Morgunblaðið - 12.08.2005, Síða 17

Morgunblaðið - 12.08.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 17 ERLENT ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali 533 4200 eða 892 0667 Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Hef kaupanda að vönduðu einbýlishúsi á stór-Reykjavíkursvæðinu Seljendur vinsamlega hafið samband í síma 533 4200 eða 892 0667 Miðasala í Íslensku Óperunni, sími 511 4200, og á www.kabarett.is Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON Kabarett “Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra hefur hér tekist vel upp við að vefa saman þeim þráðum sem mynda heild í uppfærslu sem þessari, enginn dauður punktur og ærslafull leikgleði einkenna sýninguna í heild sinni ... Þórunn Lárusdóttir fór með hlutverk Sally Bowles. Hún söng frábærlega og með leik sínum kom hún hinum sorglega undirtón í skugga kæruleysisins vel til skila…” Elísabet Brekkan, DV “Það er leitun að söngleikja- uppfærslu hér á landi sem hefur náð eins góðum árangri í heild í jafn viðamikilli sýningu og hér um ræðir ...Hér er áherslan lögð á að boðskapur verksins skili sér í vönduðum leik og í túlkun söngtextanna. Ofan á þetta bætist að söngur, hljóðfæraleikur og allt það sem fyrir augu ber á sviðinu í þessari metnaðarfullu sýningu er í fremstu röð þess sem sést hefur í söngleikjasýningum hér á landi.” Sveinn Haraldsson, Morgunblaðið. Berlín. AP, AFP. | Angela Merkel, hinn austur-þýski leið- togi Kristilega demókrataflokksins, er nú aftur komin í vandræði í sínum gömlu átthögum vegna óvarlegra um- mæla samherja sinna. Að þessu sinni voru kjósendur í austurhlutanum kallaðir „ergilegt fólk“ og jafnvel ekki nema í meðallagi gefið. Merkel og flokkur hennar hafa mikið forskot á Ger- hard Schröder kanslara og Jafnaðarmannaflokk hans en þó hefur munurinn heldur minnkað upp á síðkastið. Get- ur Merkel sjálfri sér um kennt að sumu leyti, hún hefur til dæmis ruglað saman grundvallarhugtökum eins og brúttó og nettó, og ekki hafa sumir samherjar hennar hjálpað mikið upp á sakirnar. Ekki allir jafn vel gefnir og Bæverjar Edmund Stoiber, leiðtogi Kristilega sósíalsambands- ins í Bæjaralandi, systurflokks kristilegra demókrata, og keppinautur Schröders í síðustu kosningum, sagði í síð- ustu viku á fundi með stuðningsmönnum sínum og nokkrum blaðamönnum, að Þjóðverjar í austurhlutanum hefðu allt of mikið vægi í kosningum. „Ég get ekki sætt mig við, að austurhlutinn muni aftur ráða því hver verði næsti kanslari Þýskalands. Það má ekki verða, að þetta ergilega fólk ráði örlögum landsins,“ sagði Stoiber en ekki var sagt frá þessum ummælum hans fyrr en í fyrradag. „Ef landið allt væri eins og Bæjaraland, þá væru engin vandræði, en því miður, herrar mínir og frúr, þá er ekki alls staðar í þessu landi að finna jafn vel gefið fólk og í Bæjaralandi,“ sagði Stoiber ennfremur og bætti við: „Stundum verða þeir sterku að standa dálítið undir þeim veiku. Þannig er það nú og ég vil ekki, að enn einu sinni verði gert út um kosningarnar í austri.“ Reyna að bera í bætifláka fyrir Stoiber Aðrir leiðtogar kristilegu flokkanna reyna nú hvað þeir geta til að bæta fyrir ummælin og Hans Michelbach, frammámaður í Kristilega sósíalsambandinu, fullyrti í viðtali við þýska útvarpið, að Stoiber hefði alls ekki verið að stimpla fólk í austurhlutanum sem „annars-flokks- borgara“. Hagur fólks í austurhlutanum er enn miklu verri en þess í vesturhlutanum og atvinnuleysi hálfu meira. Um- mæli Stoibers koma síðan ofan í yfirlýsingar kristilega demókratans Jörgs Schönbohns og innanríkisráðherra í Brandenburg í síðustu viku en þá sagði hann, að siðferði- legri upplausn á tíma kommúnismans væri um að kenna, að kona nokkur í austurhlutanum hefði drepið níu börn sín nýfædd. Reiddust margir Austur-Þjóðverjar þessum orðum og neyddist Merkel til að setja opinberlega ofan í við Schönbohn. Merkel í vanda vegna óvarlegra ummæla Edmund Stoiber telur, að „ergilega“ fólkið í austur- hlutanum hafi of mikið vægi í kosningum Reuters Edmund Stoiber og Angela Merkel er þau kynntu stefnuskrá kristilegu flokkanna í síðasta mánuði. Kosn- ingarnar verða 18. næsta mánaðar. ÞEGAR 10 ríki í Austur-Evrópu fengu aðild að Evrópusamband- inu var því spáð að yfir Vestur- Evrópu myndi skella sannkölluð flóðbylgja af ódýru vinnuafli. Af því hefur þó ekki orðið enn. Verkalýðsfélög í Danmörku höfðu áhyggjur af þessu en nú sýna tölur að frá því að ESB var opnað í austur 1. maí 2004 hafa að- eins 5.000 manns þaðan komið til að vinna í Danmörku. Eru þeir flestir í tvo til þrjá mánuði, eink- um á sumrin, þannig að heilsárs- störfin eru ekki miklu fleiri en 1.200. Flestir Austur-Evrópu- mannanna eru við byggingar- vinnu en við þá grein starfa um 160.000 manns í Danmörku. Hlut- fall gestanna er því vel innan við 1%. Kom þetta fram á fréttavef Berlingske Tidende í gær. Í júnílok og frá áramótum höfðu 223 útlendingar fengið atvinnu- leyfi í Danmörku. Flestir voru þeir frá Póllandi og síðan Litháen. Innrásin sem ekki varð af

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.