Morgunblaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. FIMM sendifulltrúar Rauða kross Ís- lands eru á leiðinni til Asíu til hjálp- arstarfa vegna jarðskjálftans í Ind- landshafi um páskana og risaflóðanna annan í jólum. Baldur Steinn Helgason mannfræð- ingur fer á næstu dögum til Ache-hér- aðs til að taka að sér birgðastjórn en hann hefur hlotið þjálfun á því sviði er- lendis. Þá fer Óskar Torfi Þórðarson byggingafræðingur til Nías-eyju til að taka þátt í uppbyggingarstarfi þar. Verða þeir 6 mánuði í sendiför sinni. Í byrjun maí fara þrír íslenskir sendifulltrúar til hamfarasvæðanna, en þeir eru Sólveig Ólafsdóttir frétta- maður sem fer til Sri Lanka, Hjördís Guðbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur sem fer til Ache til að sinna heilsu- gæsluverkefnum og Robin Bovey líf- fræðingur sem fer til Ache til að sinna samhæfingarhlutverki á svæðinu. Þrjú þau síðastnefndu eru margreynd í störfum sínum fyrir Rauða krossinn. Fimm sendi- fulltrúar á leið til ham- farasvæða MIKINN reyk lagði yfir Akureyrarbæ vegna sinubruna í landi Jódísarstaða í nágrenni Ak- ureyrar í gærmorgun. Ábúandi hafði öll til- skilin leyfi fyrir að brenna sinu í landi sínu, en þegar sunnanvindur beindi reyknum inn í bæ- heilsuveila bæjarbúa á brott en þó var til skoð- unar að slökkva á loftræstikerfi sjúkrahússins um tíma. Lögreglan segir að hætt sé við að fólk sem var með þvott á snúru í gærmorgun þurfi að þvo hann aftur eftir mengunina. inn, fólki til mikils ama, varð ljóst að ekki yrði við það unað stundinni lengur. Kvörtunum rigndi yfir lögregluna sem gerði ábúandanum að slökkva eldinn. Þrátt fyrir mikinn reyk í bænum kom þó ekki til þess að flytja þyrfti Morgunblaðið/Kristján Bærinn hvarf í reyk frá sinubruna BYGGINGAMÁL Listaháskóla Ís- lands eru nú forgangsverkefni stjórnvalda eftir að ákvörðun var tekin um Háskólatorg Háskóla Ís- lands. Þetta kom fram í máli Þor- gerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra á fundi sem Félag um Listaháskóla Íslands hélt um byggingamál LHÍ á föstu- daginn var. Sagði ráðherra brýnt að málefni skólans yrðu tekin föst- um tökum svo hann kæmist undir eitt þak hið bráðasta, en skólinn starfar nú á þremur stöðum í borg- inni. „Núverandi ráðherra hefur tek- ið mjög vel á okkar málum, þannig að þessi yfirlýsing hennar kemur mér ekki á óvart. Hún staðfestir hins vegar opinberlega þann vilja, sem ég hef heyrt frá henni í sam- tölum og það er mikils virði fyrir bæði mig og skólann,“ sagði Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ, í samtali við Morgunblaðið í gær. Að sögn Hjálmars ríkir ófremd- arástand í húsnæðismálum skól- ans. „Sérstaklega er staðan slæm í annars vegar tónlistardeild og hins vegar leiklistardeild. Við búum þar við mjög erfiðar bráðabirgðalausn- ir. Hugmyndafræðin að baki Listaháskólanum er að nýta ávinn- ing af samspili listgreina. Meðan skólinn er dreifður um borgina verður þessi ávinningur aldrei deiglunni. Segir hann löngum hafa legið ljóst fyrir að stjórn LHÍ vilji að skólinn verði stað- settur í miðborg Reykjavíkur. „Núna eru einkum tveir staðir sem menn líta vonaraugum til varðandi framtíðarstaðsetningu skólans, annars vegar Vatnsmýr- in þar sem HR mun byggja upp framtíðarhúsnæði sitt og hins vegar Hafnarbakkinn þar sem tónlistarhúsið mun rísa. Á báðum þessum stöðum eru að skapast stórkostlegir möguleikar,“ segir Hjálmar