Morgunblaðið - 22.04.2005, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.04.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 19 DAGLEGT LÍF Sláttutraktor Poulan Pro 17,5 Hö Vökvaskiptur Grassafnari www.slattuvel.com Síðumúli 34,Inngangur frá Fellsmúla Sími 5172010 Tilboð 299.000.- É g hafði átt mér þann draum í mörg ár að setja á stofn svona starfsemi, þar sem boðið yrði upp á fjöl- breytta þjónustu fyrir líkama og sál. Koma á fót stað, þar sem fólk gæti komið og fengið eitthvað varðandi bætta heilsu, andlega og líkamlega,“ segir Ragnheiður Júlíusdóttir, sem síðastliðið haust stofnaði Heil- unarsetrið á Dverghöfða 27, ásamt Unni H. Teitsdóttur. Nú starfa þar níu meðferðaraðilar sem bjóða upp á mismunandi meðferðir fyrir líkama og sál. Má þar nefna nudd af ýmsu tagi svo sem heilsunudd, svæðanudd, heilun, miðlun, spámiðlun, og höf- uðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. „Markmið Heilunarsetursins er að hafa meðferðir fyrir sem breiðastan hóp fólks. Við teljum að manneskjan samanstandi af líkama, sál og anda, og að við þurfum að hætta að slíta þessa eðlisþætti okkar úr samhengi hvern frá öðrum. Það sem fólk gerir gott fyrir líkama sinn, gerir það gott fyrir sálina sína og öfugt,“ segir Ragnheiður. Höfuðbeina- og spjald- hryggjarmeðferð Sá sem þessar línur skrifar liggur einmitt á bekknum hjá Ragnheiði í þeirri von að ráða bót á krónískri vöðvabólgu, sem lengi hefur hrjáð hann, ásamt vænum skammti af svæsinni millirifjagigt. Ýmsar leiðir hafa verið reyndar án árangurs, en líklega er þetta atvinnusjúkdómur sem stafar af langri setu við tölvu. Á bekknum hjá Ragnheiði í höf- uðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð færist yfir mann mikil værð enda er lágvær og róandi tónlist spiluð á meðan. Þetta fer þannig fram að maður liggur fullklæddur á bekk og meðferðaraðilinn byrjar á að greina hreyfinguna í mænuvökvanum með því að þreifa eftir henni á nokkrum stöðum á líkamanum. Ragnheiður segir að þannig megi finna hvar spenna liggi sem hindri hreyfinguna. „Meðferðin er síðan fólgin í því að nota ákveðna tækni og létta snert- ingu til að losa um spennuna í band- vefjum og himnukerfi miðtaugakerf- isins, ásamt því að liðka til fyrir hreyfingu höfuðbeina og spjald- hryggjar,“ segir Ragnheiður og bæt- ir því við að þessi meðferð, sé mjög mild meðferð, sem þrátt fyrir lítið inngrip hafi mjög djúp áhrif. „Þessi milda aðferð, og það að líkami þiggj- andans ræður alltaf ferðinni, tryggir að þetta er mjög öruggt og hættu- laust meðferðarform,“ segir Ragn- heiður ennfremur. Í svæðanuddi og heilun Tveimur dögum síðar er greinarhöf- undur aftur mættur í Heilunarsetrið, í þetta sinn á bekkinn hjá Jarþrúði Jónasdóttur, sem ætlar að taka hann í svæðanudd og heilun. Inni hjá Jar- þrúði ríki sama værðin og lágvær tónlistin, eins og hjá Ragnheiði. Jarþrúður byrjar á að þreifa á nokkrum viðkvæmum punktum á handleggjum, áður en hún tekur til við svæðanuddið, sem felst í því að fætur eru nuddaðir, og svara þá ákveðin svæði á iljum, tám og hælum til vissra líffæra í líkamanum. Í svæðanuddinu finnur maður meira fyrir meðferðinni en í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðinni og raun- ar með ólíkindum hvað sumir punkt- ar á fótunum á manni geta verið við- kvæmir fyrir snertingu. Að loknu svæðanuddinu gefur Jarþrúður stutta meðferð í heilun og leggur meðal annars hendur yfir hnén, og vekur það eftirtekt grein- arhöfundar hversu mikinn hita legg- ur frá höndum hennar meðan á