Morgunblaðið - 25.04.2005, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
NÆSTKOMANDI þriðjudag
verður haldin ráðstefna á vegum
IMG um aðferðafræði í stjórnun
sem nefnd hefur verið „Spiral
Dynamics“, þar sem einn af frum-
kvöðlum þessarar kenningar, dr.
Don Edward Beck, mun halda að-
alerindi. „Spiral Dynamics“ fjallar
um það hvernig mismunandi gildi
og gildismat fólks hefur áhrif á
flókið samspil þess innbyrðis hvort
sem er innan hópa, fyrirtækja eða
samfélagsins í heild. Dr. Beck hef-
ur haldið fyrirlestra um þessa að-
ferðafræði um allan heim og í
Kaupmannahöfn var nýlega stofn-
uð rannsóknarstofa á hans vegum
sem einbeitir sér að rannsóknum á
þessu sviði. Hann hefur ritað
fjölda greina um málefni fyr-
irtækja og þjóðfélaga og gaf m.a.
út bókina: „Spiral Dynamics, mast-
ering values leadership and
change“, ásamt Christopher
Cowan.
Aðferðafræðin og greiningar-
tæki Spiral Dynamics auka skiln-
ing á menningu og innviðum hópa,
fyrirtækja og sam-
félaga og gefa því
mikilvægar vísbend-
ingar um nálgun og
lausnir vandamála
sem eru til þess falln-
ar að skila okkur ár-
angri í framtíðinni.
Spiral Dynamics er
aðferðafræði sem hef-
ur verið beitt til þess
að fást við flókin
vandamál, allt frá af-
námi aðskiln-
aðarstefnunnar í Suð-
ur-Afríku, til
endurreisnar fá-
tækrahverfa í suðurhluta Chicago-
borgar og umbreytingar alþjóða-
fyrirtækja svo dæmi séu tekin.
Íslenskar aðstæður
Það sem er sérstakt við þessa
kenningu er að hún á við ein-
staklinga jafnt sem fyrirtæki og
þjóðfélög svo eitthvað sé nefnt af
þeim lífrænu kerfum sem við höf-
um byggt upp í umgjörð okkar.
Hún getur til dæmis varpað ljósi á
strauma og stefnur í
íslensku samfélagi,
sem óneitanlega er í
mikilli gerjun um
þessar mundir. Skiln-
ingur á þeim að-
stæðum hlýtur að vera
afar mikilvægur þann-
ig að stjórnvöld grípi
ekki til aðgerða, sem
óafvitandi gætu reynst
þjóðinni dýrkeypt í
framtíðinni; mistök
sem voru gerð vegna
þess að ekki ríkti
nægilegur skilningur á
samspili ólíkra þátta
innbyrðis, heldur einungis litið á
skammtímaafleiðingar og fengist
við þær.
Í gegnum tíðina hafa birst
margskonar lausnir sem hafa virk-
að vel og illa eftir aðstæðum, en
hafa gjarnan ómaklega fengið á sig
stimpilinn „patentlausnir“. Þannig
hafa þessar lausnir, s.s. endur-
högun ferla, altæk gæðastjórnun
o.fl. verið í upphafi einskonar Lilja
sem allir vildu kveða, en endað
með því að vera afgreiddar út af
borðinu eftir því sem dæmum um
„gagnsleysi“ hefur fjölgað.
Passar lausnin hér?
Ástæðurnar fyrir því að lausn-
irnar gagnast misjafnlega liggja
ekki í þeim sjálfum. Ástæðurnar
liggja í þeim aðstæðum sem þeim
er ætlað að fást við. Við erum oft
að beita aðferðum við lausn vanda-
mála í fyrirtækjum og sam-
félögum, vegna þess að þær hafa
virkað annars staðar, en gerum
okkur hins vegar enga grein fyrir
því hópar, fyrirtæki og samfélög
eru ólík innbyrðis og með mismun-
andi eiginleika og getu til þess að
tileinka sér mismunandi lausnir og
aðferðir.
Ýmsar kenningar hafa verið
settar fram í því augnamiði að
greina stöðu og innri virkni fyr-
irtækja og samfélaga. Margar
þeirra hafa sprottið úr þeim jarð-
vegi að um sé að ræða lífræn
kerfi, raunar mannleg kerfi, sem
lúta sömu lögmálum og ein-
staklingarnir, þ.e. fæðast, vaxa,
hrörna og deyja, eru hugsandi og
hafa tilfinningar svo eitthvað sé
nefnt. Skilningur á því hvernig
flókið samspil ólíkra einstaklinga
og sjónarmiða mótar samfélög
þeirra veitir mikilvægt innsæi í
aðstæður og segir í raun fyrir um
hversu vel mismunandi aðferðir
munu gagnast við úrlausn eða
breytingar.
Spiral Dynamics er grein af
þessum meiði, og er til þess ætluð
að veita okkur innsýn í undirliggj-
andi strauma og auka þannig
skilning á aðstæðum og innviðum
þess kerfis sem fengist er við að
stjórna. Það er því fengur að því
að fá dr. Beck til landsins og veita
og fá um leið umfjöllun um hvern-
ig greina megi aðstæður hér á
landi í ljósi þessarar aðferðafræði
til þess að átta sig betur á þeim
öflum sem eru að móta sam-
félagið, stofnanir þess og fyr-
irtæki í nútíð og framtíð.
Ný sýn á öflin sem móta
fyrirtæki og samfélög
Bjarni Snæbjörn Jónsson
fjallar um „Spiral Dynamics“
’Skilningur á aðstæðumhlýtur að vera afar mik-
ilvægur þannig að
stjórnvöld grípi ekki til
aðgerða sem óafvitandi
gætu reynst þjóðinni
dýrkeypt í framtíð-
inni …‘
Bjarni Snæbjörn
Jónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
IMG Ráðgjafar.
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
„Skerum upp herör gegn
heimilisofbeldi og kortleggj-
um þennan falda glæp og
ræðum vandamálið í hel.“
Svava Björnsdóttir: „Til
þess að minnka kynferðisof-
beldi þurfa landsmenn að fyr-
irbyggja að það gerist. For-
varnir gerast með fræðslu
almennings.“
Jóhann J. Ólafsson: „Lýð-
ræðisþróun á Íslandi hefur,
þrátt fyrir allt, verið til fyr-
irmyndar og á að vera það
áfram.“
Pétur Steinn Guðmunds-
son: „Þær hömlur sem settar
eru á bílaleigur eru ekki í
neinu samræmi við áður gefn-
ar yfirlýsingar fram-
kvæmdavaldsins, um að skapa
betra umhverfi fyrir bílaleig-
urnar.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Langbesti kosturinn í stöð-
unni er að láta TR ganga inn
í LHÍ og þar verði höfuð-
staður framhalds- og háskóla-
náms í tónlist í landinu.“
Hjördís Ásgeirsdóttir: „Ég
er ein af þeim sem heyrði
ekki bankið þegar vágest-
urinn kom í heimsókn.“
Vilhjálmur Eyþórsson: „For-
ystumennirnir eru undan-
tekningarlítið menntamenn
og af góðu fólki komnir eins
og allir þeir, sem gerast
fjöldamorðingjar af hugsjón.
Afleiðingar þessarar auglýs-
ingar gætu því komið á
óvart.“
Jakob Björnsson: „Mann-
kynið þarf fremur á leiðsögn
að halda í þeirri list að þola
góða daga en á helvítisprédik-
unum á valdi óttans eins og á
galdrabrennuöldinni.“
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar