Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 14
Átröskunarsjúkdómar leggjast á fólk af báðum kynjum.Þ að eru ekki til jafn- margar rannsóknir á át- röskunum drengja eins og á átröskunum stúlkna en við vitum að tilfellunum fer fjölgandi,“ segir Jean Chambry, barnageðlæknir við átröskunardeild Fondation Valley- spítalans í Frakklandi. Hann sér- hæfir sig í átröskun og lystarstoli (anorexia nervosa) og hefur sinnt 30 drengjum með lystarstol á deild sinni aðeins á síðustu tveimur ár- um, og oft á alvarlegu stigi. „Öll spítalameðferð er miðuð við stúlkur og því þurfa drengir að vera ansi langt leiddir til að það sé talið nauð- synlegt að leggja þá inn á deild þar sem kannski er aðeins að finna stúlkur. Það vantar betri meðferð- arúrræði fyrir drengi sem þjást af lystarstoli og það þarf að rannsaka betur ástæður sjúkdómsins og með- höndlun hans,“ segir Jean. Það reynist erfitt að rannsaka sjúkdóminn hjá drengjum þar sem þetta virðist vera sjaldgæfur sjúk- dómur meðal þeirra, þótt tilfellum fari fjölgandi. Þó er ástæða til að halda að fjöldi drengja sem greinast með lystarstol sé vanmetinn og til- fellin séu fleiri en komi á borð til lækna. Einblína á stæltan líkama Lystarstol herjar á drengi tölu- vert seinna en almennt gerist hjá stúlkum og eru þeir yfirleitt á aldr- inum 16–19 ára þegar sjúkdóm- urinn greinist. Rannsóknir þykja benda til þess að 1–3 ár líði frá upp- hafi sjúkdómsins þangað til hann greinist og einkennin eru að ein- hverju leyti frábrugðin þeim sem þekkjast hjá stúlkum sem þjást af lystarstoli. „Þeir sýna ákveðna áráttuhegðun gagnvart hreyfingu, mataræði og þyngd og hafa óraunsæja mynd af líkama sínum eins og stúlkur. Þeir geta fengið átköst og gripið til þess að kasta upp eftir máltíðir eða nota hægðalosandi lyf. Meginmunurinn er sá að drengir eru ekki hræddir við að fitna heldur einblína þeir á að missa fitu til að fá sem stæltastan líkama og verða mjög uppteknir af vöðvabyggingu. Ólíkt stúlkum verða þeir líka oft félagslega einangraðir. Einnig hefur hærra hlutfall þeirra átt við fituvandamál að stríða á yngri árum en er hjá stúlkum.“ Vilja vera karlmannlegri Jean segir ástæðurnar að baki því að ungt fólk þrói með sér sjúk- dóminn vera þær sömu hjá báðum kynjum. „Við erum að sjá að át- röskun er yfirleitt tengd lélegri sjálfsímynd. Ungar stúlkur með lystarstol eiga erfitt með að sætta sig við að þær séu að breytast í konur en drengir með lystarstol eru ósáttir við kvenlegar hliðar sínar og reyna því allt til að verða karlmann- legri. Rannsóknir virðast einnig sýna að ansi hátt hlutfall drengja með lystarstol sé í vafa um kyn- hneigð sína og fleiri karlmenn en konur með sjúkdóminn séu sam- kynhneigðir. Þó verður að taka það fram að þetta getur stafað af því að samkynhneigðir karlmenn sam- þykkja frekar meðferð við sjúkdóm- um sem eru tengdir við konur en gagnkynhneigðir og því vitum við frekar af þeim. Einnig er þekkt að samkynhneigðir menn séu frekar óánægðari með líkamsímynd sína en gagnkynhneigðir þó þetta geti verið að breytast.“ Sterk föðurímynd mikilvæg Spurningar hafa vaknað um hvort útlitsdýrkunin sem tröllríður þjóðfélaginu í formi óeðlilegar kröfu um fullkominn líkama geti haft sitt að segja í þessari þróun. „Það á án vafa sinn þátt í því að við erum að sjá fleiri karlmenn sem eru upp- teknari af útliti sínu og leiðast út í svona alvarlegan sjúkdóm,“ segir Jean. Fjölskyldan getur líkað spilað þar inn í. „Í flestum tilfellum þar sem drengir fá lystarstol hafa þeir ekki alist upp við sterka föð- urímynd. Faðirinn á oft við vanda- mál að stríða, svo sem alkóhólisma, eða er jafnvel ekki til staðar. Einnig er nokkuð um aðskilnað frá nánum fjölskyldumeðlimum hjá þessum hóp og unglingar sem eiga óörugga foreldra geta verið í hættu, en þetta þyrfti að rannsaka betur,“ segir Jean. Afleiðingar lystarstols geta verið mjög alvarlegar og jafnvel leitt til dauða. „Það er mikilvægt að við- urkenna að þessi sjúkdómur er til hjá karlmönnum svo þeir geti leitað sér hjálpar áður er það er orðið of seint.“  ÁTRÖSKUN | Drengjum og ungum mönnum sem þjást af lystarstoli fer fjölgandi Alvarlegt ef dreng- ir eru of uppteknir af vöðvamassa Morgunblaðið/Golli Mikið hefur verið fjallað um lystarstol hjá stúlkum. Færri vita að lystarstol er einnig til hjá drengjum og fjöldi tilfella hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin ár. Sara M. Kolka hlýddi á hvað talið er valda því að drengir og ungir menn eigi í auknum mæli við átraskanir að stríða. sara@mbl.is 14 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | HEILSA Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 Birkiaska Það þarf líka að ganga með börnunum sem byrjuðu í skól- anum í fyrra, því yfir sumarmán- uðina hafa þau að mestu gleymt öllu sem snýr að umferðarreglum. Aðkoma að skólum Margir foreldrar vilja ekki láta barnið sitt ganga í skólann af því að þeir eru hræddir um að ekið verði á barnið vegna þess hversu mikil umferð er við skólann. Síðasta vetur fylgdist ég með umferð fyrir utan grunnskóla að morgni. Orð fá því varla lýst að hverju ég varð vitni. Þarna komu nánast allir akandi með börnin og á síðustu tíu mínútunum áður en skólinn byrjaði. Þau fáu börn sem komu gangandi áttu fótum sínum fjör að launa þar sem þau stukku þvers og kruss yfir göturnar í kringum skólann. Sumir foreldrar nenntu ekki að aka inn að lóðinni þar sem aðkeyrsla er fyrir bíla svo hægt sé að hleypa börnunum út á öruggan hátt. Og margir þeirra sem þó notuðu innkeyrsluna gerðu það ekki rétt, þ.e. þeir stöðvuðu bílinn um leið og þeir komu inn í aðkeyrsluna – og komu þannig í veg fyrir að nokkrir aðrir kæmust S trax í byrjun skólagöngu er mikilvægt að huga að öryggi barnsins á leið í skólann. Athuga þarf á hvaða hátt barnið ferðast í skólann. Ef barnið býr í næsta nágrenni skólans og þarf ekki að fara yfir hættulegar um- ferðargötur þá ætti það að ganga í skólann. Sé barninu ekið þarf að ýmsu að huga, s.s. öryggi barnsins í bílnum og fleiru. Endurskinsmerki Því miður nota afar fá börn og fullorðnir endurskinsmerki hér á landi. Þau eru hinsvegar lífs- nauðsynleg slysavörn þar sem skammdegið hér er mikið. Auðveldast er að fá endurskins- merki í lyfjaverslunum en ein- staka stórmarkaðir selja þau líka. Velja á merki sem hægt er að líma eða sauma á fatnað – þau sem fest eru með öryggisnælum duga skammt þegar börn eru annars vegar. Endurskinsborðar virka vel en reynslan sýnir að með tímanum hætta flest börn að nota þá ef ekki er sífellt verið að minna þau á þá, heima og í skólanum. Gönguleið í skólann Mjög mikilvægt er að yngstu börnunum sé fylgt í skólann fyrstu dagana eða alveg þangað til barnið er öruggt við að ganga þangað sjálft og sýnir að það kann og veit hvernig það á að komast í skólann á öruggan hátt. Mikilvægt er að stysta og öruggasta leiðin sé valin. þar inn – í stað þess að aka fremst svo rými væri fyrir fleiri bíla. Við þetta myndaðist bílaröð langt út á akbrautina fyrir framan skólann. Þeir sem þar voru urðu mjög stressaðir vegna tímaskorts og hleyptu börnunum út úr bílunum úti á miðri götu en þar voru fyrir aðrir foreldrar að gefa í því þeir voru að verða of seinir í vinnuna. Og allt gerðist þetta í kolniða- myrkri. Þarna eru foreldrar búnir að skapa vítahring hættuástands við skólana og það eru þeir einir sem geta leyst hann upp. Er barnið öruggt í bílnum? Þennan sama morgun var líka ýmislegt að sjá sem athugavert var varðandi búnaðinn á börn- unum í bílum. Stór hluti barnanna sat í fram- sæti bílanna en þar eiga börn alls ekki að sitja nema að þau séu orð- in 150 cm á hæð. Í nánast öllum nýjum og nýlegum bílum er ör- yggispúði farþegamegin í mæla- borði. Lendi bíllinn í árekstri springur púðinn út og hann getur banað barninu sem situr fyrir framan hann. Foreldrar átta sig örugglega ekki allir á þessu og halda að þetta eigi bara við um yngri börn. Til að barn geti byrjað að nota eingöngu bílbeltið til að vera öruggt í bíl þarf það að vera orðið 36 kíló. Bílbelti eru hönnuð fyrir fullorðið fólk og noti barn sem er undir 36 kílóum beltið þá getur það stórslasast. Barnið á að vera á bílpúða eða bílpúða með baki. Þennan morgun sá ég því miður ekki eitt einasta barn í slíkum búnaði, eins og fyrr segir sátu þau flest í framsæti bíls, andspænis öryggispúða og í venjulegu bíl- belti. Rannsóknir hafa sýnt það, aftur og aftur, hversu alvarlega börn geta slasast í árekstri ef þau eru í röngum búnaði. Erfitt getur verið fyrir eitt og eitt foreldri að fá sitt barn til að nota réttan bún- að miðað við stærð ef það sér að hin börnin gera það ekki. En for- eldrar í bekknum geta t.d. tekið sig saman um að allir noti réttan öryggisbúnað í bílnum. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Mjög mikilvægt er að yngstu börnunum sé fylgt í skólann fyrstu dagana.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð Hættu- ástand í kolniða- myrkri Herdís L. Storgaard, verkefnastjóri barnaslysavarna Árvekni, Lýðheilsustöð. herdis@lydheilsustod.is www.lydheilsustod.is Þessi einkenni geta komið fram hjá drengjum sem eru með lystarstol  sýna áráttuhugsun gagnvart mataræði, uppbyggingu vöðvamassa og þyngd  stunda óhóflega líkamsrækt  ljúga til um hvað þeir borða  vigta sig mjög oft  kasta upp eða nota hægða- losandi lyf  hafa ekki rétta sjálfsmynd, þ.e. finnst þeir feitari en þeir eru  einangra sig félagslega eru haldnir fullkomnunaráráttu  sumir geta verið í vafa um kynhneigð sína Drengir með lystarstol

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.