Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR G reinar um kynþokka- fyllstu konur lands- ins, fullnægingar- krem, áhuga karla á konum og daðurtil- burði er að finna í tímariti sem barst inn um lúguna hjá mér á dögunum. Umrætt tímarit nefn- ist Femin og hefur þann hóg- væra undirtitil „fyrir allar kon- ur“. Þetta vakti forvitni mína og ákvað ég að renna aðeins yfir lesefnið. Ég fletti í skyndi framhjá umfjöllun um „gyðjur kvenleikans“ og auglýsingum um andlitsmeðferð. Í vandamála- dálki blaðsins sá ég meðal ann- ars ráðleggingar fyrrum fegurð- ardrottningar til 14 ára stúlku um hvernig losna skyldi við óæskilegan skeggvöxt í andliti. Ég staldraði loks við umfjöllun blaðsins um kynþokkafyllstu konur landsins. „Líkt og með margt annað er kynþokki fólks afar misjafn,“ eru upphafsorð þeirrar úttektar en til þess að meta kynþokkann hefur blaðið fengið nokkra vel valda karla til liðs við sig. Eru konunum gefin einkunnarorð sem minna helst á „hnotskurn“ bókadómara Kast- ljóssins fyrir jólin. Þannig geta þær (og þeir?) sem blaðið lesa fræðst um að Brynja Þorgeirs- dóttir, fréttakona á Stöð 2, sé Cameron Diaz Íslands, Þórunn Lárusdóttir leikkona sé krúttið í leikhúsinu og að Sirrý á Skjá einum eldist eins og besta vín. Sjálf hef ég takmarkaðan áhuga á lesefni þar sem konum er líkt við gömul vín, ballerínur eða grískar gyðjur ef því er að skipta. Ef til vill ættu Femin konur að endurskoða undirtitil blaðs síns. Að öllu gamni slepptu verð ég að viðurkenna að mér þykir óþægilegt að fá þau skila- boð að vegna þess að ég er kona, eigi ég að hafa tiltekin áhuga- mál. Mér þykir það satt að segja verulega íþyngjandi. En í nú- tímasamfélaginu er ekki skortur á ákveðnum hugmyndum um konur og karla, karlmennsku og kvenleika. Oftar en ekki má lesa úr þeim skilaboð um að kynin séu ólík að eðlisfari og að þeirra hlutverk sé að sætta sig við þá staðreynd. Þessi skilaboð koma gjarnan fram í sjálfshjálparbókum af ýmsu tagi en þau er líka að finna í leikritum og skemmtiþáttum í sjónvarpi, svo dæmi séu nefnd. Fyrir nokkrum árum kom til að mynda út bók sem nefnist Karl- ar eru frá Mars, konur eru frá Venus og fjallar um samskipti kynjanna. Bókin öðlaðist tölu- verðar vinsældir hjá almenningi en í henni eru Mars- og Venus- búar látnir kynnast, læra að meta kosti og galla hver annars og lifa í sátt og samlyndi. Fleiri léttsaltaðar poppkenningar um samskipti kynjanna hafa verið settar í söluvænlegar umbúðir undanfarin ár. Þar má nefna leikritið Hellisbúann sem lengi vel var sýnt fyrir fullu húsi hér á landi. Þar var þeirri hugmynd varpað fram að karlar væru í eðli sínu „veiðimenn“ en konur „safnarar“ hvað sem það nú þýð- ir. Það á að heita svo að við lifum á tímum frelsis, jafnréttis og ein- staklingshyggju. En hvers vegna skyldi okkur ekki enn hafa tekist að losa okkur úr viðjum fastmót- aðra hugmynda um kynin? Af hverju er jafnmikið gert af því að alhæfa um kynin og raun ber vitni? „Maður fæðist ekki kona, heldur verður það,“ er kjarninn í tímamótaverki frönsku kvenrétt- indakonunnar, Simone de Beauvoir, Hitt kynið. Bókin kom út fyrir meira en hálfri öld, eða árið 1949 og varð eins konar biblía hinnar nýju kvennabar- áttu. Í henni varpar de Beauvoir ljósi á stöðu kvenna í sögulegu og félagslegu ljósi. Með fullyrð- ingunni um að engin fæðist kona, heldur verði kona hafnar de Beauvoir því