Morgunblaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 45
MINNINGAR
✝ Ólafur Vilbergs-son fæddist á Eyr-
arbakka 21. febrúar
1929. Hann lést á
Sjúkrahúsi Suður-
lands 10. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
Ólafs voru hjónin
Ragnheiður Guð-
munda Ólafsdóttir, f.
1. mars 1906, d. 19.
júní 1998, og Vilberg-
ur Jóhannsson, f. 29.
mars 1899, d. 2. júlí
1939, bæði búsett að
Helgafelli á Eyrar-
bakka. Systkini Ólafs
eru: Karen, f. 17. maí 1926, búsett á
Selfossi, Sigurður, f. 21. febrúar
1927, d. 1928, Jóhann Vilhjálmur,
f. 30. maí 1931, býr í Reykholti í
Biskupstungum, Ásta Þórunn, f. 9.
júlí 1932, býr á Eyrarbakka, og
Sigríður Vilborg, f. 20. september
1939, býr á Selfossi.
Ólafur kvæntist 6. nóvember
1963 Hildi Guðrúnu Ágústsdóttur,
f. 19. september 1922, d. 6. nóvem-
ber 1966. Heimili
þeirra var í Hafnar-
firði. Þau eignuðust
tvo syni: 1) Ágúst
Berg, f. 8. apríl 1959,
hann lauk farmanna-
prófi frá Stýri-
mannaskólanum og
síðar sveinsprófi í
húsasmíði og starfar
við smíðar. Sambýlis-
kona Ágústar er
Anna Jóna Gunnars-
dóttir sjúkraliði og
eiga þau þrjú börn:
Jón Árna, f. 15. maí
1983, Hildi, f. 30. júní
1990, og Daniel, f. 13. ágúst 1991.
Þau eru búsett í Noregi. 2) Har-
aldur Ragnar rafmagnstæknifræð-
ingur, f. 4. júlí 1962, sambýliskona
hans er Hafdís Jensdóttir skrif-
stofumaður, f. 2. desember 1956.
Dóttir Hafdísar er Berglind Eir
Magnúsdóttir. Þau Hafdís búa í
Garðabæ.
Útför Ólafs fór fram frá Eyrar-
bakkakirkju föstudaginn 15. apríl.
Elsku Óli afi.
Nú er komið að kveðjustund. Þú
ert lagður af stað í þína síðustu sigl-
ingu. Við viljum þakka þér fyrir allar
samverustundirnar. Það var gott að
hittast um páskana, en það kom okk-
ur á óvart hvað þú varst veikur. Nú
hefur þú fengið hvíld og við trúum
því og treystum að þú hafir það gott
þar sem þú ert.
Minningar koma fram í hugann.
Heimsóknir á Bakkann til þín og
langömmu og þegar þú komst til
okkar í Lambhagann og hafðir alltaf
eitthvað gott með. Heimsóknir þínar
til okkar í Noregi. Við hlökkuðum
alltaf svo til að fá þig í heimsókn.
Ferðalag til Danmerkur og við
þræddum McDonalds. Þegar við fór-
um í bíltúr og þú bauðst upp á ís.
Gönguferðir með veiðistöng niður á
bryggju og ýmislegt spjall.
Þetta eru bara nokkur minninga-
brot. Þú hafðir þinn eigin máta til að
sýna að þér þykir vænt um okkur.
Nú ert þú kominn á nýjar slóðir, þar
sem við vitum að þú vakir yfir okkur.
Við munum sakna þín. Minning
þín er geymd í okkar hjarta.
Þín afabörn,
Jón Árni, Hildur Guðrún
og Daniel.
Mágur minn, Ólafur Vilbergs-
son, er látinn eftir harða baráttu
við erfiðan sjúkdóm, sem sigrar
jafnt veikburðafólk og hraust-
menni.
Ólafur ólst upp á Eyrarbakka, en
frá 9 ára aldri og fram að fermingu
var hann á sumrin á Brúnastöðum í
Hraungerðishreppi og vetrarmaður
á Langstöðum í Flóa var hann ferm-
ingarárið. Sumarið 1944, þá 15 ára,
fór Ólafur til sjós, háseti á m/b Sísí
hjá Jóni Helgasyni á Bergi og strax
þá fékk hann að reyna hvers sjó-
mennskan krefst. Meðan jafnaldrar
hans og reyndar þjóðin öll fagnaði
stofnun lýðveldis þann 17. júní, varð
hann með félögum sínum á Sísí að
halda sjó í vonskuveðri og við lítinn
kost, því sú veiðiferð átti ekki að
standa nema daginn, en brim lokaði
sundum skyndilega og gerði land-
töku ófæra. Um haustið varð Ólafur
hjálparkokkur á Kveldúlfstogaran-
um Gylli, skipstjóri þar var Kol-
beinn Sigurðsson. Fullgildur háseti
á dekki varð hann strax vorið eftir,
16 ára gamall. Með Kolbeini var
hann næstu ár, bæði sem háseti og
síðar stýrimaður, eftir að hafa lokið
2. stigi Stýrimannaskólans 1951.
