Morgunblaðið - 25.04.2005, Side 32
32 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Peningavandræði sem hafa verið að
hrjá þig að undanförnu virðast vera
úr sögunni. Áhyggjur gærdagsins
virðast ekki svo mikilvægar í dag.
Þú sérð hlutina í samhengi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Samskipti við maka og nána vini
hafa verið dálítið tvísýn að und-
anförnu. Leyfðu þolinmæðinni að
hemja þig, þú siglir lygnan sjó inn-
an tíðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Samstarfsvilji vinnufélaganna er
meiri í dag en endranær og verður
jafnvel enn meiri á næstunni. Ef þú
býst við því besta af öðrum, er lík-
legra að þeir hneigist til þess en
ella.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Spenna hefur minnkað í sam-
skiptum við vini. Það gerir lífið bæði
einfaldara og ánægjulegra. Krabb-
inn er viðkvæmur og vill láta sér
lynda við náungann.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Haltu áfram að sýna stjórnendum
og foreldrum þolinmæði. Þú sérð
ekki eftir því. Ástandið er að batna,
jafnvel meðan þú lest þetta. Þú
veist það.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ferðaáætlanir sem voru við það að
frestast eða verða að engu, gætu
hugsanlega gengið eftir í dag. Vertu
jákvæð, það er sennilegt að þú getir
ferðast þér til ánægju innan tíðar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Notaleg sambönd verða jafnvel enn
notalegri í dag og tilfinningar þínar
í einhvers garð eru að dýpka. Það er
þér mikilvægt, enda viltu eiga náin
tengsl við aðra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í gær var fullt tungl í þínu merki,
sem gæti hafa valdið spennu í sam-
skiptum við aðra. Haltu ró þinni,
þessi spenna heyrir sögunni til.
Stundum verður maður bara að láta
kyrrt liggja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nýttu þér hvötina sem þú finnur hjá
sjálfum þér til þess að vera skipu-
lagðari. Þú kemur miklu í verk á
meðan þér líður svona. Það er auð-
veldara að gera það sem maður vill.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Horfur í fjármálavafstri eru góðar
núna og nú er líka rétti tíminn til
þess að fara í frí. Þú nýtur þess að
vera skapandi og leika þér með
smáfólkinu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Bjóddu fólki heim til þín og njóttu
góðra stunda í félagi við fjölskyld-
una. Margir vatnsberar finna
heilsufar sitt batna á næstunni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Njóttu þess að eyða tíma með
systkinum núna og leiðréttu mis-
skilning ef þú getur, hvort sem er í
samskiptum við ættingja, nágranna
eða þá sem þú átt daglegt samneyti
við.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vinnusöm og dygg manneskja sem
hvikar ekki frá settu marki. Þú ert at-
hafnasöm og áköf og hefur bæði sterkan
persónuleika og líkamsbyggingu. Ferða-
lög eru þitt líf og yndi.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 augljós, 8 falleg,
9 hljóðfæri, 10 sætta sig
við, 11 húsgafl, 13 auð-
lindum, 15 hestur, 18
mannsnafn, 21 svali, 22
lagarmál, 23 æviskeiðið,
24 skynsemin.
Lóðrétt | 2 stika, 3 skrifta-
mál, 4 vondan, 5 veitum
eftirför, 6 eldstæðis, 7
veikburða, 12 ögn, 14 kær-
leikur, 15 hrím, 16 skel-
dýr, 17 húð, 18 fyrir-
gangur, 19 hnappur,
20 skrika til.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 stáss, 4 kúlum, 7 gaman, 8 korði, 9 dúk, 11 rann,
13 eira, 14 ábati, 15 lægð, 17 klám, 20 ess, 22 gefur, 23
kækur, 24 rændi, 25 rámur.
Lóðrétt | 1 sægur, 2 álman, 3 sund, 4 kökk, 5 lærði, 6
meiða, 10 úrans, 12 náð, 13 eik, 15 lögur, 16 gufan, 18 lok-
um, 19 mærir, 20 erti, 21 skær.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Ídag kl. 16 hefst í Norræna húsinu ráð-stefna umhverfisráðuneytis og Umhverf-isstofnunar um gildi friðlýstra svæða fyr-ir ferðamenn, en í dag er einmitt Dagur
umhverfisins. Meðal framsögumanna á ráðstefn-
unni er Anna Dóra Sæþórsdóttir, lektor í ferða-
málafræðum við Háskóla Íslands. Mun hún
fjalla um aðdráttarafl ferðamannastaða:
„Ég ætla að fjalla almennt um aðdráttarafl
staða, bæði út frá náttúru og menningu, en í
ljósi yfirskriftar ráðstefnunnar og þess sem all-
ar kannanir benda til – að náttúran sé enn
helsta aðdráttarafl ferðamanna á Íslandi – mun
ég leggja megináherslu á náttúruna.“
Og hvernig má lýsa aðdráttarafli staða?
„Enginn staður eða viðburður er aðdráttarafl
í sjálfu sér, en getur orðið það þegar búið er að
gera hann þekktan meðal ferðamanna. Í nútíma
samfélagi eru ferðamenn umfram annað neyt-
endur merkinga, ímynda og tákna. En ólíkt al-
mennri vöruneyslu þarf ferðamaðurinn að koma
á sjálfan staðinn til þess að upplifa hann.“
Hvernig upplifa ferðamenn Ísland?
„Upplifun ferðamanna á náttúrunni er mjög
sterk – gestum okkar finnst landið ævintýri lík-
ast. Ég mun sérstaklega segja frá rannsóknum
sem ég vann í samstarfi við kollega mína um
þolmörk ferðamennsku, þ.e.a.s. hversu marga
gesti tiltekin svæði þola. Könnunin var gerð á
sex friðlýstum svæðum, þjóðgörðunum Skafta-
felli og Jökulsárgljúfrum, þá Landmannalaug-
um og Lónsöræfum og einnig Sveinstindi og
Langasjó.“
Má reikna út hve marga gesti staður þolir?
„Nei, það er ekki beinlínis hægt, heldur fer
það eftir þeim markmiðum sem við setjum á
hverjum stað. Ef markmiðið er að ferðamenn
eigi að geta upplifað ósnortin víðerni, vinna
mannfjöldi og miklar þjónustubyggingar gegn
því. Nauðsynlegt er að setja skýr markmið á
hverjum stað og fylgja þeim eftir, kanna vænt-
ingar gesta og hvort staðurinn stenst þær vænt-
ingar.“
Hefur þetta verið gert við uppbyggingu
ferðaþjónustu á náttúruverndarsvæðum á Ís-
landi?
„Segja má að þolmarkarannsóknirnar séu
fyrsta skrefið í þá átt. Náttúruverndar- og
ferðamálayfirvöld geta nú nýtt sér þessar nið-
urstöður við skipulag og stefnumótun þessara
svæða. Hefð er fyrir slíkum rannsóknum og
hagnýtri notkun þeirra víða erlendis, til dæmis í
Bandaríkjunum, Kanada, Noregi og Svíþjóð;
löndum með stór, óbyggð svæði. Reynslu þeirra
má því vel heimfæra hingað.“
Í rannsókninni skoðaðir þú sérstaklega upp-
lifun ferðamanna?
„Já, og það er merkilegt að þótt yfir 100 þús-
und erlendir ferðamenn komi árlega í Land-
mannalaugar en tvö þúsund í Lónsöræfi, telja
gestir á báðum stöðum að fjöldinn sé hæfilegur.
Fjöldi er þannig afstætt hugtak í þessu tilliti.“
Dagur umhverfisins | Fjallað um þolmörk ferðamennsku á ráðstefnu í Norræna húsinu
Fjöldi er afstætt hugtak
Anna Dóra Sæþórs-
dóttir er landfræðingur.
