Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 49

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 49 Jeppar Nissan Terrano II Luxury 2001. Góður bíll, einn eigandi, krókur, lúga, 6 diska magasín, auka 31" dekk á felgum fylgja. Ekinn 150 þús. Verð 2.150 þús. Sími 663 6300. Bílavarahlutir www.bilapartar.is - Erum flutt! Bílapartar ehf., (áður v. Rauða- vatn). Erum flutt í Grænumýri 3, Mosfellsbæ. Erum eingöngu með Toyota-varahluti, mikið úrval. Kaupum Toyota-bíla. Sími 587 7659. Alternatorar og startarar í fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og bátavélar. Á lager og hraðsend- ingar. 40 ára reynsla. Bílaraf, Auðbrekku 20, sími 564 0400. Fellihýsi Truma gasmiðstöðvar F. felli og hjólhýsi,húsbýla o.fl. Hitar m/blæstri,Thermost. sér um rétt hitastig. Engin mengun eða súrefnistaka í rými. Mjög hljóðlát- ar 50 ára reynsla. Truma umboðið. Bílaraf Auðbr. 20. S,564 0400 Palmino Colt fellihýsi 4ra ára til sölu. Lítið notað. Upplýsingar í síma 557 6365 og 897 6539. Hjólhýsi Fullbúið 30 fm hús. Stöðuhjól- hýsi, sem skiptist í stofu, eldhús, barnaherbergi, hjónaherbergi, snyrtingu og sérbað. Stærð 3x10 m. Hús með öllu til afhend- ingar á höfuðborgarsvæðinu. Verð aðeins 950 þús. Sími 893 6020. Vinnuvélar Brenderup mótorhjólakerrur. Tveggja mótorhjóla kerrur. Mál: 325x159 cm, burðargeta: 375 kg. Nánari upplýsingar í síma 892 7512 og á netinu: lyfta@lyfta.is og www.lyfta.is Varahlutir Jeppapartasala Þórðar, Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia Sportage '02, Pajero V6 92', Terr- ano II '99, Cherokee '93, Nissan P/up '93, Vitara '89-'97, Patrol '95, Impreza '97, Legacy '90-'94, Isuzu pickup '91 o.fl. Smáauglýsingar 569 1111 www.mbl.is/smaaugl Til sölu Mazda 626 1.8, árgerð 1992, 5 dyra, beinskiptur með dráttarkúlu. Rúmgóður en samt sparneytinn bíll sem hefur verið mest alla ævi erlendis. Fæst á aðeins 130 þús. stgr. Nánari uppl. í síma 899 5522. Bílar VW Golf 9/2000 Sjálfskiptur, ál- felgur, ek. 72 þús. Verð 1050 þús. Upplýsingar í síma 691 1944. Toyota Corolla 1.6 G6 Beinsk., nýskr. 07/01, ek. 106 þ. km., grænn, filmur, 17" álfelgur, spoiler kit, spoiler o.m.fl. Verð 1.390.000. Heimsbílar eru staðsettir á nýja stóra bílasölusvæðinu við Klettháls 11. Heimsbílar, Kletthálsi 11a, 110 Rvík, sími 567 4000. www.heimsbilar.is Grand Cherokee V6 árg. 2000 Ek. 110 þús. Vel með farinn. Rafm. í öllu. Cd, cruise control, filmur, samlitur. Verð 1.990 þús. Stgr. 1.550 þús. Upplýsingar í síma 699 3686. Til sölu Musso 1998, 2009 turbo dísel, í góðu ásigkomulagi, ekinn 120 þ. km. Ásett verð 1.200 þús- und, tilboð 960 þús. Uppl. í síma 864 8830. Nissan Primera 1,6, árg. 06/1999, svartur, ek. 121 þús., beinsk. Nýskoðaður án aths. og til sýnis í Síðumúla 8. Verð 690 þús. Upplýsingar í 897 3030. GMC Jimmy 4WD, árg. '96, ek. 155 þús. km. GMC Jimmy, 4.3L, fjórhjóladrif, sjálfskiptur, dráttar- kúla, 5 dyra, geisladiskamagasín. Skipti möguleg. Verð 700.000 kr. Sími 660 1567. Ford Explorer XLT 05/04 7 m. Silfur, ek. 19 þ. mílur. 6xCD, 2xloftkæling, hraðastillir, gang- bretti, dráttarpakki, 7 manna o.fl. Glæsilegur bíll sem nýr. Verð 3 m. stgr. Sími 847 2582. BMW 318 svartur, árg. 10/2002, ek. 45 þús., 2,0 l vél, sjsk./step- tronic, ljós leðurinnrétting, reyk- laus og gullfallegur. Verð 2,5 m. Upplýsingar í síma 897 3030. Fréttir í tölvupósti Pera vikunnar Ítalskur stærðfræðingur sem var uppi 1170–1250. Hann hét Leon- ardo frá Pisa en er þekktari undir nafninu Fibonacci og setti fram merki- lega talnarunu sem er svona: 1, - 1, - 2, - 3, - 5, - 8 ........ Finndu tvær næstu tölur rununnar. Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 13 föstudaginn 29. apríl. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is Ný þraut birtist þar fyrir kl. 16 sama dag ásamt lausn þessarar og nöfnum vinningshafanna. Stærðfræðiþraut Digranesskóla og Morgunblaðsins Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, móðir, tengdamóðir og amma, JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR, Marargötu 2, Vogum, lést á gjörgæsludeild Landspítala, Fossvogi, fimmtudaginn 21. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Rúnar Símonarson, Jóhann Gíslason, Hrefna Elíasdóttir, Jóhann Sigurðsson, Ingunn Karen Sigurðardóttir, Lovísa Sigurðardóttir, Thorsten Henn, Sigurður Hrafn Sigurðsson, Íris Bettý Alfreðsdóttir og barnabörn. Nú hefur hann Olli kvatt okkur hinstu kveðju. Hann var búinn að lifa langa og farsæla ævi. Olli var mér ekki bara frændi heldur miklu meira, hann var partur af mínu lífi alla tíð. Við þessa kveðju- stund leitar hugurinn til bernsku minnar. Þar var fastur punktur í til- verunni heimili Helgu og Olla í Vall- holtinu. Þangað var gott að koma og alltaf tekið vel á móti manni. Það var aldrei asi og stress í kringum þau hjón. Þar leið manni vel og fékk alla þá athygli sem maður þurfti. Þau voru mjög samrýnd hjón og maður sá að þau báru virðingu hvort fyrir öðru og voru samstiga í verkum sínum. Olli var lánsamur maður og eftir að Helga lést hélt hann heimili með Hjördísi dóttur sinni, sem hefur hugsað svo vel um hann alla tíð. Olli var fallegur gamall maður, glaðlegur og glettinn, manni leið alltaf vel í ná- vist hans. Hann fylgdist vel með mér og minni fjölskyldu. Hann vissi alltaf hvað var um að vera í kringum okkur. Núna seinni árin þegar hann var mest heimavið á daginn sat hann oft við eldhúsgluggann og þá gat hann horft á húsið mitt tveimur götum neðar og ef gest bar að garði hjá mér hringdi hann oft þegar sá kvaddi til að vita hver hefði verið á ferð. Ég hafði virkilega gaman af þessu og fannst gott að vita að hann fylgdist með mannaferðum, ekki síst þegar enginn var heima. Þegar Torfi maðurinn minn hóf út- gerð má segja að Olli hafi fylgst með honum daglega. Það var gott að eiga hauk í horni sem hann var því Torfi kom ekki að tómum kofunum hjá honum. Fyrstu árin kom hann iðulega á kvöldin til okkar til að vita hvernig gekk á sjónum og ef einhver vanda- mál komu upp í sambandi við vél eða búnað bátsins gátu þeir Olli og Torfi spáð og spekúlerað fram og til baka OLIVER KRISTJÁNSSON ✝ Oliver Kristjáns-son fæddist í Ólafsvík 10. júní 1913. Hann lést á St. Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi 17. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ólafsvíkur- kirkju 23. apríl. þar til þeir komust að niðurstöðu sem var prófuð í næstu sjóferð. Áhugi Olla á útgerðinni var svo mikill að við kölluðum hann útgerð- arstjórann og þegar við keyptum annan bát 2003 kom ekki annað til greina hjá okkur en nefna bátinn Olla. Olli var barngóður maður og hafa dætur mínar svo sannarlega fengið að njóta þess, ekki síst Sandra Ýr, fimm ára hnáta sem alltaf vildi koma með í heimsókn til Olla afa, hún vissi líka að hann átti alltaf eitthvert góðgæti sem hann laumaði að henni. Hann var móður minni sem besti faðir og okkur systk- inunum sem besti afi og fyrir það þökkum við nú á kveðjustund. Olga