Morgunblaðið - 25.04.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.2005, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Kristinn Sr. Þórhallur Heimisson lagði stund á sagnfræði áður en hann innritaðist í guðfræði og hefur lengi haft áhuga á styrjöldum. SÉRA Þórhallur Heimisson, prest- ur við Hafnarfjarðarkirkju, verður leiðsögumaður í ferð sem farin verður á slóðir innrásarinnar í Normandí næsta haust, en á sama tíma kemur út bók eftir hann um 10 örlagaríkustu orustur Vest- urlanda. Sr. Þórhallur segir áhuga sinn á sagnfræði og styrjöldum mega rekja aftur til þess tíma þeg- ar hann var í sagnfræði í háskóla, áður en hann innritaðist í guð- fræðina. Trúarbrögðin undirrót átaka Þórhallur hefur sérhæft sig í kirkjusögu þar sem fléttast inn átök og styrjaldir og hefur m.a. unnið verkefni um trúarbragða- styrjaldir á 16. og 17. öld. Eftir því sem efnið hlóðst upp ákvað hann að koma því í eina bók. „Trúarbrögðin eru undirrót ým- issa átaka og þegar maður setur þetta í samhengi sést að það eru gríðarleg áhrif sem einstakar or- ustur hafa haft. Ef þær hefðu farið öðruvísi væri veröldin kannski allt önnur en hún er í dag.“ Bókin hefst um 400 f. Kr. á or- ustu Leonídasar Spartverjakon- ungs sem barðist með 300 manns gegn Persum, sem taldir voru vera tvær milljónir, og Þórhallur segir vera eftirminnilegustu styrjöldina. Bókinni lýkur hinsvegar á innrás- inni í Normandí. Í hverjum kafla er rakinn aðdragandi stríðsins, undirbúningur herja, „aðalleik- arar“ stríðsins, sjálf átökin og af- leiðingar. Þess má geta að ferðin til Normandí sem farin verður dag- ana 2.–7. október nk. verður kynnt í kvöld á vegum ferðaskrifstof- unnar Primu Emblu í Stangarhyl 1 og hefst kynningin kl. 20. Sr. Þórhallur Heimisson fer í haust með ferðamenn á slóðir árásarinnar á Normandí Áhugamaður um styrjaldir gefur út bók Pólitíkin sannarlega full af heitum tilfinningum Morgunblaðið/ÞÖK „Vellíðunarþjóðfélagið krefst þess að öllum líði endalaust vel. Það gerir það að verkum að okkur líður illa yfir því að líða illa. Allskonar tilfinningar eins og efasemdir, hræðsla, skömm og þunglyndi eiga ekki upp á pallborðið og þróast því yfir í sjúkdóma,“ segir Elísabet Jökulsdóttir, umsjónarmaður og höfundur Tilfinningatorgsins. EFNT var til Tilfinningatorgs á Hressó sl. laugardag. Að sögn Elísabetar Jökulsdóttur, umsjón- armanns og höfundar Tilfinn- ingatorgsins, steig nokkur fjöldi fram til að tjá tilfinningar sem spunnu allt tilfinningalitrófið, allt frá hversdaglegum tilfinningum eins og að tjá sig um hve gott kaffið á staðnum var til pólitískra tilfinn- inga, en meðal viðstaddra voru framhaldsskólanemar sem tjáðu sterka andúð sína á styttingu fram- haldsskólanámsins. „Það er algengt að fólk líti á til- finningar sem eitthvað sem tengist aðeins gleði eða sorg, en það skiptir ekki síður máli hvernig okkur líður í þessu samfélagi og í pólitík er svo sannarlega fullt af heitum tilfinn- ingum,“ segir Elísabet. Í tilefni af degi bókarinnar tjáðu þær Þórunn E. Valdimarsdóttir, skáld- og fræðimaður, og Elísabet ást sína á bókum sem höfðað hafa sterkt til þeirra. Þannig talaði Þór- unn um ást sína á skáldsögunni Tómas Jónsson – Metsölubók eftir Guðberg Bergsson og Elísabet tjáði ást sína á bókinni um litla prinsinn, sem hún las fyrst þegar hún var að- eins sjö ára gömul. Leyfa fólki að sjá aðeins inn í sprungurnar í sálarlífinu Elísabet gerði einnig hetju- hlutverkið að umtalsefni, auk þess sem hún talaði um vellíðunarþjóð- félagið, sem krefst þess að öllum líði endalaust vel. „Það gerir það að verkum að okkur líður illa yfir því að líða illa. Allskonar tilfinningar eins og efasemdir, hræðsla, skömm og þunglyndi eiga ekki upp á pallborðið og þróast því yfir í sjúkdóma.