Morgunblaðið - 24.04.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 35
UMRÆÐAN
öðru forritanlegu tæki) sem inni-
halda forrit. Kröfur í einkaleyf-
isumsókn geta þó náð til tölvu-
forrits ef í sömu umsókn koma
fram kröfur um aðferð eða afurð
tölvutengdrar uppfinningar. Upp-
fylli tölvutengd uppfinning skilyrði
um nýnæmi, hagnýti í atvinnulífi og
frumleika auk tæknilegs framlags
getur hún notið einkaleyfisverndar.
Með tæknilegu framlagi er átt við
að tölvuforrit hafi tæknileg áhrif
þegar það er keyrt á tölvu og að
þau fari fram úr venjulegum gagn-
kvæmum áhrifum milli tölvu og
tölvuforrits.
Umræddri tilskipun hefur verið
fagnað af mörgum, aðallega af
stærri fyrirtækjum sem telja að
einkaleyfi styrki nýsköpun, bæti
efnahag og ennfremur jafni sam-
keppnisstöðu evrópskra fyrirtækja
gagnvart bandarískum og jap-
önskum samkeppnisaðilum. Fyr-
irtækin hafa jafnframt varað við
því að milljarðar króna sem eytt
hefur verið í rannsóknir og þróun á
sviði tölvuforrita færu fyrir bí ef
þeim yrði ekki gert kleift að vernda
hugmyndir sínar með einkaleyfum.
Ýmis smærri fyrirtæki hafa hins-
vegar talið efni tilskipunarinnar
koma á einokun innan hugbún-
aðargeirans og muni hefta verulega
nýsköpun á sviðinu.
Tilskipunin verður núna tekin til
annarrar umræðu hjá þingi ESB
og hefur það þrjá mánuði til að
hafna eða gera breytingar á tilskip-
uninni.
Spennandi umræða hefur jafn-
framt skapast hér á landi um
einkaleyfisvernd tölvuforrita en
þess má í lokin geta að haldin verð-
ur ráðstefna um þessi efni 19. maí
nk. en upplýsingar um ráðstefnuna
verður hægt að nálgast á heimasíðu
Einkaleyfastofunnar: www.els.is.
’Tilskipunin verðurnúna tekin til annarrar
umræðu hjá þingi
ESB og hefur það þrjá
mánuði til að hafna
eða gera breytingar
á tilskipuninni.‘
Höfundur er lögfræðingur
á Einkaleyfastofu.
ÞEGAR ég spurði Halldór Ás-
grímsson á Alþingi um fjárhags-
leg tengsl hans við væntanlega
kaupendur Símans reiddist for-
sætisráðherra og kallaði gróu-
sögur. En nú hafa þingmenn
Framsóknar ákveðið að birta
upplýsingar um hagsmunatengsl
sín og sjálfsagt að við þingmenn
allir gerum það. Enda snýst
þetta ekki um kviksögur, heldur
gagnsæi og traust.
En ég spurði forsætisráð-
herra líka um fjárhagsleg tengsl
flokks hans við væntanlega
bjóðendur. Þau á ekki að opna,
heldur verða fjármál flokka
áfram lokuð bók en málið sett í
nefnd! Sú nefnd á ekki að skila
af sér fyrr en eftir að búið er að
selja Símann. Það er óviðunandi,
því tryggja verður að almenn-
ingur geti treyst því að annarleg
sjónarmið ráði ekki för við
ákvörðun um sölu Símans. Það
er einfalt mál að leysa með því
að þegar fyrir liggur hverjir
bjóðendur eru veiti stjórnmála-
flokkarnir almenningi upplýs-
ingar um hvort og hve mikinn
fjárstuðning þeir hafi fengið frá
þeim. Rétt einsog skort hefur á
þessar upplýsingar um okkur
stjórnmálamenn er mikilvægt að
þegar ein stærsta eign almenn-
ings er seld séu fjármál flokk-
anna uppi á borðinu. Ríkisend-
urskoðun getur svo sannreynt
þessar upplýsingar einsog aðrar
í eftirliti sínu með sölu Símans.
Ríkisendurskoðun á trúnað
manna og með hana á vaktinni
gætum við verið viss um það
sem flest okkar trúa, að ekki sé
hægt að kaupa áhrif á ákvarð-
anir stjórnvalda um almanna-
hagsmuni.
Helgi Hjörvar
Hálfur sigur
Höfundur er alþingismaður
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
ÞORLÁKSGEISLI 47, ÍBÚÐ 0201 - 113 RVK
OPIÐ HÚS Í DAG 14-15
Mjög góð 111,4 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð (2. hæð
frá götu) ásamt 27,7 fm bílskúr á jarðhæð, samtals
139,1 fm. Átta íbúðir eru í húsinu. Tvö rúmgóð barna-
herbergi, bæði með skápum. Flísalagt gólf í anddyri,
þvottahúsi, baðherbergi og bílskúr. Eikarplastparket á
öðrum gólfum. Mjög skemmtileg íbúð á skjólsælum
stað í Grafarholti. Stutt í náttúruna og á golfvöllinn.
VERÐ 26,5 millj. Dagný og Jóhann taka á móti áhuga-
sömum.
Sími 594 5000 - Fax 594 5001
Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir
ESKIVELLIR 1. HAFNARFIRÐI www.hraunhamar.is/eskivellir
NÝTT Í EINKASÖLU
Hraunbær - Raðhús
Vorum að fá í sölu raðhús auk bíl-
skúrs, samtals 153,2 fm, á frábær-
um stað við Hraunbæ. Húsið hefur
verið einangrað og klætt að utan.
Fallegur afgirtur gróinn garður við
húsið. Gólfefni parket. Eign sem
vert er að skoða. Getur verið laust
strax. Fyrir áhugasama eru nánari
upplýsingar gefnar í síma 893 4191.
6608
1200 fermetra i›na›ar- og
verslunarhúsnæ›i til sölu
Atvinnuhús ehf • Atli Vagnsson hdl., lögg. fasteignasali
Skúlagata 30 • 101 Reykjavík • Sími: 561 4433 / 698 4611
Fax: 561 4450 • atli@atvinnuhus.is • www.atvinnuhus.is
Til sölu er ca. 1200 m2 húsnæ›i á tveimur hæ›um vi›
Eyjarsló›, flar sem Seglager›in Ægir hefur veri› til húsa,
en hún flytur nú í n‡tt hús vi› hli› fless sem til sölu er.
Ver› kr. 73 millj.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Þrjár íbúðir í sama húsi á
einum besta stað við Ægisíðuna
Hér er um að ræða 124 fm fallega sérhæð á 1. hæð með 29 fm bílskúr
sem skiptist í anddyri, hol, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús,
baðherbergi og í kjallara fylgir sérgeymsla og sameignarþvottahús.
Tvennar svalir. Á 2. hæð er 124 fm hæð með 29 fm bílskúr sem er eins
skipulögð og neðri hæðin. Á efstu hæð er 84 fm 3ja herbergja íbúð í góðu
ásandi. Glæsilegt sjávarútsýni.
Hús, alls 145,6 fm, sem skiptist í stórt rými
að austanverðu, lakkað gólf með góðri bíla-
gryfju, möguleiki á stækkun til austurs,
í vesturenda er sérinngangur, tvö herbergi og
snyrting. Opið geymsluloft er yfir herbergjun-
um. Tvær innkeyrsluhurðir á suðurhlið húss
og venjulegar dyr að auki á milli þeirra.
Stór malarborin athafnalóð (1.800 fm) með
girðingu umhverfis og innkeyrsluhliði sem
hægt er að læsa.
Ásett verð fyrir eignina er 11,5 milljónir.
Vörugeymsla Rarik
við Borgarnaust í Neskaupstað
w w w . a u s t u r l a n d . i s
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ
FASTEIGNA- OG SKIPASÖLU AUSTURLANDS EHF. Í SÍMA 580 7907
l i
i í
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Föt fyrir
allar konur