Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 20

Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 20
20 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ skýra að ég réði mér nokkurn veginn sjálf, hvort sem ég væri gift eða ekki, og Zaida endurtók sömu spurn- inguna: „And did your father punish you?“ Ég útskýrði fyrir þeim að á Ís- landi væri ólöglegt að lemja börnin sín eða maka sinn og að líkamlegar refsingar væru heldur ekki lög- bundnar eins og í Íran. En hvernig gat ég útskýrt að þrátt fyrir það væri heimilisofbeldi eins algengt og raun ber vitni hér á landi? Í Íran er bilið milli óskráðra reglna sam- félagsins og lagabókstafs, milli menningarlegs siðgæðis og lagalegs siðgæðis, ekki nærri eins breitt og hér. Zaida hefur átt nokkra kærasta með vitneskju móður sinnar en hún myndi aldrei segja föður sínum frá því. Þá yrði henni refsað. Hann bannar henni að nota farða og Zaida hlakkar til að gifta sig því þá má hún loksins plokka á sér augabrúnirnar, með leyfi eiginmannsins að sjálf- sögðu. Ég útskýrði fyrir þeim sjálfstæði mitt. Að ég væri í minni vinnu og „eiginmaðurinn“ í sinni vinnu. Ég ætti mína peninga og hann sína. Þær sögðu að þannig myndi það aldrei virka í Shiraz ef kona ynni úti. Karl- inn tæki laun konunnar og sæi um að ráðstafa peningunum. Þeim fannst það eðlilegt því að hjón væru í raun ein manneskja. Ég spurði varfærnislega út í stjórnmál landsins. Þær sögðu ástandið mjög slæmt og að yfirvöld hugsuðu ekki um fólkið í landinu. Þess vegna væri mikil fátækt. Þeim var líka illa við að þurfa að bera slæðu. Nazi litar á sér hárið og lætur sjást í mikla hárrönd. Zaida má ekki lita á sér hárið. Ekki fyrr en hún gift- ir sig. „En hvað viljið þið í staðinn fyrir ajatollah?“ spurði ég en ajatollah er æðsti trúarleiðtogi shítamúslima og þar af leiðandi hæstráðandi í Íran. Zaida svaraði strax: „Ég veit það ekki. Kannski George Bush.“ Þegar hún tók eftir undrunarsvipnum á andliti mínu spurði hún hvort ég vildi ekki fá Bush sem forseta míns lands. Ég svaraði neitandi og hún varð jafnvel meira undrandi en ég. „Af hverju ekki? Er hann ekki góður for- seti? Mér finnst eins og hann hugsi um fólkið í landinu sínu, þótt honum sé kannski ekki mikið gefið um önn- ur lönd,“ sagði Zaida hugsandi og hélt áfram: „Ég sé ameríska fólkið í sjónvarpinu. Það er hamingjusamt, það grínast, það hlær. Mig langar að vera eins og það og hafa allt sem það hefur.“ Hvernig gat ég útskýrt að sjónvarpið gæfi kannski ekki alveg rétta mynd af Bandaríkjunum eins og þau leggja sig? Ekki frekar en sjónvarpið hefur fram til þessa gefið mér rétta mynd af Íran. Þegar samtalið var farið að þynn- ast út sagðist ég þurfa að fara vegna veikinda eiginmanns míns. „Er hann reiður af því að þú ert að tala við okk- ur?“ spurðu þær skilningsríkar. Það kom á mig og þá sögðu þær skiln- ingsríkar og klöppuðu mér á axlirn- ar: „Þetta er allt í lagi. Við skiljum.“ Daginn eftir hringdi Zaida í mig og kvaddi mig með mjög háfleygum dramatískum orðum. Þá var „eigin- maðurinn“ minn farinn og hún spurði hvort ég saknaði hans. Ég svaraði játandi og þá sagði hún með barnslegri einlægni, þeirri sömu og þegar hún skildi ekki að ég vildi ekki Bush sem forseta Íslands: „Why?“ Ósáttar við sjadorinn Þegar ég hitti Maríu og Goliu í Kashan, einni af íhaldssamari en um Þótt konur séu yfir 60% háskólanema eru þær aðeins um 11% launþega í Íran. ÖFGAKENNDAR stjórnarfarsbreyt- ingar hafa alltaf mikil áhrif á daglegt líf fólks. Ef trúarbrögð eiga þátt í breytingunum verða áhrifin á líf kvenna oft mjög afgerandi. Þannig skelltu talibanarnir í Afganistan búrk- um yfir konurnar og svo var ætlast til að þær fleygðu þeim þegar Bandarík- in réðust inn í landið. Fyrir íslömsku byltinguna í Íran, ár- ið 1979, var réttindabarátta kvenna í nokkuð góðum farvegi. Konur fengu kosningarétt árið 1963 eftir þrjátíu ára baráttu. Nokkrum árum síðar voru svonefnd fjölskylduverndarlög (Family Protection Law) samþykkt en þau fólu