og tekur fram að mik- ilvægt sé að hafa í huga að LHÍ hefur tvíþættu hlutverki að gegna. „Þannig er skólinn ekki aðeins menntastofnun heldur menningarstofnun, enda er ráð- gert að stór hluti af framtíðarhús- næði skólans verði opinn almenn- ingi,“ segir Hjálmar og nefnir væntanlega tónleikasali, leikhús og bókasafn skólans í því sam- hengi. Á aðalfundi Félags um Listahá- skóla sem fram fór strax að lokn- um fundinum á föstudag með ráð- herra og rektor, var samþykkt áskorun til stjórnar skólans, borgarstjórnar og menntamála- ráðherra, þess efnis að málsaðilar taki nú höndum saman og leysi húsnæðisvandræði Listaháskóla Íslands, að öðrum kosti nái hann ekki því markmiði sínu að vera áfram suðupottur nýrra hug- mynda þar sem ólíkar listgreinar starfa undir sama þaki. ins að finna skólanum hús undir einu þaki. „Það hefur ekki tekist ennþá, enda hefur skólinn verið í mótun. Skólinn er nú á sjötta ári og við þekkjum orðið þarfirnar og höfum mótað stefnu til framtíðar, en mjög ítarleg þarfagreining um húsnæðisþörf skólans liggur fyrir,“ segir Hjálmar, sem sjálfur á sæti í vinnuhópi sem menntamálaráð- herra skipaði nýverið sem hefur það að markmiði að skoða hvernig LHÍ og ríkið komi sameiginlega að fjármögnun skólans. Er ráðgert að hópurinn skili tillögum eigi síðar en 1. nóvember nk. Spurður um hugsanlega stað- setningu segir Hjálmar margt í nema takmarkaður. Þess vegna er það forgangsmál mitt og stjórnar skólans að umhverfi hans verði þannig að við náum því út úr skól- anum sem við ætlum og getum.“ Þess má geta að um 360 nemendur stunda nám við skólann og eru fastráðnir starfsmenn um 70 auk þess sem á þriðja hundrað sér- fræðingar koma að starfi skólans með einum eða öðrum hætti. Líta vonaraugum til Vatns- mýrar og Hafnarbakka Hjálmar rifjar upp að legið hafi fyrir frá upphafi, áður en LHÍ var stofnaður, að það yrði sameigin- legt verkefni skólans og ríkisvalds- Byggingamál Listaháskóla Íslands eru nú forgangsverkefni að mati ráðherra Brýnt að koma skólanum undir eitt þak hið bráðasta Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Starfsemi Listaháskólans er að hluta til í gamla Sláturfélagshúsinu. PLATA Mugisons, Mugimama, Is This Monkeymusic?, kemur á morgun út fyrir Evrópumarkað hjá Accidental Records. Útgáfufyrirtækið rekur ekki mannmarga skrifstofu en er að sögn Mugisons „póli- tískt og meðvitað“. Eigandi þess, Matthew Herbert, er tónlistarmaður en einnig kunnur aktívisti. Kynni hans af tónlist Mugisons má rekja til einfaldrar bréfa- sendingar. „Ég sendi honum ástarbréf,“ segir Mugison, sem vill meina að í hug- myndafræðilegum skilningi hafi Herbert haft á sig gífurleg áhrif. Útgáfu plötunnar fylgir Mugison eftir með tónleikaferð um álfuna sem hefst í Bretlandi á morgun. „Þetta leggst rosavel í mig, mér finnst gaman að þessu,“ segir Mugison í forsíðuviðtali við Tímarit Morg- unblaðsins í dag. „Ég spila kannski í klukkutíma og mér líður mjög vel þegar ég spila. Restin er meira eins og að vera í löndun, massíf líkamleg vinna,“ en hann selflytur sjálfur allar græjurnar við annan mann. Á gítarnum flöktir syngjandi and- litið á unnustunni Rúnu, með aðstoð mynd- varpa, og þannig syngur hún með Mugison í túrnum, þrátt fyrir að sitja á sama tíma heima á Íslandi. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Eins og að vera í löndun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.