Hann var líka stýrimaður á togur-
um með Sigurði Guðjónssyni frá
Litlu-Háeyri. Togararnir voru Gyll-
ir, sem fyrr er nefndur, Skallagrím-
ur og Egill Skallagrímsson, allir frá
sömu útgerð. Sumarið 1954 var
hann skipstjóri á m/b Faxa á hum-
arveiðum. Þar var hann meðal
þeirra fyrstu er stunduðu þessar
veiðar. Með þessari sumarvertíð á
Bakkanum hófust arðbærar humar-
veiðar hér á landi.
Eftir að hafa verið togarakarl í
meir en tíu ár, sneri Ólafur sér að
farmennsku. Hann réðst til Eim-
skipafélags Reykjavíkur 1957 og
var á skipum þess, Kötlu og Öskju,
til 1965 og á Bakkafossi 1966–68.
Næstu sex ár starfaði Ólafur í landi,
var þó eitt sumar með m/b Hafrúnu
á humarveiðum. Hann hélt heimili
með móður sinni, en hún annaðist
Ágúst, son hans, eftir fráfall eigin-
konu hans 1966. Yngri drengurinn,
Haraldur Ragnar, ólst upp hjá móð-
urbróður sínum Eiríki Ágústssyni
og konu hans Áslaugu Eyþórsdótt-
ur í Hafnarfirði. Alla tíð gerði Ólaf-
ur sér far um að hafa sem mestar
samvistir við syni sína. Árið 1974
réðst hann til Nesskipa h/f og sigldi
á skipum þess, Suðurlandi, Ísnesi,
Selnesi og síðast Akranesi. Fóru
þau skip víða, allt frá Norður-Nor-
egi, suður með Afríku til Nígeríu
vítt og breitt um Miðjarðarhaf.
Þessi skip sigldu einnig upp í vötnin
miklu í Norður-Ameríku og við Suð-
ur-Ameríku allt til Ríó, um Pan-
amaskurð til kyrrahafsstranda
Suður-Ameríku.
Ólafur hafði því gert víðreist um
höf er hann kom alfarinn í land og fór
þá að vinna við saltfisk og veiðar-
færaaðgerðir hjá Fiskiver s/f á Eyr-
arbakka og vann þar allt til að hann
missti heilsuna á síðasta ári.
Ólafur Vilbergsson var marg-
fróður og mikill lestrarhestur.
Hann hafði víða farið og hafði frá
mörgu að segja. Hann var ákaflega
traustur maður og heill, mikið
hraustmenni, en hlédrægur og
hógvær.
Útför Ólafs fór fram föstudaginn
15. apríl frá Eyrarbakkakirkju.
Blessuð sé minning hans.
Óskar Magnússon.
ÓLAFUR
VILBERGSSON
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Vönduð og persónuleg þjónusta
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vináttu vegna fráfalls
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
AÐALSTEINS BJARNFREÐSSONAR,
Lundarbrekku 4
Kópavogi.
Jóhanna Bára Sigurðardóttir,
Kolbrún Aðalsteinsdóttir,
Sigurjón Ingi Aðalsteinsson
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
RÖGNU GESTSDÓTTUR,
áður til heimilis
að Lindarsíðu 2,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Skjaldarvíkur fyrir góða umönnun.
Sigurður Eggert Davíðsson, Ólöf Regína Torfadóttir,
Hólmfríður Davíðsdóttir, Stefán Árnason,
Kristján Davíðsson, Valgerður Kristjana Guðlaugsdóttir,
Lísbet Davíðsdóttir, Snorri Sigurður Kristinsson,
Gestur Ragnar Davíðsson, Svava Guðrún Daðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og
bróður,
GUÐMUNDAR LAXDAL
JÓHANNESSONAR,
áður til heimilis á Grandavegi 47.
Halldóra Gróa Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Haraldsson,
Jóhannes L. Guðmundsson, Gyða B. Elíasdóttir,
Sigurður E. L. Guðmundsson, Ásta Haraldsdóttir,
Herdís M. Guðmundsdóttir, Árni Brynjólfsson,
Halldór Ó. L. Guðmundsson,
Kristín J. L. Guðmundsdóttir, Karl R. Ólafsson,
Elín H. Guðmundsdóttir, Gestur M. Gunnarsson,
Björg Elísabet Guðmundsdóttir, Viðar Pétursson,
Sesselja Laxdal Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegrar konu minn-
ar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
FREGNAR BJÖRGVINSDÓTTUR,
Dvergabakka 12,
Reykjavík.
Þorvaldur Jónsson,
börn, tengdabörn,
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
KJARTANS PÁLSSONAR
læknis.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hólabæjar á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ fyrir einstaka
umönnun og hlýhug.
Ingibjörg Ívarsdóttir,
Hjördís Kjartansdóttir, Ómar Hjaltason,
Páll Kjartansson, Elín Jónsdóttir,
Ívar Kjartansson
og barnabörn.