heims,“ segir Áslaug og segir myntgjöfina sífellt vera að aukast, enda virðist fólk æ meðvit- aðra um að myntgjöf sé sniðug leið til að koma klinkinu sínu í góðar þarfir. „Við erum öllum þeim sem styrkja sjóðinn afar þakklát, enda væri þetta ekki mögulegt án þeirra.“ Starfsemi Vildarbarna Ice- landair byggist, að sögn Áslaugar, á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barna- deildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti Íslands, og formaður stjórnar hans er Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri FL GROUP. Landsbank- inn er fjárgæsluaðili sjóðsins. Börnin níu sem fengu úthlutað að þessu sinni eru: Alda Kristín Stefánsdóttir, Anika Helgadóttir, Daníel Óli Ólafsson,Gunnar Logi Tómasson, Inga Björk Bjarnadótt- ir, Sigurmar Gunnar Gunnarsson, Sindri Dagur Garðarsson, Torfi Lárus Karlsson og Þuríður Sóley Sigurðardóttir. Níu Vildarbörn á leið í draumaferðina með fjölskyldum sínum Þakklát öllum þeim sem styrkja sjóðinn Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Fjölskyldurnar níu sem fengu úthlutað úr Vildarbarnasjóðnum í gær, ásamt Sigurði Helgasyni, Áslaugu Thelmu Einarsdóttur og Peggy Helgason. Peggy Helgason ásamt Þuríði Sóleyju Sigurðar- dóttur. Með þeim á myndinni eru Sigurður Gunnar Sigurðsson, faðir Þuríðar, og systkini hennar, þau Björgvin Veigar og Helen Valdís. Sigurður Helgason, Peggy Helgason og Sindri Dagur Garðarsson, ásamt Guðleifu Hallgrímsdóttur, móður Sindra og systkinum hans, þeim Dagnýju Björk og Guð- mundi Gesti. Torfi Lárus Karlsson, Sigurður Helgason, Peggy Helgason og Karl Torfason, faðir Torfa. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ÁSLAUG Thelma Einarsdóttir segir lang- vinsælast hjá börnum sem hljóta ferðastyrk Vildarbarna að fara til Flórída og heim- sækja Disney-land, enda heilli Disney- heimurinn mikið. „Það stefnir allt í að Disn- ey-land í Flórída verði vinsælasti áfanga- staðurinn hjá Vildarbörnunum. Enda ekkert skrýtið þar sem allir í fjölskyldunni geta fundið eitthvað við sitt hæfi á staðn- um. Einnig höfum við heyrt frá þeim fjöl- skyldum sem farið hafa að út að reynsla þeirra af Ameríku varðandi hjólastólaað- gengi er mjög góð, sem skiptir auðvitað miklu máli.“ Auk Flórída virðist Tívólíið í Kaup- mannahöfn einnig heilla mjög. „Svo hafa fjölskyldur farið til Spánar á sólarströnd og á fótboltaleik í Liverpool á Englandi, enda er ætlunin að láta drauma krakkanna ræt- ast í þessum ferðum og þeir draumar eru margvíslegir,“ segir Áslaug. Disney-heimurinn heillar mest Við afhendinguna styrkjanna í gær fengu börnin og systkini þeirra auk viðurkenningarskjals peysur merktar Icelandair. Auður Guð- finna Sigurðardóttir ásamt börnum sínum, Júlíu Ósk og Gunnari Loga Tómasbörnum, Tryggvi Svansson, Peggy Helgason, iðjuþjálfi og stjórnarmaður Vildarbarna, og Vilborg Stefánsdóttir, starfs- maður Icelandair. Á UNDANFÖRNUM árum hafa fjölmörg sögufræg hús og mann- virki notið góðs af málningar- styrkjum HörpuSjafnar og gengið í endurnýjun lífdaga. „Með styrkj- unum viljum við leggja menningar- og þjóðþrifamálum lið á áþreifan- legan hátt, stuðla að verndun mannvirkja sem hafa menningar- sögulegt gildi, auk þess að styrkja við góðgerðarsamtök og íþrótta- og ungmennafélög víða um land,“ segir Vigfús Gunnar Gíslason, sölustjóri HörpuSjafnar, en um- sóknarfrestur um málningarstyrki fyrirtækisins þetta árið rennur út í dag. Á undanförnum sjö árum hefur HarpaSjöfn veitt 120 aðilum styrk í formi 18 þúsund lítra af málningu að andvirði um níu milljónir króna. Aðspurður segir Vigfús fyrir- tækinu árlega berast á bilinu 70– 100 umsóknir og síðan hafi sérstök styrkveitingarnefnd það vanda- sama hlutverk að velja úr þá 15–20 aðila sem hljóta styrk það árið. Segir hann yfirleitt reynt að hafa styrkþegahópinn sem fjölbreytt- astan, en meðal þeirra sem leitað hafa til HörpuSjafnar og fengið styrk eru Nonnahús á Akureyri, Skútustaðakirkja í Mývatnssveit, Patreksfjarðarkirkja, Hjálpræðis- herinn, Rauði kross Íslands, Slysa- varnafélagið Landsbjörg, Skíða- skólinn í Kerlingarfjöllum, Íþróttafélag fatlaðra og ýmis söfn úti á landi. Að þessu sinni mun HarpaSjöfn veita samtals um tvö þúsund lítra af málningu, að verðmæti tvær milljónir króna, til styrkþega. Seg- ir Vigfús að gera megi ráð fyrir að úthlutað verði um miðjan næsta mánuð. Umsóknarfrestur um málningarstyrki HörpuSjafnar rennur út í dag Leggja þjóð- þrifamálum lið BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumargjöf veitti í gær þrjá styrki til málefna barna. Í febrúar sl. auglýsti Sum- argjöf eftir umsóknum um styrki til verkefna í þágu barna. Alls bár- ust 30 umsóknir og komst stjórn félagsins að þeirri niðurstöðu að veita að þessu sinni þrjá styrki að upphæð 500 þúsund hver. Styrkina hlutu: Anna C. Leplar, myndmenntakennari, og Margrét Tryggvadóttir, bókmenntafræð- ingur, til gerðar listaverkarbókar fyrir börn. Er henni ætlað er að hvetja börn til myndlesturs og flétta saman íslenskri listasögu og skemmtun. Elfa Lilja Gísladóttir, tónlistar- kennari, vegna þróunarverkefn- isins Hring eftir hring. Felst verk- efnið í námsefnisgerð í tónlist og hreyfingu fyrir elstu börn leik- skóla. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn, sem standa að Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk. Verkefnið nær til alls lands- ins og hefst ár hvert á degi ís- lenskrar tungu, 16. nóvember. Á síðasta starfsári tóku 4.350 nem- endur úr 250 bekkjardeildum frá 151 grunnskóla þátt í keppninni. Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað á sumardaginn fyrsta vorið 1924. Lengst af annaðist það rekst- ur dagheimila og leikskóla Reykja- víkurborgar þar til borgin yfirtók reksturinn. Á undanförnum árum hefur Sumargjöf haslað sér völl sem styrktaraðili ýmissa málefna sem varða heill barna í Reykjavík. Sumargjöf veitir þrjá styrki í upphafi sumars Morgunblaðið/Árni Torfason Margrét Tryggvadóttir, Anna Leplar, Ingibjörg Einarsdóttir, Baldur Sig- urðsson og Elva Lilja Gísladóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.