Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 39

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 39
Í nýjasta tölublaði Stúd- entablaðsins er viðtal við Guð- mund R. Jónsson, framkvæmda- stjóra rekstrarsviðs HÍ, um hugsanlega gjaldtöku og segir hann þar m.a. að víða erlendis sé rukkað fyrir notkun bílastæða á háskólasvæðum. Sá samanburður Guðmundar er að mínu mati ekki fyllilega réttmætur, þar sem al- menningssamgöngur eru almennt mun betri, skilvirkari og stúd- entavænni í evrópskum borgum heldur en hér heima. Sérstaklega á það við um háskólabæi eins og Lund sem Guðmundur nefnir sem dæmi. Víða í Evrópu eru fargjöld niðurgreidd fyrir stúdenta eða jafnvel felld alveg niður. Hér er því ólíku saman að jafna. Eins og staðan er í dag tekur það nem- enda, búsettan í úthverfi Reykja- víkur, t.d. mun lengri tíma að komast í skólann á morgnana með strætó en bíl og óeðlilegt að sá hópur verði fyrir auknum út- gjöldum fyrir það eitt að eiga og reka bíl. Bent hefur verið á að bílastæð- unum við HÍ fylgi nokkur kostn- aður og er það eflaust rétt. Á móti kemur hins vegar að allri sjálf- sagðri þjónustu á vinnustöðum fylgir ákveðinn kostnaður og má sem dæmi nefna salernisaðstöðu og notkun á kaffi- og lesstofum í byggingum skólans. Það þætti vafalaust skjóta skökku við að inn- heimta gjöld fyrir notkun á þess- ari þjónustu. Stúdentar bera nú þegar tals- verðan kostnað af námi sínu í formi skrásetningargjalda. Það væri til að bæta gráu ofan á svart að taka upp gjaldheimtu fyrir jafnsjálfsagðan hlut og notkun bílastæða hjá stúdentum við skól- ann sinn. Höfundur er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 39 UMRÆÐAN Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509 www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is Árbær og Seláshverfi Við hjá Fasteignakaupum höfum verið beðin um að óska eftir einbýli, par- eða raðhúsi í Árbæ eða Seláshverfi fyrir fjölskyldu sem eru fjársterkir kaupendur og eru með minni eign í Árbæjarhverfi Nánari upplýsingar gefur sölustjóri Fasteignakaupa Páll Höskuldsson í síma 515 0500 eða 864 0500. Páll Höskuldsson, Gsm 864 0500 Erna Valsdóttir, löggiltur fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Einstaklega fallegt 139 fm endaraðhús ásamt 23,7 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað. Húsið, sem er á tveimur hæðum, er mjög bjart og opið. Á neðri hæðinni eru stofur með útg. á suðurverönd og garð, eldhús með viðarinnréttingu, salerni og þvottahús. Á efri hæðinni eru fjögur rúm- góð herbergi og stórt baðherbergi. Gólf- efni er parket og flísar. Bílskúrinn er með rafmagnsopnara, heitu og köldu vatni. Þetta er einstaklega falleg og vel umgengin eign á góðum stað á Ártúnsholtinu. Verð 33,9 millj. OPIÐ HÚS VERÐUR MILLI KL. 14.00-16.00. HULDA OG ÓLAFUR TAKA VEL Á MÓTI YKKUR. Opið hús í dag BIRTINGAKVÍSL 34 - ENDARAÐHÚS Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9-17:30. Sími 588 4477 Um er að ræða atvinnuhús- næði, 153 fm að stærð, stað- sett á mjög góðum stað við Akralind. Mögulegt er að skipta húsnæðinu upp í tvær aðskildar einingar með góðum innkeyrlsudyrum. Einnig er um að ræða rekstur. Fyrirtækið sérhæfir sig í að setja filmur í bíla. Viðskiptasambönd við byrgja og/eða umboð fyrir öll efni sem á þarf að halda fylgja með. Við- skiptasambönd, fastir viðskiptavinir, góð velta. Hentar vel einum til tveimur starfsmönnum. Góður tími framundan. Rekstur þessi býð- ur einnig upp á ýmsa útvíkkunarmöguleika sem ekki hafa verið nýttir. Allar nánari upplýsingar veitir Magnús á skrifstofu. Verð tilboð. Tækifæri - Til sölu eign ásamt góðum rekstri , NÝ EIGN Á SKRÁ Bakkakot í landi Hólms í Reykjavík Undirrituðum hefur ver- ið falið að afla tilboða í eignina Bakkakot í landi Hólms ofan við Reykja- vík (ca 5 mínútna akstur frá Árbæjarhverfi). Um er að ræða erfðaleigu- samning um ca 0,7 ha lands og standa á því 92 fm íbúðarhús, byggt 1958 og 132 fm fjárhús, byggt árið 1950. Húsin þarfnast viðhalds. Nánari upplýsingar veitir undirrit- aður á skrifstofutíma. Pétur Kristinsson hdl., löggiltur fasteigna- og skipasali, sími 438 1199, fax 438 1152, netfang pk@simnet.is Heimasíða fasteignasölu, www.fasteignsnae.is Fasteigna- og skipasala Snæfellsness, Aðalgötu 2, 2. hæð, 340 Stykkishólmi, sími 438 1199, fax 438 1152 • Heimasíða: www.fasteignsnae.is Pétur Kristinsson hdl., löggiltur fasteigna- og skipasali.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.