Hún er lektor í ferða-
málafræðum við jarð-
og landfræðiskor HÍ,
starfaði þar áður hjá
Náttúruvernd ríkisins
og hefur m.a. verið leið-
sögumaður með er-
lenda ferðamenn. Hún
er gift Halldóri B. Lúð-
vígssyni og eiga þau þrjú börn.
Myndlist
101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson –
Skáhalli tilverunnar.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót
lista og minja.
Café Karólína | Myndlistarsýning Baldvins
Ringsted.
Eden, Hveragerði | Málverkasýning Davíðs
Art Sigurðssonar – Milli mín og þín.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar.
Ólöf Björg.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson Af-
gangar.
Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson
sýnir myndir unnar með blandaðri tækni.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Sýning Jóhannesar Dags-
sonar, „Endurheimt“. Á sýningunni eru
verk unnin með blandaðri tækni.
Í samvinnu við Sophienholm í Kaupmanna-
höfn og Hafnarborg, hefur Johannes
Larsen-safnið sett saman stóra sýningu
um danska og íslenska listamenn og túlkun
þeirra á íslenskri náttúru á 150 ára tímabili.
Þema sýningarinnar er „List og náttúra
með augum Norðurlandabúans“.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menn-
ingarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal – eitt verk,
ekkert upphaf né endir.
Listasafn Íslands | Lokað til 14. maí. Þá
opnar sýning á verkum Dieters Roth í sam-
vinnu við Listasafn Reykjavíkur og er í til-
efni Listahátíðar.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Saltfisksetur Íslands | Sýning Fríðu Rögn-
valdsdóttur „Fiskar og fólk“. Allar mynd-
irnar eru unnar með steypu á striga.
Salurinn | Andi Manns er heiti á sýningu
Leifs Breiðfjörðs.
Smáralind | Sýning Amnesty International
„Dropar af regni“.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning-
arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione – ljósmyndir úr fórum Manfroni-
bræðra.
Þrastalundur, Grímsnesi | Sveinn Sig-
urjónsson frá Galtalæk 2 í Rangár-
vallasýslu sýnir olíumálverk.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu. Hallgrímur er eitt
fremsta skáld Íslendinga fyrr og síðar. Sýn-
ingin gefur innsýn í verk hans og útgáfur á
þeim hér á landi og erlendis og þann inn-
blástur sem þau veita listamönnum, ekki
síst í nútímanum. Drepið er á æviatriði
Hallgríms og staldrað við atburði sem
marka hvörf í hans ferli.
Mannfagnaður
Réttó 1953 | Þeir sem fæddir eru 1953 og
voru í Breiðagerðis- eða Réttarholtsskóla
ætla að hittast í tilefni þess að í vor eru 35
ár frá því að þeir hættu í skólanum. Þeir
sem ætla að mæta þurfa að bóka sig fyrir
27. apríl. Nánari upplýsingar veita: Gústi,
898-3950, Edda, 848-3890, Einar, 426-
8137, Gunnar J., 551-4925, Jónas, 894-
6994 og á edda@simnet.is.
Fréttir
ITC-samtökin á Íslandi | Landsþing ITC á
Íslandi verður haldið dagana 29.–30. apríl, í
Oddfellow-húsinu, Vonarstræti 10, í
Reykjavík og er öllum opið. Uppl. fást:
www.simnet.is/itc, eða í s: 698-7204/897-
4439.
Fundir
AA-samtökin | Uppkomin börn, aðstand-
endur og alkóhólistar halda 12-spora fundi
öll mánudagskvöld kl. 20–21.30 í Tjarn-
argötu 20, Rvík.
Eineltissamtökin | Eineltissamtökin eru
með fundi alla þriðjudaga kl. 20–21, í húsi
Geðhjálpar, Túngötu 7.
Geðhjálp | Fundur fyrir fullorðin börn geð-
sjúkra (18 ára og eldri), alla þriðjudaga kl.
19, hjá Geðhjálp, Túngötu 7. Nánari upplýs-
ingar í síma 5701700 og á www.gedhjalp.is.
