Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.09.2005, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. DÆLUR FYRIR FISKELDI Sími 568 6625 ÍSLENSKIR fjárfestar eiga nú í viðræðum um kaup á stórri, danskri raftækjaverslanakeðju, Merlin, sem rekur um fimmtíu verslanir víðs vegar um Danmörku og veltir á annan tug milljarða ís- lenskra króna á ári. Í Merlin-verslununum eru m.a. seld sjónvörp, útvörp, tölvur, hugbúnaður, mynda- vélar og ljósmyndavörur. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins í Dan- mörku hefur eigandi Merlin-keðjunnar, FDP, átt í samningaviðræðum við íslenska fjárfestingafélagið Árdegi um hugsanlega yfirtöku þess á Merlin-keðj- unni og má reikna með niðurstöðu úr þeim við- ræðum innan tíðar. Árdegi, sem fer fyrir íslensku fjárfestunum, er í eigu Sverris Bergs Steinarssonar og eiginkonu hans, en Árdegi á stóran hlut í Degi Group (sem m.a. rekur Skífuna og BT). Sverrir og Róbert Mel- ax keyptu Skífuna sumarið 2004. Nú í ágúst lét Sverrir af störfum sem forstjóri Dags Group og hefur í samvinnu við félagið unnið að fjárfesting- arverkefnum erlendis að undanförnu. Ekki fæst uppgefið hverjir mynda íslenska fjárfestahópinn og Sverrir vildi í samtali við Morgunblaðið heldur ekki tjá sig mikið um hugsanleg kaup á Merlin-keðjunni en staðfesti þó að viðræður hefðu átt sér stað. „Ár- degi hefur verið að skoða þarna möguleika og raun- ar í nokkurn tíma og það gæti verið eitthvað í far- vatninu,“ segir Sverrir. Tapaði 1,3 milljörðum 2002–2004 Eigandi Merlin, FDP, er risi í dönsku viðskipta- lífi og meðal eigna FDP er 38% hlutur í Coop Nord- en, sem m.a. rekur verslanakeðjur undir nafni Coop, Brugsen, Kvickly, Irma og Fakta í Dan- mörku, Noregi og Svíþjóð. Merlin var stofnað árið 1926 í Óðinsvéum en FDP eignaðist allt hlutafé fé- lagsins árið 1992 og var mikill fjöldi nýrra Merlin- verslana opnaður næstu árin á eftir. Rekstur Merl- in hefur hins vegar gengið illa hin síðari ár og sam- anlagt tap áranna 2002, 2003 og 2004 nam um 130 milljónum danskra króna eða liðlega 1,3 milljörð- um íslenskra króna. FDP hefur um hríð gefið til kynna að Merlin-keðjan væri til sölu. Íslendingar í viðræðum um kaup á danskri verslanakeðju Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is GRUNUR leikur á íkveikju á tveimur stöðum í Reykjavík aðfaranótt sunnudags og snemma á sunnudagsmorguninn. Málin eru í rannsókn hjá lögreglunni og er ekki talið útilokað að sami brennuvargurinn hafi verið að verki í bæði skiptin. Þriðji bruninn varð síðan klukkan 18 í gær í miðbænum og er einnig til rann- sóknar hjá lögreglu. Fyrsti bruninn varð kl. hálffimm að morgni sunnudags við Melabúðina og sá næsti þremur klukkustundum síðar, í iðnaðarhúsnæði við Fiskislóð 45 þar sem brotist hafði verið inn. Ekki var þó brotist inn í Melabúðina. Að sögn lögreglu hefur enginn verið handtekinn vegna þessara mála en rannsókn stendur yfir. Melabúðin slapp við skemmdir en geymsla sviðnaði Eldurinn í Melabúðinni kom upp í steyptri kassageymslu sem samtengd er versluninni. Engar skemmdir urðu á búðinni sjálfri en geymslan, sem ekki er innangengt í úr versl- uninni, sviðnaði nokkuð. Bruninn sló verslunar- menn ekki út af laginu og hugðust þeir opna á hádegi eins og aðra sunnudaga. Þegar tilkynnt var um eldinn í iðnaðarhúsinu við Fiskislóð kl. 7:30 var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út. Mikinn og dökkan reyk lagði frá húsinu en þegar nánar var að gáð kom í ljós að eldurinn logaði í bif- reið inni í húsinu. Slökkviliði tókst fljótt að slökkva eldinn. Eldur utandyra við Klapparstíg Í litlu timburhúsi við Klapparstíginn þar sem veitingastaðurinn Sirkus er kom eldurinn upp undir kvöld og var slökkviliðið enn kallað út. Slökkviliðsvarðstjóri sagði að svo virtist sem eldurinn hefði kviknað fyrir utan húsið, við