Morgunblaðið - 25.04.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Gallabuxur - gallajakkar
ELDUR kom upp í Mýrargötu 26
um kl. 23:30 á laugardagskvöld og
var Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins kallað á vettvang. Þrátt fyrir
að slökkvistarf tæki skamman
tíma og skemmdir hafi orðið
óverulegar barst töluverður reyk-
ur út um húsið en sem betur fer
var vindur austanstæður og beindi
reyknum beint út á haf.
Má ætla að óþægindi vegna
reyks hefðu orðið mun meiri ef
reykinn hefði lagt yfir miðbæinn,
íbúum og veitingahúsagestum til
ama. Lögreglan lokaði Mýrargöt-
unni fyrir umferð úr austri á með-
an slökkvilið athafnaði sig á vett-
vangi.
Enginn var í húsinu en það tók
reykkafara talsverðan tíma að
leita af sér allan grun. Eldur hafði
borist í loftklæðningu og logaði út
um 2. og 3. hæð þegar að var kom-
ið.
Hraðfrystihús var þarna áður til
húsa og hefur byggingin staðið auð
um tíma. Þar hafa útigangsmenn
leitað skjóls en enginn mun hafa
dvalið þar nokkrum sólarhringum
áður en kviknaði í. Tæpur mán-
uður er síðan kviknaði í húsinu síð-
ast og urðu þá talsverðar skemmd-
ir og einum manni var bjargað út
af reykköfurum.
Breyta á gamla hraðfrysti-
húsinu í glæsilegar íbúðir
Húsið er nú í eigu Nýju-Jórvík-
ur ehf. og segir Ísleifur Leifsson
stjórnarformaður félagsins að
eldsvoðinn hafi engin áhrif á áform
félagsins um að gera húsið upp og
innrétta þar glæsilegar íbúðir.
Skylt er að loka mannlausum
húsum til að fyrirbyggja umferð
óviðkomandi og segir Ísleifur
vissulega hafa verið orðið við
þeirri kröfu samkvæmt bygginga-
reglugerð. Á hinn bóginn sé harla
erfitt að tryggja hús algerlega svo
þau standist mjög einbeittan
ásetning fólks um að brjótast inn.
Eigi að síður verður farið í að læsa
húsinu enn betur.
Morgunblaðið/Júlíus
Miklar eldtungur stóðu út um glugga á þriðju hæð hússins þegar slökkviliðið kom á staðinn nokkru fyrir miðnætti.
Enn einn bruninn
í Mýrargötu 26
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
BRUNAVÖRNUM í íbúðum í at-
vinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu er mjög ábótavant segir Bjarni
Kjartansson, framkvæmdastjóri
forvarnadeildar Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins. Kveðst hann vera
afar áhyggjufullur yfir stöðu mála.
Erfitt sé að ná tökum á vandanum.
Hann segir þó pattstöðu ríkja
varðandi hvað sé hægt að gera til
að taka á þessum málum.
„Það hafa komið upp óheyrilegir
örðugleikar að eiga við þetta,“ seg-
ir Bjarni. Hann segir algengasta
ágallann á þessum íbúðum vera
skort á flóttaleiðum út úr húsnæð-
inu ef eldur kemur upp.
Bjarni segir mjög margvíslegar
ástæður valda því að fólk búi í íbúð
eða herbergi sem hefur verið inn-
réttað í atvinnuhúsnæði. „Þetta er
allt frá því að vera erlent verkafólk
sem stoppar hérna í stuttan tíma,
sem leigir bara einhverja herberg-
isholu og er svo farið eftir ein-
hvern tíma, yfir í hreinlega fátækt
fólk og allt þar á milli,“ segir hann.
Bjarni segir ekki gefa góða raun
ef hart væri tekið á málum og fólk
hreinlega rekið út úr húsnæðinu.
Jafnframt bendir Bjarni á að þó að
fólk eigi ekki lögheimili í þeim
hverfum sem það búi í þá eigi fólk-
ið siðferðilega nokkuð mikinn rétt
þar sem það á sitt eigið heimili.
Nýuppkveðinn hæstaréttardómur
er varði sumarbústaði í Grímsnes-
inu hnígi í sömu átt, þ.e. að frið-
helgi heimilisins gildi á þessum
stöðum.
„Jafnvel þó að það væri farið að
hamra svona á þessu þá leysir það
ekkert vandamálið sem er fyrir
hendi, sem er félagsleg eymd,“
segir Bjarni og bætir því við að
skortur sé á úrræðum fyrir þessa
hópa sem þurfi að búa í þessum
íbúðum og herbergjum. Það hafi
einfaldlega ekki ráð á því að kaupa
eða leigja tveggja herbergja íbúð
t.a.m. í Grafarvogi.
Hann segir beitingu dagsekta til
þess að þrýsta á eigendur húsnæð-
isins til þess að gera úrbætur á
brunavörnum hafa stoppað á laga-
legum atriðum. Hann segir sveit-
arfélög ekki geta leyft að breyta
ósamþykktri íbúð í venjulega íbúð
í atvinnuhverfi nema með skipu-
lagsbreytingu. Með því getur
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins,
sem ein af stofnunum sveitarfé-
lagsins, ekki krafist úrbóta sem
um íbúð væri.
Brunavarnir í íbúðum í
atvinnuhúsnæði áhyggjuefni
Erfitt að taka
á vandamálinu
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
GUNNAR Þór Gíslason, stjórnar-
formaður Stoke City FC, segir það
hafa verið rétta ákvörðun að endur-
nýja samning til eins árs við þjálfara
liðsins, Tony Pullis. Haft var eftir
Magnúsi Kristinssyni, formanni
stjórnar Stoke Holding, sem á 60
prósenta hlut í Stoke City, á laug-
ardag, að félagið hefði ekki áhuga á
að veita meira fé til félagsins meðan
Pullis er þar knattspyrnustjóri.
„Þessi maður er ekki fullkominn
knattspyrnustjóri frekar en aðrir, en
miðað við það sem hann hefur gert
fyrir liðið á undanförnum árum, taldi
ég rétt að endurráða hann,“ segir
Gunnar Þór.
„Hann á sínar sterku hliðar og sín-
ar veiku hliðar, sína kosti og sína
galla, en þegar litið er á málið heild-
stætt er það okkar niðurstaða að það
hafi verið rétt að bjóða honum nýjan
samning.“
Gunnar Þór vill ekki tjá sig um
einstaka leikmenn liðsins, m.a. þá
fullyrðingu Magnúsar að Pullis hafi
nánast hæðst að Íslendingum með
því að nota ekkert landsliðsmanninn
Þórð Guðjónsson, en hann muni
ræða við Magnús. Gunnar Þór er er-
lendis um þessar mundir.
„Ég ræddi við Magnús áður en
ákvörðunin var tekin og mun tala við
hann aftur fljótlega, ég hef ekki haft
tækifæri til að tala við hann augliti til
auglitis.“
Stjórnarformaður Stoke City um
endurráðningu Tonys Pullis
„Ekki fullkominn
frekar en aðrir“