Morgunblaðið - 22.04.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 22.04.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 25 MINNINGAR Við höfum átt svo margar góðar stundir saman. Það var alltaf svo gaman að gista hjá þér og ömmu á Nesinu. Núna sit ég og hugsa um jólin, það verður skrýtið að fá þig ekki til okkar á aðfangadag. En ég er svo heppinn að hafa átt þig sem afa og á fullt af góðum minningum sem ég geymi í hjarta mínu. Vertu sæll, elsku afi. Jóhann Ingi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Afi minn, þú varst svo góður vin- ur minn, þú hafðir alltaf nógan tíma fyrir mig. Það var svo gaman að spila við þig, fara í fjöruna, út að ganga og í bílskúrinn. Þar var sko hægt að smíða og gera allt mögulegt. Ég skal passa hana ömmu voða vel fyr- ir þig. Guð geymi þig, elsku afi minn. Þinn afastrákur Magnús Dagur. Mig langar að minnast bróður míns Jóhanns með nokkrum orðum. Andlát hans bar brátt að. Jói bar nafn mannsins hennar ömmu okkar Guðríðar, Jóhanns Ólafs, sem hún missti í sjóinn árið 1912. Árelíusar nafnið var eftir skipsfélaga afa sem tók út af skipinu sem þeir voru saman á og drukknaði. Faðir okkar Guðmundur hafði tekið við forsjá búsins að Horni með ömmu þegar hann fórst. Móðir okkar missti fyrri eiginmann sinn, Jón Sigurðsson frá Lokinhömrum, í sjóinn árið 1925. Með honum átti hún drengina Guð- jón og Sigurð Guðna sem voru á sjötta og sjöunda aldursári þegar faðir þeirra lést. Foreldrar okkar giftust 19. október 1932 og flutti mamma þá að Horni í Mosdal og settist í búið hjá ömmu Guðríði og föður okkar. Þar erum við systkinin fædd. Amma var ljósmóðir og tók á móti okkur í heiminn. Það var kall- að að hún væri ljósa okkar. Í Mos- dalnum áttum við systkinin litlu sporin okkar og þessum stað tengd- umst við sterkum böndum. Þar var margt brallað. „Áin“, sem er bara smá lækur í okkar augum eftir að við urðum fullorðin, var stífluð og þá varð til stórt úthaf sem enginn komst yfir nema fuglinn fljúgandi. En Jói bróðir smíðaði flotta báta og skip sem fluttu vörur og fólk milli landa. Það voru byggðar bryggjur og vöruskemmur. Enginn hörgull var á byggingarefni. Nóg af grjóti og mold og fullt af spýtum í skipin. Það getur nú verið að stundum hafi átt að nota sumar spýturnar í eitt- hvað annað! Okkur fannst við alltaf sjá móta fyrir gömlum framkvæmd- um okkar við ána, fyrir ofan brúna. Árdalurinn sem var mjög brattur og djúpur var tilvalinn til að renna sér á rassinum niður að ánni og á sleða á veturna. Hann er bara ekki neitt í dag séður með augum okkar fullorðinna. Við áttum líka bú í kofarústum uppi á túni. Þar höfðum við kindur, hesta, kýr, hunda og reyndar allan búpening sem við þekktum ásamt öllum flottasta hús- búnaði sem þekktist. Þetta var auð- vitað allt heimafengið, horn, leggir, skeljar, alls konar dót, diskar, bollabrot, glerbrot og annað eftir því. Þarna byggðum við heilu stór- hýsin og hallirnar af flottustu gerð. Já, hugmyndaflugið var ótakmark- að. Hundurinn Týri, sem fullu nafni hét Týrus, lék líka stórt hlutverk í leiknum. Hann var hafður sem burðarklár eða óargadýr, hættulegt villidýr ef á þurfti að halda. Svo var hesturinn Tvistur; brúni, stóri og góði hesturinn okkar. Hann hafði hvíta tvískipta blesu í andlitinu sem gaf honum þetta nafn. Hann teygði höfuðið niður að jörð svo við gætum beislað hann og gekk sjálfur að nógu stórum steini svo við gætum komist á bak honum þegar við vor- um send til að sækja hann í hagann. Ekki var hann hraðskreiður bless- aður og ef við vildum láta hann hlaupa þá lyfti hann afturendanum ofur varlega til að láta okkur vita að hann réði ferðinni. Ávallt passaði hann þó vel að við dyttum ekki af baki hans. Ég man mjög vel eftir því þegar við fengum gefin stígvél sem föð- ursystir okkar frá Reykjavík færði okkur. Þau voru dökkblá með myndabekk efst. Jói þurfti auðvitað strax að prófa hvað hægt væri að vaða djúpt án þess að blotna í fæt- urna. Fullorðna fólkið reyndi að sannfæra okkur um að stígvélin yrðu ónýt ef þau blotnuðu að innan. Við vorum svoddan grallarar að okkur var trúandi til alls. Vorið 1942 fluttum við að Dynjanda í Arn- arfirði. Þá breyttist margt. Í Mos- dalnum voru fimm bæir í byggð, margir krakkar og samgangur mik- ill á milli bæja. Á Dynjanda var næsti bær í margra kílómetra fjar- lægð. Við eignuðumst fljótt góða vini á Borg sem var næsti bær og fólkið þar varð gott vinafólk okkar. Margt rifjast upp þegar hugur- inn reikar til baka til æskuára okk- ar. Manstu, Jói, þegar við eltumst við „hulduféð“? Þú varst svo mikill og góður veiðimaður. Manstu þegar þú veiddir stóra silunginn sem reyndist, þegar betur var að gáð, vera stórlax? Þetta var mikið afrek af ungum dreng. Manstu þegar þú varst að æfa þig að spila á harm- onikuna? Allir pirraðir en þú gafst ekki upp og náðir góðum tökum á hljóðfærinu. Það kom að því að ung- mennafélagið sendi tvo unglinga til Ísafjarðar á skíðaskólann í Selja- landsdal. Jói og Valgeir í Hokinsdal fóru og námskeiðið bar góðan ár- angur. Þegar heim var komið lögðu þeir svigbrautir og við krakkarnir lögðum okkur fram og tókum leið- beiningum í skíðaíþróttinni. Allir á heimasmíðuðum skíðum sem bræð- urnir í Hokinsdal smíðuðu. Manstu þegar við vorum í skóla á Hrafns- eyri? Þegar við vorum allt kvöldið að sprengja niður hengjur fram á dal? Búið var að leita að okkur dauðaleit og loks fann séra Kristinn okkur, hvað hann varð ofsalega reiður, en jafnframt feginn að finna okkur heil á húfi. Margt rifjast upp, við vorum frjáls og lífið svo skemmtilegt. Ekki man ég síst þeg- ar þú komst vestur með kærustuna þína, hana Sigurlaugu. Hún vann strax hug og hjarta allra með ljúf- mennsku sinni og framkomu. Nú skilja leiðir að sinni. Þú fórst svo fyrirvaralaust og við söknum þín svo sárt. Okkur Marinó langar að senda Sigurlaugu, Önnu, Guðmundi og fjölskyldum þeirra okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Lóukvak og léttfætt lömb á grundum kalla hug minn heim. Á hljóðum stundum hvíslar hjartað. Geym þann hreina söknuð. Komið er kvöld um fjöll og kyrrðin vöknuð. (Snorri Hjartarson) Elsku bróðir, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín systir Jóna. Við andlát Jóhanns Guðmunds- sonar vilja samstarfsmenn hans til margra ára heiðra minningu hans með nokkrum orðum. Jói eins og hann var ávallt kall- aður af vinnufélögum var í mörg ár verkstjóri á renniverkstæði Egils Vilhjálmssonar hf. og gegndi því starfi áfram eftir að hann festi kaup á verkstæðinu árið 1984 ásamt öðr- um vinnufélögum, sem þar unnu. Verkstjóri þarf að takast á við ýmis verkefni, bæði starfsmenn á vinnustaðnum og þá sem sækjast eftir vinnuframlagi. Menn þurfa mismunandi orð og athafnir, þessa aðferð kunni Jói í ríkum mæli. Oft fékk Jói til úrlausnar verkefni sem erfitt var að fást við og oftast fann hann viðunandi lausn á verkefninu. Jói var að jafnaði hægur og prúður í samskiptum en gat þó verið fastur fyrir ef því var að skipta. Eftir að hann lét af störfum hélt hann ávallt uppi samskiptum við fyrri vinnufélaga og meðal annars kom hann reglulega í kaffi á verk- stæðið og veitti iðulega meðlæti með kaffinu. Við núverandi og fyrrum starfs- menn munum sakna Jóa og allra þeirra góðu stunda sem við höfum átt með honum í gegnum tíðina. Við færum eiginkonu Jóa, Sigurlaugu Hannesdóttur, börnum þeirra og barnabörnum innilegustu samúðar- kveðjur. Vinnufélagarnir hjá Agli, véla- verkstæði, Freyr, Óli S., Sigurbjörn, Sævar, Haraldur, Agnar og Kjartan. Er sólin hnígur hægt í djúpan sæ og höfuð sitt til næturhvíldar byrgir, á svalri grund, í golu þýðum blæ er gott að hvíla þeim, er vini syrgir. (Hannes Hafstein.) Í dag syrgjum við félagar vin okkar Jóhann Guðmundsson, eða Jóa eins og hann var ávallt nefndur. Fyrir fáum mánuðum glöddumst við með kærum vini í 70 ára afmæl- inu á heimili hans og konu, Sig- urlaugar Hannesdóttur, á Valhúsa- braut 15 á Seltjarnarnesi, við mikla gestrisni og hlýju, sem alltaf fylgdi þeim hjónum. Skjótt skipast veður í lofti, stutt er á milli gleði og sorgar. Jóhann hefir verið stór hluti í lífshlaupi okkar allra, veiðifélagi og einstakur gleðigjafi í yfir 40 ár, skjótur til góðra ráða, völundur til allra verka og sérlega úrræðagóður og snarráður. Sannkallaður galdra- maður í aðgerðum sínum við ýmis erfið úrlausnarefni. Hann var einn- ig skjótur að hverfa sjónum okkar, eins og hann hafði sjálfur spáð, er hann yfirgæfi þetta jarðneska líf, en því trúðum við trauðlega. Hann varð bráðkvaddur, eins og sagt er. Jóhann var af vestfirskum ætt- um, uppalinn á bænum Dynjanda í Arnarfirði í dásamlega fallegu um- hverfi. Æskan leið í foreldrahúsum við hin ýmsu sveitastörf, en piltur var harðduglegur. Eftir skólagöngu í heimahögum hélt Jói suður og hóf nám við Iðnskólann í Reykjavík og lauk námi í vélvirkjun árið 1957. Eftir nám hóf Jóhann að starfa hjá bifreiðafyrirtækinu Agli Vilhjálms- syni og vann þar í ein 25 ár, lengst af sem verkstjóri, en síðar eignaðist hann vélaverkstæðið Egil ehf. í Kópavogi ásamt nokkrum félögum sínum. Jói var eins og fyrr segir fljótt valinn til forystu á vinnustað sínum sökum einstakra hæfileika sinna til að fást við erfið verkefni. Við félagarnir fórum oft með bil- aðar stangir, veiðihjól, byssur, sláttuvélar, dælur, bílvélar og hvað- eina til hans og allt var lagað án endurgjalds. Jóhann skipaði sér snemma í raðir Stangaveiðifélags Reykjavíkur, var félagi nr. 106, og starfaði lengi í árnefndum þess, svo sem Stóru-Laxá, Laxá í Kjós, Víði- dalsá og fleiri ám. Hann var með- limur í Oddfellow-hreyfingunni hér í borg til margra ára, en eins og menn vita lætur hún margt gott af sér leiða. Eitt aðaláhugamál Jóhanns í mörg ár hefur verið veiði með stöng að vopni við vötnin ströng, árnar okkar, sem hann hafði yndi af að sækja heim. Oftar en ekki var son- urinn Guðmundur með í för og fet- aði í fótspor föðurins, báðir með