þessu stendur. Hér skal ekki farið nánar út í starfsemi Heilunarsetursins enda verður hver og einn að reyna það á sjálfum sér hvaða meðferðaraðferðir henta best. En þess má geta að til stendur um næstu helgi, að halda þar opið hús með kynningu á starfsemi Setursins. Meðal annars verður boðið upp á stuttar kynningarmeðferðir í því sem fólk vill prufa og getur fólk þá prufað fleiri en eina meðferð, svo sem nudd, heilun og eða miðlun. Einnig má nefna að von er á breskum miðlum fyrstu helgina í maí, sem munu bjóða upp á námskeið, einkameðferðir og skyggnilýsingarfund í Heilunar- setrinu. Morgunblaðið/Jim Smart Fimm af níu meðferðaraðilum Heilunarsetursins, frá vinstri: Ragnheiður Júlíusdóttir, Jarþrúður Jónasdóttir, Eva Eðvalds, Margrét Oddsdóttir og Unnur H. Teitsdóttir.  HEILSA Líkami, sál og andi Jarþrúður Jónasdóttir hefur sér- hæft sig í svæðanuddi og heilun. Vöðvabólga er algengur kvilli í nútíma samfélagi og menn leita ýmissa leiða til að vinna bug á honum, bæði hefðbundinna og óhefðbundinna. Sveinn Guð- jónsson sótti Heilunarsetrið heim og prófaði þar tvær ólíkar meðferðaraðferðir. TENGLAR ..................................................... www.heilunarsetrid.is M ikið var sungið á skemmti- kvöldi sem fjórir kór- ar, sem allir eru starfandi á höfuðborgarsvæðinu, efndu til í Valsheimilinu við Hlíðarenda fyrir skömmu. Þetta voru Kvennakór Kópavogs, Karlakór Kópavogs, Sam- kór Reykjavíkur og Kirkjukór Óháða safnaðar- ins. Á milli atriða var boðið upp á léttan kvöldverð, sem kórfélagar eða makar þeirra höfðu útbúið. Boðið var upp á tvenns konar matarmikil salöt ásamt drykkjum sem kórfélagar og gestir gerðu góð skil. Daglegt líf falaðist eftir upp- skriftunum hjá Þór Þráinssyni húsasmiðameistara og Magnúsi Steinarssyni tryggingamanni, sem báðir syngja með Karlakór Kópa- vogs, en Magnús er jafnframt for- maður kórsins. Túnfiskpastasalat (fyrir 4–6) 6 dl vatn 250 g pastaslaufur Sjóðið vatn og látið pastaslaufur út í. Lækkið hitann og sjóðið í 15 mínútur. Hellið vatninu af. 1 laukur, saxaður 1 rauð paprika, söxuð 1 gul paprika, söxuð 1 blaðlaukur, sneiddur ½ gul melóna, í bitum ½ agúrka, í bitum 3 gulrætur, sneiddar 3 tómatar, í bátum ½ jöklasalat, saxað 2 dósir túnfiskur í vatni Blandið grænmetinu saman í stórri skál. Látið vatnið renna af túnfiskinum og blandið honum sam- an við grænmetið. Bætið pasta saman við. Pastað má vera bæði heitt eða kalt. Ef óskað er eftir köldu pasta má skola pastaslaufurnar undir köldu vatni. Salatið má geyma í ísskáp í sólar- hring. Sósa 2 dl majones 1½ dl ólífuolía 2 tsk. karrí 3 hvítlauksrif, marin 1 tsk. salt 4 msk. hunang 1 sítróna, safinn bara notaður (ca 8 msk.) Hrærið saman majonesi, ólífuolíu, karríi, hvítlauk, salti og hunangi. Kreistið sítrónusafa út í og blandið vel. Gott er að geyma einhverja stund í ísskáp. Sælkerasalat (fyrir 6 manns) 1 bolli hrísgrjón soðin í 1 bolla vatni með kjötkrafti út í. Síðan kæld. 200 g rækjur 200 g skinka 2 græn epli ½ bolli sýrð gúrka 1 rauð paprika 1 bolli bufflaukur ¼ bolli fersk steinselja 2 msk. ferskt dill eða 1 msk. þurrk- að ½ tsk. pipar 1 box og 3 msk. sýrður rjómi Allt hráefnið saxað frekar smátt og því öllu blandað vel saman. Borið fram með hvítlauksbrauði eða öðru brauði. Best er að útbúa þetta salat degi áður en það er borðað.  MATUR Fersk salöt með hækkandi sól Morgunblaðið/Árni Sæberg Magnús Steinarsson með túnfiskpastasalatið. Þór Þráinsson með sælkerasalatið. join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.