Hestheimar, hrossaræktarbú | Samráðs-
fundur ferðaþjónustuaðila í Rangárþingi
ytra og Ásahreppi verður kl. 20.30. Und-
irbúningur vegna hestatengdrar ferðaþjón-
ustu.
Kraftur | Aðalfundur Krafts, stuðnings-
félags ungs fólks sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur þeirra, verð-
ur haldinn þriðjudaginn 26. apríl nk. í Skóg-
arhlíð 8, 4. hæð. Veitingar í boði Krafts.
Rauði krossinn | Rauða kross-deildin held-
ur aðalfund á Hvolsvegi 31, Hvolsvelli, kl.
20.
Spoex | Aðalfundur SPOEX, Samtök psori-
asis- og exemsjúklinga, verður haldinn 27.
apríl kl. 20, á Grand Hótel Reykjavík, Sig-
túni 38. Auk venjulegra aðalfundarstarfa
fjallar Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkr-
unardeildarstjóri um: Bláa lónið – Ný húð-
lækningastöð. Einnig verður fjallað um
breytingar á húsnæði félagsins.
Fyrirlestrar
Askja – Náttúrufræðihús HÍ | Í næsta
fræðsluerindi Hins íslenska náttúrufræði-
félags, kl. 17.15, mun Jón Ólafsson prófess-
or við efnafræðiskor Háskóla Íslands flytja
erindi sem hann nefnir: Breytingatímar:
Koltvíoxíð í lofti og hafi. Í erindinu verður
fjallað um koltvíoxíðbindingu í heimshöf-
unum, hvernig hún gerist, hvar og hve mikil
hún er.
Karuna Búddamiðstöð | „Skref til ham-
ingju“ er 4 vikna námskeið sem fjallar um
kenningar Búdda, um hvernig þróa má af-
slappað viðhorf til lífsins og vandamála.
Einnig verða kynntar á námskeiðinu að-
ferðir til að bæta samskipti við aðra s.s.
maka, fjölskyldu, vinnufélaga o.fl.
www.karuna.is.
Námskeið
Mímir-símenntun ehf. | Kristinn R. Ólafs-
son, útvarpsmaður í Madríd, mun sjá um
tveggja kvölda námskeið um höfuðborg
Spánar, dagana 26. og 28. apríl kl. 20–22,
hjá Mími-símenntun. Stiklað verður á stóru
í máli og myndum um sögu, listir og menn-
ingu í Madríd. Skráning hjá Mími-
símenntun, s. 580 1800 eða á www.mim-
ir.is.
MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir
landsbyggðarfólk um MS-sjúkdóminn verð-
ur haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk með ný-
lega greiningu MS, upp að 2–3 árum.
Taugasérfræðingur, félagsráðgjafi, hjúkr-
unarfræðingur, iðjuþjálfi og sjúkraþjálfari
veita fræðslu.
Námskeiðið verður í húsi MS-félags Íslands
á Sléttuvegi 5, Reykjavík. Upplýsingar veit-
ir Margrét, félagsráðgjafi, í síma
568 8620, 897 0923.
Ráðstefnur
Norræna húsið | Umhverfisráðuneytið og
Umhverfisstofnun boða til opins fundar
undir yfirskriftinni „Gildi friðlýstra svæða
fyrir ferðamenn,“ í Norræna húsinu kl. 16–
18.
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Ráð-
stefna um áhrif sjóflóða og hækkunar sjáv-
arstöðu á skipulag verður 28. apríl 13.05–
17.15, í húsi verkfrd. HÍ, VR–2, Hjarðarhaga
6, st. 157.
Fundarboðendur eru umhverfis- og bygg-
ingarverkfræðiskor HÍ, Skipulagsstofnun
og Siglingastofnun. Heimasíða ráðstefn-
unnar er http://www.hi.is/page/flod. Frek-
ari upplýsingar: Trausti Valsson, s.
8631339, tv@hi.is.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Farið frá Toppstöð-
inni við Elliðaár kl. 18 og farinn hringur í
Elliðaárdalnum. Allir velkomnir, ekkert
þátttökugjald.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos