Morgunblaðið - 05.09.2005, Qupperneq 1
Stuðmenn í
Feneyjum
Diddú sló í gegn með gömlu
félögunum | Fólk
Fasteignir og Íþróttir í dag
Fasteignir | Íbúðir á efri hæðum við Suðurlandsbraut Borgin
óskar tilboða í Fríkirkjuveg 3 Íþróttir | Danir of stór biti í körfunni
Ísland - Króatía - Vonbrigði eftir fínan fyrri hálfleik
STOFNAÐ 1913 239. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Berlín. AFP. | Angela Merkel,
kanslaraefni kristilegra demókrata
(CDU) og systurflokks þeirra í
Bæjaralandi (CSU), þjarmaði að
Gerhard Schröder kanslara í gær-
kvöldi í einu kappræðum þeirra í
sjónvarpi fyrir kosningarnar í
Þýskalandi eftir hálfan mánuð.
Schröder reyndi að nota þetta
tækifæri til að snúa vörn í sókn
þar sem skoðanakannanir benda
til þess að þýski Jafnaðarmanna-
flokkurinn bíði ósigur í kosning-
unum.
Talið er að um 15 milljónir
manna hafi fylgst með kappræð-
unum. Skyndikannanir benda til
þess að meirihluti áhorfenda, eða
um 55%, telji að Schröder hafi
staðið sig betur.
Merkel virtist hins vegar sjálfs-
öruggari fyrir framan myndavél-
arnar en margir höfðu spáð og
hamraði á því að aðeins hægri-
flokkarnir gætu dregið úr atvinnu-
leysinu í Þýskalandi.
Sigri hægriflokkarnir í kosning-
unum verður Angela Merkel fyrsta
konan til að gegna kanslaraemb-
ættinu.
Reuters
Angela Merkel og Gerhard Schröd-
er í kappræðunum í gærkvöldi.
Merkel
þjarmaði að
Schröder
DRENGJUM sem þjást af lystar-
stoli fer fjölgandi en öll meðferð er
miðuð við stúlkur. Meginmunurinn á
drengjum og stúlkum með lystarstol
er að drengirnir eru ekki hræddir
við að fitna heldur einblína þeir á að
missa fitu til að verða sem stæltastir
og verða mjög uppteknir af vöðva-
byggingu.
Það vantar betri úrræði fyrir
drengi og það þarf að rannsaka bet-
ur ástæður sjúkdómsins hjá þeim og
meðhöndlun hans.
Þetta kom fram í máli Jean
Chambry, barnageðlæknis við át-
röskunardeild Fondation Valley-
spítalans í Frakklandi, sem hélt er-
indi hér á landi fyrir skömmu.
Lystarstol herjar á drengi seinna
en almennt gerist hjá stúlkum og eru
þeir yfirleitt á bilinu 16-19 ára þegar
sjúkdómurinn greinist.
Drengir
fá líka
lystarstol
Alvarlegt ef drengir | 14
ÁSA Björk Ólafsdóttir guðfræðingur
var sett inn í embætti annars prests
Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík í
gærkvöldi. Hún hafði hlotið prests-
vígslu í Dómkirkjunni fyrr í gær
ásamt guðfræðingunum Guðrúnu
Eggertsdóttur og Sjöfn Þór.
Eftir að Hjörtur Magni Jóhanns-
son, forstöðumaður og prestur safn-
aðarins, hafði sett séra Ásu Björk í
embætti hélt hún sína jóm-
frúrpredikun sem prestur safnaðar-
ins. Lagði hún út af rósinni sem tákn-
mynd lífsins. Eftir ræðuna hvarf séra
Ása Björk sjónum kirkjugesta.
Skömmu síðar brá ýmsum við-
stöddum þegar ómþýtt orgelspil
breyttist í dynjandi brúðarmars og
ekki var laust við að undrunarkliður
færi um kirkjuna. Þegar fólk leit um
öxl sá það nýja prestinn leiða brúð-
guma sinn, Óskar Þórisson, inn
kirkjugólfið. Voru þau síðan vígð í
hjónaband af Hirti Magna. Það er því
ekki ofmælt að það hafi verið marg-
heilagt í Fríkirkjunni í gærkvöldi.
