Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 6
6 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.urvalutsyn.is
Pepita Alay
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og íslensk
fararstjórn. Barnaafsláttur er ekki veittur.
Ver›i› er netver›. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald,
e›a fullgrei›a fer› á netinu. Ef bóka› er
símlei›is e›a á skrifstofu, grei›ist
bókunar- og fljónustugjald, sem er
2.000 kr. á mann.
44.900kr.*
á mann m.v. tvo í stúdíói eða 4 í íbúð.
Sumartilboð í júní og júlí
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð á:
Verðdæmi:
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
81
47
0
4/
20
05
Paradísin við Miðjarðarhafið, Costa del Sol, er einn allra vinsælasti
sólarstaður Evrópubúa og hefur allt að bjóða þeim sem vilja njóta
veðursældar á hvítum ströndum, úrvalsveitinga, menningar
og sögu. Pepita Alay er frábærlega staðsett rétt ofan við smá-
bátahöfnina, örstutt frá miðbæ Benalmadena, þar sem veitinga-
staðir, barir og skemmtistaðir eru allt í kring.
FORSVARSMENN fyrirtækja í
ferðaþjónustu, sem taka á móti
erlendum ferðamönnum, hafa af
því áhyggjur að afkoma þeirra
verði með versta móti í ár að því
er fram kom í samtali við þá í
gær. Ástæður þess eru styrking
íslensku krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum, einkum
Bandaríkjadal, og verðbólga inn-
anlands. Bandaríkjamenn geta nú
vænst þess að greiða 42% hærra
verð fyrir ferðir til Íslands en þeir
gerðu árið 2002.
Ljóst er að nokkur fyrirtæki í
ferðaþjónustu munu veita þjón-
ustu í sumar sem samið var um
fyrir 6–12 mánuðum sem miðaðist
við gengi íslensku krónunnar þá.
Hugsanlegt er að fyrirtæki þurfi
að veita þjónustu samkvæmt gerð-
um samningum á verði sem er
undir kostnaðarverði.
Samkeppni ferðaskrifstofa við
móttöku erlendra ferðamanna til
Íslands er hörð og af þeim sökum
eru fyrirtækin knúin til þess að
veita ávallt góða þjónustu á hóf-
legu verði.
Heildartekjur ferðaþjónustunn-
ar hafa aukist verulega síðustu ár.
Hins vegar hafa tekjurnar ekki
hækkað í réttu hlutfalli við fjölda
ferðamanna og framlegð margra
fyrirtækja er lítil.
Hvatahópar
fælast Ísland
„Hvatahópar hafa fælst frá Ís-
landi vegna þess hve verðlag á Ís-
landi er orðið hátt miðað við aðra
áfangastaði. Jafnvel Noregur, sem
hefur haft orð á sér að vera einn
dýrasti ferðamannastaður verald-
ar, er orðinn ódýrari,“ segir
Gunnar Rafn Birgisson, eigandi
ferðaskrifstofunnar Atlantik.
„Áhrif sterks gengis íslensku
krónunnar setja allar áætlanir í
rekstri ársins 2005 í uppnám.“
Ástæða vandans eru gengisbreyt-
ingar sem verða frá því að samn-
ingar takast við erlenda aðila þar
til þjónustan er veitt. „Erfitt er að
halda uppi „gengisvörnum“ og
mér reiknast til að tekjulækkun
þessa árs verði á bilinu 10–15%.
Verðbólga á Íslandi eykur enn á
vandann,“ segir Gunnar.
Signý Guðmundsdóttir, eigandi
Ferðaskrifstofu Guðmundar Jón-
assonar, er fremur svartsýn á af-
komu sumarsins. „Sterkt gengi ís-
lensku krónunnar er grafalvarlegt
mál fyrir ferðaþjónustuna. Allt
verð hjá okkur var gefið út í sept-
ember í fyrra þegar krónan var
mun veikari. Mismuninn þurfum
við að brúa,“ segir hún. Aðspurð
svarar hún því að fyrirtækið nýti
sér ákveðna gengisvörn sem sé
ekki nándar nærri nóg þegar
krónan sveiflast svona mikið. Hún
segist óttast að afkoma fyrirtækja
í ferðaþjónustu eigi ekki eftir að
batna þótt fjöldi ferðamanna til
landsins aukist – „það sé hreint
grátlegt.“
42% dýrara en árið 2002
„Kostnaður Bandaríkjamanna
vegna ferða til Íslands hefur auk-
ist um 42% frá árinu 2002 vegna
styrkingar íslensku krónunnar.
Þrátt fyrir það er áhugi fyrir ferð-
um til Íslands meiri hér vestan-
hafs en nokkru sinni. Miðað við
þennan mikla áhuga ætti aukn-
ingin á ferðum Bandaríkjamanna
til Íslands að vera að minnsta
kosti helmingi meiri en hún er. Í
fyrra nam aukningin átta pró-
sentustigum,“ segir Einar Gúst-
afsson, forstöðumaður Ferðamála-
ráðs í Bandaríkjunum. Hann segir
ferðaskrifstofur á Íslandi, sem
sinnt hafa þjónustu við erlenda
ferðamenn, hafa reynt að lækka
verðið til að halda viðskiptum.
„Ég tel að 25% gengislækkun
Bandaríkjadals hefði verið lagi á
þessu tímabili – miðað við mark-
aðaðstæður, en fjörutíu og tveggja
prósenta gengislækkun er of mik-
il,“ segir Einar.
Nær óseljanleg vara
„Nokkur fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu sitja uppi með nær óselj-
anlega vöru vegna þess að gengi
íslensku krónunnar hefur styrkst
svo mikið. Þetta á einkum við fyr-
irtæki sem samið hafa um verð í
Bandaríkjadölum sem hafa fallið
um 20% í verðgildi gagnvart ís-
lensku krónunni. Fyrirtæki sem
hafa gert samninga í öðrum gjald-
miðlum standa eitthvað betur að
vígi. Gengiskarfa Seðlabanka Ís-
lands hefur lækkað um rösklega
10% síðustu sex mánuði. Ljóst er
að þau fyrirtæki sem seldu ferðir
til Íslands fyrir 6 mánuðum eða
lengra aftur í tímann eru búin að
tapa stórum hluta álagningar
sinnar,“ segir Þorleifur Þór Jóns-
son, hagfræðingur Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Tekjuaukning minni en
fjölgun gefur til kynna
Í Fréttabréfi Samtaka ferða-
þjónustunnar kemur fram að á
síðasta ársfjórðungi 2004 fjölgaði
ferðamönnum um 8,7% á meðan
gjaldeyristekjur drógust saman
um 4,2% vegna styrkingar ís-
lensku krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum. Tölur fyrir
allt árið liggja ekki enn fyrir.
„Gjaldeyristekjur fara sífellt
vaxandi. Hins vegar hafa gjald-
eyristekjur ekki vaxið í réttu hlut-
falli við fjölgun ferðamanna,“ seg-
ir Þorleifur.
„Gengissveiflur undanfarinna
áratuga hafa ekki haft varanleg
áhrif á umfang ferðaþjónustunnar
á Íslandi. Hins vegar geta geng-
issveiflur haft mikil áhrif á af-
komu ferðaþjónustufyrirtækj-
anna,“ segir Magnús Oddsson
ferðamálastjóri.
Ferðaþjónustan á erf-
itt sumar í vændum
„Noregur ódýr-
ari en Ísland“
Morgunblaðið/RAX
Áhrifamenn í ferðaiðnaði óttast að hátt gengi krónunnar muni valda erfiðleikum hér á landi. Ferðaiðnaðurinn
hefur verið ört vaxandi undanfarin ár og skiptir þjóðarbúið miklu máli.
Eftir Stefán Helga Valsson
Höfundur er meistaranemi
í blaða- og fréttamennsku við HÍ.
ORKUVEITA Reykjavíkur sam-
þykkti á stjórnarfundi í vikunni að
lækka verð á heitu vatni um 1,5% frá
1. júní nk. Þá var samþykkt óbreytt
verð á rafmagni þrátt fyrir verðlags-
breytingar.
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, segir að
lækkunin nú sé metin á um 60 millj-
ónir króna á ársgrundvelli. Upphaf-
lega hafi verið gert ráð fyrir að
hækka verð á heitu vatni um 3,5%
vegna verðlagsþróunar og í raun séu
áhrif lækkunarinnar því metin 5%.
Meðalhiti hækkað um
1½ gráðu á áratug
Í greinargerð með tillögu stjórnar
segir að afkoma OR hafi verið góð á
liðnu ári og sérstaklega hafi afkoma
hitaveitunnar verið góð. Árið 2004 og
fyrstu mánuðir ársins 2005 hafi verið
hálfri gráðu kaldari en árið 2003 og
hitasala 3,7% meiri en árið áður. Þá
sé vöxtur í raforkusölu sem gefi til-
efni til að ætla að Orkuveitan geti
tekið á sig verðlagsbreytingar sem
eru um 3,7% á þessu ári.
Skemmst er að minnast þegar OR
hækkaði verð á heitu vatni um 5,4% í
janúar 2003 vegna óvenju mikilla
hlýinda misserin á undan. Guðmund-
ur segir að verð á heitu vatni hafi yf-
irleitt legið upp á við en fordæmi sé
fyrir lækkun á verði rafmagns, í jan-
úar 2001 þegar lækkunin nam 10%.
Sala á heitu vatni hefur dregist
saman sl. ár og segir Guðmundur að
minnkandi sölu megi rekja til hlýn-
andi loftslags. Sem dæmi hafi sala á
heitu vatni verið 10% minni árið 2004
borið saman við 1994. Það ár var
meðalhiti á 4,1 gráða en 5,6 gráður í
fyrra.
Þess má geta að uppbygging
Hellisheiðarvirkjunar er á áætlun en
reiknað er með að hún sjái borgarbú-
um fyrir heitu vatni fram til 2025.
Áformað er að taka fyrsta áfanga
virkjunarinnar í notkun 1. október
2006 og síðasta áfanga hennar árið
2016.
Orkuveita Reykjavíkur lækkar verð á heitu vatni um 1,5%
Sala á heitu vatni minnk-
aði um 10% á áratug
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is
Morgunblaðið/RAX