“ Hvað hetjuhlutverkið varðar segir Elísabet það endurspeglast í því hvernig við göngumst öll inn í ákveðin hlutverk, t.d. innan fjöl- skyldunnar. „Það eru hlutverk í öll- um fjölskyldum, en í veikum fjöl- skyldum má ekki skipta um hlutverk. Hetjuhlutverkið getur bjargað okkur og fært okkur ým- islegt, en það getur líka lokað á manneskjuna í okkur sjálfum þar sem við verðum frekar eins og glansmynd fremur en manneskja af holdi af blóði. Hins vegar held ég að maður verði betri fyrirmynd af mað- ur leyfir fólki að sjá aðeins inn í sprungurnar í sálarlífinu, heldur en að vera fullkomin mynd,“ segir Elísabet. Aðspurð hvort hún finni fyrir mik- illi þörf samborgara sinna fyrir Til- finningatorgi svarar Elísabet því játandi. „Og ég held að þessi þörf eigi bara eftir að aukast. Við höfum náttúrlega ekki lært að standa upp og tjá okkur. Ég finn hins vegar mikinn meðbyr með Tilfinningatorg- inu, en eins og með allar nýjar hug- myndir þá held ég að það taki tíma fyrir fólk að þora að prófa. Fólk þarf fyrst að hugsa um þetta heima hjá áður en það þorir að láta vaða.“ Þess má að lokum geta að næsta Tilfinningatorg verður haldið í Hressógarðinum laugardaginn 7. maí nk. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is 10 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Matthíasi Guðmundi Pét- urssyni formanni sóknarnefndar Garðasóknar. Millifyrirsagnir eru blaðsins: „Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum undanfarnar vikur hafa erf- iðar deilur ríkt um skeið innan Garða- sóknar. Um er að ræða alvarlegan samskiptavanda sem á rætur að rekja mörg ár aftur í tímann þótt málið hafi fyrst komist í hámæli þegar djákni krafðist aðgerða í janúar 2004. Málið varðar samskipti sóknarprests við sóknarnefnd, samskipti hans við prest og djákna svo og við starfsfólk kirkjunnar og sjálfboðaliða. Ekki tókst að leysa þennan vanda þrátt fyrir aðkomu fjölmargra aðila. Af hálfu sóknarnefndar Garðasóknar hefur verið lögð rík áhersla á að vinna að úrlausn málsins í nánu samstarfi við prófast Kjalarnesprófastsdæmis og biskup Íslands. Sóknarnefnd Garðasóknar hefur litið svo á að um viðkvæmt trúnaðar- mál sé að ræða og hefur því hingað til ekki rætt þann vanda sem við er að etja við utanaðkomandi aðila, né tjáð sig um ávirðingar og ásakanir sem settar hafa verið fram á hendur sókn- arnefndinni eða einstökum fulltrúum hennar í fjölmiðlum og dreifibréfum/ tölvupósti. Vísað til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar Sóknarpresturinn Hans Markús Hafsteinsson ákvað að vísa þessu deilumáli til úrskurðarnefndar þjóð- kirkjunnar hinn 29. október sl. en til þess hafði hann fulla heimild. Úr- skurðarnefnd þjóðkirkjunnar starfar skv. 12. gr. laga nr. 78/1997 og er heimilt að vísa til nefndarinnar ágreiningsmálum á kirkjulegum vett- vangi. Þar gerði sr. Hans Markús kröfu um að formanni og varafor- manni sóknarinnar yrði veitt áminn- ing og djákninn og prestur sóknar- innar flutt til í starfi. Úr- skurðarnefndin kvað síðan upp úrskurð sinn hinn 14. apríl sl. Þar var öllum kröfum sr. Hans Markúsar hafnað og lagt til við biskup Íslands að sr. Hans Markús verði fluttur til í starfi. Í rökstuðningi úrskurðar- nefndar segir m.a: „Í gögnum málsins liggur fyrir að í Garðasókn er alvarlegur samskipta- vandi á ferð. Að virtum gögnum máls- ins ber málshefjandi [sr. Hans Mark- ús Hafsteinsson] mesta ábyrgð á því hvernig málum er komið í Garðasókn. Eins og að framan er rakið hefur hann gerst ber að margvíslegum aga- og siðferðisbrotum. Vægasta úrræði sem úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar getur lagt til vegna slíkra brota er áminning. Á liðlega einu ári er búið að reyna til þrautar öll þau úrræði sem unnt er að grípa til til að leysa vand- ann. Í ljósi þess telur úrskurðar- nefndin að áminning nægi ekki til að leysa þann vanda sem uppi er. Úr- skurðarnefnd þjóðkirkjunnar telur því að ekki verði hjá því komist að leggja til við biskup Íslands að máls- hefjandi [sr. Hans Markús Hafsteins- son] verði fluttur til í starfi skv. b-lið 4. mgr. 12. gr. laga nr. 78/1997.“ Úrskurðarnefndin bendir í úr- skurði sínum jafnframt á ýmislegt sem betur hefði mátt fara af hálfu for- manns sóknarnefndar, varaformanns, djákna og prests. Þær athugasemdir hafa þó ekki áhrif á niðurstöðu máls- ins sem er mjög skýr og skorinorð. Það var einlæg von sóknarnefndar, djákna og prests að sóknarpresturinn sr. Hans Markús Hafsteinsson mundi una þeim úrskurði sem nú liggur fyrir eða skjóta málinu ella til áfrýjunar- nefndar ef hann teldi slíkt þjóna hags- munum sínum betur, en áfrýjunar- frestur er enn ekki liðinn. Á þessari stundu liggur hins vegar ekki fyrir hvað sr. Hans Markús muni gera. Ávirðingum vísað á bug En á sama tíma hafa nokkrir ein- staklingar birt með vaxandi þunga mjög alvarlegar ávirðingar á hendur formanni, varaformanni, djákna og presti og saka þessa aðila um aðför að sr. Hans Markúsi Hafsteinssyni. Því er einnig haldið fram að fjármunir sóknarinnar hafi verið misnotaðir og að sóknarnefndin hafi tekið fram fyrir hendurnar á þeim sóknarbörnum sem kusu sr. Hans Markús til starfa. Öll- um þessum ávirðingum vísa ég á bug. Þær eru hrein ósannindi. Ég óttast einnig að afstaða þessara einstaklinga og gjörðir mótist m.a. af ófullnægjandi upplýsingum, þannig að völdum gögnum hafi verið komið í hendur þeirra og einhliða áróðri beitt. Því verður hins vegar ekki á móti mælt að mál hafa nú þróast á þann veg að fullkominn trúnaðarbrestur ríkir á milli sóknarnefndar, djákna og prests annars vegar og sóknarprests hins vegar. Sóknin, kirkjan og allir þeir einstaklingar sem í hlut eiga sem og fjölskyldur þeirra, hafa í vaxandi mæli liðið fyrir stöðu og þróun þessa máls. Með vísan til ofangreinds sé ég mér ekki lengur annað fært en að birta úr- skurð úrskurðarnefndarinnar í heild sinni. Þar er málið og þróun þess rak- in í stórum dráttum. Þannig ætti al- menningur og sóknarbörn í Garða- sókn að geta kynnt sér málið í heild sinni af eigin raun og mótað sér þann- ig upplýsta afstöðu á réttum forsend- um. Úrskurðurinn liggur frammi á skrifstofu sóknarinnar í safnaðar- heimilinu, Kirkjuhvoli og einnig er hægt að nálgast hann á heimasíðu sóknarinnar www.gardasokn.is.“ Yfirlýsing frá Matthíasi Guðmundi Péturssyni formanni sóknarnefndar Garðasóknar Alvarlegur samskipta- vandi er í sókninni ÆTLUNIN er að setja enn meiri kraft í endurmenntun bænda við Landbúnaðarháskóla Íslands, segir Guðríður Helgadóttir, forstöðumað- ur starfs- og endurmenntunardeildar hjá háskólanum. Starf endurmennt- unarstjóra við skólann var auglýst laust til umsóknar um helgina. Guðríður segir að Landbúnaðarhá- skólinn á Hvanneyri og Garðyrkju- skóli ríkisins hafi boðið upp á endur- menntun fyrir bændur, garðyrkju- fræðinga og allan almenning í gegn- um tíðina. Landbúnaðarháskóli Ís- lands varð til við sameiningu þessara skóla og Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins. Þar með hafi endur- menntunardeildir skólanna einnig sameinast. Ætlunin sé að byggja á því starfi sem þar var unnið. „Við ætlum að setja meiri kraft í endurmenntunina og nýta okkur þau tækifæri sem sam- eining skólanna gefur okkur. Til að mynda höfum við aðgang að fleiri sér- fræðingum en áður.“ Guðríður segir að Landbúnaðarhá- skólinn á Hvanneyri hafi boðið upp á námskeið fyrir alla bændur, eins og áður sagði, t.d. sérstök námskeið fyr- ir skógarbændur og kornræktar- bændur, svo dæmi séu nefnd. Þá hafi einstök námskeið snúist um kynn- ingu á nýrri tækni í landbúnaði enda hafi það verið skylda skólans, og nú Landbúnaðarháskóla Íslands, að fylgjast með tækninýjungum á þessu sviði. Meiri kraftur settur í endurmenntun bænda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.