Morgunblaðið - 25.04.2005, Side 12
12 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SKEIFUDAGUR Landbúnaðarháskóla Íslands fór fram
síðastliðinn laugardag. Nafnið á deginum er dregið af
veglegum verðlaunagrip sem Morgunblaðið hefur gefið
allt síðan 1957, Morgunblaðsskeifunni. Þessi viðburður
hefur orðið að stærsta hestatengdu uppákomunni innan
skólans sem haldin er árlega.
Hestamennskan á sér langa sögu á Hvanneyri. Þar
stofnaði til dæmis Gunnar Bjarnason fyrsta reiðskóla Ís-
lands og má segja að hann sé enn starfræktur undir þaki
Landbúnaðarháskólans.
Þetta árið varð sú nýbreytni á að keppnin fór fram á
Mið-Fossum við Hvanneyri. Þar hefur að undanförnu
verið í gangi mikil uppbygging á aðstöðu til hesta-
mennsku og sýningarhalds. Síðastliðinn vetur hefur öll
kennsla í hestamennsku hjá Landbúnaðarháskólanum
farið þar fram en aðstaðan á Mið-Fossum er eins og best
verður á kosið til kennslu og hestamennsku. Nú síðast
var þar byggður upp hringvöllur sem keppnin fór fram á
og er verið að vinna við að byggja nýja skeið- og kyn-
bótabraut sem á að taka í notkun von bráðar. Ljóst er að
þessi aðstaða á Mið-Fossum á eftir að vera mikil lyfti-
stöng fyrir hestamennskuna á Hvanneyri og nágrenni.
Hallveig sópaði að sér verðlaunum
Að þessu sinni var það Hallveig Guðmundsdóttir sem
hlaut Morgunblaðsskeifuna. Sá sem hlýtur skeifuna hef-
ur náð bestum samanlögðum árangri í verklegu tamn-
ingaprófi, verklegu gangtegundaprófi, í bóklegu prófi í
tamningum og reiðmennsku og svo gildir árangur í
keppninni á Skeifudaginn einnig. Hallveig stóð einnig
uppi sem sigurvegari í Skeifukeppninni og fékk að laun-
um Bændasamtakabikarinn. Það var ekki nóg með það
því hún fékk einnig ásetuverðlaun Félags tamninga-
manna, FT. Sú verðlaun hafa verið veitt frá því 1971
þeim nemanda sem þykir hafa fallegustu og bestu áset-
una. Hallveig fékk einnig að launum fyrir efsta sætið
folatoll undir stóðhestinn Fák frá Auðsholtshjáleigu og
15.000 kr. inneign í MR-búðinni. Hallveig var vel að
þessum verðlaunum komin og ljóst að þar fór góður
knapi. Kristín María Birgisdóttir hlaut Eiðfaxabikarinn
að þessu sinni fyrir hirðingu og snyrtimennsku að mati
samnemanda, kennara og starfsfólks í kennsluhúsi.
Samhliða Skeifudeginum var haldin opið töltmót,
Skeifutölt Grana. Skeifutöltið vann Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir á Mósarti frá Leysingjastöðum. Hrafnhild-
ur kom efst inn í úrslit og hélt fyrsta sætinu allt til loka
með glæsibrag. Mósart er glæsilegur hestur sem gæti
hugsanlega gert það gott á keppnisvellinum í sumar.
Jakob Sigurðsson, sigurvegari síðasta árs, sem reið að
þessu sinni Von frá Eyri endaði annar eftir að hafa unnið
sig upp um eitt sæti frá forkeppninni. Önnur úrslit voru
eftirfarandi:
Úrslit í Skeifutölti
1. Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Faxi, Mósart frá
Leysingjastöðum, grár, 8v. 7,6//7,6 2. Jakob Sigurðsson,
Dreyri, Von frá Eyri, bleik, 7 v. 6,0/7,0 3. Helga Una
Björnsdóttir, Þytur, Orða frá Gauksmýri, jörp, 8 v. 6,3/
6,6 4. Helgi Gissurarson, Faxi, Hermann frá Kúskerpi,
jarpur, 9 v. 6,2/6,2 5. Haukur Bjarnason, Faxi, Bliki frá
Skáney, rauðblesóttur, 12 v. 6,3/6,0
Úrslit í Skeifukeppni
1. Hallveig Guðmundsdóttir frá Reykjavík 2. Sig-
tryggur Veigar Herbertsson frá Dalvík 3. Eyþór Dal-
mann Sigurðsson frá Sólheimum
Hallveig Guðmundsdóttir hlaut Morgunblaðsskeifuna,
fyrir hæstu lokaeinkunn í áfanganum hrossarækt,
Ásetuverðlaun FT, fyrir bestu ásetu og stjórnun meðal
keppenda í Skeifukeppni, Bændasamtakabikarinn, fyrir
að standa efst í úrslitum gangtegundaprófs. Kristín
María Birgisdóttir hlaut Eiðfaxabikarinn, fyrir hirðingu
og snyrtimennsku í verki. Eyþór Dalmann Sigurðsson
hlaut Töltbikar Grana fyrir hæstu einkunn keppenda frá
hestamannafélaginu Grana í Skeifutölti.
Keppt um Morgunblaðsskeifuna á Hvanneyri
Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Meistari Hallveig Guðmundsdóttir með skeifuna.
Hallveig Guð-
mundsdóttir
hlaut skeifuna
Eftir Eyþór Árnason
eythor@mbl.is
Akranes | Björgunarfélag Akraness
hefur tekið í notkun öflugan jeppa
sem félagið keypti frá Bandaríkjun-
um, af Ford Excursion gerð, og hefur
jeppanum verið breytt hjá Icecool-
fyrirtækinu á Selfossi.
Sigurður Axel Axelsson, einn af
meðlimum Björgunarfélags Akraness
og félagi í undanfarasveit félagsins,
segir að jeppinn verði mikilvægur
hlekkur í starfi félagsins enda eigi
hann að komast flestallar ófærur eftir
breytingarnar. Vélin er 6 lítra dísilvél,
325 hestöfl, sjálfskiptingin er með
skriðgír og á 44 tommu dekkjum eru
okkur flestir vegir færir.
Sú nýjung verður í jeppanum að
hægt verður að vera í þráðlausu net-
sambandi nánast hvar sem er í ná-
grenni við senda Emax-fyrirtækisins
sem er í eigu Þekkingar ehf. á Ak-
ureyri. Ásgeir Kristinsson, formaður
Björgunarfélags Akraness, segir að
upplýsingaflæði sé einn mikilvægasti
hlutinn í björgunarleiðöngrum og
með aukinni útbreiðslu Netsins í
gegnum þráðlaust kerfi sé nú hægt að
vera með tölvu í jeppanum og hafa
samband við björgunarmiðstöðvar
með þeim hætti. „Við vinnum mikið í
gegnum miðlægar skrár og það flýtir
fyrir öllu ferlinu ef við getum verið
með jeppann í stöðugu netsambandi í
björgunarleiðöngrum. Við erum, að
ég held, fyrsta Björgunarfélagið sem
fær slíkan útbúnað til umráða og það
verður spennandi að sjá hvernig þessi
tækni nýtist okkur. Enda er þetta
tækni sem á eftir að vera ráðandi á
þessu sviði í framtíðinni,“ sagði Ás-
geir. Hann bætti því við að í jeppan-
um yrði útbúnaður frá fyrirtækinu
Sögu sem sendir upplýsingar á 5 sek-
úndna fresti um staðsetningu jepp-
ans. „Í gegnum heimasíðu með okkar
lykilorði getum við séð ferðir bílsins í
rauntíma. Þetta er sérstaklega mik-
ilvægt þegar við erum að sinna óveð-
ursaðstoð,“ sagði Ásgeir.
Öruggt netsamband
Sverrir Guðmundsson, „tölvu-
bóndi“ frá Hvammi í Norðurárdal og
starfsmaður Þekkingar, segir að fyr-
irtækið hafi ákveðið að útvega félag-
inu búnað sem til þarf við móttöku á
þráðlausu Internettengingunni. Hef-
ur verið búið svo um hnútana að
Björgunarfélagið þarf ekki að greiða
fyrir afnot af þráðlausa kerfinu sem
er nú víðsvegar á landinu. Sverrir
sagði að hann hefði gert ýmsar til-
raunir í starfi sínu að undanförnu og
nú væri svo komið að hægt væri að
vera í netsambandi á þjóðvegi 1 frá
mynni Hvalfjarðarganga að norðan-
verðu og alla leið upp í Norðurárdal.
„Við teljum að björgunarfélagið geti
verið í netsambandi í allt að 20–30 km
fjarlægð frá þeim sendum sem nú eru
til staðar. En þeim fjölgar jafnt og
þétt,“ sagði Sverrir.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Nýr bíll Sverrir Guðmundsson frá Þekkingu ehf., Ásgeir Kristinsson, for-
maður Björgunarfélagsins, og Sigurður Axel Axelsson við hlið jeppans.
Þráðlaus netteng-
ing í öflugum jeppa
Stykkishólmur | Það var hátíðleg
og fjölmenn stund er fyrsta skóflu-
stunga að nýjum leikskóla í Stykk-
ishólmi var tekin föstudaginn 22.
apríl. Leikskólanemendurnir komu
í skrúðgöngu frá núverandi leik-
skóla í fylgd foreldra og starfs-
fólks. Það var ekki bara fyrsta
skóflustungan sem var tekin held-
ur reyndust þær fleiri. Leik-
skólabörnin sjálf mættu með skófl-
ur og fengu það verkefni að hefja
framkvæmdir. Þau sýndu mikinn
vilja að koma verkinu af stað og
létu skófluhendurnar standa fram
úr ermum. Ákafi barnanna er tákn-
rænn fyrir þann hraða sem fram-
kvæmdin á að taka. Áætlað er að
flytja inn í nýja leikskóla innan árs.
Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri
sagði frá fyrirhuguðum fram-
kvæmdum. Leikskólinn er í Tjarn-
armýri við innkomuna í bæinn.
Hann verður þriggja deilda leik-
skóli, 522 fermetrar að stærð með
stækkunarmöguleika upp á 72 fer-
metra fyrir fjórðu deildina. Guðrún
Ingvadóttir hjá Arkís er arkitekt
hússins en burðarvirki og lagnir er
unnið af VST og Landhönnun á
Selfossi sér um lóðarhönnun.
Leikskólastarf í Stykkishólmi á
sér langa sögu. Systurnar á St.
Fransiskusspítalanum hófu rekstur
leikskóla fyrir bæjarbörn árið
1957. Þá var leikskólinn aðeins
starfandi á veturna og sumardval-
arheimili á sumrin. Árið 1997 tók
Stykkishólmsbær alfarið við
rekstri skólans. Systurnar settu sitt
jákvæða mark á uppeldi barnanna
á þessum árum og eru Hólmarar
þakklátir þeim fyrir þeirra fórn-
fúsa starf.
Í leikskólanum er tekið á móti
börnum frá 18 mánaða aldri til 6
ára. Núna eru um 70 nemendur í
skólanum og starfsmenn 17.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Margar skóflur Óli Jón Gunnarsson fylgist ánægður með dugnaði ungu
Hólmaranna við fyrstu handtökin að nýjum leikskóla í Stykkishólmi.
Skóflustunga tekin að
nýjum leikskóla
VESTURLAND