Morgunblaðið - 24.04.2005, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 24.04.2005, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 47 MINNINGAR ✝ SigurlaugBjörnsdóttir fæddist á Rútsstöð- um í Svínadal í A-Hún. 16. júlí 1917. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 4. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Þorbjörg Krist- jánsdóttir, f. á Reykjum við Reykja- braut í A-Hún. 17. febrúar 1894, d. 16. apríl 1962, og Björn Magnússon, kennari og bóndi, f. á Ægis- síðu í Þverárhreppi í V-Hún. 23. september 1887, d. 6. desember 1955. Systkini Sigurlaugar voru: Ingibjörg Margrét, f. 7. júlí 1916, d. 6. október 1927, Kristín Sig- þóra, f. 1. mars 1919, Sigrún, f. 13. febrúar 1921, d. 25. október 1977, Jónína Sveinbjörg, f. 16. júlí 1922, d. 18. maí 2003, og Magnús, f. 26. október 1923, d. 12. júní 1997. Sigurlaug ólst upp með foreldr- um sínum á ýmsum stöðum í A-Húnavatnssýslu og Skagafirði uns þau fluttu til Reykjavíkur árið 1930. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1937 og kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís- lands 1938. Stundaði nám í Háskóla Ís- lands í ensku og bók- menntum 1943 til 1945 og síðar á æv- inni er hún var komin á eftirlaun. Las enskar bók- menntir við Univers- ity College í Notting- ham 1945–1946 og fór í námsferð til Danmerkur 1956. Sigurlaug var kennari í rúm fjörutíu ár, lengst af í Hafnarfirði við St. Jósefsskóla og síðar við Öldutúnsskóla. Eftir hana liggja fjölmargar þýðingar á enskum bókmenntaverkum. Þekktast þeirra er Fýkur yfir hæðir eftir Emily Brontë. Þá sá hún um og gerði fjölda þátta fyrir ríkisút- varpið auk þess sem hún ritaði greinar um bókmenntir og menn- ingarmál í dagblöð og tímarit. Útför Sigurlaugar fór fram 10. apríl í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Látin er í Reykjavík æskuvinkona mín og skólasystir Sigurlaug Björns- dóttir kennari. Við kynntumst fyrst í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík árið 1935. Á þeim árum var MR sex ára skóli, fyrstu þrír bekkirnir gagn- fræðadeild en seinni þrír lærdóms- deild, sem skiptist í stærðfræði- og máladeild. Við vorum þrjár stúlkur fyrir í máladeild, Guðrún Arnalds, Jórunn Viðar auk mín en þá bættust í hópinn Sigurlaug, Ólafía Jónsdóttir og Sigríður Jónsdóttir en þær komu úr öðrum gagnfræðaskólum. Sigurlaug var alin upp í norð- lenskri sveit og vakti strax athygli fyrir hve hún talaði kjarnyrta ís- lensku. Fljótt kom í ljós hversu vel ritfær hún var og munaði minnstu að hún hlyti hin eftirsóttu gullpenna- verðlaun skólans. Ég held að við skólasystkinin höf- um ekki gert okkur fyllilega grein fyrir hve mikið Sigurlaug lagði á sig til að svala menntunarþrá sinni. Fað- ir hennar, Björn Magnússon, sem hafði stundað kennslu fyrir norðan missti heilsuna á besta aldri og þurfti að dvelja meira og minna á sjúkra- húsum eftir að þau fluttu til Reykja- víkur. Móðir Sigurlaugar, Þorbjörg Kristinsdóttir, var bráðdugleg kona. Hún kenndi hannyrðir um tíma og saumaði að mestu leyti fatnað fjöl- skyldunnar. En það dugði ekki til að sjá fyrir sex manna fjölskyldu á tím- um atvinnuleysis og kreppu, svo að börnin þurftu einnig að leggja lóð á vogarskálina. Ég minnist þess að Sigurlaug þurfti hvað eftir annað að fá frí í skólanum í skemmri eða lengri tíma, ef henni bauðst vinna í Sláturfélagi Suðurlands, en þar átti hún hauka í horni. Samt lauk Sigurlaug öllum prófum með sóma. En í 6. bekk veiktist hún, svo að hún gat ekki tek- ið stúdentspróf með okkur hinum um vorið 1937. Það þótti okkur leitt, en hún lauk samt prófi um haustið með láði. Að loknu stúdentsprófi lauk Sig- urlaug kennaraprófi en innritaðist jafnframt í guðfræðideild Háskóla Íslands, að ég tel fyrst kvenna, og stundaði þar nám í einn vetur. Hún sneri sér síðan að kennslu, sem varð hennar ævistarf. Var hún fyrst heim- iliskennari að Brautarholti á Kjalar- nesi en síðan starfrækti hún smá- barnaskóla í Reykjavík í tvö ár. Árið 1946 réði hún sig sem kennara að St. Jósepsskóla í Hafnarfirði og starfaði þar í 15 ár uns hún tók við kennslu í Öldutúnsskóla til starfsloka árið 1985. Sigurlaug hafði sérstaka unun af að kenna ungum börnum. Hún giftist ekki og átti ekki afkomendur, en henni þótti innilega vænt um börnin sem hún kenndi. Hún sagði ein- hverju sinni við mig, að þótt hún hefði ekki sjálf eignast börn, fyndist henni hún eiga svo mikið í börnun- um, sem hún hafði kennt og borið umhyggju fyrir í sínu skólastarfi. Hún fylgdist með þeim mörgum og vegnaði þeim vel, væri hún stolt sem móðir. Þá hlýnaði sér um hjartaræt- ur. Sigurlaug fékkst samt ekki ein- göngu við kennslustörf. Hún var af- kastamikill þýðandi. Það liggja eftir hana ótal þýðingar á bókum og smá- sögum þekktra höfunda, svo sem Fýkur yfir hæðir eftir Emily Brontë og Frú Parkinson eftir Louis Brom- field. Auk þess flutti hún mörg fróð- leg erindi í Ríkisútvarpinu um forna menningu og ritaði margar greinar um bókmenntaleg efni í Lesbók Morgunblaðsins. Hún fór í margar námsferðir bæði til Englands og Danmerkur og fékk m.a. styrk frá British Council til að nema bók- menntir við Háskólann í Nottingham 1945–6. Menntaþorsti Sigurlaugar var óslökkvandi. Meira að segja eftir að hún fór á eftirlaun sótti hún nám- skeið í Háskóla Íslands í listasögu hjá Birni Th. Björnssyni og einnig stundaði hún nám í íslensku og hafði mikla ánægju af. Eftir að Sigurlaug hóf kennslu í Hafnarfirði keypti hún sér þar íbúð, sem hún bjó í þar til hún flutti á Hrafnistu í Reykjavík fyrir nokkrum árum. Við stúdentar frá 1937, sem vorum upphaflega 54, þar af sex stúlkur, höfum komið saman á hverju ári undanfarið. Hópurinn er reyndar farinn mjög að þynnast og af stúlk- unum erum við Jórunn Viðar aðeins eftir. Við söknum öll Sigurlaugar, því hún var einkar skemmtilegur félagi, sem bjó yfir ómældum fróðleik, fylgdist vel með málefnum líðandi stundar og var alltaf hress og kát. Innilegar samúðarkveðjur til Kristínar systur hennar og annarra aðstandenda. Margrét Thoroddsen. SIGURLAUG BJÖRNSDÓTTIR Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR DANÍELSDÓTTUR, Flatahrauni 16B, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki St. Jó- sefsspítala í Hafnarfirði fyrir góða umönnun. Sigurður S. Adolfsson, Hólmfríður Birna Kjartansdóttir, Pálmi E. Adolfsson, Arnfríður Ingólfsdóttir, Auður Adolfsdóttir, Ásmundur Ólafsson, Smári Adolfsson, Elín Bjarnadóttir, Guðlaugur Adolfsson, Björk Hreinsdóttir og ömmubörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar frænku okkar og vinkonu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Ferjubakka, fyrrv. matráðskonu í Vatnaskógi, síðast til heimilis í Seljahlíð. Frændsystkini og vinir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, HUGRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR, áður til heimilis í Víðilundi 24, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Bakkahlíð 39 og Birkihlíðar á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Erla Benediktsdóttir, Hálfdán Helgason, Margrét Benediktsdóttir, Olgeir Friðbjörnsson, Helga Benediktsdóttir, Bengt Johannsson, Gíslína Benediktsdóttir, Halldór Sigursteinsson, ömmu- og langömmubörn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR fyrrv. símamanns, Norðurbrún 1. Egill B. Sigurðsson, Gerður H. Jóhannsdóttir, Bryndís H. Sigurðardóttir, Þuríður G. Sigurðardóttir, Bergur Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Komum heim til aðstandenda ef óskað er Sverrir Einarsson Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Fjarðarás 25, 110 Reykjavík • utfarir@utfarir.is Sími 567 9110 • 893 8638 • Fax 567 2754 • www.utfarir.is Útfararþjónustan Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Samúðarblóm Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Fallegir steinar á verði Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, AUÐUNN KL. SVEINBJÖRNSSON svæfingalæknir, Hlein, Álftanesi, verður jarðsunginn frá Bessastaðakirkju þriðjudaginn 26. apríl kl. 13.00. Ingibjörg Óskarsdóttir, Guðmundur Auðunsson, Elizabeth Goldstein, Sveinbjörn Auðunsson, Guðrún Elísabet Árnadóttir, Guðbjörg Auðunsdóttir, Hartmann Kárason, Erna Sif Auðunsdóttir, Dagur B. Agnarsson, Ósk Auðunsdóttir, Hermann Sigurðsson, barnabörn og aðrir aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.