Morgunblaðið - 22.04.2005, Page 34

Morgunblaðið - 22.04.2005, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 þjófnaður, 4 naumur, 7 láði, 8 aflið, 9 þakhæð, 11 vitlaus, 13 skot, 14 svifdýrið, 15 laus í sér, 17 dreitill, 20 duft, 22 skyldur, 23 furða, 24 mál, 25 éti upp. Lóðrétt | 1 hæðir, 2 fram- kvæmd, 3 leðja, 4 úr- gangsfiskur, 5 böggull, 6 trjágróður, 10 svelginn, 12 háð, 13 frostskemmd, 15 kunnátta, 16 hitann, 18 bárur, 19 hvassviðri, 20 venda, 21 súg. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 fúlmennið, 8 ferli, 9 senna, 10 nýt, 11 tossa, 13 arnar, 15 hjörs, 18 skata, 21 tóm, 22 launa, 23 ástar, 24 full- hugar. Lóðrétt | 2 útrás, 3 meina, 4 nísta, 5 innan, 6 eflt, 7 gaur, 12 súr, 14 rok, 15 hæll, 16 ötuðu, 17 stagl, 18 smáðu, 19 aftra, 20 aðra. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Njóttu þess að eyða deginum í fé- lagsskap annarra. Samkomulag þitt við maka og nána vini er gott, allir elska þig hreinlega. Drífðu þig út og blandaðu geði við fólk. Naut (20. apríl - 20. maí)  Stemningin í vinnunni einkennist af hressleika og vinarþeli. Fólk er hjálplegt og samvinnuþýtt. Kannski ferðu í ferða- lag? Nautið er byrjað að læra að láta drauma sína rætast. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Eins gott að það er föstudagur í dag! Af- þreying og dægradvöl tekur völdin. Þiggðu boð í partí og njóttu þess að spjalla við náungann. Farðu í bíó eða á íþróttaviðburð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Nú væri ekki vitlaust að ganga frá fast- eignaviðskiptum. Einnig getur krabbinn notað daginn til þess að gera heimili sitt að notalegum og öruggum dvalarstað. Gefðu ástvinum þínum gjöf. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Í dag er mikið að gera og ljónið elskar ysinn. Það finnur til sjálfstrausts og bjartsýni og laðar fólk að sér fyrir vikið. Áhugi er bráðsmitandi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Notaðu daginn fyrir verslun, viðskipti og fjármálasýsl. Kannski aukast tekjurnar, eða þá að eyðslusemi gerir vart við sig. Gættu þess bara að fara ekki yfir strikið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Tunglið (tilfinningar) er í vogarmerki í dag, í samstöðu við Júpíter (útþensla) og eykur þar með vellíðan hennar. Vogin trúir á sjálfa sig og bjarta framtíð. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Leitaðu leiða til þess að sýna rausn- arskap í dag. Örlæti gleður aðra og kem- ur þeim til góða, auk þess að bæta líðan gefandans. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn fær tækifæri til þess að taka höndum saman með öðrum og bæta kjör hinna verst settu. Hann sækir í það minnsta mannamót og deilir allsnægtum með öðrum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin gengur í augun á öðrum í dag. Drífðu þig af stað og láttu ljós þitt skína. Jákvæðni þín laðar að þér fólk um þessar mundir. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberinn er heltekinn af ferðaþrá í dag, hann vill skoða sig um í heiminum. Breyttu út af daglegum venjum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Einhver sýnir þér örlæti í dag. Það gæti falist í einhverju smáu eða stóru, áþreif- anlegu eða óáþreifanlegu. Gættu þess að láta þakklæti þitt í ljós. Stjörnuspá Frances Drake Naut Afmælisbarn dagsins: Þú ert jarðbundin og skipulögð mann- eskja og veist hvernig á að koma hlut- unum í verk. Skipulagshæfileikar þínir eru góðir og þú óttast ekki vald, enda ertu lítið fyrir að láta ráðskast með þig. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Ráðstefna um trú og vísindi verður haldiná morgun, laugardag, undir yfirskrift-inni Forboðnir ávextir. Ráðstefnan ferfram í sal 101 í Lögbergi, Háskóla Ís- lands, milli kl. 10:00 og 16:30. Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur, sem skipuleggur ráðstefnuna ásamt Guðmundi Inga Markússyni trúarbragðafræðingi, segir að fyrir þeim hafi vakað að skapa samræðu um trúar- brögð og vísindi. „Við erum þeirrar skoðunar að kirkjan hafi algjörlega brugðist í þessari umræðu. Svo heldur hávær hópur úti vefsíðu undir heitinu Vantrú.net og þar eru öfgarnar algjörlega í hina áttina, því að þar er gefið í skyn að trúarbrögð og vísindi eigi alls enga samleið. Ég er þeirrar skoð- unar að þó að trúarbrögð og vísindi virðist ekki eiga mikla samleið þá sé hægt að finna ýmsa snertifleti, sérstaklega þegar kemur að siðfræðilegri umræðu og hvert raunvísindin eigi að stefna, hvaða mann- gildi við eigum að hafa í heiðri. Eins má velta því fyrir sér hversu langt trúarbrögðin eiga að ganga í óskynsamlegri trú á ýmis fyrirbæri, sem endar oft í öfgum eins og má sjá í sértrúarsöfnuðum og á trúarlegum sjónvarpsstöðvum. Við erum að reyna að setja fram það sem einn fyrirlesaranna kallar „skynsama trú“, þar sem siðferðisvitund trúarinnar og „skynsemi“ vísindanna mætast. Markmiðið er ekki að samþætta vísindi og trúarbrögð heldur að skapa samræðu þeirra á milli. Vonandi verður ráð- stefnan framlag til að gera umræðu um trúarbrögð á Íslandi vitrænni. Fólk í raunvísindum getur lært ýmislegt af trúarbrögðum og öfugt.“ Steindór segir að alla 20 öldina hafi sú skoðun verið ríkjandi að trúarbrögð og vísindi hafi alltaf átt í átökum. „Menn vísa í útreiðina sem Galileo fékk og deilurnar um þróunarkenningu Darwins, en rannsóknir vísindasagnfræðinga hafa sýnt að þessi atvik eru ekki nærri því eins pólitísk og menn héldu. Það hefur átt sér stað mikil endurskoðun meðal vísindasagnfræðinga síðustu tvo til þrjá ára- tugi og sú skoðun er á undanhaldi að vísindi og trú hafi alltaf átt í stríði. Markmiðið með mínu erindi á ráðstefnunni er að höggva í þá goðsögn.“ Pétur Hauksson geðlæknir opnar ráðstefnuna, en auk Steindórs flytja erindi þau Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi, Guðmundur Ingi Markússon trúarbragðafræðingur, Atli Harðarson heimspekingur og Carlos Ferrer sóknarprestur. Að sögn Steindórs gerði Páll Skúlason háskóla- rektor ráðstefnuna mögulega með því að veita til hennar styrk. Frekari upplýsingar má finna á slóð- inni http://www.raunvis.hi.is/~steindor/for- bodnir.html. Ráðstefnan Forboðnir ávextir | Trú og vísindi – andstæðir og ósættanlegir pólar? Viljum skapa samræðu  Steindór J. Erlings- son er fæddur árið 1966. Hann lauk BS prófi í líffræði frá Há- skóla Íslands árið 1996 og meistaraprófi í vís- indasögu frá sama skóla tveimur árum síð- ar. Árið 2000 hóf hann doktorsnám í vís- indasögu við Háskólann í Manchester og mun senn verja doktorsritgerð sína. Steindór er kvæntur Sigríði Klöru Böðvarsdóttur sam- eindalíffræðingi og á tvö börn. Tónlist Tónlistarskóli Bessastaðahrepps | Barna- kór frá Perth í Skotlandi, Craigclowan Seni- or Choir, heldur tónleika í sal Tónlistarskóla Bessastaðahrepps, Álfanesi, undir stjórn Sveinbjargar Vilhjálmsdóttur Speight kl. 17.30. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir. Myndlist 101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson – Skáhalli tilverunnar (Theo van Doesburg, Goya og aðrir). Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót lista og minja. Café Karólína | Myndlistarsýning Baldvins Ringsted. Energia | Málverkasýning aprílmánaðar. Ólöf Björg. Gallerí Dvergur | Baldur Bragason – Skúlp- túrar. Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson Af- gangar. Gallerí Gyllinhæð | 17% Gullinsnið kl. 14– 17. Sýnendur eru Árni Þór Árnason, Maríó Múskat og Sindri Már Sigfússon. Gallerí i8 | Hrafnkell Sigurðsson. Gallerí Sævars Karls | Regína Loftsdóttir sýnir olíumálverk. Gallerí Terpentine | Halldór Ásgeirsson. Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gullþræðir. Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu- málverk og fleira í Boganum. Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) sýnir málverk í forsal. Hafnarborg | Jóhannes Dagsson – End- urheimt. Í samvinnu við Sophienholm í Kaupmanna- höfn og Hafnarborg, hefur Johannes Lar- sen safnið sett saman stóra sýningu um danska og íslenska listamenn og túlkun þeirra á íslenskri náttúru á 150 ára tímabili. Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson. Sól- stafir. Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal eitt verk, ekk- ert upphaf né endir. Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Friðjónsson. Olíumálverk og skúlptúra unna í leir og málaða með olíulitum. Listasafnið á Akureyri | Erró. Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930– 1945. Rúrí Archive Endangered waters. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjórar glerlistasýningar. Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jónsson og samtímamenn. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían – Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs- dóttir – Myndheimur/Visual World. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Markmið XI Hörður Ágústsson Yfirlitssýn- ing. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós- myndari – Heitir reitir. Norræna húsið | Farfuglarnir, sýning sex norrænna myndlistarmanna frá Finnlandi, Danmörku og Íslandi. Norska húsið í Stykkishólmi | Mál- verkasýning Péturs Péturssonar. Saltfisksetur Íslands | Fríða Rögnvalds- dóttir – Fiskar og fólk. Salurinn | Andi Manns er heiti á sýningu Leifs Breiðfjörð. Stórir steindir gluggar, svífandi glerdrekar eru uppistaða sýningar Leifs. Sýningin stendur til 1. maí. Á laug- ardag og sunnudag kl:14.00 verður Leifur með leiðsögn um sýninguna. Yzt – gallerí og listverslun | Vatnsheimar – verk Mireyu Samper. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning- arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Ric- cione – ljósmyndir úr fórum Man- fronibræðra. Þrastalundur, Grímsnesi | Sveinn Sig- urjónsson sýnir olíumálverk. Listasýning Suðsuðvestur | Birta Guðjónsdóttir sýnir í Suðsuðvestri. Opið fimmtud. og föstud. frá 16–18, um helgar frá 14–17. Söfn Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10–17. Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning um ævi skálds- ins og fallegt umhverfi. Sími 586 8066 netfang: gljufrasteinn@gljufrasteinn.is. Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét- ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til– menning og samfélag í 1200 ár. Ómur Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós- myndasýningarnar Í vesturheimi 1955 ljós- myndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Riccione ljósmyndir úr fórum Manfroni bræðra. Opið kl 11–17. Skemmtanir Ari í Ögri | Dúettinn Acoustics skemmtir í kvöld. Cafe Amsterdam | DJ.Fúsi skemmtir 22. apríl. Hljómsveitin Veðurguðirnir spila 23. apríl. Glæsibær | Dansleikur Félags harm- onikkuunnenda í Reykjavík laugardag kl. 21.30. Klúbburinn við Gullinbrú | Fimm á Richter. Laugardagskvöld Kung Fú. Kringlukráin | Hljómsveitin Logar frá Vest- mannaeyjum helgina 22. og 23. apríl. Mannfagnaður Wesak hátíðin | Helgasta hátíð ljóssins, Wesak hátíðin, verður haldin í Síðumúla 15. 3. hæð helgina 22.–24. apríl. Á hátíðinni verða flutt ýmis erindi, tónlist, miðlun, hug- leiðslur og fleira. Dagskráin á föstudag er kl. 20–22 og á laugardag og sunnudag kl. 13–17. Aðgangseyrir fyrir hvern dag er 1.000 kr. en fyrir alla dagana 2.500 kr. Fundir Spoex | Aðalfundur SPOEX, Samtök psori- asis- og exemsjúklinga verður haldinn 27. apríl kl. 20, á Grand Hótel Reykjavík Sig- túni 38. Auk venjulegra aðalfundastarfa fjallar Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkr- unardeildarstjóri um: Bláa Lónið – Ný húð- lækningastöð. Einnig verður fjallað um breytingar á húsnæði félagsins. Kynning Heilunarsetrið | Opið hús 23. apríl kl. 12– 16. Gestir geta kynnt sér þjónustuna gegn vægu gjaldi m.a.: nudd, heilun, spámiðlun, höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð o.fl. Te og spjall. Allir velkomnir. Málstofur Raunvísindadeild HÍ | Á málstofu efna- fræðiskorar Háskóla Íslands, í dag kl. 15, í stofu 158 í VR–II, flytur Baldur B. Sigurðs- son raunvísindadeild HÍ, meistaraprófsfyr- irlestur. Í erindinu verður fjallað um ný- smíði fjölsetinna tetralón- og dekalónafleiða og greint frá lífvirknirann- sóknum sem gerðar voru. Málþing Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs- dóttir Myndheimur. Námskeið MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir landsbyggðafólk um MS-sjúkdóminn verð- ur haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk með ný- lega greiningu MS, upp að 2–3 árum. Taugasérfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkr- unarfræðingur, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari veita fræðslu. Námskeiðið verður í húsi MS-félags Íslands á Sléttuvegi 5, Reykja- vík. Upplýsingar veitir Margrét, fé- lagsráðgjafi í síma 5688620, 8970923. www.ljosmyndari.is | 3 daga námskeið (12 klst) fyrir stafrænar myndavélar, 18., 20. og 21. apríl og 25., 27. og 28. apríl kl. 18– 22, alla dagana. Verð kr. 14.900. Fyrir byrj- endur og lengra komna. Skráning á www.ljosmyndari.is eða síma 8983911. Ráðstefnur Háskóli Íslands | Ráðstefna um vísindi og trú verður í Háskóla Ísl. Lögbergi 101, 23. apríl kl. 10–16.30. Fyrirlesarar: Atli Harð- arson heimsp., Carlos Ferrer sóknarpr., Guðmundur Ingi Markúss. trúabragða- fræð., Gunnjóna Una félagsráðgj., Pétur Hauksson geðlækn., Steindór Erlingsson líf- og vísindasagnfræðingur. Allir velkomn- ir. Útivist Hópferðamiðstöðin–Vestfjarðaleið ehf. | Sumri heilsað á Snæfellsnesi 23.– 24. apríl. Útivera og söguskoðun með léttum göngu- ferðum undir Jökli í fylgd heimamanns, Sæmundar Kristjánssonar sem þekkir svæðið. Gist að Hofi. Pantanir hjá Hóp- ferðamamiðstöðinni–Vestfjarðaleið s. 5629950 og Ferðafélagi Íslands s. 5682533. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is NÚ stendur yfir útsala á erlendum bókum í Bóksölu stúdenta. Á útsöl- unni eru vel á annað þúsund bóka- titla með 35–70% afslætti. Bæk- urnar eru af ýmsu tagi: Sígildar heimsbókmenntir, afþreying og fróðleikur auk fræðirita í flestum háskólagreinum. Einnig má finna útsölubækurnar í vefverslun Bóksölunnar á www.boksala.is. Erlendar bækur á útsölu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.