Morgunblaðið - 25.04.2005, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÍSINN á Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi var sannarlega
tignarlegur og óvenjumikill þegar ljósmyndari Morgunblaðs-
ins átti þar leið um í gær.
Bæði var um að ræða jaka sem brotnað hafa úr jöklinum
sem og lagnaðarís. Þannig er líklegt að jakarnir sem standa
upp úr vatninu séu jökulbrot, en flötu jakarnir við yfirborðið
séu hlutar af lagnaðarísnum frá því í vetur þegar vatnið
lagði.
Líkt og sjá má eru sumir jakarnir í lóninu afar óhreinir,
en það stafar yfirleitt af öskulögum í jöklinum. Telja má víst
að jakasöfnunin nú stafi af því að vindur hafi staðið af jökli
og hrakið jakana að útfallinu, en almennt leita jakarnir í
lóninu að útfallinu enda liggur straumurinn þangað.
Líklega er fremur erfitt að sigla á lóninu við þessar að-
stæður, en hins vegar er ekkert sem bendir til þess að jak-
arnir muni verða til vandræða þegar nær dregur sumri,
enda færast þeir auðveldlega til í vindáttum og bráðna til-
tölulega hratt sökum hlýinda í sjónum./21
Morgunblaðið/RAX
Tilkomumikill ís á Jökulsárlóni
„ÞETTA er mikil þolraun,“ voru fyrstu
viðbrögð Ásmundar Pálssonar Íslands-
meistara í brids þegar hann var spurður
út í langa og stranga
spilamennsku um
liðna helgi, en hann og
Guðmundur Páll Arn-
arson urðu í gærkvöld
Íslandsmeistarar í tví-
menningi í brids.
Ásmundur er eng-
inn aukvisi þegar
brids er annars vegar,
hefur 22 sinnum
hampað Íslandsmeist-
aratitli, þar af tíu sinnum í tvímenningi,
fyrst árið 1963, eða fyrir 42 árum.
Tók 182 spil um helgina
Ásmundur er 77 ára gamall og efa-
laust elstur allra sem hampað hefur Ís-
landsmeistaratitli í keppnisíþrótt hér á
landi. Hann segist engin áform hafa
uppi um að hætta spilamennsku þrátt
fyrir langa yfirlegu við spilaborðið á
keppnismótum sem krefst mikils út-
halds.
Íslandsmótið í brids hófst á föstudag
og var spilað svo að segja samfleytt
fram á sunnudagskvöld. Á föstudag
spilaði Ásmundur 60 spil, 70 spil á laug-
ardag og 52 í gær, samtals 182 spil.
En hver er galdurinn við gott gengi í
bridsíþróttinni? „Galdurinn er að hafa
góða makkera (meðspilara),“ segir Ás-
mundur sem segist hafa verið heppinn
með þá allan sinn spilaferil.
Hann byrjaði að spila brids um 1960,
þá um þrítugt. Hann segist ekki hafa
tölu á þeim fjölda móta sem hann hefur
tekið þátt í, en þeim hafi þó farið fækk-
andi með árunum.
Ásmundur Pálsson, 77
ára, varð Íslandsmeistari
í brids í 22. sinn
„Galdurinn
að hafa góða
makkera“
Ásmundur
Pálsson
Eftir Kristján Geir Pétursson
kristjan@mbl.is ÁFORM borgaryfirvalda um að
koma Essó-bensínstöð fyrir á
reitnum við Umferðarmiðstöðina í
Reykjavík, kom þeim, sem annast
hafa skipulagningu nýs húsnæðis
fyrir Landspítala – háskólasjúkra-
hús á Hringbrautarsvæðinu, nokk-
uð á óvart, að sögn Davíðs Á.
Gunnarssonar, ráðuneytisstjóra í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Stjórnendur LSH eru, skv.
heimildum Morgunblaðsins, ekki
allir sáttir við að Olíufélagið hf. fái
að reisa bensínstöð á umræddum
reit. Á sama svæði sé gert ráð fyrir
nýbyggingu spítalans. Ekki sé
heppilegt að hafa bensínstöð svo
nálægt nýja spítalanum.
Þegar Davíð Á. Gunnarsson og
Jóhannes M. Gunnarsson, forstjóri
LSH, voru spurðir út í þetta mál í
gær, vísuðu þeir á samkomulag
sem Jón Kristjánsson, heilbrigðis-
ráðherra og þáverandi borgar-
stjóri, Þórólfur Árnason, undirrit-
uðu í apríl 2004. Í því er m.a. kveðið
á um að borgin úthluti LSH og
stofnunum Háskóla Íslands, sem
tilheyra spítalanum, samtals 23
þúsund fermetra svæði, á um-
ræddum Umferðarmiðstöðvarreit.
