Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 60

Morgunblaðið - 24.04.2005, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 24. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ A Hole in my Heart ALLS EKKIFYRIRVIÐKVÆMA!  DV The Motorcycle Diaries kl. 3 - 5.30 - 10 Napoleon Dynamite kl. 3,45 - 8 Beautiful Boxer kl. 8 og 10.30 Don´t Move kl. 5,30 b.i. 16 Uber Goober kl. 3,30 Shake hands with the Devil kl. 5,45 Garden State kl. 8 Hole in my Heart kl.10,15 b.i. 16 Vera Drake kl. 3 - 8 Maria Full of Grace kl. 6 - 10.30 b.i. 14 Beyond the Sea kl.3 - 8 Million Dollar Baby kl. 5,30 b.i. 14 Life and Death of Peter Sellers kl.10,20 Aðsóknamesta óháða myndin í USA í fyrra. Ein vinsælasta kvikmyndin á Sundance kvikmyndahátíðinni.  S.V. MBL Ó.H.T Rás 2 H.L. MBL  Ó.H.T Rás 2 Stórkostleg vegamynd sem hefur farið sigurför um heiminn, fengið lof gagnrýnenda og fjölda verðlauna. 3 ÓSKARSTILNEFNINGAR MBL Ó.H.T Rás 2 Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við Indiana Jones og James Bond myndirnar. Toppmyndin í USA Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi Byggð á metsölubók Clive Cussler Kvikmyndir.is Penelope cruz ítölsk verðlaunamynd. Penelope Cruz hlaut Evrópsku kvikmyndaverðlaunin fyrir hlutverk sitt í myndinni. Það er góður siður rokkara aðleita aftur í tímann að inn-blæstri, spá í það sem eldriog ráðsettari tónlistarmenn hafa gert, tína til það skemmtileg- asta sem maður rekst á og beita því til að reyna að gera betur. Það er kannski eitt það skemmtilegasta við formið hve það byggir á því sem á undan er komið, þráðinn má rekja allt frá árósum Mississippi í Breið- holtið. Gróskan í rokkinu undanfarin ár hefur þannig ekki síst byggst á því að menn eru að sækja í sameigin- legan hugmyndabanka rokksins, eða það finnst í það minnsta þeim sem gamlir eru í hettunni. Bloc Party er ágætt dæmi um slíka hljómsveit, stendur föstum fótum í breskri ný- bylgju níunda áratugar síðustu aldar en er þó þrælfrumleg og skemmti- leg. Á síðasta ári var mikið látið með bresku rokksveitina Bloc Party og menn spáðu því ófeimnir að hún ætti eftir að verða ein af helstu hljóm- sveitum Bretlands þó enn lægi lítið eftir sveitina. Fyrir ekki svo löngu kom loks út fyrsta breiðskífa Bloc Party, Silent Alarm, og er skemmst frá því að segja að hún stendur al- mennt undir vonum, skemmtilegt nýbylgjukennt rokk. Kynntust á Reading Upphaf sveitarinnar má rekja til þess er þeir Kele Okereke og Russ- ell Lissack kynntust á Reading- tónlistarhátíðinni fyrir nokkrum ár- um og fóru að glamra saman 2002, Okereke lék á gítar og söng, en Lissack lét sér nægja gítarspil. Gordon Moakes slóst snemma í hóp- inn, en lengri tíma tók að finna trommara, en níundi trommarinn sem spilaði með sveitinni, Matt Tong, ílentist og er enn. Þeir glímdu líka við nafn á sveitina um tíma, köll- uðu hana fyrst The Angel Range og síðan The Union, en á endanum duttu þeir niður á Bloc Party sem felur í sér ýmsa orðaleiki. Opinber söguskýring er sú að Bloc Party hafi orðið til 2002, þó sveitin hafi þá heitið öðru nafni eins og getið er. Eftir æfingar og lagasmíðar tóku þeir upp nokkur lög á kynningardisk og dreifðu honum víða, sendu meðal annars eintak til liðsmanna Franz Ferdin- and, sem varð til þess að sveitinni var boðið að spila í tíu ára afmæli útgáfunnar knáu Domino haustið 2003. Ekki New Cross-sveit Í suðausturhluta Lundúna er hverfið New Cross þar sem rokklíf hefur verið með líflegra móti und- anfarna mánuði. Þar hafa sprottið fram sveitir eins og Art Brut, The Violets, Smash TV, Crowd, The Dirty Pins, The Violets, Low Sparks og Maus (nei, ekki sú Maus) svo dæmi séu tekin. Þó erfitt sé að komast yfir tónlist frá mörgum af þessum sveitum, ekki síst fyrir þá sem búa í utan Lundúna, þá má flokka það sem ég hef þó heyrt sem listaskólarokk, tónlistin fjörleg nýbylgja þar sem menn taka sig mjög alvarlega og textarnir gjarnan bókmenntalegir og nett upp- skrúfaðir. Um tíma var Bloc Party nefnd í upptalningu á New Cross-sveitum, en átti þó ekki við, því ekki var bara að tónlistin skar sig nokkuð úr, heldur eiga þeir fé- lagar ekki heima í New Cross og hafa aldrei, þeir áttu fyrir tilviljun lag á safnskífu með slíkum sveitum. Ekki fékkst samningur úr því og í upphafi árs 2004 gáfu þeir félagar út eitt laganna af disknum og nokkru síðar kom önnur smáskífa með tveimur lögum til. Þá um vorið gerðu þeir félagar síðan útgáfusamning við Wichita/V2 og eyddu sumrinu í upp- tökur eftir því sem tími gafst fyrir tónleikahaldi. Fyrsta breiðskífan, Silent Alarm, kom svo út um daginn eins og nefnt er og hefur verið einkar vel tekið. Margir nefna í sömu andrá Franz Ferdinand og Bloc Party, ekki síst þeir sem spá í hugsanlegan frama sveitarinnar vestan hafs, en öllu meira þykir mér spunnið í síðar- nefndu sveitina. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Fjörlegt lista- spírurokk Rokkvinir gleðjast mjög þessa dagana yfir nýrri breiðskífu bresku hljóm- sveitarinnar Bloc Party sem minnir um margt á frækna forvera.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.