Morgunblaðið - 22.04.2005, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
20%
afsláttur
Brauðostur
á tilboði
Nú færðu brauðost í sérmerktum
kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun!
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
SNARRÆÐI konu sem var í skelja-
tínslu ásamt vinafólki í Kolgrafafirði í
gær varð til þess að tveimur þriggja
ára börnum, dreng og stúlku, var
bjargað úr bráðri lífshættu þegar þau
féllu út í sjó af bröttum sjávarkambi.
Telpan var orðin meðvitundarlaus
þegar hún náðist á land en konan,
sem er móðursystir hennar, beitti
skyndihjálp og blástursmeðferð og
tókst henni þannig að lífga frænku
sína við. Bæði börnin voru send með
sjúkrabifreið á Landspítalann í
Reykjavík.
Gátu ekki stöðvað sig
Að sögn lögreglunnar í Stykkis-
hólmi varð slysið rétt fyrir klukkan 18
við Arnarstapatanga við Hraunsfjörð
þar sem nýja brúin yfir Kolgrafafjörð
er. Svæðið er vinsælt til skeljatínslu
og voru þar á ferð þrjár konur með
börn sín. Tvö barnanna tóku á sprett
en gátu ekki stöðvað sig á leið niður
sjávarkambinn og lentu í sjónum og
fóru fljótlega á flot.
Drengurinn náðist fyrr upp en telp-
an flaut lengra og var orðin meðvit-
undarlaus þegar til hennar náðist.
Var móðursystir hennar þá búin að
vaða alldjúpt út í sjóinn á eftir henni
en mjög aðdjúpt er við fjöruna. Að
sögn lögreglu eru talsverðir straumar
á þessum slóðum og því ljóst að ekki
mátti miklu muna að verr færi.
Bjargaði
tveimur
börnum
úr bráðri
lífshættu
Vestmannaeyjar | Vefsíðan orða-
belgur.is var formlega opnuð fyrir
nokkru en hún var hönnuð fyrir
Daða Þór Pálsson, sem er dauf-
blindur nemandi við Barnaskóla
Vestmannaeyja. Nú bregður svo við
að Daði Þór hefur sýnt ótrúlegar
framfarir við hljóðamyndun und-
anfarnar vikur og er farinn að segja
orð og setningar. Fyrir u.þ.b. þrem-
ur vikum notaði þessi tólf ára dreng-
ur eingöngu sérhæft táknmál en
segir nú orð og setningar.
Páll R. Pálsson, faðir Daða Þórs,
segir það kraftaverki líkast að hann
skuli allt í einu vera farinn að tala
með eigin raddfærum. Á vefnum
kemur fram að 25. mars sl. var Daði
Þór farinn að segja orð eins og
„Aggu-u“ fyrir „Af hverju“, „Aggu-u
eggi“ fyrir „Af hverju ekki“, „Ke-
eda“ fyrir „Hver er þetta“ og svo
mætti áfram telja. 5. apríl er hann
farin að mynda setningar „Nei, eggi
mongu, faa núna baa“ (Nei, ekki á
morgun, fara núna í bað). Páll segir
að hann telji að vefsíðan ordabelgur.
is eigi sinn þátt í því að Daði Þór sé
nú farinn að tjá sig með því að segja
orð og setningar. Vefsíðunni er ætl-
að að virka sem orðabók fyrir Daða
Þór en hann hefur fram að þessu
nær eingöngu notað tákn, sem hann
gerir með höndunum, til að tjá sig.
Gerir táknin aðgengilegri
„Vefsíðan gerir táknin aðgengi-
legri þeim sem umgangast hann og
þannig verða öll samskipti auðveld-
ari. Það eru u.þ.b. þrjár vikur síðan
hann byrjaði að tjá sig og gerir það
ótrúlega skýrt og það er hrynjandi í
málinu. Hann notar t.d. neitunartón
og er farinn að mynda setningar.