„Auk þess samþykkja samnings-
aðilar að borginni sé heimilt að út-
hluta allt að 7.000 fm til uppbygg-
ingar miðbæjarstarfsemi í
samræmi við fyrirhugað deili-
skipulag svæðisins,“ segir í sam-
komulaginu. Þar segir einnig að
fjögurra manna samvinnunefnd
Reykjavíkurborgar, LSH, HÍ og
eigenda Umferðarmiðstöðvar Ís-
lands skuli vinna sameiginlega að
deiliskipulagstillögu svæðisins.
Jóhannes segist ekki hafa fengið
neinar formlegar upplýsingar um
að til standi að breyta þessu sam-
komulagi milli ríkis og borgar. „Ég
trúi því ekki fyrr en ég tek á því að
það verði gerð á því breyting.“
Samþykkt í borgarráði
Samtals var Umferðarmiðstöðv-
arreiturinn 30 þúsund fermetrar
þegar samkomulagið var undirrit-
að. Að sögn Helgu Bragadóttur,
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur-
borgar, hefur sex þúsund fermetr-
um verið bætt við reitinn síðan þá,
vegna flutnings Hringbrautar.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri segir að borgaryfir-
völd hafi skrifað undir samkomu-
lag við Olíufélagið hf. sl. haust um
að unnið skyldi að því að koma
bensínstöð félagsins fyrir á Um-
ferðarmiðstöðvarreitnum, í ljósi
þess að það myndi missa bensín-
stöð við Faxaskálann í Reykjavík,
vegna ráðstefnu- og tónlistarhúss-
ins, sem þar á að rísa.
Í því samkomulagi er gert ráð
fyrir því að Olíufélagið fái 4000 fer-
metra svæði á umræddum reit.
Steinunn segir að samkomulagið
hafi á sama tíma verið lagt fram og
samþykkt í borgarráði.
„Það er sameiginlegt hagsmuna-
mál ríkis og borgar að koma þess-
ari bensínstöð fyrir á öðrum stað
svo ráðstefnu- og tónlistarhús
megi rísa,“ segir hún.
Steinunn bendir á að Umferðar-
miðstöðvarreiturinn sé mjög stór.
„Hluti reitsins er ætlaður spítalan-
um en hluti hans var hugsaður
undir miðbæjarstarfsemi. Borgar-
yfirvöld eiga ráðstöfunarrétt yfir
þeim hluta.“ Hún tekur fram að
síðustu að unnið sé að málinu í
samráði við heilbrigðisyfirvöld.
Óánægja með að bensín-
stöð rísi í nágrenni LSH
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
„ÞETTA er eitt af mínum
uppáhaldsverkum og
skemmst er frá því að
segja að næmur, ljóðrænn
flutningur Kristínar olli
mér ekki vonbrigðum.
Einstöku sinnum vantaði
reyndar örlítið upp á að
efstu nótur hljómanna
heyrðust nægilega vel, en
að öðru leyti var túlkunin
svo unaðslega blæ-
brigðarík og djúp að dá-
semd var á að hlýða,“ seg-
ir Jónas Sen í umsögn um
flutning Kristínar Jónínu
Taylor píanóleikara á són-
ötu nr. 2 eftir Alexander
Skríabin í Salnum í fyrra-
kvöld.
„Túlkun Kristínar á
sónötu í e-moll op. 7 eftir
Grieg var einnig stór-
brotin og hægi þátturinn
var með því fegursta sem
ég hef heyrt lengi. Spila-
mennskan var svo látlaus
og blátt áfram, en samt
svo einlæg að einstakt
hlýtur að teljast,“ heldur
glæsilega leiknir, að mað-
ur varð alveg frávita.“
Kristín Jónína Taylor er
af íslensku og bandarísku
foreldri, búsett vestra.
Þetta voru fyrstu einleiks-
tónleikar hennar hér á
landi.
Jónas áfram. Þá segir
gagnrýnandinn:
„Skemmtileg tónsmíð Þor-
kels Sigurbjörnssonar,
Der Wohltemperierte
Pianist, lék líka í hönd-
unum á Kristínu og són-
atan eftir Barber var
þrungin ógn, og erfiðustu
staðirnir í tónlistinni svo
Gagnrýnandi Morgunblaðsins hreifst af píanóleik Kristínar Jónínu Taylor
Dásemd var að hlýða á túlkunina
Stórbrotnir/16