Morgunblaðið - 24.04.2005, Page 50
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
EIGUM VIÐ AÐ PRÓFA AÐ
POPPA ÁN ÞESS AÐ SETJA
LOKIÐ Á POTTINN?
ÞETTA VAR MEIRA AÐ SEGJA
SKEMMTILEGRA EN AÐ
SPRENGJA KARTÖFLU Í
ÖRBYLGJUOFNINUM
POPPUM
MEIRA!
Litli Svalur
© DUPUIS
Dagbók
Í dag er sunnudagur 24. apríl, 114. dagur ársins 2005
Víkverji gerðistáskrifandi að sjón-
varpsstöðinni Sýn á
dögunum eftir nokk-
urt hlé þar sem mikið
var um að vera í ís-
lenskum körfuknatt-
leik, áhugaverð golf-
mót voru einnig í boði
á stöðinni auk Meist-
aradeildar Evrópu.
Víkverji er kannski
einfaldur að halda að
hann gæti skipt á milli
Sýnar og Sýnar 2
þegar beinar útsend-
ingar eru í gangi frá
tveimur leikjum í
Meistaradeildinni. Eða þegar sýnt
er frá körfuknattleik á Sýn og golfi á
Sýn 2.
Í sjónvarpsauglýsingum Sýnar er
ekki sagt frá því að gerast þurfi
áskrifandi að Sportpakkanum til
þess að njóta dagskrárinnar sem
auglýst er í beinni útsendingu á báð-
um rásum Sýnar.
Víkverji hefur ekki áhuga á að
kaupa sér aðgang að Chelsea-rásinni
og öðrum misgóðum stöðvum til
þess eins að geta notið dagskrár-
innar sem er í boði á Sýn. Víkverja
finnst vera peningalykt af þessu
plotti Sýnar.
Víkverji er hinsvegar ánægður
með strákapör þeirra
sem stýra þættinum
Strákunum á Stöð 2.
Útsendingartíminn
hefur verið mikið í um-
ræðunni og á dög-
unum sendu foreldra-
félög nokkurra skóla
frá sér áskorun þar
sem óskað var eftir að
útsendingartíma þátt-
arins væri seinkað.
Víkverji telur að
ábyrgðin sé fyrst og
fremst hjá foreldrum
og það er á þeirra
ábyrgð að koma því til
skila til sinna barna að
sum strákapörin eru alls ekki til eft-
irbreytni. En að mati Víkverja er til
margt verra og ofbeldisfyllra sjón-
varpsefni og er hin endalausa bar-
átta Tomma og Jenna í teiknimynd-
unum gott dæmi um ofbeldi sem
nær langt út fyrir velsæmismörk.
Víkverji var á sínum yngri árum
viss um að Tommi og Jenni gengju
af hvor öðrum dauðum í hverjum
þætti. En alltaf birtust þeir aftur og
þeir eru enn vinsælir á heimili Vík-
verja og hafa ekki orðið til þess að
börn Víkverja geri tilraunir á hvort
öðru í sama anda og þeir Tommi og
Jenni. Enda hefur þeim verið sagt
frá afleiðingunum.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Sydney | Þessar leggjalöngu dragdrottningar voru í essinu sínu á veit-
ingastað nokkrum í Sydney í Ástralíu í vikunni. Þær voru að fagna því að 62
ára gömul „díva“, Charlotte að nafni, er að hleypa af stokkunum nýrri sýn-
ingu í tilefni af 44 ára starfsafmæli sínu í skemmtanabransanum.
Reuters
Draga að sér athygli
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Þar sem vér því fáum ríki, sem ekki getur bifast, skulum vér þakka það og
þjóna Guði, svo sem honum þóknast, með lotningu og ótta. (Hebr. 12, 28.)