Kristjánsdóttir. Sunnudaginn 17. apríl lauk langri og farsælli ævi Olivers Kristjánsson- ar. Síðastliðið haust tók krafta hans að þrjóta og dvaldi Olli, eins og hann var kallaður, um tíma á sjúkrahúsinu á Akranesi, en síðustu þrjá mánuði ævi sinnar dvaldi hann á St. Franc- iskusspítalanum í Stykkishólmi í góðu yfirlæti. Hafði hann oft á orði hversu gott og umhyggjusamt starfs- fólkið væri þar. Það lýsti Olla vel að þegar hann fann að kraftarnir minnkuðu dag frá degi, þá sagði hann við mig að það væri alveg ómögulegt að láta hafa svona mikið fyrir sér, þetta væri orðinn hár aldur og kom- inn tími til að fá hvíldina. Ég var svo lánsamur að eignast Olla sem vin og ekki var hægt að um- gangast þægilegri og betri mann. Fórum við oft saman inn í Hólm að heimsækja afa Sveinbjörn eða tókum rúnt suður á Stapa. Minni hans var einstakt og oftar en ekki sagði hann mér frá því hvernig lífsbaráttan hefði verið þegar hann var að alast upp, enda var ævi Olla samofin atvinnu- sögu Ólafsvíkur á síðustu öld. Oftast ræddum við þó um sjávarútveginn, en við hann starfaði hann í áratugi. Olli lýsti fyrir mér hvernig aðbún- aðurinn var þegar hann vann við lagningu nýrra vega á árum áður. Olli fylgdist vel með allri vegagerð á svæðinu og er mér mjög minnisstætt að eitt sinn þegar við vorum að koma innan úr Hólmi spurði ég hann hvort við ættum ekki að stelast til þess að keyra yfir nýja vegslóðann sem kom- inn væri yfir Vatnaleiðina. Leist hon- um ekkert á það enda hafði Olli sennilega aldrei á sinni lífsleið gert neitt ólöglegt. Þrátt fyrir það lét ég slag standa og keyrði þessa nýju leið. Á leiðinni spáði hann mikið í þetta nýja vegstæði og þegar yfir var kom- ið hafði hann á orði að nú þyrfti hann að hitta Jón á Grund og segja honum frá þessari ferð. Aldrei heyrði ég Olla hallmæla nokkrum manni og man ég ekki eftir að hafa heyrt hann bölva. Aðdáun- arvert var að sjá hversu allir sem hann hitti báru mikla virðingu fyrir þessum aldna höfðingja. Virðingu þessa hafði hann áunnið sér með hlýju viðmóti, hógværð og góðri nær- veru. Gulli betri er góður vinur gæfa mín að kynnast þér. Öruggt traust og einlæg samfylgd, engan skugga á hana ber. Í veikleikanum stór og sterkur, stærstur þegar geystust él. Eitt er víst að Guð er góður og gerir alla hluti vel (Árni Helgason.) Kæri vinur ég veit að nú hefur þú hitt hana Helgu þína og saman mun- uð þið fylgjast með og vaka yfir öllum ykkar ættingjum og vinum. Ásbjörn Óttarsson og fjölskylda. Nú er Oliver afi minn látinn. Við sem nutum þeirra forréttinda að alast upp í návist hans stöndum í þakkarskuld við Guð almáttugan sem öllu ræður. Hann var mér í senn læri- faðir, félagi og fyrirmynd. Heimurinn væri betri ef fleiri hefðu þann mann að geyma sem hann hafði. Nægju- semi hans, þolinmæði, orðheldni og umhyggjusemi voru öðrum hvatning. Ég naut þess ávallt að sitja og spjalla við hann um löngu liðna tíð, veröld sem við yngri þekkjum ekki. Hann var af þeirri kynslóð sem lifði ekki aðeins tímana tvenna, heldur þrenna. Hann sá 20. öldina nánast alla. Uppgangstíma af ýmsum toga, en líka kreppu, styrjaldarár og fjöl- margt annað. Það var því hafsjó af visku hjá honum að finna og verðmæt viðhorf og sjónarhorn sem eru því miður á undanhaldi í nútíma þjóð- félagi. Megi Guð blessa sálu þína að eilífu, í Jesú nafni. Vífill, Jónína, Valur Örn og Unnur Helga. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Myndir Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.