að konur hafi meðfætt eðli. De Beauvoir held- ur því í raun fram að kvenleik- anum sé þröngvað upp á konur. Í grein Vilhjálms Árnasonar um danska heimspekinginn Sören Kierkegaard, sem ég fann á heimspekivef Háskóla Íslands, er rætt um það að hver mann- eskja beri ábyrgð á því sjálf að velja hver hún er. Allir menn eru gæddir eiginleikum sem þeir eiga sameiginlega með sumum en ekki öðrum, svo sem litar- hætti og kynferði „En það að lifa og vera til sem manneskja er ekki eiginleiki heldur möguleiki sem hver og einn verður að leit- ast við að raungera í sínu eigin lífi,“ segir Vilhjálmur í grein sinni. Mér hefur orðið hugsað til þessara orða undanfarna daga eftir að ég heyrði því haldið fram eins og viðtekinni staðreynd að konur og karlar væru einfald- lega ólík andlega að upplagi. Ekki verður annað um þessar hugmyndir sagt en að þær gera lítið úr frelsi einstaklingsins og möguleikum hvers og eins til þess að móta líf sitt sjálfur. Það er fremur ógnvekjandi að hugsa til þess að við fæðumst í þennan heim með ákveðin forrit í höfð- inu eftir kyni. Að það sé búið að gefa spilin fyrirfram. Ég hef heldur engar röksemdir heyrt fyrir hugmyndunum um eðlis- mun kynjanna og fæ ekki séð hvernig hægt er að því blákalt fram að slíkur munur sé til stað- ar. Það blasir hins vegar við að öll erum við á einhvern hátt steypt í mót samfélagsins og sennilega er það nokkuð sem við verðum að sætta okkur við. Við hljótum ávallt að mótast að einhverju leyti af tíðarandanum hverju sinni. Ég held samt að það kæmi okkur öllum til góða að við reyndum að losa okkur eins og hægt er við fyrirfram ákveðnar hugmyndir um ólíkt eðli kynj- anna og klisjukenndar fullyrð- ingar um kosti og lesti sem af þeim kunna að leiða. Bindum ekki fólk á klafa kynferðis – munum að manneskja er mögu- leiki en ekki fyrirfram ákveðin stærð. Menn og möguleikar Sjálf hef ég takmarkaðan áhuga á lesefni þar sem konum er líkt við gömul vín, ballerínur eða grískar gyðjur ef því er að skipta. VIÐHORF Elva Björk Sverrisdóttir elva@mbl.is ✝ Jóhann ÓlafurÁrelíus Guð- mundsson fæddist 4. ágúst 1934 á Horni í Mosdal í Arnarfirði. Hann lést á heimili sínu að morgni 14. apríl síðastliðins. Foreldrar hans voru Guðmundur Jó- hannsson, bóndi á Dynjanda í Arnar- firði, f. 14. maí 1893, d. 16. nóvember 1964, og Guðrún Sig- ríður Guðjónsdóttir, f. 15. júní 1894, d. 7. júní 1962. Systir Jóhanns sam- feðra er Jóna Sigurbjörg Guð- mundsdóttir, f. 5. júní 1933, gift Marinó Finnbogasyni. Bræður samfeðra eru: Guðjón Jónsson, f. 27. júní 1917, d. 27. janúar 1999, kona hans Kristjana Guðsteins- dóttir, f. 31. júlí 1918, d. 7. apríl 1999, og Sigurður Guðni Jónsson, f. 21. október 1918, d. 5. janúar 1952, kona hans var Sigríður Sig- urðardóttir, f. 24. september 1915, d. 11. júní 2003. Hinn 27. desember 1958 kvænt- ist Jóhann Sigurlaugu Hannes- dóttur, f. 15. júlí 1934. Foreldrar hennar voru Hannes Kristinsson, f. 8. apríl 1894, d. 25. október 1987, og Helga Geirþrúður Þor- valdsdóttir, f. 11. ágúst 1891, d. 2. febrúar 1982. Börn Jóhanns og Sigurlaugar eru: 1) Anna Baldvina, f. 7. október 1958, var gift Ragnari Sig- urðssyni, börn þeirra eru Friðrik Þór og Selma Dögg. 2) Guðmundur Jó- hannsson, f. 19. sept- ember 1967, kona hans er Arndís Magnúsdóttir, börn þeirra eru Jóhann Ingi og Magnús Dag- ur. Jóhann fluttist til Reykjavíkur 1951 og hóf nám í