Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 23
Málþing
um reynslu af nýju kerfi
samkeppnissjóða vísinda-
og tæknirannsókna
28. apríl á Hótel Loftleiðum
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
13:00 Setning málþings
Fundarstjóri er Vilhjálmur Lúðvíksson, skrifstofustjóri
vísindaskrifstofu menntamálaráðuneytis.
13:05 Úthlutunarstefna sjóðanna
Hafliði Pétur Gíslason, formaður stjórnar Rannsóknasjóðs
Sveinn Þorgrímsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs
Anna Þóra Baldursdóttir, formaður stjórnar Rannsóknarnámssjóðs
13:45 Starfshættir fagráða
Helga Gunnlaugsdóttir í fagráði hjá Rannsóknasjóði
Emma Eyþórsdóttir í fagráði hjá Tækniþróunarsjóði
14:15 Árangur háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja og
samstarf þeirra í nýju stoðkerfi
Kristján Kristjánsson, sviðsstjóri Rannís
Hans Kr. Guðmundsson, forstöðumaður Rannís
14:45 - 15:05 Kaffihlé
15:05 Hvernig virkar nýja kerfið?
Hákon Ólafsson, forstjóri Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
Guðjón Þorkelsson, deildarstjóri Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Björn Þór Jónsson, dósent Háskólinn í Reykjvík
Steinunn Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Skriðuklaustursrannsóknir
Jakob K. Kristjánsson, forstjóri Prokaria
Hilmar B. Janusson, þróunarstjóri Össur
15:40 Pallborð
Eiríkur Steingrímsson, rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands
stýrir umræðum.
16:30 Móttaka í boði ráðuneyta menntamála og iðnaðar.
Málþingið er haldið í samvinnu Rannís,
starfsnefnda Vísinda- og tækniráðs,
menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis
Súpersól til
Salou
20. maí
frá 34.995
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan við Barcelona.
Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar.
Salou skartar stórkostlegum ströndum, fjölbreyttri aðstöðu, menningu og litríku
næturlífi. Nú býður Terra Nova þér einstakt tækifæri á ótrúlegum kjörum. Þú bókar
og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Kr. 34.995
í 5 daga / kr. 49.990 í 12 daga
M.v. 2 fullorðna og 2 börn. Súpersól tilboð.
20. maí, 5 eða 12 dagar. Netverð á mann.
Kr. 39.990
í 5 daga / kr. 59.990 í 12 daga
M.v. 2 fullorðna. Súpersól tilboð. 20. maí, 5
eða 12 dagar. Netverð á mann.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
við annað komandi en að þiggja veit-
ingar, helst bæði smáhressingu þegar
ég kom og borða síðan með fjölskyld-
unni en Mósambíkar eru mjög gest-
risnir. Í fyrstu voru börnin feimin en
eftir því sem ég kom oftar kynntist ég
þeim betur og kom þá í ljós að þau
voru mjög samrýnd og heguðu sér
eins og venjuleg systkini. Það var
ánægjulegt að sjá hvernig þau gátu
leikið sér saman án þess að hafa nokk-
ur leikföng og varð mér oft hugsað til
allsnægtanna sem börn búa við hér á
Íslandi.
Húsið er mjög látlaust en hreinlegt
og taka börnin mikinn þátt í heim-
ilisstörfunum. Börnin virtust hraust
og var mér sagt að þau yrðu nánast
aldrei veik og fengju mjög sjaldan
malaríu en það er sá sjúkdómur sem
leggur flesta Mósambíka að velli. Til
þess að halda niðri moskítóflugunum,
sem bera malaríuna, er húsið og um-
hverfið úðað reglulega. Góða heilsu
barnanna má sjálfsagt líka þakka
góðu mataræði. Til gamans spurði ég
um matseðil vikunnar en hann er í
föstum skorðum og virtist mér sam-
setningin miðast við það að hafa fæðið
sem fjölbreyttast.
Börnin búa í fjölskylduhúsinu þar
til þau eru 15–16 ára gömul en þá
flytja drengirnir í húsnæði fyrir utan
þorpið. Stúlkurnar flytja aftur á móti
saman í sér hús innan þorpsins. Eftir
að unglingarnir flytja fá þeir fasta
fjárhæð til framfærslu sem þeir ráð-
stafa sjálfir. Þetta er liður í því að búa
börnin undir að lifa sjálfstæðu lífi.
Þau njóta áfram stuðnings frá þorp-
inu þangað til þau hafa lokið námi og
geta staðið á eigin fótum.
Áhrif á samfélagið
Kynni mín af SOS-barnaþorpinu í
Mapútó voru mjög jákvæð og vil ég
hvetja sem flesta til að styrkja barn í
slíku þorpi eða með því að styðja önn-
ur hjálparsamtök. Þörfin er mikil og
fer vaxandi. Ekki má gleyma sam-
félagslegum áhrifum þessa stuðnings,
en við SOS-þorpin starfar fjöldi
manns og hefur hver og einn fyrir
fjölskyldu að sjá. Auk þess gegna
þorpin mikilvægu hlutverki í sam-
bandi við menntun og heilsugæslu,
sem skilar sér út í þjóðfélagið.
Við Íslendingar erum rík þjóð og
munar flesta ekkert um að greiða
mánaðarlega lága fjárhæð til hjálpar-
starfs. Þótt upphæðin sé ekki há get-
ur stuðningurinn skipt sköpum fyrir
menntun og framtíð barns í þróun-
arlandi.
Börnin búa í fjölskylduhúsinu þar til þau eru 15—16 ára.
Höfundur er lyfjafræðingur.
Anna í góðra vina hópi fyrir utan fjölskylduhúsið. Julieta er níu ára. Horanda og Julieta taka þátt í heimilisstörfunum.