sama blíðlyndið og rósemi í orði og æði. Jóhann var frábær veiðimaður og stundaði íþrótt sína af kappi en um leið af forsjálni, gekk aldrei á hlut annarra við veiðarnar og sýndi um- hverfinu fyllstu tillitssemi að hætti náttúruunnandans. Fluguköst hans voru fullkomin og glæsileg, svo un- un var á að horfa. Við bundumst órjúfanlegri vin- áttu fyrir tugum ára vegna veiði- dellu okkar. Dauður er dellulaus maður, heyrðist oft. Skugga hefir aldrei brugðið á þessa vináttu. Hún hefir styrkst og eflst með árunum. Sá er vinur sem í raun reynist, það þekkja allir. Sterk vináttubönd og tryggð eru farsælasta veganestið til æðstu gæða. Slík bönd taka til alls þess sem manninum finnst ómaks- ins vert að sækjast eftir í lífinu. Séu vináttubönd fyrir hendi erum við sæl með lífið, ef þau skortir erum við vansæl. Kær vinur heldur á braut og félagarnir standa hnípnir hjá, tregafullir og hrærðir. Við sendum með þessum fáu lín- um Sigurlaugu Hannesdóttur, börnum, tengdabörnum, barna- börnum og öðru venslafólki Jó- hanns Guðmundssonar innilegar samúðarkveðjur í þeirra miklu sorg, sem vonandi linast við minn- inguna um afburðagóðan dreng, sem var svo annt um ykkur öll. Við kveðjum kæran vin með ljóði Þórarins Hjálmarssonar frá Siglu- firði: Ég þakka okkar löng og liðin kynni, sem lifa, þó að maðurinn sé dáinn. Og ég mun alltaf bera mér í minni þá mynd sem nú er liðin út í bláinn. Und lífsins oki lengur enginn stynur, sem leystur er frá sinnar æviþrautum. Svo bið ég guð að vera hjá þér vinur og vernda þig á nýjum ævibrautum. Hvíl í friðarfaðmi, kæri vin. Veiðifélagarnir Halldór, Ólafur, Kjartan og Friðleifur. Ástkær systir mín, SIGRÍÐUR NÍELSDÓTTIR áður til heimilis að Fellsmúla 7, Reykjavík, lést aðfararnótt 21. apríl á dvalarheimilinu Skjóli. Fyrir hönd aðstandenda, Maren Níelsdóttir. Ástkær dóttir okkar og systir, ERNA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR, Fannafold 245, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 15. apríl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju laugar- daginn 23. apríl kl. 13.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna. Guðmundur Karl Marinósson, Þorgerður Björg Pálsdóttir, Sigrún Huld Guðmundsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN BJARMAN rithöfundur, Fellsmúla 5, Reykjavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 19. apríl. Útför hans verður gerð frá Grensáskirkju föstu- daginn 22. apríl, kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, er vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Sveinbjörg Stefánsdóttir, Benedikt Björnsson Bjarman, Sesselja G. Ingjaldsdóttir, Sveinbjörn Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, OLIVER KRISTJÁNSSON, Vallholt 3, Ólafsvík, sem lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkis- hólmi 17. apríl sl., verður jarðsunginn frá Ólafs- víkurkirkju laugardaginn 23. apríl kl. 14:00. Anna Elísabet Oliversdóttir, Jóhanna Helga Oliversdóttir, Magnús Steingrímsson, Hjördís Oliversdóttir, Jón Þorbergur Oliversson, Kolbrún Þóra Björnsdóttir, Guðmunda Oliversdóttir og aðstandendur.Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN GUÐLAUGSSON, Aðalgötu 5, Keflavík, lést þriðjudaginn 19. apríl. Börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.