meðal annars í sér að skiln- aðir voru auðveldari og fjölkvæni tak- markað, m.a. þannig að fyrsta eig- inkona þurfti að gefa samþykki sitt fyrir annarri eiginkonu. Giftingaraldur var hækkaður í átján ár og þótt fóst- ureyðingar hefðu aldrei verið leyfðar voru sektir vegna þeirra felldar niður. Á þessum tíma litu írönsk stjórn- völd mjög til Vesturlanda, líkt og Tyrk- land. Múhameð Reza keisari, sem tók við af föður sínum Reza Khan, gerði allt hvað hann gat til að þóknast bandarískum yfirvöldum. Lög voru sett sem bönnuðu konum að ganga í „sjador“ (n.k. svart lak sem þær sveipa yfir höfuðið og nær niður á tær) og konur voru hvattar til að nota ekki slæðu og til að klæða sig á vest- rænan hátt. Samfélagið var mjög markaðsvætt en um leið var því stýrt með harðri hendi. Fjölskyldugildin voru á undanhaldi og stefna stjórn- valda langt frá vilja almennings. Lengst gekk keisarinn þegar hann kom í gegn lögum um að Bandaríkja- menn í Íran skyldu undanþegnir írönskum lögum. Giftingaraldur lækkaður í níu ár Það var því ekki að ástæðulausu að Ayatollah Khomeini, æðsti klerkur múslima í landinu, fékk ótrúlegt fylgi þegar hann sneri til baka úr útlegð árið 1978. Konur og karlar á öllum aldri tóku þátt í byltingunni, allt frá hörðum lenínistum og yfir í íslamska harðlínumenn. En konurnar sem tóku þátt hefur eflaust ekki órað fyrir því sem á eftir kom. Fyrsta árið eftir byltinguna voru ýmsar grasrótarhreyfingar starfandi en sumarið 1980 voru þær bannaðar með tilheyrandi aftökum. Fjöl- skylduverndarlögin voru samstundis afnumin og konur skyldaðar til að ganga annaðhvort í sjador eða í „hejab“ en það þýðir að auk þess að hylja allan líkamann og hárið skyldu konur klæðast jakka sem nær vel niður fyrir rass eða alveg niður að tám. Gifingaraldurinn var fljótlega lækk- aður niður í níu ár enda þótti sumum klerkum æskilegt að karlar flyttu eig- inkonur sínar á heimili sitt um níu ára aldur svo þær yxu úr grasi í sínu rétta umhverfi. Stúlkur þurfa jafnframt að byrja að hylja hár sitt og klæðast „siðsamlega“ um leið og þær ná gift- ingaraldrinum. Konur máttu ekki lengur þvælast einar og þurftu alltaf að vera í fylgd ættingja eða eiginmanns. Sið- gæðislögreglan fylgdist vel með siðsamlegu lífi þegna sinna og refs- ingar fyrir brot voru líkamlegar, oft í formi svipuhögga. Farði var með öllu bannaður og komið var í veg fyrir öll „óæskileg“ samskipti kynjanna. Allt er betra en skilnaður Vinsæl kvennablöð í Íran ýta sér- staklega undir hefðbundnar ímyndir kynjanna og fjölskyldugildin eru mun mikilvægari en réttindi kvenna. Kon- um er jafnvel ráðlagt að skilja alls ekki við ofbeldisfulla eiginmenn sína en leita frekar leiða til þess að „reita þá ekki til reiði“. Allt er betra en skiln- aður. En íranskar konur láta ekki segjast. Um leið og siðgæðislögreglan slakaði á eftirliti sínu fóru margar hverjar að ganga um með farða og í þröngum fötum. Þær eru nú meira en tveir þriðju hlutar háskólanema og leggja mikið á sig til að standast ströng inntökupróf. Þrátt fyrir það eru þær aðeins 11% launþega í landinu en það verður spennandi að sjá í framtíðinni hvort menntun gagnist írönskum konum meira en kynsystrum þeirra á Íslandi sem enn þurfa að sætta sig við lægri laun og ábyrgðarminni stöð- ur en karlkyns kollegar þeirra. Heimildir Lewis, Jone Johnson. „Iran – Gender roles. Encyclopedia of Women’s History.“ Vefslóð: http://womens- history.about.com/library/ency/ blwh_iran.htm Lonely Planet: Iran. 2004. Price, Massoume. „A Brief History of Women’s Movements in Iran.“ Vefslóð: http://www.iranonline.com/History/ women-history/2.html. Íslamska byltingin gjör- breytti daglegu lífi kvenna Sumar konur ganga í þröngum föt- um og tylla slæðunni listilega vel svo hún hylji sem minnst hár. Morgunblaðið/Halla Sjadorinn er oft séður sem merki um siðprýði þótt það sé ekki endi- lega ástæðan sem liggur að baki hjá þessari konu en hún starfar sem íþróttakennari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.