eitt horn þess, og síðan borist inn í klæðningu. Slökkviliðsmenn þurftu að rífa klæðningu utan af veggnum og hluta af þakinu til að ganga úr skugga um að ekki leyndist þar glóð en ekki urðu miklar skemmdir vegna eldsins. Lögregl- an rannsakar eldsupptök. Morgunblaðið/Júlíus Við Fiskislóð kom í ljós að eldur logaði í bíl innandyra og var eldurinn fljótlega slökktur. Grunur um íkveikju á tveim stöðum HLJÓMSKÁLAGARÐURINN hefur drabbast niður Bjarkargötumegin, „og er nú með sóðalegri reitum í miðbæ Reykjavíkur“ að mati Sig- ríðar Dúnu Kristmundsdóttur pró- fessors og íbúa við Bjarkargötu. Sigríður gerir alvarlegar at- hugasemdir við stefnu borgaryf- irvalda varðandi umhirðu garðsins í grein sem birt er í Morgunblaðinu í dag og segir m.a. að illgresi og rusl hafi tekið völdin. Henni þykir tillaga Dags B. Eggertssonar um kaffihús í garðinum „til að hleypa lífi í hann“ merkileg því „Reykja- víkurlistinn hefur drepið lífið í þessum garði með umgengni sinni við hann,“ skrifar Sigríður Dúna m.a. í grein sinni. | Miðopna „Með sóða- legri reitum í miðbæ Reykjavíkur“ MIKIL eftirspurn er nú eftir lambakjöti og er kjötið bókstaf- lega rifið út úr sláturhúsunum jafnóðum og það er tilbúið. Hafa sum sláturhús gripið til þess ráðs að staðgreiða bændum kjötið í því skyni að fá lömbin fyrr í hús. „Það gengur illa hjá okkur að fá fé til slátrunar í komandi viku,“ segir Ágúst Andrésson, slátur- hússtjóri hjá Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga, en þar hefur verið sérstaklega mikil eft- irspurn eftir nýju lambakjöti. „Gróður var seinn til og bændur eru rólegir með að hafa féð á út- högum ennþá. Svo er birgðastað- an þannig að allar birgðir af lambakjöti eru uppseldar, sem er óvenjulegt.“ Álag á útgefin verð Ágúst segir menn nyrðra vera afar ánægða með þessa miklu eft- irspurn og vona að hún haldist. „Við vonum líka að bændur taki vel við sér og komi með fé til slátr- unar til að anna henni,“ segir Ágúst. „Í því skyni greiðum við innlegg næstu tveggja vikna í sláturviku og jafnframt erum við með 10% álag ofan á útgefin verð í þessari viku sem nú er að koma og 6% álag í næstu viku. Þannig að bændur hafa allt að vinna með því að koma með féð til slátrunar.“ Sigurður Jóhannesson, formað- ur Landssamtaka sláturleyfis- hafa, segir margar samverkandi ástæður vera fyrir mikilli eftir- spurn eftir lambakjöti. „Undan- farið hefur verðþróun á öðrum kjöttegundum stuðlað að batn- andi samkeppnisstöðu lamba- kjötsins,“ segir Sigurður. „Þá höf- um við verið að vinna að því að ná til stækkandi markhópa.“ Sigurður segir að lögð hafi ver- ið áhersla á að gera lambakjötið aðgengilegra fyrir þennan hóp neytenda. Þannig hafi sölu á heil- um og hálfum skrokkum að mestu verið hætt. „Nú er lögð meiri áhersla á að þetta sé matarinn- kaupavænt og auðvelt beint í eldamennskuna.“ Aðspurður hvort vöruþróunin hafi skilað sér í hækkandi fram- legð á afurðunum segir Sigurður það rétt til getið. „Það er hluti af dæminu, enda er nauðsynlegt að bæta afkomuna í greininni,“ segir Sigurður. „Vöruþróun og mark- aðsstarf skila alltaf árangri og það er greinilegt að það hafa verið stigin rétt skref. En til þess að af- koma sauðfjárbænda verði viðun- andi þarf lambakjötið að hækka eitthvað ennþá.“ Mikil eftirspurn eftir lambakjöti frá sláturhúsum og birgðir seljast upp Bændum boðin staðgreiðsla til að fá lömbin fyrr í hús Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is RÚMLEGA 10 þúsund kindur komu til réttar í Auðkúlurétt í Svínavatnshreppi um helgina en þessar réttir eru með fjárflestu réttum landsins. Réttarstörf gengu vel í blíðskap- arveðri. Er það mál manna að dilkar séu holdmeiri en í fyrra og í framför. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Holdugir dilkar í Auðkúlurétt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.