Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 46

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Auður Sigurðar-dóttir Wölstad fæddist í Reykjavík 23. sept. 1924. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Krist- rún Kristgeirsdóttir, húsmóðir, f. 20. apríl 1892 á Nesjum í Grafningi, d. 1. feb. 1986, og Sigurður Jónsson, ölgerðar- maður, f. 15. mars 1892 á Akranesi, d. 13. janúar 1977. Systkini Auðar: Jón Haraldur, f. 20. jan. 1920, d. 31. mars 1951, Sigurður Þórir, f. 23. okt. 1921, d. 18. feb. 1942 og Arnþóra, f. 25. sept. 1925. Hinn 6. sept. 1958 giftist Auður Tore Magne Wöl- stad, f. í Stavanger í Noregi. Hann lést 25. des. 1964. Auður ólst upp í Reykjavík, hún út- skrifaðist sem sjúkraþjálfari frá Oslo Ortopediske Institutt 1957 og starfaði sem yfir- sjúkraþjálfari á Vik- ursund Bad Modum í Noregi 1962–1970. Hún rak eigið fyr- irtæki, Ryen Fys- ikaldki Institutt í Ósló 1970–1982. Auður starfaði sem yfirsjúkra- þjálfari við NLFÍ í Hveragerði 1982–1994. Útför Auðar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Með nokkrum orðum langar mig til að minnast vinkonu minnar Auðar Sigurðardóttur Wölstad. Ég kynntist Auði fyrst þegar hún kom til starfa hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra árið 1957. Hún hafði þá nýlokið námi í sjúkraþjálfun frá sama skóla í Ósló og ég hafði stundað nám við örfáum árum áður. Auður fór fljótt aftur til Noregs. Þar giftist hún Tore Magne Wölstad en hún missti hann eftir stutta sambúð 1964. Hún kom aftur til starfa hjá Styrktarfélaginu árið 1960 en fór ári síðar aftur til Noregs. Auður var yf- irsjúkraþjálfari á Vikursund Bad Modum 1962–1970. Eftir það rak hún í Ósló um tólf ára skeið sjúkra- þjálfunarstöð sem naut bæði virðing- ar og vinsælda fyrir mikla fagkunn- áttu og ljúft viðmót. Mér hlotnaðist sú ánægja að heimsækja Auði í Ósló og sjá hennar frábæru aðstöðu þar. Hugur Auðar leitaði samt ávallt heim til Íslands. Hingað kom hún svo alkomin árið 1982 og hóf þá störf á Heilsustofnun FLNÍ í Hveragerði. Þar vann hún til ársins 1994. Skömmu síðar veiktist hún og barð- ist við mikla fötlun eftir það. Auður var sterkur persónuleiki og góður vinur. Hún átti frábæra fjöl- skyldu sem studdi hana þar til yfir lauk. Öddu systur Auðar, fjölskyldu hennar, öðrum ættingjum og vinum sendi ég samúðarkveðjur. Auður mín, takk fyrir að vera vin- kona mín í hartnær fimmtíu ár. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Jónína Guðmundsdóttir. AUÐUR SIGURÐARDÓTTIR WÖLSTAD Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HEIÐUR SVEINSDÓTTIR, Skógarási 8, Reykjavík, sem lést mánudaginn 18. apríl verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 25. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Ragnar Valsson, Sveinn Ragnarsson, Guðrún Edda Bragadóttir, Berglind Ragnarsdóttir, Karl Áki Sigurðsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN (DÚDDI) GUÐLAUGSSON húsasmíðameistari, Aðalgötu 5, Keflavík, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 19. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 29. apríl kl. 13:00. Börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, afi og langafi, HJÖRTUR MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Löngubrekku 47, Kópavogi, sem lést mánudaginn 18. apríl síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánu- daginn 25. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð Sunnuhlíðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Rósa Sigurðardóttir, Karl Hjartarson, Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir, Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, Lilja Hjartardóttir, Sigrún Hjartardóttir, Guðmundur Hjartarson Þórhalla Jónsdóttir, Stefanía Hjartardóttir, Helgi Hrafnsson, Gunnhildur Hjartardóttir, Ingibjörg Hjartardóttir, Skarphéðinn Þór Hjartarson, Guðrún Sigríður Loftsdóttir, Elsa Unnur Guðmundsdóttir, Bragi Kr. Guðmundsson, Margrét Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, Kóngsbakka 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 26. apríl kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Einar Þ. Jónsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangaömmu, JÓHÖNNU LOFTSDÓTTUR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. Lárus Gamalíelsson, börn, tengdabörn og ömmubörn. ✝ Sigríður Sveins-dóttir fæddist á Skaftárdal á Síðu 24. janúar 1914. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu 20. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sveinn Steingrímsson, f. 1874, d. 1964, og Margrét Einarsdótt- ir, f. 1878, d. 1965. Systkini Sigríðar voru Einar vélsmið- ur, bjó síðast á Seyð- isfirði, f. 1903, d. 1977, Björn bóndi á Langholti, síðast til heim- ilis á Galtalæk í Landsveit, f. 1904, d. 1983, Steingrímur vélsmiður í Reykjavík, síðast vistmaður á Klausturhólum, f. 1906, d. 1996, Valgerður verkakona, f. 1907, d. 1994, Ingibergur, strætis- vagnastjóri í Reykjavík, f. 1908, d. 1988, Þórunn húsmóðir í Fljóta- krók, f. 1910, d. 2005, Ólafur bóndi í Botnum í Meðallandi, f. 1912, d. 2001, og Guðlaug húsmóð- ir í Langholti, f. 1916, d. 2003. Uppeldisbróðir er Vigfús Ingi- Dóttir Margrétar er Jóhanna, f. 2.2. 1989. 5) Guðrún, f. 29.4. 1950. Maki 1 Júlíus M. Þórarinsson, þau skildu, maki 2 Páll Ammendrup, f. 30.9. 1947, þau skildu, sambýlis- maður Guðmundur Garðarsson, f. 26.4. 1949. Börn Guðrúnar eru Sigríður, f. 23.4. 1971, Lovísa Björk, f. 16.2. 1973, Þóra Margrét, f. 12.6. 1976, Andrés f. 3.9. 1989, faðir Gunnar Andrésson, f. 29.2. 1960, og Katrín Emma, f. 18.12. 1992. 6) Sigurjón f. 13.6. 1951, maki Birna Gunnlaugsdóttir, f. 27.5. 1959. Börn Sigurjóns eru Ás- dís, f. 5.7. 1979, Arna, f. 9.7. 1986, og Sigurjón Örn, f. 16.10. 1991. 7) Gréta, f. 23.4. 1953, sambýlismað- ur Örn Proppé, þau slitu samvist- ir. Maki Hörður Brandsson, f. 25.2. 1948, þau skildu. Börn Grétu eru Þóra Björk, f. 20.03. 1981, Arnar, f. 11.9. 1983, og Guðrún Birta, f. 23.8. 1995. 8) Valgerður, f. 4.11. 1955, d. 26.11 1999, maki Axel Gústaf Guðmundsson, d. 1981, sambýlismaður Sigurbergur Stefán Kristjánsson, d. 1991, maki Sigmundur Felixsson, f. 15.3. 1950. Börn Valgerðar eru Guð- mundur Páll, f. 9.11. 1976, Sigríð- ur Anný, f. 25.7. 1978, Kristján Gísli, f. 3.10. 1984, og Grétar, f. 30.5. 1990. Barnabarnabörn Sig- ríðar eru fjölmörg. Sigríður var jarðsungin frá Skarðskirkju á Landi 26. mars, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. mundarson, búsettur í Reykjavík, f. 1928. Sigríður giftist Sig- urjóni Pálssyni, f. á Búlandsseli 9. septem- ber 1911, d. á Galta- læk 30. mars 1997. Þau hófu búskap á Söndum í Meðallandi 1942 en fluttu búferl- um að Galtalæk í Landsveit 1945, þar sem þau bjuggu síðan. Börn Sigurjóns og Sigríðar eru: 1) Páll, f. 17.7. 1944. 2) Jón, f. 14.3. 1946, sambýlis- kona Sigurdís Baldursdóttir, þau slitu samvistum, maki Kristín Matthíasdóttir, f. 2.4. 1941. Börn Jóns eru Ólína, f. 29.2. 1968, Mar- grét Sigríður f. 22.11. 1970, Sig- urjón, f. 17.1. 1976, og Kristín, f. 7.12. 1976. 3) Sveinn, f. 1.10. 1947, maki Sigurbjörg Elimarsdóttir, f. 21.1. 1957. Börn Sveins eru Elimar Helgi, f. 22. 2. 1973, Páll, f. 23.9. 1977, Sigurjón, f. 12.11. 1979, Birnir, f. 12.1. 1984, og Víðir, f. 1.9. 1987. 4) Margrét, f. 2.2. 1949, sambýlismaður Hlöðver Filippus Magnússon, f. 2.9. 1924. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Samt var hún einn af máttarstólpum þjóðarinnar. Þjóð- in bara vissi það ekki og hún sjálf leit heldur alls ekki þannig á sig. Þó var hún það eins og þúsundir annarra kvenna bæði samtíma og fyrri tíma húsfreyja og mæðra á Íslandi. Vann störf sín án þess að mögla, sinnti um það sem þurfti á stórbúi innan dyra og utan ásamt uppeldisstörfum. Vann störfin sem enginn virðist vita að gera sig ekki sjálf. Hún gerði ekki miklar kröfur um þægindi sér til handa. Nægjusemi var henni í blóð borin, æðruleysi og að taka því sem að höndum bar. Marga andvökunóttina átti hún bæði vegna okkar barnanna, búsins og vegna umönnunar við aldraða ætt- ingja. Hún var hrein og bein, sagði það sem henni bjó í brjósti. Hún kom úr stórum hópi systkina og sjálf eignaðist hún átta börn. Vön að vinna og strita. Hún tilheyrði kyn- slóð sem var ekki að mögla yfir hverju sem er. Kynslóð sem lagði grunninn að velferð okkar. Velferð sem er misskipt og það veit ég að henni sveið. Hún var móðir mín og ég er stolt af henni. Já, hún bjó ekki ein, hún og faðir minn voru ágætlega samhent í sínu lífi en hún lifði í skugganum af mann- inum sínum. Ég trúi því að hún eigi góðar móttökur þar sem ástvinir bíða hennar. Far þú í friði, móðir mín. Guðrún. SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblað- ið í fliparöndinni – þá birtist valkost- ur „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.