rennismíði við Iðnskól- ann í Reykjavík. Hann lauk þaðan námi 1955. Jóhann var á verk- samningi hjá vélsmiðjunni Keili. Hann hóf störf á renniverkstæði Egils Vilhjálmssonar sem síðar fluttist á Smiðjuveg í Kópavogi. Árið 1984 stofnaði hann, ásamt nokkrum samstarfsmönnum hjá Agli Vilhjálmssyni, Vélaverkstæði Egils. Þar starfaði hann til 67 ára aldurs. Hann gekk til liðs við Odd- fellowregluna, st. nr. 9, Þormóð goða, hinn 22. október 1969. Jóhann og Sigurlaug bjuggu allan sinn búskap á Valhúsabraut 15 á Seltjarnarnesi. Útför Jóhanns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Elsku pabbi minn, ekki grunaði mig að kallið kæmi svona snemma, að þegar við töluðum saman kvöldið áður en ég fór út, í stutta ferð til Þýskalands, að það væri okkar síð- asta samtal. En svona er nú lífið, óútreiknanlegt. Eftir sitjum við hin með sorg í hjarta. Nú hugsa ég til allra stundanna sem við áttum saman, við veiðar eða úti í skúr að dytta að einhverju. Þar horfði ég yfir öxlina á þér og reyndi að nema eitthvað af þinni handlagni og vandvirkni sem var einstök. Það var ekki neitt sem þú gast ekki gert við eða smíðað. Þessi einstaki hæfi- leiki þinn nýttist okkur öllum vel, mér og vinum þínum sem gátu þá komið með biluð eða brotin veiði- hjól, byssur eða annað sem þurfti að laga eða endurbæta. Það var kappsmál þitt að hjálpa vinum í vanda. Veiðar áttu hug þinn allan og ófá- ar voru ferðirnar sem við fórum saman upp í Stóru-Laxá, sem var í miklu uppáhaldi hjá þér. Þar varst þú á heimavelli og þekktir þar hvern krók og kima. Þar áttum við okkar góðu stundir saman með veiðifélögum þínum, sem þér þótti svo afar vænt um. Þar leiðbeindir þú mér við veiðarnar og mest gladdi það þig þegar ég, „lær- lingurinn“, náði að aula upp einum. Ég kveð þig nú í hinsta sinn og geymi mínar yndislegu minningar um þig, elsku pabbi minn. Megi guð geyma þig um alla tíð. Þinn sonur Guðmundur. Kallið er komið, Komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda, heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinzta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku karlinn minn, hve sárt er að kveðja þig. Hafðu bestu þakkir fyrir að hafa verið til fyrir okkur. Kveðja. Þín Anna. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku Jói minn, það er með mik- inn söknuð í hjarta sem ég kveð þig. Það var árið 1989 að ég fór að venja komur mínar á Valhúsabrautina að heimsækja Guðmund son þinn. Strax frá fyrstu kynnum fann ég að þarna var á ferðinni einstaklega blíður og góður maður, heilsteyptur og hógvær. Árin liðu og betur og betur kynntist ég ykkur hjónum og betri tengdaforeldra er ekki hægt að hugsa sér, mér hefur frá fyrstu kynnum verið tekið sem einu af börnum ykkar. Við Guðmundur eigum tvo ynd- islega drengi, þá Jóhann Inga og Magnús Dag, sem minnast afa síns með miklu stolti, enda var samband þeirra mjög náið og er söknuður þeirra mikill. Alltaf var gaman að fá að gista hjá afa og ömmu á Nesinu og voru ófáar ferðirnar sem farnar voru út í fjöru, út að ganga, eða allar bíl- skúrsferðirnar, þar var alltaf nóg að gera. Jói var mikill og góður veiðimað- ur bæði á stöng og á árum áður í skotveiði og eigum við fjölskyldan góðar minningar úr veiðiferðum með honum, hann vissi alltaf hvar fiskinn var að fá. Jói var eins og aðrir á hans aldri nýfarinn að njóta eftirlaunaáranna og oft er það með