Morgunblaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það er ekki amalegt að geta notað þig til að kæla kampavínið á leiðinni í formannssætið,
Össi minn.
Þingmenn stjórnar-andstöðunnar köll-uðu eftir því á Al-
þingi í vikunni að
ríkisstjórnin upplýsti
hvaða þingmál hún hygð-
ist leggja áherslu á að af-
greiða fyrir þinglok. Sam-
kvæmt starfsáætlun
þingsins, sem gefin er út á
hverju hausti, er stefnt að
þingfrestun 11. maí. Gangi
sú áætlun eftir eru um sjö
til átta starfsdagar eftir af
þessu vorþingi. Yfir 50
stjórnarfrumvörp eru til
meðferðar í fastanefndum
þingsins. Eitt stjórnarfrumvarp
bíður fyrstu umræðu, tvö bíða
annarrar umræðu og jafnmörg
bíða þriðju og síðustu umræðu.
„Það bólar ekki á neinu frá
hæstvirtri ríkisstjórn um [...] að
hún komi á framfæri óskum sínum
um afgreiðslu mála af forgangs-
lista eða tilkynni hvaða mál megi
að ósekju bíða frekari umfjöllunar
á seinni þingum,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, er hann kvaddi sér
hljóðs, um þessi mál á Alþingi.
Fundað á morgun
Halldór Blöndal, forseti þings-
ins, upplýsti að þessi mál yrðu
rædd með formönnum þingflokka
á mánudag. „Ég mun hitta for-
menn þingflokkanna í hádeginu á
mánudag. Þá munum við fara yfir
stöðuna og meta hvernig vinnan
gengur í nefndum þingsins,“ sagði
hann í samtali við Morgunblaðið í
gær. Svokallaðir nefndardagar
voru á föstudag og laugardag og
verða á mánudag og fleiri daga í
næstu og þar næstu viku.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra lagði áherslu á það á
þingfundi í vikunni að það myndi
skýrast betur, að loknum nefnd-
ardögum, hvernig framhald þing-
starfa verður.
Einar K. Guðfinnsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, tók í sama streng í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Framundan
eru fyrst og fremst nefndardagar.
Ég geri ráð fyrir að það muni tak-
ast að afgreiða býsna mörg mál á
þeim tíma.“ Einar segir markmið
stjórnarflokkanna að ljúka þeim
málum sem fyrir liggja. Hann
bendir m.a. á í því sambandi að lít-
ill pólitískur ágreiningur sé um
mörg stjórnarfumvarpanna.
Ljóst er þó að ágreiningur er
um ýmis mál. Til dæmis um frum-
varp menntamálaráðherra um
Ríkisútvarpið sf. og frumvörp við-
skiptaráðherra um nýja skipan
samkeppnismála. Einar segir ekki
stefnt að öðru en að afgreiða þau
mál fyrir þinglok í maí.
Þegar Halldór Blöndal er
spurður hvort hann telji að hægt
verði að ljúka þinginu 11. maí seg-
ir hann: „Auðvitað stefni ég að því
að ljúka þingstörfum á þeim
tíma.“ Hann bætir því við að
stundum takist að ljúka þingi á til-
settum tíma, en stundum ekki.
„Aðalatriðið er að þingið ljúki
þeim málum sem ljúka þarf. Ef
það tekur lengri tíma en menn
ætla í upphafi þings, verður svo að
vera.“ Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður Vinstri-grænna,
segir hins vegar ljóst að sé ætl-
unin að klára öll þau mál sem fyrir
þinginu liggja, fari þingmenn ekk-
ert heim í sumar. Mörg þingmál
séu flókin og kalli á miklar um-
ræður, bæði á þingi og úti í sam-
félaginu. „Ef ætlunin er að halda
sig nærri starfsáætlun þingsins,
er ekki um annað að ræða, en að
menn setjist niður og semji um
forgangsröðun þingmála.“
Margrét Frímannsdóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinn-
ar, nefnir einnig samkeppnismálin
og Ríkisútvarpið, þegar hún er
beðin um að nefna helstu ágrein-
ingsmálin, á þingi. „Það mun
skýrast betur á mánudaginn
hvaða mál ríkisstjórnin leggur
áherslu á að afgreiða í vor.“
Fá ekki að sjá spilin
Magnús Þór Hafsteinsson,
þingflokksformaður Frjálslynda
flokksins, tekur í sama streng.
„Stjórnin situr með sín spil á
hendi og leyfir okkur ekki að kíkja
á þau.“ Hann telur, eins og aðrir,
að það muni skýrast eftir helgi
hver forgangsmál ríkisstjórnar-
innar verða.
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
segir að nú fari að bresta á hinar
árlegu viðræður milli stjórnar og
stjórnarandstöðu um væntanleg
þinglok. Á sama tíma bresti á hin-
ar löngu ræður stjórnarandstöð-
unnar, til að skapa sér samnings-
stöðu um framhald þingstarfa.
Hann segir að stjórnarandstæð-
ingar séu þegar farnir að nefna
þau þingmál sem þeir vilji að
„frjósi inni“ eins og hann orðar
það. Þar séu m.a. títtnefnd frum-
vörp um Ríkisútvarpið, sam-
keppnismál, sem og m.a. frum-
varp um verndun Þingvallavatns
og vatnasviðs þess. Hjálmar
kveðst, í þessu ljósi, undrast hve
ráðherrar leggi oft seint fram sín
þingmál. „Mál koma fullseint inn á
þingið frá ráðherrum. Það leiðir
til þess að svigrúm stjórnarand-
stöðunnar til að ýta málum út af
borðinu eykst.“
Fréttaskýring | Þingfrestun verður 11. maí
gangi starfsáætlun þingsins eftir
Framhald
ef þörf er á
Ágreiningur um samkeppnismál og
frumvarp um Ríkisútvarpið
Fylgst með umræðum á Alþingi.
Yfir fimmtíu stjórnar-
frumvörp bíða afgreiðslu
Alls 54 stjórnarfrumvörp eru
til meðferðar í fastanefndum
þingsins. Eitt stjórnarfrumvarp
bíður fyrstu umræðu, tvö ann-
arrar umræðu og jafnmörg
þriðju umræðu. Alls 57 þing-
mannafrumvörp eru til með-
ferðar í þingnefndum, en 27 slík
frumvörp bíða fyrstu umræðu.
Fjöldi þingsályktunartillagna er
einnig til meðferðar á þingi. Alls
43 stjórnarfrumvörp hafa þegar
verið afgreidd á þessu löggjaf-
arþingi og 1 þingmanna-
frumvarp.
Arna Schram
arna@mbl.is
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122