Þetta er í fyrsta sinn sem tveir
prestar verða starfandi við Fríkirkj-
una í Reykjavík og Ása Björk er
fyrst kvenna fastráðin sem prestur
þar.
„Þetta var mjög sérstök reynsla og
óhefðbundin,“ sagði séra Hjörtur
Magni í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta var mjög í anda Ásu Bjarkar
og aldeilis líka Fríkirkjusafnaðarins.
Hvorki Ása Björk né Fríkirkjusöfn-
uðurinn eru vön að feta troðnar slóð-
ir.“
Í hempu og hjúskap í sömu svipan
Morgunblaðið/Ómar
Séra Ása Björk Ólafsdóttir lagði út af rósinni sem táknmynd lífsins og giftist svo Óskari Þórissyni.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
STJÓRN Bandaríkjanna þáði í gær
boð Sameinuðu þjóðanna um aðstoð
vegna fellibylsins Katrínar og flóða
við Mexíkóflóa fyrir viku. Stjórnin
óskaði einnig eftir hjálpargögnum
frá Evrópusambandinu og Atlants-
hafsbandalaginu (NATO).
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
sagði að hópur embættismanna sam-
takanna væri í Washington til að
ráðgast við bandaríska embættis-
menn um hvernig þau gætu aðstoð-
að.
Um 50 ríki hafa boðið Bandaríkj-
unum aðstoð við björgunarstarfið,
þeirra á meðal bandamenn í NATO á
borð við Bretland og Ísland en einnig
ríki sem hafa lengi átt í deilum við
bandarísk stjórnvöld, svo sem Kúba
og Venesúela.
Bandaríkjastjórn bað Evrópusam-
bandið um teppi, lyf, tankbíla til að
flytja drykkjarvatn og hálfa milljón
matarskammta. Framkvæmdastjórn
ESB sagði sambandið ætla að veita
alla þá aðstoð sem það gæti.
Talsmaður NATO sagði að banda-
lagið hefði verið beðið um matar-
skammta handa fólki sem missti
heimili sín í náttúruhamförunum.
Lokaleit í New Orleans
Bandarísk stjórnvöld sögðu að
borgin New Orleans væri nú á valdi
þjóðvarðliða, sex dögum eftir nátt-
úruhamfarirnar. Vopnaðir glæpa-
hópar höfðu farið ránshendi um
borgina og fregnir hermdu í gær-
kvöldi að þjóðvarðliðar hefðu skotið
fimm byssumenn til bana. Áður
munu byssumennirnir hafa skotið á
starfsmenn verktaka hersins.
Þjóðvarðliðar hófu lokaleit að fólki
í New Orleans og bjuggu sig undir að
fjarlægja lík af götunum.
Lokið var við að flytja tugi þús-
unda manna frá íþróttaleikvangi og
ráðstefnuhöll í New Orleans um
helgina í einhverjum mestu loftflutn-
ingum á flóttafólki í sögu Bandaríkj-
anna.
Stjórn Bush þiggur hjálp
Sameinuðu þjóðanna
Reuters
New Orleans-búar bíða eftir því að verða fluttir burt. Brottflutningi fólks úr borginni lauk að mestu um helgina.
Bandaríkin óska eftir hjálpargögnum frá Evrópusambandinu og NATO
LILJA Ólafsdóttir Hans, sem búsett
er í Gulfport í Mississippi í Banda-
ríkjunum og saknað hefur verið frá
því fellibylurinn Katrín gekk yfir
Louisiana og nálæg fylki, er óhult
og ómeidd. Þetta fékkst staðfest
seint í gærkvöld og var fjölskyldu
hennar á Íslandi gríðarlega létt.
Hús hennar slapp að mestu við
skemmdir en þar hafði hún haldið
sig allt frá hamförunum. Sam-
bandsleysi var hins vegar viðvar-
andi og því var allt í óvissu um af-
drif hennar. Fjölskyldu hennar
tókst að komast í samband við Hall-
dór Gunnarsson sem býr í nágrenn-
inu og fór hann heim til Lilju og
færði gleðifréttirnar til Íslands kl.
23 í gærkvöldi. Hún er vel birg af
vistum og kemst að líkindum í sam-
band við fjölskyldu sína eftir um
tvo daga.
Íslensk kona óhult heima hjá sér
Stórveldið vanmáttugt | 13
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is