tilhlökkun í huga að geta snúið sér alfarið að hugð- arefnum sínum og gert allt sem mann langar til. En kallið kom mjög snöggt. Ég vil með þessum fátæklegu orðum, elsku Jói minn, þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur, allar þær góðu stundir sem við átt- um með þér og ekki síst fyrir hvað þú varst einstaklega viljugur að koma í Fjörðinn og passa litlu afa- strákana þína. Hafðu þökk fyrir allt og bið ég góðan Guð að styrkja elskulega tengdamóður mína. Arndís. Elsku afi. Þær fregnir sem við fengum hinn 14. apríl að þú værir látinn voru okkur mjög erfiðar. Við erum mjög fegin að við fengum að eyða með ykkur kvöldstund kvöldið áður. Það kvöld er okkur mjög minnisstætt. Við sitjum hérna systkinin og rifjum upp þær stundir sem við áttum með þér og ömmu, og þær eru margar og góðar. Að fá að koma til þín og ömmu út á Nes og gista yfir helgi því að það var stjanað við okkur út í eitt. Um leið og við komum var strax byrjað að hugsa um hvað við systkinin vildum gera og það sem við vildum byrja á var að fara í Bónus með ykkur, það var aðalsportið. Svo má ekki gleyma öllum ísferðunum í Perluna þar sem við sátum öll saman og borðuðum ís. Síðan var labbað út fyrir og umhverfið skoðað í kíki. Elsku afi, það er svo mikið af góðum minningum um þig í huga okkar sem er svo gaman að rifja upp því að það eru minningarnar sem hjálpa okkur á erfiðum stund- um. Þegar við systkinin settumst niður og fórum að tala um þessar góðu stundir var tvennt sem var okkur efst í huga. Það var þegar þið amma voruð að koma heim frá Glasgow og við tókum á móti ykkur á flugvellinum. Amma var í fríhöfn- inni og þú komst labbandi út á und- an og Friðrik spurði hvað þú hefðir keypt í fríhöfninni handa okkur og þú sagðist ekki hafa farið þangað inn. Þú snerist þá á hæli og tókst Friðrik með þér inn og labbaðir framhjá tollvörðunum og veifaðir þeim að allt væri í góðu lagi (eflaust sá eini sem hefur fengið að labba í gegnum tollinn aftur með gest). Selma horfði á eftir okkur inn og ákvað að bíða við dyrnar því hún var svo spennt að sjá hvað elsku afi okkar hefði keypt handa okkur. Eftir dágóða stund komuð þið labb- andi út aftur með tvo fallegustu bangsa sem við höfum séð, einn bleikan handa Selmu og sjóara handa Friðriki, og vá hvað við urð- um glöð. Þegar heim var komið og þið amma voruð að taka upp úr töskunum voruð þið hlaðin dóti, föt- um og nammi handa okkur. Síðan allar laxveiðiferðirnar sem við fjöl- skyldan fórum í. Það var svo mikið sport hjá okkur systkinunum að fara að veiða með afa, pabba og Gumma. Þið vilduð að við kæmum með að veiða og það var svo gaman að þið veiðikallarnir vilduð hafa tvo grislinga með ykkur. Það er svo ótrúlega margt sem kemur upp í hugann hjá okkur, all- ar stundirnar á Nesinu, veiðiferð- irnar og sumarbústaðarferðirnar, það væri hægt að skrifa nokkrar bækur um þær. Elsku afi, við munum ávallt sakna þín og það á ekki eftir að líða sá dagur sem við munum ekki hugsa til þín. Þín barnabörn Selma Dögg og Friðrik Þór. Að biðja sem mér bæri, mig brestur stórum á. Minn herra Kristur kæri æ, kenn mér íþrótt þá. Gef yndi mitt og iðja það alla daga sé með bljúgum hug að biðja sem barn við föður kné. (Björn Halld.) Elsku besti afi minn, nú hefur þú kvatt okkur. Ég á eftir að sakna þín mikið, elsku afi. JÓHANN Ó.Á. GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.