Daði Þór hefur gefið frá sér hljóð
sem ekki hafa haft neina merkingu
fyrr en núna. Ég tók eftir því þegar
að ég var að tala við annan mann að
Daði Þór byrjaði allt í einu upp úr
eins manns hljóði að tala, nánast
eins og páfagaukur væri að apa upp
eftir mér. Þetta var alveg magnað en
hann notar táknin með þ.e.a.s. ef
hann segir orð þá notar hann táknið
líka. Þetta breytir auðvitað öllu en
Daði Þór er blindur og hann var á
sínum tíma úrskurðaður heyrn-
arlaus. Hins vegar kom það í ljós síð-
ar að hann heyrir þó svo að hann sé
heyrnarskertur. Ég er alveg himin-
lifandi yfir þessu,“ sagði Páll Rúnar
og tekur fram að Daði Þór komi að-
standendum og þeim sem umgang-
ast hann sífellt á óvart.
Daufblindur drengur talar með hjálp vefsíðunnar Orðabelgs
Árangurinn kraftaverki líkastur
Morgunblaðið/Sigurgeir
Daði Þór með foreldrum og ömmu og afa. Sigríður Einarsdóttir, Ása Ingibergsdóttir, Einar Erlendsson og Páll R.
Pálsson. Páll segir framfarir Daða Þórs sífellt koma öllum sem umgangast hann mikið á óvart.
Eftir Guðbjörgu Sigurgeirsdóttur
NÍU VILDARBÖRN eru á leið í draumaferð-
ina með fjölskyldum sínum, en úthlutað var úr
sjóðnum Vildarbörn, styrktarsjóði Icelandair
og viðskiptavina félagsins, í gær. Að sögn Ás-
laugar Thelmu Einarsdóttur, kynningarstjóra
Icelandair og framkvæmdastjóra Vildarbarna,
heyra við afhendinguna í gærmorgun að þau
langaði mest þangað. Frá því að sjóðurinn tók
til starfa fyrir tveimur árum hafa þrjátíu fjöl-
skyldur þegar getað farið í draumaferð á vegum
Vildarbarna, sem þýðir að samtals hafa 140
manns farið út á vegum sjóðsins./10
felst í styrknum skemmtiferð fyrir barnið og
fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur,
þ.e. flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir
að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Er
Disneyland í Flórída langvinsælasti áfanga-
staður Vildarbarna og var það á krökkunum að
Á leið í draumaferðina með Vildarbörnum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sigurður Helgason, forstjóri Icelandair, og Peggy Helgason, iðjuþjálfi og stjórnarmaður Vildarbarna, ásamt Aniku Helgadóttur, Burkna Þór
Bjarkasyni, frænda Aniku, Herði, bróður hennar, og Guðrúnu Sóleyju Guðnadóttur og Helga Harðarsyni, foreldrum hennar.
FYRSTA kría ársins sást í
morgunsárið í gær, sum-
ardaginn fyrsta, á Höfn. Það
var Þórir Snorrason, fugla-
áhugamaður, sem sá fyrstu
kríuna rétt fyrir kl. 6 í gær-
morgun þegar hann var á
leið til vinnu.
„Hún flaug beint fyrir ofan
hausinn á mér og sneri svo
við,“ segir Þórir og tekur
fram að sér hafi fundist afar
kærkomið að sjá kríuna,
enda er krían í hans huga
mikill sumarboði. „Mér finnst
sumarið alltaf vera komið
þegar maður heyrir í henni,“
segir Þórir.
Síðar sama dag bárust
fréttir af því að sést hefði til kríunnar bæði við Breiðdalsvík og á Stokks-
eyri. Að sögn Brynjúlfs Brynjólfssonar, starfsmanns Fuglaathug-
unarstöðvar Suðausturlands og eins umsjónarmanna vefjarins www.fugl-
ar.is sem Félag fuglaáhugamanna á Hornafirði heldur úti, gerir krían oft
fyrst vart við sig á þessum tíma árs, þó krían sé sífellt að koma fyrr til
landsins á vorin. Segir hann að gera megi ráð fyrir að á næstu tveimur til
þremur dögum fari að sjást kríur víða um land og að hún verði farin að
gera vart við sig á höfuðborgarsvæðinu strax á næstu dögum.
Morgunblaðið/Ómar
Krían er komin til landsins