Morgunblaðið - 24.04.2005, Side 54
54 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
Ath. Aðgangur ókeypis
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20, Lau 20/5 kl 20
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Í kvöld kl 20,
Fi 28/4 kl 20
Aukasýningar
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 30/4 kl 20 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 20,
Mi 4/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 5/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 6/5 kl 20 - UPPSELT,
Lau 7/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 8/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20
Síðustu sýningar
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Í kvöld kl 20,
Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT
Síðustu sýningar RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Lau 30/4 kl 20,
Su 1/5 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Í kvöld kl 19.09, Su 1/5 kl 19.09
Aðeins þessar sýningar
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Fi 28/4 kl 20,
Fi 5/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Í dag kl 14 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 14, Su 1/5 kl 17,
Su 5/5 kl 14, Lau 7/5 kl 14
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„verulega
vönduð...
og ég
táraðist líka“
H.Ó. Mbl
Pakkið á móti Eftir Henry Adams
Fim. 21.4 kl 20 3. kortas. UPPSELT
Fös. 22.4 kl 20 4. kortas. UPPSELT
Lau. 23.4 kl 20 5. kortas. UPPSELT
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Örfá sæti laus
Lau. 30.4 kl 20 7. kortas. Örfá sæti laus
SÍMI 545 2500 I WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
STÓRVIÐBURÐUR Í HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 28. APRÍL KL. 19.30
Hector Berlioz ::: Fordæming Fausts
Einsöngvarar ::: Kristinn Sigmundsson, Beatrice Uria-Monzon,
Donald Kaasch og Ólafur Kjartan Sigurðarson
Kórar ::: Óperukórinn í Reykjavík, Karlakórinn Fóstbræður og Unglingadeild Söngskólans í Reykjavík
Kórstjórar ::: Garðar Cortes og Árni Harðarson
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Kaflar úr þessu stórvirki Berlioz hafa áður hljómað á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í áranna
rás, sér í lagi hinn vinsæli Rákóczi-mars, en verkið hefur aldrei fyrr verið flutt í heild sinni. Það er gleðiefni
að í hópi framúrskarandi einsöngvara eru tveir íslenskir stórsöngvarar, Ólafur Kjartan Sigurðarson og
Kristinn Sigmundsson sem ósjaldan hefur glímt við hlutverk hins djöfullega Mefistófelesar.
Fordæming
Fausts
Tónlistarnám barna verður ævinsælla og algengara á Ís-landi, og er söngurinn sem
tónlistarform þar ekki undan-
skilið. Sautján nemendur hafa til
að mynda stundað í vetur nám við
yngri unglingadeild Söngskólans í
Reykjavík. Gefur að heyra af-
rakstur náms þeirra á tónleikum
sem haldnir verða í tónleikasal
Söngskólans við Snorrabraut í
dag kl. 16.
Nemendurnir eru á aldrinum
10–13 ára og hafa þau lært tón-
fræði, þjálfað tóneyra og lært að
lesa músík eftir nótum í náminu,
auk þess sem þau koma fram á
tónleikum minnst tvisvar sinnum
á vetri og taka þátt í ýmsum
verkefnum utan skólans.
Að sögn Margrétar Bóasdóttur,
sem stýrir yngri unglingadeild
skólans, er mikilvægt að rétt sé
að farið þegar börnum er kennd-
ur söngur. „Það er mjög margt í
boði fyrir mjög unga krakka
núna, alveg niður í tíu ára. Ég
hef oft áhyggjur af því að börnum
á þessum aldri sé boðið að tjá sig
í söng með lögum og textum sem
við vitum í hjarta okkar að eru
ekkert á þeirra færi, hvorki radd-
lega né að það séu textar sem
stuðli að þeirra þroska og vel-
ferð,“ segir Margrét. „Auðvitað fá
þau að syngja til dæmis lög úr
Disney-myndum, en þá reynum
við að hafa þau í tóntegundum
sem henta þeirra rödd. Ef það
ekki gengur syngja þau ekki þau
lög. Því er þannig farið með mjög
mörg lögin úr þessum kvikmynd-
um að það er gaman að syngja
með þeim, en það er ekki hægt að
bera þau uppi einn. Börn eru svo
gáfað fólk að þau skilja mætavel
að þó að eitthvað sé flott ræður
maður ekki endilega við það. Það
er mjög hollt að átta sig á því
líka, tel ég.“
Á tónleikunum gefst áheyr-endum meðal annars tæki-
færi til að njóta sviðsettra atriða
úr söngleiknum Oliver! eftir Lion-
el Bart. Söngvarar eru í leikbún-
ingum og atriðin sviðsett af
Sibylle Köll, sem einnig semur
dansa, en píanóleikur er í hönd-
um Elínar Guðmundsdóttur. Þá
verður Jón Leifsson barítónsöngv-
ari í hlutverki hins illa Fagins.
„Þau syngja öll eitt einsöngs-
lag, sem þau hafa valið sjálf, fyrir
hlé,“ útskýrir Margrét. „Síðan
bregða þau sér í búninga og þá
taka við atriði úr Oliver. Við er-
um svo heppin að hafa Sibylle
Köll, sem hefur gert mjög
skemmtilega kóreógrafíu við
þetta sem krökkunum hefur fund-
ist mjög gaman að vinna við. Það
er líka þáttur sem ég held að
skipti miklu máli, að tengja söng
og hreyfingu.“
Margrét bendir á að það sémargt hægt að kenna börn-
um í söng, eins og þekkst hefur í
barnakórastarfi hérlendis um ára-
bil. „En það er mikilvægt að mis-
bjóða ekki röddinni. Og maður
áttar sig kannski ekki alltaf á því,
að maður misbýður barnaröddinni
mest með því að láta hana syngja
of lágt. Það er langvarhugaver-
ðast,“ segir Margrét, sem eflaust
fær krakkana í söngdeildinni
sinni til að syngja skært og fal-
lega í dag.
Börn og söngnám
’Mikilvægt er að rétt séað farið þegar börnum
er kenndur söngur.‘
AF LISTUM
Inga María Leifsdóttir
Krakkarnir í yngri unglingadeild Söngskólans í Reykjavík syngja fyrir alla
sem vilja heyra í dag í tónleikasal skólans við Snorrabraut.
ingamaria@mbl.is
VIÐSKIPTI mbl.is