Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 25
bundin verkefni, en innan þess ramma sé ég fyrir mér að Norður- landaráð og Norræna ráðherranefnd- in geti gegnt sérstöku hlutverki.“ Breytt staða fyrir Ísland og Noreg Joenniemi bendir á að eftir inn- göngu Eystrasaltsríkjanna í Evrópu- sambandið sé komin upp breytt staða fyrir þau norrænu ríki sem standa ut- an ESB. „Eftir að Eystrasaltsríkin öðluðust sjálfstæði í kjölfar hruns Sovétríkjanna kom upp sú spurning hvort bjóða ætti þeim inngöngu í Norðurlandaráð. Það varð ekki ofaná, en í stað þess var tekið upp samstarf sem vísað var til sem 5+3, þ.e.a.s. Norðurlöndin fimm og Eystrasalts- ríkin þrjú. Með tímanum var farið að tala um ríkin átta, með skírskotun til aukins samstarfs þeirra á milli. Grein- armunurinn á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum hefur smám saman verið að mást út og í auknum mæli er farið að líta á þau sem einn hóp, t.d. þegar ráðamenn koma sam- an. Nú má segja að formúlan hafi breyst í 3+3+2, í þeim skilningi að nú eru þrjú Norðurlandanna og öll Eystrasaltsríkin aðilar að Evrópu- sambandinu, en aðeins Ísland og Nor- egur standa fyrir utan. Þarna er kom- in upp ný staða, sem er síðastnefndu löndunum tveimur í óhag.“ Sú spurning hlýtur að vakna, að mati Joenniemis, hvað Ísland og Nor- egur eigi að gera til að bregðast við þessari þróun. „Sá möguleiki er vita- skuld fyrir hendi að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hvað bæði Ís- land og Noreg varðar eru sjávarút- vegsmálin helsta hindrunin í vegi inn- göngu, en ef ágreiningsefni þar að lútandi væru leyst hygg ég að aðild væri raunhæfur kostur. Það er öllum Norðurlöndunum mikilvægt að ekki myndist gjá í Norðurlandasamstarf- inu, og aðild Íslands og Noregs að ESB gæti auk þess eflt sameiginleg áhrif þeirra innan Evrópu, svo það væri hagur Dana, Svía og Finna að beita sér fyrir því innan sambandsins að Ísland og Noregur geti gengið inn. En aðild að Evrópusambandinu er ekki eini valkosturinn. Ísland og Nor- egur gætu til dæmis í sameiningu beitt sér fyrir eflingu vestnorræna samstarfsins, með þátttöku Færeyja og Grænlands, sem hefur þróast nokkuð á undanförnum árum en er þó ekki eins kraftmikið og það gæti ef til vill verið. Það gæti orðið vettvangur til að auka áhrif þessara þjóða.“ Ísland ætti að forðast einangrun Spurður hvernig hann sjái mögu- leika Íslands í framtíðinni sem ríki ut- an Evrópusambandsins segir Joenn- iemi að svarið sé tvíþætt. „Í þeim skilningi að ástand efnahagslífsins er með ágætum má segja að engin sér- stök pressa hvíli á Íslendingum að sækja um aðild. En það er hins vegar hætta á því að þeir einangrist í póli- tískum skilningi og missi af því að hafa áhrif á gang mála í álfunni. Og eins og fram hefur komið er jafnvel útlit fyrir að Ísland, auk Noregs, muni í auknum mæli gegna jaðarhlut- verki í norrænu samstarfi. Þetta á eft- ir að koma betur í ljós á næstu árum. Það er mikilvægt fyrir Ísland að reyna að sporna gegn slíkri einangr- un með því að taka virkan þátt í sam- starfi við hin norrænu ríkin og sýna þar frumkvæði, ekki síst hvað varðar vestnorræna samvinnu. Íslendingar þurfa að skilgreina afstöðu sína gagn- vart Evrópu og meta hvernig tengslum við Evrópusambandið verði best háttað. Ég hygg að dyrnar séu opnar og að hinum Norðurlöndunum sé í mun að gæta hagsmuna Íslands.“ Morgunblaðið/Aðalheiður Þorsteinsdóttir adalheidur@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 25 Kíktu á neti› www.das.is Hringdu núna 561 7757 -dregi› í hverri viku ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D A S 27 49 9 4 /2 00 5 bifreiðar í vinninga 10 Ford Mustang happdrættisár Nýtt Dregi› 52 sinnum á ári um 705 skattfrjálsar milljónir! Bílarnir verða til sýnis í Smáralind um helgina Opið um helg ina í aðalumboði ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.